Morgunblaðið - 20.10.1977, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 20.10.1977, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKT0BER 1977 33 sinni Kona sem barðist fyrir köllun Hún hélt um það bil 90 guðsþjónustur é ári. + Það eru nú liðin sextán ár síðan fyrsta og eina konan var vígð til að gegna prests- embætti i Noregi Það var árið 1961 og þá var Ingrid Bjerkás sextug. í dag er hún því 76 ára en þvi gæti eng- inn trúað sem sér hana. Það var ekki mótspyrnulaust sem Ingrid Bjerkás náði takmarki sinu að hljóta vigslu og fá embætti. Hún mátti jafnvel þola persónulegar árásir en hún gafst ekki upp, og þótt nú séu liðin sextán ár siðan og Ingrid hafi verið vinsæl i embætti sínu er enn mikil andstaða gegn því í Noregi að konur gegni prestsem- bætti Nokkrar ungar konur hafa hlotið prestvigslu en gegna ekki embætti sem slík- ar Ingrid Bjerkás er sjálf ekki í vafa um að áður en langt um líður verði fleiri konur sóknarprestar í Noregi, og hún efast heldur ekki um að þær eigi einhverntíma eftir að gegna embætti biskups Aftur á móti segist hún vita að langt sé í land að því takmarki verði náð sem hún telur æskilegt en það er að helmingur allra presta í land- inu séu konur og hún hvetur kynsystur sínar til að gefast ekki upp. Prestakallið sem Ingrid þjónaði er á eyjunni Senja, næst stærstu eyju Noregs í Norður-Hálogalands biskupsdæmi Þar þjónaði hún tveim kirkjum, þrem kapellum, sautján predikun- arstöðum öðrum og í presta- kallinu eru sjö kirkjugarðar. Okkur Sören manninum min- um var ákaflega vel tekið þegar við komum til Senja og það var mér mikil uppörvun. Viðbrigðin voru ákaflega mikil. Nú var ég ekki lengur bara húsmóðir, móðir og amma, heldur sóknarprestur í stóru prestakalli sem oft var erfitt yfirferðar. Hér eru vetur ákaflega harðir og til 16 af þeim stöðum sem ég þurfti að predika á varð aðeins komist með bát og ferðin aðra leiðina gat tekið allt að fjóra tima. Sem betur fer er ég sjóhraust. Torsken-kirkja é Senja stendur é fallegum staS é eyjunni. Ingrid hefur nú látið af störfum en fólk biður hana þó oft um að sinna embættis- störfum svo sem að gifta og skíra. Einnig hefur hún ferð- ast um og haldið fyrirlestra um „Börn og unglinga í vel- ferðarríkinu Noregi". Árið 1966 kom út eftir hana bók sem hún nefndi „Mitt kall” (Köllun mín) og nú er hún að skrifa aðra sem hún segir að fjalli um Guðsmyndina og trúarlíf fólks í dag Verktakasamband íslands HVERNIG Á AÐ STANDA AÐ OPINBERUM FRAMKVÆMDUM? Almennur fundur verður haldinn um ofangreint máléfni, i kvöld kl. 20.30 í Kristalsal Hótel Loftleiða. Frummælendur: Aðalsteinn Júlíusson, vita- og hafnarmálastjóri, Jón Sigurðsson, ráðuneytisstjóri, Leifur Hannesson, framkvæmdastjóri og Snæbjörn Jónasson, vegamálastjóri. Verktakar, byggingameistarar, verkfræðingar, opinberir starfsmenn og aðrir sem málefnið varðar eru sérstaklega hvattir til að mæta á fundinn V [V] NUTIMA VERKSTJÓRN KREFST NÚTIMA FRÆÐSLU Þetta vita þeir rúmlega 1000 verkstjórar, sem sótt hafa verkstjórnarnámskeiðin á und- anförnum árum. 1977 59. námskeið, fyrri hluti 60. námskeið, fyrri hluti 61. Fiskvinnsluskólinn 1978 59. námskeið, síðari hluti 62. námskeið, fyrri hluti framhaldsnámskeið 60. námskeið, síðari hluti 62. námskeið, síðari hluti 63. Stýrimannaskólinn Innritun á öll þessi námskeið hefst strax að loknu verkfalli hjá Iðnþróunarstofnun íslands, Skipholti 37, sími 81 533. fyrirliggjandi IÐNVÉLAR HF. Smiðjuvegur 30— Sími 76100 31. okt.—12. nóvember 14. nóv.—25. nóvember 6. des. —17. desember 2. jan.—14. janúar 16. jan.—28. janúar 2. feb.— 4. febrúar 13. feb.—25. febrúar 6. marz—18. marz 3. apríl—1 5. april

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.