Morgunblaðið - 12.10.1977, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.10.1977, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR 225. tbl. 64. árg. MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Tveir Tékkar rændu flugvél Kandaríska orkumálaráðuneytið hefur alveg nýverið leyft að birta þessa mynd sem tekin var af „kjarnorkuslysi" sem átti sér stað á tilraunastað í Nevadaeyðimörkinni fyrir tæpum sjö árum. Geisla- virkt rykský sté þá um það bil t(u þúsund fet í loft upp og barst sfðan til norðausturs. Utanríkisráðherra Portú- gals sagði af sér í gær Frankfurt ll.ukt. Heuter. UNGIIR tékkneskur maður og ung kona rændu í dag tékkneskri farþegavél af gerðinni YAK-40 í innanlandsflugi og nevddu flug- stjórann til að hakla til V'estur- Þýzkalands. Þar gáfust flugræn- ingjarnir upp og gengu lögregl- unni á hönd. Unga fólkið vinnur hjá tékkneská flugfélaginu ESA. Þau miðuðu byssum að áhöfn og farþegum til að knýja fram vilja sinn. Þegar vélin lenti á flugvellinum i Frankfurt slógu lögreglumenn hring um vélina, en ræningjarnir veittu enga mótspyrnu og munu hafa beðiö um pólitfskt hæli í Vestur-Þýzkalandi. Með vélinni voru 24 farþegar og þriggja manna áhöfn og var vélin á leið frá Karlovy Vary. Bretland: íhalds- menn þinga Blackpool, Englandi 11. okt. — Reuter. FLOKKSÞING brezka Ihalds- flokksins hófst í Blaekpool i dag og mun leggja áherzlu á að sann- færa kjósendur um færni sína til að eiga samskipti við verklýðs- félögin ef flokkurinn ynni næstu kosningar. Umræður um stöðu iðnaðar og almennt samstarf við forystumenn hans voru meðal þess sem rætt var í dag. Þá fjall- aði James Prior, sem er talsmaóur flokksins í atvinnumálum, um af- stöðu Ihaldsflokksins til þess hvaða þýðingu og hlutverk verk- lýðsfélög ættu að hafa í Bretlandi. Api náðaður á 11. stundu Bogota, 11. okt. Reuter. SERSKII’AÐUR réttur dæmdi í dag frægasta apa Colombíu til lífláts en hann var náðaður á ell- eftu stundu. Apinn réðst á aldur- hnigna konu á laugardaginn og veitti henni svo alvarlega áverka, að hún léz.t af sárum sínum. Ap- inn hét Mareo Polo og var vinsæl Framhald á bls. 19. Stokkhólmi — 10. október — Reuter TVEIR Bandaríkjamenn og Breti fengu Nóbelsverðlaunin í eðlis- fræði í ár. Verðlaunin voru veitt fyrir frumkvæði að ýmsum helztu framförum á sviði rafeindafræði á þessari öld. Belgískur vfsindamaður af rússneskum ættum fékk efna- fræðiverðlaun Nóbels að þessu sinni, en þau voru veitt fyrir að færa varmafræöi af sviði gufu- afisins, en lengi framan al' tak- I fréttum frá Bonn sagði að við því væri búizt að fólkið yrði leitt fyrir rétt i Vestur-Þýzkalandi en ekki framselt til Tékkóslóvakíu. Fram til þessa hefur vestur-þýzka stjórnin neitað að framselja tékk- neska flugvélaræningja, enda engin slíkur samningur í gildi milli landanna. Þetta er i sjötta sinn síðan 1970 að tékkneskum vélum er rænt og þeim snúið til Vestur-Þýzkalands. Leynd hvllir yfir hvarfi frú Titos Belgrad 11. okt. Reuter. OPINBER talsmaður Titos Júgóslavíuforseta iét í dag í sér heyra i fyrsta sinn varðandi sögusagnir um hvers vegna Jovanka Broz Tito hefur ekki sézt á almannafæri svo mánuð- um skiptir. Sagói talsmaðurinn að frúin væri heil heilsu og dveldi á heimili forsetahjón- anna i Belgrad. Aftur á móti neitaði hann að skýra frá því hvers vegna Jovanka Broz tók Jovanka Tito. ékki á móti eiginmanni sínum þegar hann kom frá Kína og Sovétríkjunum i siðasta mán- uði. A morgún, miðvikudag, fer Tito i opinbera heimsókn til Frakklands, Portúgals og Alsirs og segja heimildir í Bel- grad, að frúin verði ekki held- ur i för með honum. Talsmaðurinn sagði um það: Framhald á bls. 19. markaðist varmafræði við gufu- aflið eitt. Eðlisfræðikenningar Banda- rikjamannanna Philips Ander- sons og Johns van Vleck, ásamt Sir Nevill Mott, hafa mjög stuðlað að þróun á sviði tölvutækni, og hafa meðal annars flýtt mjög fyr- ir þvi að svo algeng tæki sem vasatölvur og nýtizku útvarps- tæki hafa orðið almenningseign. á hafa visindarannsóknir eðlis- fræðinganna einnig stuðlað mjög Lissabon 