Morgunblaðið - 23.10.1977, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÖBER 1977
Síldarbát-
ar beðn-
ir um
að kasta
ekki á
smásíld
sjAvarutvegsrAðuneyt-
IÐ hefur beint þeim tilmælum til
hringnótabáta að þeir kasti ekki á
smásild á ákveðnu svæði milli
Hrollauí'seyja og Ingólfshöfða, en
sögusagnir um mikið af smásíld á
þessu svæði hafa gengið að
undanförnu.
Jakob Jakobsson fiskifræðing-
ur sagði í samtali við Morgunblað-
ið i gær, að hann hefði haft fregn-
ir af því að síldarbátarnir væru að
kasta á smásíld á áðurgreindu
svæði og því hefði hann farið þess
á ieit að þeim tilmælum yrði beint
til bátanna að þeir köstuðu ekki á
síld á þessu svæði, en í fyrra hefði
verið mikiö um smásíld á þessu
sama svæði.
,,Þar sem við höfum ekki getað
verið við síldarrannsóknir að
undanförnu, höfum við ekki neitt
i höndunum um að þessar sögu-
sagnir séu réttar, og meðan svo er
getum við aðeins farið fram á að
bátarnir kasti ekki á síld á þess-
um slóðum."
IHoviUmliInMt>
ífDrólllrl
Bœði
Valur
og FH
örugg
í aðra
umferð
ÚRSLITIN í fyrri leik Vals og fær-
eysku meistaranna Kyndils i
fyrrakvöld urðu 23:15 fyrir Val.
eftir að Færeyingarnir höfðu leitt
8 7 i leikhléi. Siðari leikurinn átti
að fara fram i gærkvöldi. en full-
vist má telja að Valur hafi þegar
tryggt sér sæti í 2. umferð Evr-
ópukeppni meistaraliða i hand-
knattleik. FH tekur þátt i Evrópu
keppni bikarmeistara og leikur
um helgina gegn finnska liðinu
Kiffen Með góðum sigri i fyrri
umferðinni má heita öruggt að
FH sé einnig öruggt i 2. umferð
Evrópukeppninnar.
Leikur Vals og Kyndils var
mjög spennandi i fyrri hálfleikn-
um. en færeysku meistararnir
náðu um tima 3ja marka forskoti
og leiddu með 8 mörkum gegn 7 i
leikhléi í seinni hálfleiknum var
hins vegar um einstefnu Vals-
liðsins að ræða, liðið vann hálf-
leikinn 16:7 og leikinn 23:15.
Markhæstir Valsmanna voru
Jón H. Karlsson með 8 mörk, Jón
Pétur gerði 5 og Stefán Gunnars-
son 3 mörk. Fyrir Færeyingana
var Joan Pætur Midjord iðnastur
við að skora, gerði 4 mörk.
Valsmenn komu til Færeyja sið-
degis leikdaginn og var þvi eðli-
legt að liðið væri seint i gang.
Þurftu Valsmenn að fara i gegn-
um Kaupmannahöfn, en frá
Keflavik fóru þeir á fimmtudags-
kvöld Höfðu þeir áður fengið
leyfi til að fara með flugvél beint
til Færeyja og voru komnír um
borð i vélina á Reykjavikurflug-
velli er leyfið til þeirra var aftur-
kallað og þeim sagt að taka vél-
ina sem fór til Kaupmannahafnar
í staðinn.
Félagsmálastofnun Reykjavíkur í samvinnu við Ferða-
skrifstofuna Úrval efndi til Mallorkaferðar fyrir eldri-
borgara Reykjavíkur 30. sept. s.l. til 27. okt. Meðfylgj-
andi mynd er tekin af hópnum nokkrum dögum eftir
komuna til Mallorka. Má þar greina ýmsa eldrijiorgara
Reykjavíkur. Aðalfararstjóri er frú Geirþrúður Bern-
höft.
Margrét Margeirsdótt-
ir formaður Landssam-
takanna Þroskahjálpar
STOFNÞING Landssamtakanna
Þroskahjálpar var nýlega haldið í
Reykjavík. f upphafi þingsins
fluttu ávörp Gunnar Thoroddsen
félagsmálaráðherra, Birgir tsl.
Gunnarsson borgarstjóri og
Gunnar Þormar sem verið hefur
formaður undirbúningssamtak-
anna, sem stofnuö voru fyrir ári
síðan.
Að loknum þessum ávörpum
fluttu fulltrúar landshlutanna
ávörp og talaði sr. Gunnar Björns-
tengsl og samstarf foreldra og
starfsfólks stofnana og lagði hún
mikla áherzlu á að nauðsynlegt
væri að byggja upp virkt og náiö
samband milli foreldra og stofn-
ana í því skyni að þjálfun og
uppeldi þroskaheftra færi sem
bezt úr hendi. Þriðja framsöguer-
indið flutti Magnús Magnússon
sérkennslufulltrúi i menntamála-
ráðuneytinu og fjallaði hann um
reglugerð um sérkennslu, sem
Framhald af bls. 31
Stjórn og varastjórn Landssamtakanna Þroskahjálpar, talið frá
vinstri: Ragna Jónsdóttir, Sigurður Garðarsson, Jón Sævar Alfonsson,
Gunnar Björnsson, Margrét Margeirsdóttir formaður, Helgi Seljan,
Helga Finnsdóttir, Bjarni Krist jánsson, Anna Jóna Arnadóttir.
skýrt samþingismönnum í
Suðurlandskjördæmi, þeim
Ingólfi Jónssyni og Steinþóri
Géstssyni, frá því að hann
myndi tilkynna formlega þessa
ákvörðun sína á fulltrúaráðs-
fundi í Eyjum eða á fundi kjör-
dæmisráðsins.
