Morgunblaðið - 23.11.1977, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. NÖVEMBER 1977
Vegamál í
Landsþing F.l.B. 1977 og um-
boðsmannaráðstefna var haldin
dagana 19. og 20. nóvember I
Kópavogi.
Þingforseti var kjörinn Guð-
mundur Jóhannsson og ritari Þór-
arinn Óskarsson. Formaður Fé-
lagsins Eggert Steinsen flutti
skýrslu stjórnar.
Aðalmál þingsins voru vega-
mál. Hafði verið kjörin sérstök
vegamálanefnd til undirbúnings
þessa málaflokks, en formaður
nefndarinnar var Sveinn Torfi
Sveinsson verkfræðingur. Fram-
sögumenn um vegamál voru:
Valdimar Kristinsson, viðskipta-
fræðingur hjá Seðlabankanum,
Tómas H. Sveinsson viðskipta-
fræðingur og Valdimar J.
Magnússon framkvæmdarst jóri.
Framsögumenn ræddu um tekj-
ur rikisins af bifreiðum og rekstr-
brennidepli hjá FÍB
arvörum til þeirra, en þær eru
áætlaðar um 15,8 milljarðar á yf-
irstandandi ári á móti 5,7 mill-
jörðum sem varið er til vega. Rætt
var það ófremdarástand í sam-
göngumálum á landi og Ieiðir sem
hægt er að fara tíl að koma þeim í
viðunandi horf á næstu 10—15
árum. I ljós kom, að rikið þarf
aðeins að gefa eftir hálfa umfram-
skattheimtu af bflum til að gera
það mögulegt.
Fjörugar umræður urðu um
þetta mikilvæga hagsmunamál
þjóðarinnar og fundarmenn sam-
mála um að Alþingi hefði brugð-
ist skyldu sinni i stefnumörkun
samgöngumála á undanförnum
árum. Ekki yrði lengur unað
áframhaldandi tómlætís í þessum
málaflokki sem væri undirstaða
efnahagsþróunar í landinu og í
reynd raunhæfasta leiðin til að
færa byggðirnar svo saman að at-
vinnulif og þjónustustarfsemi i
landinu geti þróast á hagkvæman
hátt fyrir þjóðarheildina.
Framsögumaður um umferðar-
og öryggismál var Arinbjörn Kol-
beinsson læknir. Gerðar voru
ýmsar samþykktir um þau mál.
Á þinginu var Valdimar J.
Magnússon kjörinn heiðursfélagi
í viðurkenningarskyni fyrir mjög
mikil störf í þágu félagsins sl. 20
ár.
Framhald á bls. 21.
Þörungavinnslan:
12 milljón kr. rekstrarafgangur
Heimamanna h.f. er sýndargróði
Einbýlishús Kópavogi
Höfum til sölu stórt einbýiishús við Hlé-
gerði. Möguleiki á tveim íbúðum með sér
inngangi. 60 fm. bílskúr. Góður staður.
Sigurdur Helgason, hrl.
Þinghólsbraut 53, Kópavogi.
Sími 42390 kvöldsími 26692.
Verzlunarhusnæði
við Hafnarstræti/Lækjartorg
Til sölu er húsnæði fyrir eina
verzlun í húsinu Hafnarstræti
22. Þeir sem áhuga hafa eru
beðnir að hafa samband við
okkur hið fyrsta.
Eiqna Heímas. 35417
markaðurinn
Austurstræti 6 sími 26933 Jón Magnússon hdl.
C<C<S<C<C<I
r!i
EIGNANAUST
Laugavegi 96 (við Stjörnubíó) Sími 2 95 55
SÖLUM. Hjörtur Gunnarsson. Lárus Helgason, Sigrún Kröyer.
LÖGM. Svanur Þór Vilhjálmsson hdl.
*
*
,A
*
a
*
29555
Miðvangur — Hafnarfirði
2ja — 3ja herb. 60 ferm. sérstaklega falleg
íbúð. Gott verð, útb. aðeins 5 — 5,5 millj.
Rauðilækur 2 herb. 64 ferm.
íbúðin er á 2. hæð, rúmgóð stofa og herb. stórt
eldhús, yfir íbúðinni er mjög gott geymsluris
gæti verið herbergi. Bílskúr fylgir útb. 5 — 5,5
millj.
írabakki 4ra herb.
auk herb. í kjallara, mjög falleg íbúð á 1. hæð.
Útb. 7,7 — 8 millj.
