Morgunblaðið - 08.10.1977, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1977
33
fclk í
fréttum
+ Það virðist ekki tekið út með sæld-
inni að gegna hinu eftirsðtta embætti
forseta Bandaríkjanna. Myndin til
vinstri af Jammy Carter Bandaríkjafor-
seta er tekin um það bil er hann tók við
embætti í fyrra. Hin myndin er tekin
nýlega eða ári seinna. Þetta eina ár
hefur, ef dæma má af myndinni markað
spor sín á Carter. Jimmy Carter varð 53
ára 1. október s.I. Blaðamaður spurði
forsetann í tilefni af afmælinu hvort
honilm fyndist sjálfum að hann hefði
elst mikið. „Sennilega um þrjú ár“,
svaraðiforsetinn.
+ Taryn Power, 23 ára gömul dóttir
Lindu Christian og hins látna leikara
Tyrone Power, hefur erft bæði útlit
og hæfileika foreldra sinna i nógu
rikum mæli til að geta orSið kvik-
myndastjarna Hún er nú að leika i
fímmtu kvikmynd sinni, ásamt syni
John Wayne, Patrick. „Ég er fulltrúi
fjórðu kynslóðarinnar í leikarafjöl-
skyldunni okkar," segir Taryn," því
bæði afi minn og langafi i föðurætt
voru leikarar og léku á Irlandi og i
Ameriku. Þegar ég fékk fyrsta hlut-
verk mitt i myndinni „Greifinn af
Monte Cristo" vissi framleiðandinn
ekki hverjir foreldrar minir voru. svo
það var ekki þeirra vegna sem ég
fékk hlutverkið."
Cat Stevens afhendir Henry Labouisse framkvæmdastjóra Barna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna gjöfina.
Cat Stevens gaf 10
millj. kr. til UNICEF
+ I lok ágúst s.l. færði söngvarinn Cat Stevens Barnahjálp Samein-
uðu þjóðanna veglega peningagjöf að upphæð tæplega 10 milljónir
Islenskra króna. Peningana gaf söngvarinn til stuðnings endurreisn
Guatemala eftir jarðskjálftana þar í febrúar á sfðasta ári, þar sem
25 þúsund manns biðu bana og þúsundir manna særðust alvarlega.
Hann ætlar einnig hluta af gjöfinni til berklavarna barna og
heilsugæzlu. *
Þetta er 1 þriðja sinn sem Cat Stevens færir barnahjálpinni
peningagjöf, en hann hefur nú gefið til hennar um 250 þúsund $
+ Hér má sjá James
Hunt kappaksturshetj-
una frægu óska Niki
Lauda til hamingju með
kampavínsbaði eftir að sá
síðarnefndi hafði endur-
heimt heimsmeistaratitil-
inn í kappakstri 2. okt. sl.
Á milli þeirra er Victoria
Johnson sem ber titilinn
Penthouse-stúlka ársins
1977.
Butler-keppni stendur yfir hjá Bridgefélagi Reykjavíkur. Margir
af spilurunum sem á myndinni sjást eru þar í toppbaráttunni en
mikið vatn á eftir að renna til sjávar áður en keppninni lýkur og
eiga þeir eflaust við ramman reip að draga ef þeir ætla að halda
efstu sætunum.
Bridgefélag
Reykjavíkur.
Butler-keppnin er hafin hjá
félaginu og verður hún í 4
kvöld alls. Spilað er i þremur 16
para riðlum, alls 48 pör. Tvö
efstu pörin i hverjum riðli
keppa til úrslita að keppninni
lokinni.
Mjög mörg pör óskuðu eftir
að taka þátt i keppninni og varð
þvi miður að visa fjölda fólks
frá þar sem keppnin var skipu-
lögð fyrir 48 pör.
