Morgunblaðið - 20.10.1977, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.10.1977, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1977 Flugráni afetýrt í Djibouti Djihouli. IT.okfóbcr. Reutor TVEIR menn voru skotnir til bana og nokkrir særðust þegar tveir vopnaðir menn reyndu að ræna lítilli flugvel í eigu flug- félagsins í Djibouti í bænum Tadjourah i norðurhluta landsins í gær. Þeir sem biðu bana voru frans- kur flugmaður vélarinnar og öldr- uð kona. Ræningjarnir voru taldir vera af ættflokki Afara sem eru i meirihluta í Tadjourah-héraði. Málið virðist standa í sambandi við vopnafund á þessu svæði fyrir skömmu. íbúarnir eru ósammala í afstöðu til skæruliða í grannland- inu Eþíópiu. Hjartaþeg- inn látinn Höfðaborg 17. október. Rauter. S-AFRÍSKI maðurinn, sem dr. Christian Barnard græddi í sjimp- ansa-hjarta fyrir helgi, lézt i dag, 82 klukkustundum eftir aðgerð- ina, að sögn talsmanns Groote Sehuur-sjúkrahússins i Höfða- borg. Að sögn talsmannsins varð vart við blóðrásartruflanir í nótt og tókst ekki að laga þær. Sagði talsmaðurinn að ekki yrði vitað um orsakir truflananna fyrr en eftir krufningu. Fortes, sem var 59 ára að aldri, var að dauða kom- ínn, er Barnard græddi hjartað i hann til að létta á sjúku hjarta hans, þar sem ekki var hægt að fá hjartagjafa til að bjarga lífi mannsins. — Verður tek- ið til við launaliðinn? Framhald af bls. 40 y , gætu hvílzt. Var svo aftur haldið áfram klukkan 19 og fundi slitið um miðnætti. Var þá ákveðið að hitzt yrði að nýju klukkan 14 í dag. — Bann við andófi... Framhald af bls. 1 hlutastjórn Vorsters hefur bann- að að starfa eru fjölmenn kristi- leg samtök presta og leikmanna sem skipuð eru bæði hvítum og blökkumönnum. Svarta þjóðar- fylkingin, þrenn stúdentasamtök, Samband hörundsdökkra blaða- manna og Foreldrasamtök blökkumanna. Beyers Naude, einn forystu- maður kristilegu samtakanna, sem að ofan getur, sagði að þetta væri „ömurlegur sorgardagur í Suður-Afriku — en hann verður til þess eins að flýta fyrir enda- lokum núverandi harðstjórnar". Fáeinum mínútum eftir að Naude, sem er einn þekktasti and- ófsmaður úr hópi hvítra manna í Suður-Afríku, lét þessi orð falla, færði öryggislögreglan honum bannfæringarskjal þar sem hon- um er gert að halda sig innan marka Jóhannesarborgar næstu fimm árin, og hafa á þeim tíma vikulega samband við lögregluna, auk þess sem hann má ekki sækja mannfundi eða láta fjölmiðla hafa neitt eftir sér. Á sama hátt var annar hvítur málsvari blökku- manna, Donald Woods, bann- færður, en hann er ritstjóri blaðs- ins Dispateh. „Afríkanar hafa trú á aðgerð- um, sem bera vitni um styrkleika og ríkisstjórnir verða að sýna að þær kunni að bregðast við óró- leika á réttan hátt,“ var sú skoð- un, sem upplýsingamálaráðherra S-Afriku, Connie Mulder, lét í ljós vej>na atburðanna í morgun á fundi með erlendum fréttamönn- um i dag. Ráðherrann var inntur eftir því hvort búast mætti við þvi að útgáfa fleiri blaða yrði bönnuð á næstunni, og svaraði hann því til að Iíta bæri á aðgerðirnar í dag sem almenna viðvörun um að ekki mætti misnota þann rétt sem menn hefðu til að gagnrýna. i sama streng tók Krúger dóms- málaráðherra, sem sagði að kenna mætti „smáhópi stjórnleysingja" um hversu málum væri nú komið og yrði fylgzt náið með ástandinu „og gripið til nýrra aðgerða ef þurfa þætti". Ljóst er að handtökurnar í morgun voru skipulagðar með það fyrir augum að fórnarlömbin hefðu ekki fengið tækifæri til að lesa boðskap málgagns stjórnar- innar um bann við starfsemi sam- taka þeirra, sem hafa jafnrétti kynþáttanna á stefnuskrá sinni. Af opinberri hálfu kom ekkert það fram í dag, sem gefur til kynna hversu margar handtökur eru i samræmi við það ákvæði i öryggislöggjöfinni sem heimilar handtöku án réttarhalda. — Lík Schleyers fannst... Framhald af bls. 1 sem frömdu sjálfsmorð í gær. Vestur-þýzka stjórnin neitaði jafnan að verða við þessum kröf- um þrátt fyrir þrýsting af