Tíminn - 04.06.1965, Blaðsíða 1

Tíminn - 04.06.1965, Blaðsíða 1
HANDBÓK VER2LUN A R M ANN A XSKRiFTARSÍMI WOOC «8688 HANDBÓK VERZLUNARMANNA ÁSKRIFTARSÍIVU 16688 16688 16688 Heyrði ekki fyrirskipanir um að fara inn í geimfarið Var lengur úti en Rússinn Geimfarinn stendur í dyrum geimfarsins á innielð og á myndinni til vinstri seilist hann til hurðarinnar tll að loka henni. Þessar myndlr eru frá lokaæfingum fyrrr geimskot. NTB-Houstbn, 3. júní Klukkan ndkvæmr.ega 15 mín útur fyrir 8 í kvöld eftir ís- lenzkum tímá, steig bandaríski geimfarinn, Edward R. White út úr geimfarinu Gemini—4, sem skotið var á Ioft með Titan-eldflaug frá Kennedy- höfða fyrr um daginn. Sveif Whité úti í himingeimn um í 20 mínútur eða lengur en nokkur annar maður, en hann er annar geimfarinn, sem fer út úr geimfari í háloftun um. Þegar White fór út úr geim farinu var það í 160 km. hæð yfir Kyrrahafi og stefndi í áttina yfir vesturströnd Banda ríkjanna. White, sem er 34 ára að aldri, var festur við geim farið með 7,6 m langri taug og dvaldi utan geimfarsins lengur en áætlað hafði vcrið. Stjórnandi um borð í geimfar inu var félagi hans James Mc- Divitt. Milljónir manna, sem fylgd ust með geimferðinni í sjón- varpi heyrðu stöðvar á jörðu niðri senda margsinnis skipun til Whites um að hverfa aftur inn í geimfarið, en engra við bragða varð vart hjá honum. Seinna skýrðu geimferðayfir- völd frá því, að yfirmaður geim farsins, McDivitt hefði stillt móttökutæki sín þannig, að skipanir þeesar náðu ekki til geimfarsins. Meðan White var utan geimfarsins var nákvæm lega fylgzt með hjartslætti hans og andardrætti á mæli- tækjum á jörðu niðri. Stöðugt samband var milli geimfar- anna, meðan White var úti í himinhvolfinu og létu þeir gamanyrði fara sín í milli. Báð ir tóku þeir myndir hvor af öðrum i gríð og erg. Geimfarið var um það bil beint yfir Hawai, er White fór út, en þegar hann fór aftur um borð var það komið yfir Flor ida i Bandaríkjunum. Eitthvað hefur visindamönn um á jörðu niðri verið órótt vegna hinnar löngu dvalar Whit es utan geimskipsins, því að strax og samband náðist við McDivitt fékk hann margend: urteknar skipanir um að kalla White inn, að þvi er Reuter segir. SVaraði McDivitt þv- til, að White ætti i einhverjum smávandræðum með að koraast inn, en síðan tilkynnti hann, að allt væri í lagi. Klukkan nákvæmlega 16 mínútur yfir 3 eftir íslenzk um tíma hófst geimferðin, en hún verður sú lengsta, ’ sem tveir menn hafa samtímis far- ið i umhverfis jörðu. Áætlað var að skjóta Titan-eldflaug- mtmmmmmmmmmmmmmm inni, sem bar Gemini-geimfarið (tViburageimfarið) upp kl. 2 að íslenzkum tíma, en þá varð vart við smábilun, sem fljót íega tókst þó að kippa í lag. Áætlað er, að ferðin standi í nákvæmlega 97 klukkustundir og 50 mínútur og á þeim tíma á geimfarið að fara 62 hringi um jörðu. Mikil spenna ríkti á Kenn- Framhald á 15. sfðn MB-IGÞ-Reykjavík, fimmtudag. Stórgos hófst síðdegis i dag við Surtsey, þar sem nokkur ó- kyrrð hefur verið að undanförnu. Jafnframt fylgdu jarðskjálfta- kippir í Vestmannaeyjum og sprenging frá gosinu er .alin hafa heyrzt upp á Hvolsvöll. Um níuleytið i kvöld töldu menn, sem flugu þarna yfir, að gosstrókur- inn væri um sex þúsund metrar á hæð. Fréttaritari Tímans i Vest- mannaeyjum símaði i kvöld, að svartar vikursprengingar væru sú orðnar á hæð við Surtsey Þá urðu Vestmannaeyingar varir við nokkra jarðskjálftakippi um tvö leytið í dag, eða um það leyti sem stórgosið var að byrja. Klukkan hálf tíu í kvöld hafði Tminn tai af Rúnari Guðbjarts- syni flugstjóra hjá Flugfélagi ís- lands, en hann var þá að koma úr áætlunarflugi frá Vestmannaeyj- Framhald á 15. síðu. Ádeila án tiiefnis Því er haldið fram í Þjóðviljanum i gær, að Mjólkursamsalan og Mjólkurbú Flóamanna hafi nýlega gerzt aðilar að Vinnuveitenda- sambandi íslands fyrir atbeina Framsóknarflokksins, eða í samráði við hann. Þetta er með öllu rangt, enda eru þessi fyrirtæki ekki í nein- um tengslum við flokkinn og hann hvorki ræður né ber ébyrgð á gerðum þeirra. Umrædd ákvörðun var Því vitanlega hvorki tekin með vitund hans né í samráði við hann. Það er þvi algerlega út í hött að \ wtla að g@ra þetta mál að árásarefni á Framsóknarflokkinn. Þessa mynd tók Rúnar GuSbjartsson, flugstjóri. er hann flaug yfir stórgosið við Surtsey um klukkan níu i gærkveldi. Vikurmökkurinn er á hæð vlð Surtsey, gufustrókurinn sex þúsund metrar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.