Nýlendugata 3ja herb. 80
ferm.
útb. 3,5 millj.
Höfum kaupanda að 2ja herb. íbúð, íbúðin má
vera í Hraunbæ, Breiðholti, Austurbænum.
Höfum kaupanda að 3ja — 5 herb. góðri íbúð í
Austurborginni með bílskúr á 1. — 2. hæð.
Mikil útb.
Höfum kaupanda að góðu viðlagasjóðshúsi í
Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ.
Höfum kaupanda að einbýlis- eða raðhúsi í
Austurborginni. Útb. um 16 millj.
því ef tekið væri tillit til vaxta og afskrifta
væri tap verksmiðjunnar 150-155 millj. kr.
AÐALFUNDUR Þörungavinnsl-
unnar h.f. var haldinn að Mjólk-
urvöllum, félagsheimili Reyk-
hólasveitar, 19. þessa mánaðar.
Þegar formaður fráfarandi
stjórnar, Vilhjálmur Lúðvíksson,
setti fundinn voru mættir 38 kari-
menn, bæði hluthafar, svo og
starfsfólk verksmiðjunnar, en
það sat fundinn f boói stjórnar
Þörungavinnslunnar með fullu
málfrelsi. Vilhjálmur baó lög-
mann verksmiðjunnar, Ragnar
Aðalsteinsson, að stjórna fundin-
um.
Fundarstjóri gaf forstjóra verk-
smiðjunnar, Ómari Haraldssyni,
orðið og flutti hann skýrslu, um
rekstur Heimamanna sf. á verk-
smiðjunni í sumar, en eins og
lesendum mun i fersku minni
voru hin raunverulegu fjárráð
tekin af stjón Þörungavinnslunn-
ar í vor og fengin Heimamönnum
s.f. f hendur. Miðað við aðstæður
gekk rekstur verksmiðjunnar vel
í sumar og varð rekstrarafgangur
rúmar 12 milljónir króna. Tíma-
kaup öflunarmanna (gengis-
manna) var að meðaltali 1500 kr.
á klukkustund en fór upp í kr.
2300 á klst. hjá þeim, sem skilaði
inn mestu þangi.
Einnig minntist Ömar á þara-
þurrkun, sem nú stendur yfir, og
gengi hún ágætlega, en þurrefnis-
magn væri miklu minna og þar af
leiðandi minni afköst. Heitavatns-
skortur væri mikill.
Næstur talaði Vilhjálmur Lúð-
víksson og sagði hann að vel hefði
verið unnið á öllum vígstöðvum í
sumar en ekki væru öll kurl kom-
in til grafar. í raun og veru væri
gróði Heimamanna s.f. sýndar-
gróði, þar sem verksmiðjan hefði
ekkert tekið tillit til afskrifta og
vaxta og mundi tapið á árinu
nema 150 til 155 milljónum króna,
en þar af væru 120 milljónir af-
skriftir. Stjórnin hefði, að þvi er
Vilhjálmur sagði, leitað eftir því
að skjóta stoðum undir fyrirtæk-
ið, svo að það gæti borið sig fjár-
hagslega; m.a. með því
1) að stuðla að því að verk-
smiðjan næði fullri afkastagetu
(til þess að það sé hægt, þarf
meira heitt vatn, en það fæst með
nýrri borholu);
2) auka þangöflun og tvöfalda
þangmagnið.
3) nýta verksmiðjuna til þurrk-
unar á smáfiski (loðnu) i marz til
mai (loðnan er seld í hundafóður
og ef gott verð fæst fyrir hana);
4) að leigja M.s. Karlsey til
vöruflutninga þegar skipið er
ekki að störfum fyrir verksmiðj-
una;
5) nýta verksmiðjuna til þara-
þurrkunar, þegar þangskurðar-
tíma lýkur ár hvert;
6) vinna að þvi að afla nýrra
markaða fyrir afurðir verksmiðj-
unnar;
7) framleiða áburðarvökva úr
þórungum (en það er auðvelt og
tilraunir hafa sýnt fram á að slík-
ur vökvi er ágætis áburðarefni og
kemur seltan ekki að sök).
Þeir Ölafur E. Ólafsson og Vil-
hjálmur hafa ferðast um Breiða-
fjarðarsvæðið og fengið góðar við-
tökur um afnot af þangfjörum. Þó
eru tvær til þrjár jarðir alveg
lokaðar ennþá, en þær eru Mið-
hús í Reykhólasveit og Hvallátur í
Flateyjarhreppi. Margar jarðir
eru með takmörkunum. Vilhjálm-
ur taldi að sýnt væri að bændur
hefðu ekkert að óttast.