hálfu fjölskyldu Schleyers og tilboð sonar hans um að taka sjálfur upp samningaviðræður við hrýðju- verkamennina og reiða fram 15 milljónir dala i lausnargjaid. Vestur-þýzka stjórnin strengdi þess heit í kvöld að koma höndum yfir morðingja Schleyers og koma yfir þá lögum fyrir hið „lúalega ódæði“, eins og talsmaður stjórn- arinnar orðaði það í opinberri yfirlýsingu í kvöld. Hann sagði að vestur-þýzka ríkið mundi láta einskis ófreistað i eltingarleikn- um við morðingjana. — Samningarnir Framhald af bls. 2 samninganna. Starfs- mennirnir vilja hafa verk- fallsrétt og geta sagt upp samningnum ef slíkt gerist en bæjarstjórnirnar líta svo á að þær hafi ekki laga- heimild til þess að sam- þykkja verkfallsréttinn á miðjum 2ja ára samnings- tíma. — Frotkjor sjálf- stæðismanna Framhald af bls. 2 vík og fulltrúaráðs flokksins i Reykjavík fljótlega eftir að frestur til að gera tillögu um frambjóðendur til prófkjörs renn- ur út 26. október nk. en síðan yrði unnið að því að stílla upp próf- kjörslista og kvað Björgólfur stefnt að þvi að listinn lægi fyrir snemma í nóvember en prófkjörið sjálft færi síðan fram dagana 19., 20. og 21. nóvember, eins og áður segir. -Deilt um af- greiðslu plöntu- sendingar Framhald af bls. 2 nefnd að verða við beiðni dánarbús Gunnars Björns- sonar, Hveragerði og heimila tollafgreiðslu á plöntusend- ingu, sem flutt var til landsins með flugvél frá Iscargo 15. október 1977 eins og um neyðarsendingu væri að ræða. Nefndin hefur gengið úr skugga um með viðtali við garð- yrkjufræðing að sending þessi liggur undir skemmdum, þar sem um umtalsvert eignartjón yrði að ræða telur nefndin að ákvörðun um tollafgreiðslu sendingarinnar vera i sinum verkahring. Einnig liggur fyrir að reynt var að koma i veg fyrir að sendingin færi af stað til landsins vegna yfirvofandi verkfalls. Heimild þessi nær einungis til græðlinga en ekki lauka. Virðingarfyllst, f.h. Kjaradeilunefndar. Helgi V. Jónsson" I svarbréfi Verkfallsnefndar BSRB segir m.a.: „BSRB telur að framan- greind afstaða Kjaradeilu- nefndar sé hrein lögleysa og þar fari nefndin langt útfyrir þann verkahring, sem henni er afmarkaður í 26. gr. laga 29/1976. Enn skal bent á greinargerð með lögunum þar sem segir um 26. grein: „Hér er gert ráð fyrir að verkfallsrétti verði þau tak- mörk sett, að öryggi og heilsu fólks verði ekki stefnt i hættu.“ Hér er starfsvettvangur Kjaradeilunefndar skýrt af- markaður. Því er ljóst að um er að ræða valdþurrð, þar sem Kjaradeilunefnd heimilar toll- afgreiðslu blóma- eða plöntu- sendingar. Slíkt getur á engan hátt varðað líf og heilsu manna. Þá skal á það bent, að hér er um að ræða verðmæti að fjár- hæð kr. 4—500 þús. Það telur Kjaradeilunefnd „meiriháttar verðmæti". 1 bréfi Kjaradeilunefndar segir einnig: „Einnig liggur fyrir að reynt var að koma í veg fyrir að send- ingin færi af stað til landsins vegna yfirvofandi verkfalls." Það skal upplýst, að varan var send til landsins eftir að verkfall BSRB var hafið og telexsamband við útlönd var opið um það leyti, sem varan var send af stað, og þvi hefði ekkert átt að vera þvi til fyrir- stöðu að stöðva sendinguna. Verkfallsnefnd BSRB mót- mælir harðlega þessari ákvörð- un Kjaradeilunefndar sem ólöglegri og áskilur sér allan rétt í málinu. Viðingarfyllst, f.h. Verkfallsnefndar BSRB Páll (iuðmundsson**. — Sakharov Framhald af bls. 1 Hinn geðlæknirinn er Alex- ander Podrabinek, sem er 23 ára, og segir í bréfi þvi sem Sakharov undirritar ásamt Pjotr Grigorenko og fleiri þekktum andófsmönnum, að búast megi við þvi að hann verði handtekinn fljótlega, nema vestrænir baráttumenn fyrir mannréttindun snúist til varnar honum. Bréfið, sem birt var frétta- mönnum á heimili Sakharovs i dag, er stílað til alheimssam- taka geðlækna og Amnesty International, sem hlaut friðarverðlaun Nóbels i sið- ustu viku eins og fram hefur komið af fréttum. — Mælt fyrir frumvarpi Framhald af bls. 21 kvæmd laga þessara skal þess