Morgunblaðið - 23.10.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1977
5
losaö um festingar á húsinu vió
bilpallinn, en þaö haföi verið log-
soðið við pallinn og svo vel frá
öllu gengið, að ekkert hafði rask-
ast á leið yfir vegleysurnar. Stöpl-
arnir voru síðan grafnir niður og
festir vel, svo þurfti að aka bíln-
um með húsinu á pallinum þann-
ig, að hann sneri rétt við grunnin-
um svo unnt væri að renna hús-
inu aftur af pallinum niður á
undirstöðurnar og allt varð að
stemma þarinig af, að engu skeik-
aði svo húsið stæði rétt, og hægt
væri að festa það niður. Allt gekk
þetta hávaðalaust og örugglega en
öllum létti þegar húsið hafði
runnið niður á undirstöðurnar og
í ljós kom, að ékki skeikaði nema
örlitlu, sem auðvelt var að laga
með því að lyfta húsinu á báðum
endum með bílkrananum og ýta
því síðan til með mannafli. Var þá
hægt að logsjóða festingarnar á
húsinu við undirstöðurnar og að
því búnu að moka að þvi. Mátti þá
segja, að húsið væri endanlega
komið á sinn stað, þar sem það
fær að standa næstu áratugina.
Allt hafði þetta ekki tekið nema
tæpar fjórar klst. og timaáætlun
staöist, því ákveðiö var um eftir-
miðdaginn að halda tilbaka um
kvöldið og nauðsynlegt væri að
komast yfir verstu torfærurnar á
meðan enn væri ratljóst. Var talió
varlegra að hætta ekki á gistingu
þegar þessi tími væri kominn og
veðurútlit ótryggt því ef tæki að
snjóa og hvessa, eins og þarna
getur gert, væri hætta á, að allt
yrði ófært en á slíkt mátti ekki
hætta með öll þau tæki, sem
þarna væru.
Á meðan unnið var að niður-
setningu hússins notaði ég nokk-
urn tíma til að skoða mig um en
veðrið setti því þó þröngar skorð-
ur. Gekk ég m.a. tilbaka yfir fjall-
ið að bílunum við stóra skaflinn
og tók sú ganga rúmlega eina klst.
Því miður var skyggnið afar tak-
markað vegna þoku og hvasst var
af suðaustri. Annað slagið mátti
þó sjá Reykjafjöll, sem eru
skammt í suðaustur frá húsinu og
af og til gljáði á hrafntinnuna,
sem liggur þarna allstaðar til ynd-
is fyrir augað en til mikils hrell-
ings fyrir þá, sem reyna að aka á
bílum þessa leið því hrafntinnu-
eggin er skörp eins og beittur
hnífur og sker auðveldlega sund-
ur hvaða hjólbarða sem er. Mundi
ég ekki ráðleggja neinum að aka
þessa leið nema brýna nauðsyn
bæri til.
Að loknu þessu dagsverki var
svo haldið með vörubílana og
gröfuna sömu leið til baka yfir
fjallið og voru menn léttir í skapi
þó mikið hafi verið erfiðað og
margar áhyggjurnar sótt á menn
á uppeftirleiðinni. Nú var þetta
allt liðið, húsið komið á sinn staö,
bílarnir léttir og ekkert annað
eftir en aka heim.
Til Reykjavíkur var komið und-
ir morgun og voru þá liðnar 35
klst. frá því lagt hafði verið upp
og svefn höfðu menn ekki fengið
nema í rúmlega 4 klst.
