Morgunblaðið - 29.10.1977, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 29.10.1977, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÖBER 1977 Þrír leikir í 1 deild Nú um helgina fara fram þrír leikir í 2. deildarkeppni karla i íslandsmótinu í handknattleik. Verða tveir þessara leikja á Akur- eyri, en þangaö fer lið Stjörnunn- ar úr Garðabæ í heimsókn. Leika Garðbæingar við KA kl. 16.00 i dag og við Þór kl. 14.00 á morgun. Ætla má að Akpreyrarliðin vinni sigra í leikjunum fyrir norðan, en sem kunnugt er álíta flestir KA vera með bezta liðið í 2. deild að þessu sinni. Þórsliðið hefur hins vegar ekki keppt enn, og er því lítið vitað um það. Er það tæplega eins sterkt og það var í fyrra, þar sem það hefur misst aðalskyttu sina, Þorbjörn Jensson, yfir í Reykjavíkurfélagið Val. Þrióji leikurinn i 2. deild verð- ur svo kl. 15.00 á morgun á Sel- tjarnarnesi og leika þar Grótta og nýliðarnir i 2. deild, HK. Eru þessi lið jöfn að stigum, hafa bæði hlotið tvö stig. Vann Grótta leik sinn við Leikni og HK hefur lagt Stjörnuna að velli. Ætti þarna að geta orðið um tvisýnan leik að ræða. Auk nefndra leikja fara svo íflf: fram tveir leikir i 2. deild kvenna og þrír leikir í 3. deild karla. í 2. deild kvenna leika KA og ÍBK á Akureyri kl. 15.00 í dag, og UBK og ÍR leika kl. 16.15 í Garðabæ á morgun. ÍA og Þór frá Vest- mannaeyjúm leika í 3. deildinni á Akranesi kl. 14.00 i dag og á morg- un leika UBK og Þór frá Vest- mannaeyjum kl. 15.00 i Garðabæ og UMFA og ÍBK leika þar kl. 17.15. Haustmót í blaki um helgina HAUSTMÖT Blaksambands Ís- lands fer fram nú um helgina og verður keppt bæði i karla- og kvennaflokki. Fer kvennamótið fram í Reykjavík og hefst kl. 14.00 i Hagaskólahúsinu og verð- ur þar leikin ein hrina upp að 21 stigi, og það lið er úr sem tapar tveimur leikjum. í kvennamótinu taka þátt eftirtalin lið: Þróttur a, Þróttur h, ÍA a, ÍS b, Vikingur, Völsungur og UBK. Karlamótið fer fram aó Laugar- vatni 30. október og hefst það kl. 11.00. Þar verður leikió upp á tvær unnar hrinur og það lið er úr sem tapar tveimur. Ieikjum. í karlaflokki taka þátt eftirtalin lið: Þróttur a, Þróttur b, Þróttur- öldungar, ÍS, UMFL og Mímir. Keppt verður um bikara sem Berry-umboðið hefur gefið og er keppt um þá í annað sinn. Geir Hallsteinsson aðþrengdur að norskum varnarleikmönnum f leiknum í fyrrakvöld. Hvað gerir hann í leiknum á móti Dönum í dag? Dagskrá NM DAGSKRÁ Norðurlandamótsins í handknattleik um helgina verður þessi: Laugardagur 29. október: íþróttahúsið Akranesi kl. 14.00 Finnland — Svíþjóð (Dómarar Eliasen og Jensen frá Danmörku) Laugardalshöll kl. 16.00 Ísland — Danmörk (Dómarar Huseby og Anthonsen frá Noregi) Sunnudagur 30. október: Laugardalshöll: KI. 10.30: Leikið um 5. og 6. sæfið Kl. 16.00: Leikið um 3. og 4. sætió Kl. 17.30: Leikið um 1. og 2. sætið. HAUKAR AÐALFUNDUR handknattleiks- deildar Hauka verður haldinn i Haukahúsinu i Hafnarfirói i dag, laugardaginn 29. október, og hefst hann kl. 14.00. Sigfús Jónsson. Badmintonþing ÁRSÞING Badmintonsambands islands verður haldið sunnudag- inn 30. október kl. 10 fyrir hádegi í Snorrabæ, Snorrabraut 37. ----------------------------------------\ Tekst íslenzka liðinu að koma á óvart og vinna fimmta sigurinn yfir Dönum? LANDSLEIKUR ísiendinga og Dana í Laugardals- höilinni í dag veröur 23. iandsleikur þjóðanna í handknattleik. Hafa ísiendingar ekki keppt jafnoft við neina þjóð, og má segja að samskipti okkar og Dana hafi verið óslitin frá því að íslendingar tóku að leika handknattleikslandsleiki. Okkar annar leikur var við Dani og fór hann fram í Kaupmanna- höfn árið 1950. Þá voru íslendingar nánast byrjend- ur í íþróttinni og töpuðu stórt 6—20. Næsti Ieikur sem fram fór 1959 tapaðist einnig með miklum mun eða 16:23, svo og þriðji leikurinn sem var í heims- meistarakeppninni 1961. Þann leik unnu Danir með 11 marka mun, eða 13:24, en allt síðan