Tíminn - 04.06.1965, Blaðsíða 3

Tíminn - 04.06.1965, Blaðsíða 3
FÖSnJDAGTJR 4. júní 1965 TTMINN í SPEGLITÍMANS ;* ............................... . ............................................................................................. /. / '/SSfíífíí', .,„////1 ,, , , /„, „,, ,„,,, , , ,„ ,,/ . ,, Sumaríð er komið og tími til þess að taka fram baðfötin. Stúlkan hér á myndinni sýnir ein hinna nýju baðfata, sem komin eru á markaðinn erlendis. Þessi baðföt eru gerð af Pierre Cardin í Paris. Það hefur lengi verið sagt í blaðaheiminum, að það sé ekki frétt, ef hundur híti mann, en það sé aftur á móti frétt, ef maður bítur hund. Og nú hefur þetta sem sagt gerzt: Atburðurinn átti sér stað í Nairobi í Kenya. Lögreglan var á gangi um götur borgar- innar að næturlagi fyrir nokkru og sá þá mann einn ,CIement Ihango að nafni, sem hagaði sér „grunsamlega". Lögreglu- mennirnir höfðu með sér hund, „Judge“ að nafni og skipuðu honum að handsama manninn. En Ihango var ekki á þeim bux- unum og snerist til varnar. Fyrst beit hann hundinn í hnakkann, og dró síðan upp hm'f og særði hundinn í bakið. En lögreglumennimir komu hundi sínum tii aðstoðar og handtóku manninn, sem fyrir nokkmm dögum var dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir að bíta hundinn! ★ Sovétmenn eru farnir að framleiða lítil ferðasjónvörp, og kallast þau Junost. Er hér um að ræða transistortæki, skermurinn er 145 sinnum 183 millimetrar að stærð, tækið allt 20 sm á hæð, 27 sm á breidd og 5 kg að þyngd. Á næsta ári verða 10 þúsund slík tæki fram- leidd í Sovétríkjunum. Sænski kvikmyndaleikstjór- inn Jöra Donner er byrjaður á þriðju kvikmynd sinni, og kallast hún „Hér byrjar ævin- týrið". Aðalhlutverkin leika sænska leikkonan Harriet And ersson og finnski leikarinn Matti Oravisto. Leikur hún sænskan tízkusérfræðing, en hann finnskan arkitekt. Upptaka myndarinnar hófst í Berlín í aprfl, en í júní og júlí. verða helztu atriðin tekin, en þau gerast í Finnlandi. Er talið, að þetta verði bezta kvikmynd Jöm Donners, en hann skrifaði sjálfur handritið og stjómar kvikmyndinni, en hinn þekkti franski kvikmynda- tökumaður Jean Badal, sem nú siðast kvikmyndaði „What's New, Pussycat?“ sér um kvik- myndunina. ¥ Pólverjar ætla sér að flytja út 7.5 milljónjr lítra af sínu indæla vodka á þessu ári, að því er pólska fréttastofan til- kynnti nýiega. Pólskt vodka er nú flutt út til alls 80 landa í öllum helmsálfum. Hefur út- flutningurinn aukizt um 250% á tveim árum. ¥ José Taire, Portúgali, var við hina beztu heilsu 12. marz s.I., þegar hann lýsti því yfir, að hann myndi deyja þann 19. marz. Hann sagði bæði konu sinni og vinum og kunningjum frá þessu, en enginn lagði trún- að á þetta, því að han var mjög hraustur. En Taire gekk frá ýmsum málum, sem hann vildi hafa í lagi, þegar hann andaðist, og þann 19. mari gaf han svo skyndilega upp öndina, eins og hann hafði sjálfur spáð. ¥ Kossar geta verið dýrkeypt- ir. Það fékk sænskur maður að reyna nýlega. Hann var að aka í bifreið á aðalgötunni í bæn- um Saffle, og hafði mun meiri áhuga á stúlkunni sinni en stýr- inu. Þegar kossinum lauk, hafði hann ekið á töluverðri ferð á tvo bfla, sem lagt var við vegar brúnina, og varð hann að borga um 180 þúsund krónur í skaða bætur. Konurnar í Víetnam eru einnig þjálfaðar til þess að taka þátt í styrjöldinni, sem þar geisar. Þessi mynd er frá Hanoi, höfuðborg Norður-Víetnam, og sýnir starfsstúlkur í fataverksmiðju þar í borg æfa sig í skotfimi. Þær eru i heimavarnarliði borgarinnar. Myndin er frá TASS. Allar þekktustu kvikmynda- stjömur heimsins flykktust til Cannes, þegar kvikmyndahátíð in stóð þar yfir í síðasta mánuði og að sjátfsögðu höfðu þær með ser nílkið af glæsilegum fötum fyrir allar veizlurnar og móttökurnar. Hér á myndinni sést ein stjamanna, Caroll Baker, í einum kjólnum, sem hún hafði með sér. Hún upp- lýsti jafnframt, að vegna hitans, hefði hún ekki klæðzt neinu innan undir kjólnum. ★ Eitt af því, sem athygli vakti í sambandi við heimsókn Elísa- betar Englandsdrottningar til Vestur-Þýzkalands, var, hversu oft hún skipti um hatta! Strax fyrstu dagana bar hún á sínu konunglega höfði hvirki meira né minna en sex mismunandi hatta. ★ Brazilíumenn hafa gert yfir- lit yfir kaffiútflutning sinn árið 1964, og fluttu þeir alls út 15 milljón 60-kflóa sekki fyrir 760 milljónir dollara. USA keypti mest kaffi ,cða 44% af heild- arútflutningnum, en miðað við ibúatölu, þá hefur fsland keypt mest kaffi — eða fyrir 7.74 dollara á íbúa. ★ Allar útvarpsstöðvar í Indó- nesíu eiga nú að hætta að spila twist, rokk og jazztónlist, þar sem yfirvöldin þar í landi telja þessa tónlist ekki í samræmi við þarfir íbúanna. ¥ Landsíminn í París grobbar sig oft af því að veita símnot- endum sínum betri þjónustu en nokkur önnur símstöð i heiminum. Nú reynir hann að fullnægja þörf símnotenda fyr- ir fögur ljóð! Þessi þjónusta hófst 1. maí s.!„ og þegar hringt er I síma 8283909, þá hefst upplestur fag urra kvæða eftir hin klassísku skáld Verlaine, Hugo, Rimbaud og fleiri. BEATLES NO. 1 með 82 myndum BEATLES NO. 2 með 85 myndum Bókin kostar kr. 35.00 Sendum að kostnaðarlausu 1 ef greiðsla fylgir. FRÍMERKJASALAN Lækjargata 6 A Einangrunarkork V/2“, 2". 3“ og 4" fyrirliggjandi. JÖNSSON & JÚLÍUSSON Hamarshúsinu, vesturenda Sími 15-4-30. ALCON DÆLUR FYRIR SUMAR BÚSTAÐINN, GRIPAHÚSIN OG ALLS STAÐAR SEM ÞÖRF ER FYRIR VATNSDÆLU UMBOÐ: GÍSLI JÓNSSON & CO. SKÚLAGÖTU 26 REYKJAVÍK SÍMI 11740 BJARNI BEINTEINSSON LÖGFRÆÐINGUR AUSTURSTRÆTI 17 (SILLI & VALDI) SlMI 13536

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.