11. okt. Reuter. JOSE Medeiros Ferreira, utan- ríkisráðherra Portúgals, sagði af sér embætti síðdegis í dag, eftir að upp kom ágreiningur innan ríkisstjórnar Mario Soares um af- stöðu til utanríkismála að því er heimildir sem standa na>rri ráð- herranum skýrðu frá. Kom tilkynning um málið mjög á óvart, en þar sagði aö Mario Soares myndi gegna starfinu sjálfur um ótiltekinn tima. Ferr- eira hefur sjálfur ekkert látið hafa eftir sér um málið. Heimildir Reuterfréttastofunn- ar sögðu að meðal þess sem Ferr- eira hefði ekki sætt sig við hefði verið hvenær var ákveðið að taka upp stjórnmálasamband við Israel í mai sl. Var litið á það sem að framförum í virkjun sólarork- unnar. Ilya Prigogine, sem er prófess- or i efnafræði við Fee-háskólann í Briissel, hefur um árabil unnið að varmafræðirannsóknum og hafa þær meðal annars leitt af sér að nú er fyrirsjáanlegt að unnt verði að nýta gufuaflið til rannsókna á flóknum lífrænum viðfangsefn- um, til dæmis á sviði læknisfræði. Prófessor Prigogine er sextugur, fæddur i Moskvu. Framhald á bls. 19. virðingarvott sósíalistaríkis- stjórnar við aðra slika. Eftir að Rabin hafði síðan beðið ósigur varð þetta til að vekja upp nokkra Morðákæran lögð fram gegn Bhutto Lahore, Pakistan. 1 1 okt Reuter RÉTTARHÖLD voru sett í kvöld yfir Zulifikar Ali Bhutto. fyrrv forstæis- ráðherra Pakistans. og hljóðar ákæran upp á morð Hann kvaðst saklaus af ákærunni Um svipað leyti og réttur var settur yfir Bhutto komu nokkrir tugir stuðnings- manna hans saman skammt frá og kröfðust þess að Bhutto yrði látinn laus Eins og fram hefur komið áður er Bhutto sakaður um að hafa fyrirskipað dráp á pólitiskum and- stæðingi fyrir þremur árum Fjórir samstarfsmenn Bhuttos eru og ákærðir fyrir aðild að manndrápinu Fari svo að sakborningar verði fundnir sekir gætu þeir átt yfir höfði sér ævilangt fangelsi og jafnvel liflát Bhutto Belgrad-ráðstefnan: Sovétmenn og Tékkar gagnrýndir BHj'rad 11. okl. Heufer. JOYCE Hughes. bandarískur full- trúi á Belgradráðstefnunni. gerði í ræðu í dag hríð aö Sovétinönn- um og Tékkóslóvökum fyrir að rjúfa samþykktar meginreglur Helsinki-samningsins varðandi frjáls bréfa- og tjáskipti. Eru Sovétríkin og Tékkóslóvakía fyrstu kommúnistaríkin sem eru nefnd sérstaklega fyrir áþreifan- leg ólík brot á þeim sex dögum sem eru liðnir síðan ráðstefnan hófst. Hughes flutti ræðu sína á lok- uðum fundi, en ræðu hennar var síðan dreift. Hún sagði blaða- mönnum að einvörðungu hefði verið tilnefnd Sovétríkin og Tékkóslóvakíu, þar sem skjalfest vitneskja um slík brot væri ekki um önnur kommúnistaríki. Fulltrúar Austurríkis, Belgíu, Sviþjóðar og Irlands hvöttu í ræð- um sínum til að meiri virðing væri sýnd almennum mannrétt- indum. Aftur á móti héldu ræðu- menn frá kommúnistaríkjum sig I meginatriðum við það að fjaiia Framhald á bls. 19. ólgu i Portúgal og viðar. Ferreira greiddi atkvæði gegn ákvörðun þessari á rikisstjórnarfundi um málið en sætti sig siðan við niðurstöðu meirihlutans. Hann vildi að ákvöróun ytði frestað þar til eftir Genfarráðstefnuna um frið I Miðausturiöndum. Afsögn hans fylgir í kjölfar heimsóknar hans á þing Samein- uóu þjóðanna, sem er sögð hafa heppnazt mjög vel. Þar ræddi hann meðal annars við marga Arabaleiðtoga sem gramir voru vegna afstöðu Portúgals til ís- raels. Framhald á bls. 19. Iðnrekend- ur skora á Schmidt Bonn 11. okl. Huutor. V-ÞÝZKIR iðnrekendurskoruðu i dag á Helmut Schmidt, kanzlara, að gera það sem í hans valdi stæði tii aó bjalga Hans Martin Schleyer, form. Vinnuveitenda- sambands landsins. Talsmaður rikisstjórnarinnar sagði, að sendi- nefnd iðnrekenda hefði setið á fundi með Schmidt í tvær klukku- stundir varðandi málið. Fundur- inn sat einnig Hans Jurgen Wischnewski, utanrikisráðherra, sem hefur farið til nokkurra Arabalanda. að því er virðist til að reyna að fá svar við þvi, hvort þau væru fús til að leyfa borgarskæru- liðunum, sem rændu Sehleyer. að fá þar hæli. Nóbelsverðlaunin veitt í eðlis- og efnafræði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.