Tíminn - 03.06.1965, Blaðsíða 1
HANDBÓK
VERZLUNARMANNA
ÁSKRIFTARSÍMI
16688 16688 16688
HANDBCM(
VERZLUNARMANMA
ÁSKRIFTARSÍMI
16688 16688 16688
Geimfari
stípr út
f dag ætla Bandaríkjamenn
að skjóta á loft Gemini geim
fari frá Kennedy-höfða á Flór
ída,en það er einn liður í und
irbúningi þeirra til að senda
menn til tunglsins. Geimfar-
arnir í þessari fjögurra daga
ferð, eru þeir Edward White
(t. v.) og ilames McDivitt, og
annar þeirra mun reyna að
fara út úr geimfarinu. Menn
bíða nú spenntir eftir að vita
hvort Bandaríkjam. takist
þetta. Hér eru þeir að at-
huga fyrirkomulagið í stjórn-
klefa geimskipsins.
„Afstaða atvinnurekenda til stærstu samningsatriða óljós”
Fáir cEagar eru til stefnu
EJ-Reykjavík, miðvikudag.
— Öll meiríháttar mál í samn
ingum okkar Norðan- og Austan-
manna við atvinnurekendur eru I hækkun og stytting vinnutímans.
ennþá á fyrsta umræðustigi, t. d. Afstaða atvinnurekenda til þess-
tilfærslur milli flokka, kaup-1 ara stóru atriða er ei;n ekki ljós,
SEKTAÐIR FYRIR OFHLEÐSLU
BÞG—Reykjavík, miðvikudag
Undanfarið hefur færð verið
mjög slæm á leiðinni norður í
land, í Norðurárdal og þó eink
um í Húnavatnssýslum og
Skagafirði. Af þeim sökum hef
ur lögreglan í Borgarnesi haft
eftirlit með bifreiðum, sem
fara um veginn og gætt þess að
farið sé að lögum um þuuga-
flutning. Hafa þó nokkuð marg
ir bílar verið stöðvaðir við
Hreðavatn og látnir losa á
staðnum, skýrsla tekin af bíl-
stjórunum og þeir sektaðir, að
því er Hörður Jóhannsson, yfir
lögregluþjónn í Borgarnési
tjáði blaðinu í dag.
Hámarks öxulþungi er 7 tonn
eða 11 tonna heildarþungi og
hefur nokkuð borið á því, að
þyngri bifreiðir færu áleiðis
norður. Hefur þess vegna verið
tekið upp strangt eftirlit með
umferð á norðurleiðinni undan
farið í hinum miklu umhleyp
ingum og verður því haldið
áfram meðan ástandið er svona
slæmt á vegunum. Var Hörður
einmitt að koma úr einni slíkri
eftirlitsferð síðdegis í dag er
Tíminn hafði samband við hann
Framhald á l^. síðu.
Uria áfengi í Hvalfirði?
BÞG-Reykjavík, miðvikudag.
Eins og kunnugt er hefur svo
borið við undanfarin ár, að
unglingar hafa safnazt saman á
vissum stöðum á landinu yfir
hvítasunnuhelgina og haft í
frammi óspektir og drykkjulæti.
Tíminn hefur nú óstaðfestar frétt
ir af undirbúningi sams konar hóp
ferða, sem að því er virðist hafa
verið skipulagðar, og nú sé m. a.
farið að urða brennivín í Hval-
firði. Af þessu tilefni hafði Tím-
inn samband við sýslumannsemb
ættin á Selfossi og í Borgarnesi.
Af hálfu löggæzlunnar á þess'um
stöðum er enginn sérstakur við-
búnaður framar venju, en lögregl
an er við öllu búin.
Blaðið náði ekki í Ásgeir Pét-
ursson, sýslumann í Borgarnesi,
en hafðl þess í stað samband við
Hörð Jóhannsson, yfirlögreglu-
bjón. Sagðist hann einmitt hafa
haft samband við lögregluna í j fyrra í Borgarf jörð, en flestum I framganga löggæzlunnar í hérað-
Reykjavík undanfarið til þess að mun í minni óspektir mörg hundr j inu við að reka lýðinn á brott.
komast að því, hvort búast mætti uð unglinga við Hreðavatn um i í Borgarnesi eru 2 starfandi
við sams konar heimsókn og í I hvítasunnuna í fyrra og vaskleg ! Framhald á l4. síðu.
en það fer að renna út sá tími,
sem þeir fá til þess að hugsa sig
um. Það mun því ráðast af fram-
vindu þessara mála næstu daga,
hvort til verkfalls kemur deginum
fyrr eða seinna, eða hvort samn-
ingar takast án verkfalls — sagði
Bjöm Jónsson formaður Einingar
á Akureyri, er blaðlð hafði sam-
band við hann í dag.
