Morgunblaðið - 15.10.1977, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1977
LÍTIÐ EITT UM
BLÓMLAUKA II
Páska- og hvítasunnuliljur
eru jafnan ofarlega á blaði
hjá þeim sem rækta ætla
blómlauka, enda eru það
fagrar og tilkomumiklar jurt-
ir, harðgerðar og meðfærileg-
ar á allan hátt. Laukarnir
skipta sér fljótlega, fjölgar ört
og mynda stóra og stæðilega
brúska á tiltölulega skömm-
um tima. Fjölbreytnin er mik-
il bæði hvað stærð, lit,
blómgunartima og ekki þó
sist hvað lögun snertir. Til
þess að geta vænst góðs
árangurs er vissast að leggja
páska- og hvítasunnulilju-
laukana eins fljótt og auðið
er og helst ekki síðar en um
miðjan október því fái þeir
við húsveggi, hlýjan frá þeim
getur orðið til þess að þeir
byrji að vaxa óþarflega fljótt
og blómunum þar með hætta
búin i vorhretum.
Túlipanar eru allra lauk-
jurta þekktastir og vinsælast-
ir. Ræktun þeirra og kynbæt-
ur hafa þróast jafnt og þétt
gegnum aldirnar og nú er
svo komið að fjölbreytni.
þeirra eru lítil takmörk sett
með liti, lögun, stærð,
blómgunartíma og hvaðeina
annað sem þeim viðkemur.
Eins og áður var vikið að
eru fjölmargar tegundir túlí-
pana til sölu í blómaverzlun-
um um þessar mundir og
margar hverjar freistandi og
Fylltir túlipanar eru að jafnaði 30 sm. á hæð. Litir
margvislegir.
ekki nægan tíma til þess að
búa vel um sig í moldinni og
mynda rætur áður en frost
koma að ráði getur verið
hætta á að þeir rotni og þá
verður líklega ekki mikið úr
blómgun.
Öðru máli er að gegna t.d.
með ýmsa túlípana sem geta
blómstrað ágætiega þótt þeir
komist ekki í mold fyrr en
seint og síðar meir. Heyrst
hefur að gaddfreðin jörð hafi
verið höggin upp, jafnvel eft-
ir hátíðar — til þess að koma
niður túlípanalaukum sem
gleymst höfðu í poka inni í
skáp og líka hefur kvisast að
sumir hafi gripið til hitaveitu-
vatns í sama tilgangi — og
hvort tveggja aðgerðin gefist
vel! Ekki skal mælt með því
að setja lauka niður fast upp
eftirsóknarverðar Yfirleitt
eru laukarnir fluttir inn í
grisjupokum sem með fylgja
leiðbeiningar og upplýsingar
m.a. um blómgunartíma.
Það atriði skyldu menn
kynna sér vel vegna þess að
með því að vanda vel valið
má hafa blómstrandi túlí-
pana í garðinum frá því
snemma vors og langt fram á
sumar.
Þeir sem hafa hug á að
afla sér góðrar tilsagnar um
blómlauka og ræktun þeirra
skal bent á ágæta grein Krist-
ins Guðsteinssonar í Skrúð-
garðabókinni um það efni.
Bókin er enn fáanleg á skrif-
stofu G.í. Amtmannsstíg 2,
Rvk. (opið mánudaga og
fimmtudaga frá 2—6) og hjá
bóksölum.
Frá Hellisheiði. Hún getur verið varhugaverð á haustin og veturna.
„Aðgætni og hóflegur hraði
er einaheilræðið sem gildir
um akstur úti áþjóðvegum”
— segir Jón Guðmundsson yfirlögregluþjónn á Selfossi
í UMDÆMI Selfosslögreglunnai
hafa weriO tí8 slys að undanfórnu
og þa8 sem af er þessu ári hafa
or8i8 þar ekki farri en 4 banaslys,
sem rekja má til umferSar og öku-
tækja en allt ári8 i fyrra varS eitt
banaslys. sem auSvitaS er einu
slysi of miki8. Vegna þessa og
einnig hins a8 I umdæmi Selfoss-
lögreglunnar er fjölfarnasti fjall-
vegur landsins. HellisheiSarvegur.
gengu MorgunblaSsmenn á fund
Jóns GuSmundssonar- yfirlög-
regluþjóns á Selfossi og ræddu vi8
hann um umferðarmál i umdæm-
inu og báSu hann a8 gefa öku-
mönnum góð ráð fyrir veturinn.
— Það er ekki hægt að gefa
ökumönnum nema eitt gott og sigilt
ráð þegar ekið er úti á þjóðvegum.
nefnilega að sýna fyllstu aðgæzlu
við aksturinn og stilla hraðanum í
hóf. sagði Jón i upphafi samtalsins.
Það fer ekki milli mála að vegakerfið
okkar er lélegt. Þjóðin er fámenn en
vegalengdir miklar og þvi ekki óeðli-
legt að vegirnir séu ekki eins góðir
og tiðkast hjá stórþjóðum Auk þess
eru veður válynd i þessu landi og
úrkomur oft miklar þannig að vegur,
sem var góður i gær. er kannski
ófær i dag, og umferðarmerki, sem
var á sinum stað í gær, er kannski
horfið i dag Sums staðar eru komn-
ir góðir steyptir vegir til dæmis
helstu vegir i minu umdæmi, en
steyptur góður vegur er engin trygg-
ing fyrir slysalausri umferð eins og
mörg hörmuleg dæmi sanna. þar
þarf einnig að sýna fyllstu aðgæzlu
við aksturinn.