gætt að stuðlað sé að æskilegri festu í staf- setningu og reglum ekki breytt örar en nauðsynlegt þykir til samræmis við eðlilega málþróun. Hér er lögð áhersla á, að festa sé æskileg í stafsetningu og i greininni sé ætlað að tryggja að þeirra sjónarmið verði gætt við framkvæmd laganna Hygg ég, eins og áður hefur komið fram, að þetta sé i samræmi við skoðun velflestra íslendinga Loks er svo í fjórðu grein ákvæði um það, að áður en settar eru staf- setningarreglur eða gerðar breytingar á þeim, þá skuli afla heimildar Samein- aðs Alþingis til breytinganna í formi þingsályktunar Með þessu ákvæði er þvi slegið föstu, að þær stafsetningarreglur eða breytingar á stafsetningarreglum, sem menntamálaráðuneytið hyggst gefa út að fengnum tillögum sérfræðinganna, að þær verði hverju sinni lagðar fyrir Sameinað Alþingi sem fylgiskjal með tillögu til þingsályktunar um heimild til útgáfu Ég hef þessi orð ekki mikið fleiri en legg á það megináherslu, að með þessu frumvarpi er reynt að tryggja æskilega festu i stafsetning- unni og að tryggja hvort tveggja, að sjónarmið sérfræðinga fái að njóta sín en verði þó ekki gerð gildandi nema Alþingi hafi kynnt sér þau og sam- þykkt Ég legg svo til, að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu visað til menntamálanefndar — Aðeins æfing Framhald af bls. 1 grein, sem ber fyrirsögnina „Lögin ná yfir alla". Um leið fordæmir Rude Pravo skrif blaða á Vesturlöndum um málið og lýsir þau „rógburö um þá, sem standi vörð um lög og rétt og tilraun til að setja geislabaug á sakborninga". Enda þótt dómarnir yfir Lederer, Havel og Pavlicek séu skilorðsbundnir, telja andófs- menn að Lederer sé í haldi í Ruzyne-fangelsinu í einu úthverfi Prag. I kvöld efndu nokkrir stuðningsmanna hans til mót- mælagöngu að fangelsinu. Þar á meðal var Rudolf Slansky, fyrr- verandi framkvæmdastjóri tékkn- eska kommúnistaflokksins. Gang- an fór friðsamlega fram og lét lögreglan hana afskiptalausa. — Fjörugar umræður Framhald af bls. 21 varðveita hana, tala og skrifa. Að vera viriur alþýðunnar er heldur ekki að gera engar kröfur til hennar, sagði þingmaðurinn. Siðan rakti Jónas ýmis dæmi um gildi z i kennslu —og til að auðvelda skilning á einstökum oróum, uppruna þeirra og inn- taki. Einnig að sérkennum máls í einstökum byggðarlögum eða landshlutum, er auðguðu málið og gerðu það blæbrigðaríkara. Jafn- vel flámæli, sem eitt sinn var landlægt eystra, en er nú að mestu horfið, jók á blæbirgði tungunnar, og menn gátu talað, kostaríka íslenzku, sem til fyrir- myndar var, þrát t fyrir það. — Sumir þingmanna tóku oftar en einu sinni til máls — en frá þeim orðaábæti verður ekki frek- ar greint. Fangelsis- stjórinn rekinn Framhald af bls. 1 skotvopn verið falið. Þá skýrði saksóknar- inn frá því að milli þilja í einangrunar- álmunni hefði fundizt hlerunarútbúnaður. Lögfræðingar, sem á sinum tíma voru verj- endur Baaders, Enssl- ins og Raspes, bera brigður á fullyrðingar v-þýzkra stjórnvalda um dánarorsakir, en belgískur lækna- prófessor, sem við- staddur var krufningu iíkanna í dag, lýsti því yfir í kvöld, að frá læknisfræðilegu sjón- armiði væri trúlegt að fangarnir hefðu fram- ið sjálfsmorð, þótt læknar gætu að sjálf- sögðu ekki fullyrt að dauðdagann hefði ekki borið að með öðr- um hætti. Talsmaður dóms- málaráðuneytisins i Bonn telur fullvíst að fangarnir hafi komið sér saman um að fremja sjáifsmorð eft- ir að þeim hafði borizt fregn um að gíslarnir 86 um borð í Luft- hansaþotunni i Mogadishu hefðu ver- ið frelsaðir. A fundi meó fréttamönnum í dag sagði sami tals- maður, að eina ástæð- an fyrir því að dregið væri i efa að fangarnir hefðu framið sjálfs- morð væri sú, að engin skýring væri til á því hvernig Baader og Raspe hefði tekizt að komast yfir skotvopn, auk þess sem algjör- lega væri á huldu hvernig fangarnir, sem allir vöru í einangrun, hefðu fengið fregnir af áhlaupinu á þotuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.