Guðlaugur Gíslason hefur
starfað innan Sjálfstæðis-
flokksins í 40 ár. Hann var fyrst
kjörinn í bæjarstjórn Vest-
mannaeyja 1938, og átti þar
sæti í 32 ár og 4 ár sem vara-
maður. Er þetta með lengstu
setum sama manns i bæjar-
stjórn hér á Iandi. Guðlaugur
var kjörinn alþingismaður 1959
og hefur átt sæti á Alþingi síð-
an og setið 20 þing. Jafnhliða
þingmennsku var Guðlaugur
Guðlaugur Gísla-
son gefur ekki kost
á sér í framboð
GUÐLAUGUR Gislason, al-
þingismaður í Vestmannaeyj-
um, hefur ákveðið að gefa ekki
kost á sér til framboðs aftur
fyrir næstu alþingiskosningar.
Tilkynnti Guðlaugur ákvörðun
sína á fundi kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins í Suður-
landskjördæmi, en sá fundur
var haldinn í Vestmannaeyjum
1 gær og fyrradag.
I samtali við Morgunblaðið
kvaðst Guðlaugur hafa tekið
þessa ákvörðun síðla sumars, og
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum
frá 1959—66 en samfleytt var
hann bæjarstjóri í liðlega 12 ár
eða frá 1954.
Þess skal getið að fyrsti þing-
maður Sunnlendinga, Ingólfur
Jónsson, hefur einnig ákveðið
að hætta þingmennsku eftir
þing það sem nú setur og hefur
Eggert Haukdal verið valinn í
stað hans. Almennt prófkjör
mun fara fram í Vestmanna-
eyjum í vetur um eftirmann
Guðlaugs.
son af hálfu Styrktarfélags
vangefinna á Vestfjörðum, Snorri
Þorsteinsson fræðslustjóri fyrir
Vesturland, Jón R. Hjálmarsson
fræðslustjóri fyrir Suðurland, af
hálfu Austfirðinga Sigurður Ö.
Pálsson kennari og Bjarni
Kristjánsson kennari af hálfu
Norðlendinga.
Síðan voru flutt þrjú framsögu-
erindi og talaði Bjarni Kristjáns-
son kennari á Akureyri um frum-
varp til laga um vangefna, sem
landssamtökin hafa haft til um-
sagnar og endurskoðunar og kom
fram alJmikil gagnrýni á frum-
varpið og urðu umræður um það
segir í frétt frá samtökunum.
Margrét Margeirsdóttir talaði um
Akranes-
kirkja
AKRANESKIRKJA Barnasam-
koma verður kl. 10.30 árd. í dag.
Messa klukkan 2 siðd. Sóknar-
prestur.
LYFJATÆKNISKÓLI fslands útskrifaði fyrir skömmu 13 lyfjatnkna. Skólan-
um er ætlaS það hlutverk að tæknimennta aSstoBarfólk viS lyfjagerð og
lyfjaafgreiSslu. Námið tekur 3 ár og er það bæði verklegt og bóklegt.
Lyf jatæknar hafa stofnað með sér félag og bera nú merki viS störf sín, sem er
gyllt letur á bláum grunni.
Þær sem útskrifuðust og eru á meðfylgjandi mynd eru: Aftari röð f.v: Edda
GuSmundsdóttir, Björg Dúadóttir, Halldóra G. Árnadóttir. Axel Sigurðsson
skólastjóri. Sigriður Ó.Þ. Sigurðardóttir, Helga K. Jónsdóttir og Guðbjörg
Hilmarsdóttir. Fremri röS: HólmfríSur H. Ingvarsdóttir, Margrét G. Karlsdótt-
ir, Regína Sveinsdóttir, Fjóla Haraldsdóttir, Herdís Sæmundardóttir og Eyrún
Antonsdóttir. Á myndina vantar Margréti SigurSardóttur.
Sumarhiti
í Siglufírði
Siglufjörður22. október
HÉR ER nú sérlega gott
veður og hiti 13 stig, hins
vegar var komið leiðinda-
veður á loðnumiðunum og
erfitt fyrir skipin að at-
hafna sig, en veiði var
mjög góð í gærkvöldi og
nótt. Hér eru allar þrær
kjaftfullar af loðnu og trú-
lega um 10 þúsund tonn í
þróm. Bræðsla gengur vel
og afköst eru 13—1400
tonn á sólarhring. Undan-
farna daga hefur fiskazt
vel á færi og jafnvel betur
en í langan tíma.
— mj