Með þessari framkvæmd er lok-
ið merkum áfanga i sæluhúsa-
byggingum Ferðafélagsins. A
fyrra ári var reist samskonar hús
á Emstrum, norðan Mýrdalsjök-
uls og er þessum tveimur húsum
ætlað samskonar hlutverk, að
vera áriingarstaðir á gönguferð-
um milli Landmannalauga og
Þórsmerkur. Eitt er þó enn ógert
til þess að slíkar gönguferðir
verði mögulegar en það er að
byggja göngubrú á Fremri-
Emstruána, sem ekki er fær gang-
andi mönnum. Áður en ráðist var
í þessar skálabyggingar hafði ver-
ið athugað um brúarbypgingu yfir
ána en við nánari athugun í haust
kom í ljós, að það er meira mann-
virki en haldið var. Ekki varð því
af framkvæmdum nú en fastlega
er ráð fyrir því gert, að snemma á
næsta sumri verði hægt að byggja
brúna, sem er raunar forsenda
fyrir því, að þetta verði sú göngu-
leið, sem að hefur verið stefnt.
Einnig mun þá verða merkt leiðin
milli sæluhúsanna svo auðvelt
verði að rata þó skyggni sé slæmt.
Segja má, aö með byggingu
þessara tveggja sæluhúsa sé einn-
ig mörkuð stefna fyrir framtiðina.
Hingað til hafa flest sæluhúsin
verið byggð á stöðum, þar sem
þau væru notuð sem bækistöövar
til þess að auðvelda mönnum að
fara i gönguferðir um svæði, sem
rómuð væru fyrir náttúrufegurð.
Framhald á bls. 31
Magnús Sigurjónsson:
Vilmundur og hinir
Eftir að hafa lesið ritsmið
Björgvins Guðmundssonar,
borgarfulltrúa, i Dagblaðinu í
dag, 20. okt.. þar sem hann
ræðst á Vilmund Gylfason af
fádæma heift, vaknar sú spurn-
ing, hvað sé svona helsjúkt í
Alþýðuflokksdeildinni í
Reykjavík. A sama tíma og sýnt
er að fylgisaukning og bjartir
dagar geta verið framundan
hjá flokknum annars staðar á
landinu. kastar þessi forystu-
maður banvænni heiftar-
sprengju að Vilmundi, sem um
ieið auðvitað molar flokkinn
innanfrá. Ekki verður annað
séð eftir lestur greinarinnar en
pennanum stýri maður örvita
af reiði. sem ekki hirðir um
afleiðingarnar fyrir félaga sína
og flokk.
Vilmundur
Nú vita það allir, sem eitt-
hvað fylgjast með hreyfingu á
pólitíska sviðinu hér í Reykja-
vík, að Vilmundur er einn efni-
legasti vaxtarbroddur krat-
anna. Vegna skrifa sinna og
harðfylgis i baráttunni við hála
pólitíkusa og skuggalega fjár-
plógsmenn hefir hann samt öðl-
azt samúð góðra manna.
Björgvin segir, að Vilmundur
með skrifum sinum sé ein-
göngu að auglýsa og upphefja
sjálfan sig. Ég held, að það sé
alrangt, þarna er á ferðinni
ungur maður, sem blöskrar
spillingin og ræðst gegn henni,
auðvitað verður hann fyrir
hnjaski af þeim sökum og um
leið mikið umtalaður.
Þaö svídur undan
Upplýsingaskrif Vilmundar
beindust mikið að samtrygging-
arkerfi flokkanna og misferli í
fjármálum. Ég las greinar hans
nær alltaf og fannst mér það
nokkur nýlunda, aö hann sagði
sinum flokksmönnum jafnt til
syndanna og öðrum. Það er mitt
mat, aó þarna sé um heiðarleg-
an penna að ræða, sem lætur
eitt yfir alla ganga, en það eru
vissulega nokkur tíðindi, að
slik rödd skuli heyrast úr þeini
flokki, og þótti víst sumum hart
undir að búa. Ekki svo að
skilja, að allir forystumenn
krata séu með hvíta vængi, um
það bera vitni örlög stóreigna
eins og Alþýðuhúss, Alþýðu-
brauðgerðar, Iðnóo.fl.
Ég rifja þetta upp hér til að
minna á, að það voru engir
engjar, sem Vilmundur var að
tala við og er það raunar um-
hugsunarefni að Björgvin skuli
bregðast við á þennan hátt, en
reyna ekki að hemja sig, því aö
með slíkum heiftarskrifum ger-
ir hann allt annað en lýsa Vil-
mundi.