Næst kvartaði Vilhjálmur und-
an gagnrýni á stjórn þörunga-
vinnslunnar og þó einkum frá
Dagblaðinu. Vilhjálmur sagði að
sýni af vörum Þörungavinnslunn-
ar sýndu að þær væru um 25
prósent betri en frá öðrum verk-
smiðjum, sem notuðu eld til
þurrkunarinnar. Enda væru vör-
ur frá Þörungavinnslunni i sér-
stökum gæðaflokki. Þá lagði Vil-
hjálmur fram rekstraráætlun
fyrir árið 1978 og hljóðaði hún
upp á 223 milljónir króna i tekjur
og rekstrarafgangur áætlaður 55
milljónir.
Þá var lýst stjórnarkjöri: Frá
iðnaðarráðuneytinu voru þessir
menn skipaðir til eins árs: Jón
Sigurðsson, Vilhjálmur Lúðvíks-
son efnaverkfræðingur og Stein-
Olafsvík, 21. nóv.
SL. SUNNUDAG var haldið upp á
10 ára vígsluafmæli Ólafsvíkur-
kirkju, en hún var vígð hinn 19.
nóv. 1967. Barnamessa var kl. 11
og kl. 14 var hátíðarmessa.
Sóknarpresturinn, séra Árni
Bergur Sigurbjörnsson, prédik-
aði, en tveir fyrrverandi sóknar-
prestar hér þjónuðu fyrir altari,
þeir séra Magnús Guðmundsson
fyrrverandi prófastur og séra
Hreinn Hjartarson. Kirkjukór
Ólafsvíkurkirkju söng undir
stjórn Bjargar Finnbogadóttur.
Biskupinn yfir tslandi, herra
Sigurbjörn P'inarsson, ávarpaði
söfnuðinn og sömuleiðis séra
Magnús Guðmundsson. Eftir
messu bauð sóknarnefnd til kaffi-
samsætis í Safnaðarheimilinu.
grímur Hermannsson þingmaður.
En Ólafur E. Ólafsson og Ingi-
garður Sigurðsson voru sjálf-
kjörnir fulltrúar Heimamanna.
Það sem vekur athugli við þess-
ar kosningar er að fjórir af fimm
stjórnarmönnum, sem iðnaðráð-
herra tók af fjárráðin í vor, eru
settir inn i störf sin aftur, en
einum vikið frá og ekki var það
tekið fram að hann hefði sjálfur
beðist undan endurkosningu.
Hins vegar verður að líta svo á að
Jón Sigurðsson sé í meiri tengsl-
um við fjármálakerfi þjóðarinnar
en annars eru vegir stjórnmál-
anna órannsakanlegir.
Þá kvaddi öflunarstjóri Þör-
ungavinnslunnar, Bragi Björns-
son, sér hljóós. Hann taldi nauð-
synlegt að sá sem sæi um öflun
kynni eitthvað til sjóverka. En
hann og Sigurður Ilallsson efna-
verkfræðingur mundu vera þeir
menn, sem skriðið hefðu mest um
fjörur Breiðafjarðar. Bragi taldi
stjórnina alltof værukæra i störf-
Framhald á bls. 21.
Síðdegis var svo hátíðarsamkoma
i kirkjunni. Þar söng kór Mennta-
skólans við Hamrahlíð undir
stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur og
einnig söng kórinn við barnaguðs-
þjónustuna. Kirkjan var þétt
skipuð i öll þrjú skiptin og munu
á annaó þúsund manns hafa kom-
ið i Ólafsvíkurkirkju þennan dag.
Mikil ánægja var með komu gest-
anna til Ólafsvíkur og þá ekki sizt
komu kórs Ilamrahliðarskólans,
sem lagði á sig erfitt ferðalag.
Hákon Hertevig teiknaði Olafs-
víkurkirkju og virðist enginn
hlutlaus í mati sínu á fegurð
kirkjunnar, en flestum þykir hún
fögur, enda eitt veglegasta Guðs-
hús á landinu. Fofmaður sóknar-
■mefndar er Alexander Stefánsson.
— Ilelgi.
10 ára vígsluaímæli Ólafsvíkurkirkju:
Á 2. þús. kirkju-
gestir yfir daginn