HELLISHEIÐI HÆTTULEG
AÐ VETRARLAGI
— Fjallvegir eins.og Hellisheiði
J6n Guðmundsson yfirlögreglu-
þjónn á Selfossi.
Ljósm. Friðþjófur.
hafa upp á ýmsar hættur að bjóða.
dimmviðri, þoku og snjókomu Við
slikar aðstæður er bezt að stilla
hraðanum i hóf ísingin á Hellisheiði
getur verið lúmsk. hún getur verið á
blettum og þá litið út sem bleyta á
veginum, en i raun og veru er þetta
stórhættulegur glerungur, sem erfitt
er að stöðva ökutæki á. Við slikar
aðstæður er einfaldlega bezt fyrir
ökumenn að prófa þetta með þvi að
hemla létt og kemur þá strax i Ijós
hvort ising er eða ekki Það þarf
auðvitað ekki að taka fram að sér-
stakrar aðgæzlu er þörf þegar ising
er á vegum. Þá er bezt að aka hægt
og rólega og gæta þess að bil milli
ökutækja sé það mikið að unnt sé að
stöðva ökutækið á þriðjungi þeirrar
vegalengdar. sem er á milii ökutækj-
anna Fólk metur þessa vegalengd
oft rangt þvi miður með vondum
afleiðingum.
— Nú er vetur framundan og úr
þessu er allra veðra von. Því er það
afar mikilvægt að ökutæki séu útbú-
in i samræmi við það Þau eiga að
vera á vetrardekkjum annað hvort
negldum eða þá að keðjur eiga að
vera tiltækar Mér hefur virzt að
snjóþyngsli séu nú minni á Hellis-
heiði á vetrum en var hér fyrr á
árum. þegar ég ók vörubilum yfir
heiðina og snjórinn var svo mikill að
maður náði upp i simalinurnar í
fyrra tepptist heiðin til dæmis aldrei
af snjó En auðvitað getur kyngt
niður svo miklum snjó að heiðin
verði erfið yfirferðar. Þá er afar
mikilvægt að fólk hafi i huga. að ef
það þarf að skilja bila sina eftir að
skilja þá alltaf eftir utan akbrautar,
annars skapa þeir mikla slysahættu
SLYSUM FJOLGAR
GEIGVÆNLEGA
— Mér finnst mjög geigvænlegt
hve slysunum hefur fjölgað mikið að
undanförnu, sagði Jón að lokum I
minu umdæmi hefur árekstrum og
slysum fjölgað nokkuð frá í fyrra
Einnig hefur ölvuðum ökumönnum
fjölgað mikið og i ár munum við i
fyrsta skipti taka yfir 100 ökumenn
grunaða um ölvun við akstur. og
nokkur slys má rekja beint til ölvun-
ar. Ekki veit ég hvað veldur hinum
aukna fjölda slysa en vafalaust á
kapphlaupið við timann sina sök
Mér finnst fólk hér á landi farið að
ganga anzi mikið eftir klukkunni á
seinni árum. Það þarf samtakamátt
fjöldans til þess að snúa þróuninni
við og draga úr slysunum Þetta
gekk vel fyrir 9 árum þegar hægri
umferðin var tekin upp og þvi tek ég
heilshugar undir þær hugmyndir,
sem komið hafa fram i nýlegum
greinum i Morgunblaðinu að gera
árið 1978 að umferðarári en þá
verða einmitt liðin nákvæmlega 10
ár frá upptöku hægn umferðar
Þetta hefst ekki nema allir verði
með, að fólkið sjálft taki i spottann.
—SS.
Fimm millilandaskip
fá ekki leyfi til að
leggjast að bryggju
ATHAFNALÍF við Reykjavikur-
höfn hefur verið lftið sent ekkert,
síðan verkfall opinberra starfs-
manna hófst á þriðjudag. Lftil-
lega hefur verið unnið við togara-
landanir, en millilandaskipin fá
ekki að leggjast að.
Nú bfða á ytri höfninni þrjú
skip, Mánafoss, Skógafoss og
Dfsafell, sem ekki fá að leggjast
að bryggju. Skipverjar hafa þó
komizt f land með þeim hætti að
lífbátanr skipanna hafa verið not-
aðir f flutningana. T.d. höfðu
Eimskipafélagsskipin ferðir með
skipverja til og frá borði.
Nú þegar hafa tvö skip Haf-
skips stöðvazt annað fyrir utan
höfnina á Akranesi og hitt utan
við Vestmannaeyjar, og hefur það
valdið nokkurri óánægju hjá Haf-
skipsmönnum að Laxá, sem ligg-
ur fyrir utan Eyjar, skuli ekki fá
að leggjast að þar sem ytri höfnin
f Eyjum hefur ætfð talist frekar
vafasamt lægi fyrir skip.
Ekki er von á fleiri millilanda-
skipum til Reykjavfkur fyrr en
um helgina.