Staða var skipulögð i riðl-
unum:
A-riðill:
Guðmundur Pétursson —
Þorfinnur Karlsson 73
Bragi Erlendsson —
Rikarður Steinbergsson 70
Guðmundur Hermannsson —
Sævar Þorbjörnsson 68
Ragnar Halldórsson —
Þráinn Finnbogason 67
B-riðill:
Jóhann Jónsson —
Stefán Guðjohnsen 78
Guðmundur P. Arnarsson —
örn Guðmundsson 73
Hörður Arnþórsson —
Þórarinn Sigþórsson 71
Jón Ásbjörnsson —
Simon Simonarson 71
C-riðill:
Jón G. Pálsson —
Bjarni Sveinsson 84
Helgi Jónsson —
Helgi Sigurðsson 80
Jakob Ármannsson —
Páll Bergsson 70
Sigfús Þórðarson —
Vilhjálmur Pálsson 60
Meðalárangur 52.
Næst verður spilað á þriðju-
daginn kemur. Keppnin hefst
stundvís lega klukkan 20.
Keppnisstjóri er Páll Hjalta-
son.
Bridgefélag
Akureyrar.
Árleg bæjarkeppni i bridge
milli Siglfirðinga og Akureyr-
inga var háð sl. iaugardag og
sunnudag. Spilað var eftir
Boarda-match keppnisformi
þ.e. sveita- og tvímennings-
keppni í senn. 4 sveitir spiluðu
fyrir hvort bæjárfélag.
Urslit uróu þau að Akureyr-
ingar sigruðu með 556 stigum
gegn 340 stigum Sigifirðinga.
Stig féllu þannig á sveitir:
Sveit Arnar Einarss. AK 155
Sveit Alfreðs Pálss. AK 142
Brldge
Umsjón ARNÓR
RAGNARSSON
Sveit Ævars Karlss. AK 132
Sveit Ingimundar Árnas.
AK 127
Sveit Boga Sigurbjörnss. SF 112
Sveit Björns Þórðars. SF 110
Sveit Páls Pálss. SF 66
Sveit Björns Ölafss. í r' 52
Keppnisstjóri var Albert
Sigurðsson.
Sl. þriðjudag hófst svo
þriggja kvölda tvímennings-
keppni hjá Bridgefélagi Akur-
eyrar. Spilað var í tveimur 14
para riðlum.
Staða efstu para:
Jóhann Helgason —
Ármann Helgason 198
Júlíus Thorarensen —
Ingimundur Árhason 188
Stefán Vilhjálmsson —
Guðmundur Viðir
Gunnlaugsson 184
Meðalárangur 156.
Önnur umferð verður spiluð
á þriðjudaginn.
Barðstrendinga-
félagið í Reykjavík.
Atta efstu í fyrstu umferð af
5 kvölda tvímenningi:
Ragnar—Eggert ........ 247
Viðar—Haukur ......... 242
Haukur—Þórður ........ 240
Þórarinn—Finnbogi .... 229
Sigurður—Hermann ..... 223
Birgir—Viðar ......... 216
Einar—Kristinn ....... 216
Guðmundur—Benedikt ....213
Bridgefélag
Breiðholts.
Þegar tveimur umferðum af
þremur er lokið í hausttvi
menningi félagsins er staða
efstu manna orðin mjög tvísýn.
Röð þriggja efstu paranna:
Eiður Guðjohnsen —
Kristinn Helgason 369
Guðlaugur Karlsson —
Öskar Þráinsson 368
Guðlaugur Nielsen —
Tryggvi Gislason 365
Meðalskor 312
Siðasta umferðin verður spil
uð á þriðjudaginn. Spilað er í
húsi Kjöts og fisks i' Selja
hverfi.
896 milljón-
ir Kínverja
U ashinglon. I. okl. Reuter.
ÍBÚAFJÖLDI Kína er talinn vera
896 milljónir manna og gæti kom-
ist upp í milljarð árið 1986, að því
er segir i skýrslu unt íbúafjölda
ýmissa landa heims er lögð var
fram í dag.
Kínverska stjórnin hefur hins
vegar aldrei lagt fram neinar
manntalstölur. Engum vafa mun
undirorpið að Kína er fjölmenn-
asta land heims. Indland mun
koma næst- með um 550 milljón
manns.