— Hvaða mál hafa einkum ver
ið rædd á þeim fundum, er haldn-
ir hafa verið undanfarið, Björn?
— Það hefur verið svo til ein-
göngu fjallað um smærri atriðin í
kröfum okkar, en Þau voru æði
mörg, og má segja, að ágreinings-
atriðunum í þessum flokki hafi
fækkað mjög verulega. Aftur á
móti eru allar umræður um
stærri mál á byrjunarstigi, og af-
staða atvinnurekenda til þeirra
mála ekki enn ljós. En sá tími,
sem þeír fá til þess að hugsa sig
um, fer að styttast, og myndi ég
ætla, að það líði ekki margir dag
ar þangað til ljóst verður, hvort
til verkfalls verður gripið eða
ekki.
— Hefur samninganefndín feng
ið heimild til verkfallsboðunar frá
mörgum félögum fyrir norðan og
austan?
— Já, við höfum fengið heimild
frá öllum þeim félögum, sem hafa
verulega þýðingu ef til verkfalls
kemur, og er því hægt að boða
verkfall hvaða dag sem er.
Sáttafundur var með félögunum
fyrir norðan og austan og atvínnu
rekendum í gærkvöldi og til klukk
an hálf sex í morgun, og nýr
íundur hófst í kvöld kl. 21.
Þá átti blaðið tal við Eðvarð
Sigurðsson, formann Dagsbrúnar,
í dag, og sagði hann, að fundur
yrði hjá verkamanna-'' og verka-
kvennafélögunum í Reykjavík og
Hafnarfirði og atvinnurekendum
í kvöld. Sagði hann, að ekki hefði
enn náðst verulegur árangur í við-
ræðunum við atvinnurekendur.
Eðvarð sagði, að á föstudaginn
kl. 2 yrði haldinn fundur í Veiika
mannasambandinu, og myndu Þar
mæta samninganefndirnar og
stjórn sambandsins, og fulltrúar fé
laganna á Ísafirðí, í Vestmanna-
eyjum og fyrir austan fjall. Á
þessum fundi verður rætt um
samningamálin.
Á morgun, fimmtudag, kl. 10 ár-
degis verður fundur í 14 manna
samninganefnd verkalýðshreyfing
arinnar og Þar gefið yfirlit yfir
ástandíð í samningamálunum.
FARA ISLFNZKIR SJOMFNN AÐ
KENNAIND VERJUM FISKVEIDAR?
MB—Reykjavík, miðvikudag.
íslenzkur maður, Ingólfur Árna
son, er nú staddur í Indlandi og
ræðir þar við framámenn í fisk
iðnaði um hugsanlega aðstoð ís-
lendinga við Imdverja í fiskveið
um. Hefur komið til tals, að Sam-
einuðu þjóðirnar yrðu fengnar til
þess að styrkja tæknisamstarf ís-
lendinga og Indverja.
Blaðið átti í dag tal við dr.
Gylfa Þ. Gíslason, viðskiptamála
ráðherra, og spurðist fyrir um
þetta mál. Ráðherrann sagði. að
forsaga þessa máls væri sú. að í
fyrra hefði komið hingað maður
frá Suður-Indlandi, og væri hann
meðeigandi í stóru fyrirtæki, er
vildi gjarna fara út í fiskveiðar og
þá jafnframt fiskvinnslu, Hann
vildi kynna sér hér möguleika á
því að fá aðstoð íslendinga tíl
þessa, og ræddi hér við ýmsa
framámenn á sviði fiskveiða og
fiskvinnslu. Einnig ræddi hann við
dr. Gylfa, þar eð hann hafði les
ið blaðafregnir og heyrt útvarps
fréttir um viðræður hans og ind-
verska viðskiptamálaráðherrans,
þegar dr. Gylfi var á ferð í Ind-
landi í fyrra, en þá ræddu þeir
ráðherrarnir um það sem í blöðum
austur þar var kallað tæknisam
vinna íslendinga og Indverja. Ráð
Framhald á 15. síðu.