Af hverju er ég að festa þess-
ar hugleiðingar á blað? Mó mig
ekki einu gilda, hvað um Vil-
mund og Alþýðuflokkinn verð-
ur, ekki er ég þar í sveit.
Viðbrögð hinna
Mikill fjöldi manna, sem
lengi höfðu séð hvert stefndi
fylltist ánægju þegar Vilmund-
ur og Halldór Halldórsson
sögðu undirheimalýönum strið
á hendur og vörpuöu ljósi á
ýmis skuggaleg mál, sem aldrei
annars hefðu komið fyrir al-
menningssjónir. Ekki var
þarna verið að elta neinn sér-
stakan, skorið var í meinið
hvaöa menn eða stofnanir sem i
hlut áttu.
Fyrst i stað greip um sig ofsa-
hræðsla í skúmaskotum og
vissu menn þar vart sitt rjúk-
andi ráð, en hræðslan dvínaðí,
þegar í ljós kom, að þyngra var
á metunum föst ínnbyrðis
tengsl skúrkanna við valda-
mikla áhrifamenn en vilji
blaöamannanna til að upplýsa
málin, enda kom fljótlega í ljós,
að þeir Vilmundur og Halldór
ráku sig á vegg, komu að læst-
uin dyrum, ef eftir upplýsing-
um var leitaö.
Ekki verður þetta rifjað frek-
ar upp hér, en oft fengu þeir
félagar og þó sérstaklega Vil-
mundur að fínna fyrir róginum,
en nú er talið óhætt að gera
lokaatlögu að Vilmundi á opnu
borði og láta hið pólitiska bana-
högg riða.
Vel má vera, að þetta takist,
en heldur heföi ég kosið það
Alþýöuflokknum til handa að
eiga á Alþingi fulltrúa slíkan
sem Vilmund, en ganga frá
borði hér í Reykjavík með brot-
ið fley og liðið sundrað á
ströndinni.
KANARIEYÍAR
SÓLSKINSPARADÍS í VETRARSKAWmDEGINU
NÚ ER TÆKIDERIÐ...
Þúsundir íslendinga hafa notið hvíldar og skemmtunar í
sumarsól á Kanaríeyjum, meðan skammdegi og vetrarkuldi
ríkir heima. Sunna býður bestu hótelin og íbúðirnar sem
völ er á, svo sem KOKA, CORONA BLANCA,
CORONA ROJA, RONDO, SUN CLUB,
LOS SALMONES, EGUENIA VICTORIA o.fl.
Skrifstofa Sunnu á Kanaríeyjum með þjálfuðu íslensku
starfsfólki veitir öryggi og þjónustu, sem margir kunna að
meta.
Vegna fyrirsjáanlegrar mikillar aðsóknar, biðjum við þá,
hina fjölmörgu, sem árlega fara með okkur til Kanarieyja,
og líka þá sem vilja bætast í hópinn, að panta nú snemma,
meðan enn er hægt að velja um brottfarardagaog gististaði.
Plássið er því miður takmarkað, og ekki hægt að fá aukarími
á hinum eftirsóttu gististöðum.
BROTTFARARDAGAR: 5., 26. nóvem-
ber, 10., 17., 29. desember, 7., 14., 28. janúar, 4., 11.,
18., 25. febrúar, 4., 11., 18., 25. marz, 1., 8., 15., 29.
apríl.
HÆGT AÐ VELJA UM FERÐER í 1, 2, 3 eða 4 VIKUR.
LOS SALMONES SUN CLUB CORONA BLANCA CORONA ROJA
KOKA
EGUENIA VICTÖRIA
Látið draummn rœtast...
TU suðursmeð
SUNNU
Reykjavík: Lækjargötu 2, símar 16400 - 12070. Akureyri: Hafnarstræti 94, sími 21835.
0