hafa leikirn- ir oftast verið mjög jafnir, en Danir þó oftar verið ívið sterkari, og af leikjunum 22 hafa þeir unnið 17 leiki. Fyrsti sigurleikur íslendinga yfir Dönum verður sjálfsagl mörgum handknattleiksunnendum minnisstæður, en sá leikur fór fram f Laugardalshöllinni í aprfl 1968. í þeim leik fóru þeir Geir Hallsteinsson og Jón Hjaltalfn Magnússon á kostum, og voru gjörsamlega óviðráöanlegir. t þeim leik kom einnig fram á sjónarsviðið ungur leikmaður, sem síðan hefur gert garðinn frægan, Björgvin Björgvinsson. Fyrirfram má ætla að Danir séu sigurstranglegir í leiknum í dag. Þeir hafa að undanförnu æft allvel og m.a. tekið þátt í hanknattleiksmótum með sterkum þjóðum, en Islendingar hafa þvf miður ekki átt tækifæri til þess að samæfa lið sitt að neinu riiarki. Þó er aldrei að vita hvað gerist. islenzka handknattleiks- landsliðið hefur oft gert hvað bezt þegar við hvað minnstu hefur verið búist af því, og er vonandi að slfkt verði upp á teningnum í leiknum í dag. tlrslit í fyrri landsleikjum islendinga og Dana hafa orðið sem hér segir: 19.2 1950 Kaupmannahöfn tsland Danmörk 6:20 12.2 1959 Slagelse tsland — Danmörk 16:23 1.3. 1961 Karlsruhe Island — Danmörk 13:24 13.3 1961 Essen tsland — Danmörk 13:14 19.1. 1966 Nyborg tsland — Danmörk 12:17 2.4. 1966 Reykjavík tsland — Danmörk 20:23 6.4 1968 Reykjavík tsland — Danmörk 15:10 9.2. 1969 Helsingör tsland — Danmörk 13:17 28.2. 1970 Hagondange tsland — Danmörk 13:19 4.3. 1971 Reykjavík tsland — Danmörk 15:12 5.3. 1971 Reykjavík tsland — Danmörk 15:16 22.2. 1973 Randers tsland — Danmörk 18:18 3.3. 1974 Ehrfurt tslnad — Danmörk 17:19 5.2. 1975 Bröndby tsland — Danmörk 15:17 23.3. 1975 Reykjavík tsland — Danmörk 20:16 24.3. 1975 Reykjavfk tsland — Danmörk 19:21 12.12. 1976 Bröndby tsland — Danmörk 16:19 17.12. 1976 Reykjavfk tsland — Danmörk 23:20 18.12. 1976 Vestmannaeyjar tsland — Danmörk 16:19 19.12. 1976 Reykjavfk tsland 7— Danmörk 22:23 AGÆT HLAUPIENGLANDI HJÁ SIGFÚSI OG Frjálsíþróttamennirnir Jón Diðriksson, UMSB, og Sigfús Jónsson, ÍR. sem dvelja við há- skólanám í Englandi hafa staðið sig með ágætum í keppni þar ytra f haust. Keppti Jón með skóla sfnum f Manehester-boöhlaupinu sem fram fór 15. október, náði þar fjórða bezta árangri dagsins, og Sigfús varð sfðan í fimmta sæti á Vfðavangshlaupi norðurenskra háskóla 22. október sem háð var f Sheffield og er um 8 km. „Maður er að komast á sæmi- legt skrið með æfingarnar,“ sagði Jón Diðriksson í spjalli við Mbl. í gær. Sagði Jón að þeir félagar hefðu aðeins keppt einu sinni hvor það sem af væri hausti. Hljóp Jón vel í Manchester- boðhlaupinu sem er 6x2ja mílna hlaup. Sigraði lið Newcastle- skólans í skólakeppninni og er upp var staðið var Jón með fjórða bezta tima dagsins í þessu árlegá og mikla hlaupi, hljóp á 9:33 mín- útum. -Beztum tíma náði Ricky Wilde frá Manchester en hann hefur m.a. af Evrópumeistaratitli innahúss að státa. Sagði Jón að nú væru margir ágætir hlauparar í skólanum og væri liðið með allra beztu háskólaliðum á Englandi í vetur. „Maður er ennþá þungur á sér og því gekk ekki betur en raun varð á,“ sagði Sigfús um hlaup sitt í Sheffield, en þar varð hann í fimmta sæti í mishæðóttu 8 km víðavangshlaupi á tímanum 27.36 JÓNI mínútum, en sigurvegarinn hljóp á 26.59 mínútum. Sigfús sem ver- ið hefur við nám undanfarin ár í Englandi varð fyrir því óláni að stolið var í sumar úr herbergi hans öllum bókum hans, húsgögn- um, hljómflutningstækjum, verð- launum, rúmfatnaði, Ijósaperu og vaski. Höfðu einhverjir bíræfnir bófar broíizt þar inn meðan Sig- fús dvaldi hér heima í sumar. Sagði Sigfús að öllu hefói verið stolið úr herberginu, sem hægt hefði verið að festa hendur á meira að segja gömlum glugga- tjöldum. Hljóðið var annars goft í þeim félögum. Næsta hlaup þeirra er alþjóðlegt götuhlaup í Gateshead, tæpir 9 km. að lengd. Ágás.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.