Morgunblaðið - 15.12.1977, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.12.1977, Blaðsíða 1
270. tbl. 64. árg. FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Bjartsýni um sam- komulag í Ródesíu Salisburv, 14. desember AP SVARTIR og hvítir stjórnmála- menn settust í dag aó nýju að samningaborði i Salisbury til að reyna að ná samkomulagi um stjórn svartra manna í landinu og var talsverð bjartsýni ríkjandi um að samkomulag myndi takast á næstunni. Til þessa hafa viðræður stjórn- ar Ian Smiths við biökkumanna- leiðtogana þrjá. sem fallizt hafa á viðræður, einkum snúizt um almennan kosningarétt allra þeirra sem eru 18 ára og eldri, en nú er búizt við að viðræðurnar muni snúast um það hvert vera skuli hlutverk öryggissveitanna í landinu, en í þeim eru nær ein- göngu svartir menn, enda þótt þær lúti stjórn hvítra. Sveitir þessar hafa borið hita og þunga Lugmeier Lugmeier dæmdur í 11 ára fangelsi Miinehen, 14. des. AP DÓMSTÖLL í Múnchen dæmdi í dag Ludwig Lugmeier í 11 ára fangelsi fyrir þátt hans í að ræna 560 þúsund mörkum úr br.vnvörðum bíl á árinu 1972. Lugmeier hafði áð- ur, að honum fjarstöddum, verið dæmdur í 12 ára fangelsi fyrir bankarán í Frankfurt ár- ið 1973. Hann var handtekinn í Reykjavlk í ágúst sl. ^élagi Lugmeiers, Gerhard Li'nden, var í dag dæmdur í 11 ára fengelsi, en þriðji maður- inn í ráninu 1972 situr þegar í fangelsi og afplánar 11 ára dóm sinn. baráttunnar við skæruliða undan- farin fimm ár. Ekki mun enn hafa verið samið um hver verða réttindi hvítra manna í landinu eftir að blökku- menn taka þar við völdum né með hvaða hætti kosið skuli til þings en heimildum beggja vegna samningaborðsins ber saman um að samkomulag muni að likindum nást um þessi atriði. Samningaviðræðum þessum hafa blökkumannaleiðtogarnir tveir, Nkomo og Mugabe, sem eru í útlegð, algerlega hafnað og hafa þeir heitið þvi að magna skæru- hernaðinn gegn stjórn Smiths. Leiðtogarnir þrír, sem nú sitja að samningaborði með Smith, hafa hins vegar Iýst því yfir að hreyf- ingar þeirra hafi stuðning um það bii 80% allra svertingja í landinu, en þeir eru 6,4 milljónir. (símaim ntl V1») Frá Kairófundinum sem hófst í gær. Við borðið sitja, frá vinstri, Meguid sendiherra, fulltrúi Egypta, Ensio Siilasvuo, finnski hershöfðinginn sem er fulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Ben-Elissar, fulltrúi Israelsmanna, og Alfred Atherton. fulltrúi Bandaríkjastjórnar. Sæli Sovétríkjanna, Líbanons. Sýrlands. Jórdaníu og PLO-hrevfingarinnar eru auð. Kairófundurinn hafinn: Búizt við litlum árangri fyrr en eftir komuBegins fráUSA Kafró, Washington, 14. des. AP. Reuter. kaírórAðstefnan til undirbúnings Genfarráö- stefnunni um varanlegan friö í Miðausturlöndum hófst í morgun með ræðum fulltrúa Egyptalands og Israels, þeirra Abdel Meguid sendiherra Egypta hjá S.Þ. og Eliahu Ben- Elissar ráðuneytisstjóra í ísraelska forsætisráðu- neytinu. Lögðu þeir báðir áherzlu á að nást yrði sam- komulag allra ríkja sem að deilunni standa, en hvor- ugur minntist á þau tvö mál sem líklegust eru til að standa í vegi fyrir samn- ingum, þ.e. málefni Pale- stínuarabanna og framtíð þeirra landsvæðasem Isra- elsmenn hafa hernumið. Fundurinn i dag fór fram með mjög vinsamlegum hætti. Einn fulltrúi frá hverjum viðræðuað- ila, en þeir eru auk ísraels og Egyptalands, Bandaríkin og Sam- einuðu þjóðirnar, sat við samn- ingaborðið en aðstoðarmenn Brezka þingið hafnar hlut- fallskosningum til EBE-þings Frjálslyndir styðja stjórnina áfram London, 14. des. AP. Reuíer. FRJALSLYNDI flokkurinn í Bretlandi hefur ákveðið að halda áfram samstarfi sinu við stjórn Verkamannaflokksins enda þótt neðri málstofa þingsins hafi fellt tillögur stjórnarinnar um hlut- fallskosningar til Evrópuþingsins m.á. með atkvæðum margra þing- manna Verkamannaflokksins. Frjálslyndi flokkurinn hafði lagt á það mikla áherzlu að frumvarp V-þýzka stjórnarandstaðan: Leber ber að víkja vegna njósnamálsins Bonn, 14. des. Reuter, AP. FLOKKUR kristilegra demókrata í V-Þýzkalandi, sem er í stjórnar- andstöðu, krafðist þess í dag, að Georg Leber, varnarmálaráð- herra landsins, segði af sér vegna njósnamálsins sem komið hefur verið upp um í landinu og jafn- framt sakaði stjórnarandadstaðan hann um að reyna að hyima yfir málið. Helmut Kohl, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, sagði í yfirlýsingu í dag að ráðherrann væri óhæfur til að gegna starfi sínu og yrði að fara frá. Kohl sagði ennfremur að Helmut Schmidt kanzlari yrði að taka á sig einhverja sök í máli þessu. Schmidt hefur neitað því að hafa vitað neitt um málið þar til upp um það var ljóstrað í Frank- furter Allgemeine Dagbiaðinu sl. mánudag. Bandarísk hernaðaryfirvöld hafa viljað láta líta svo út sem of mikið hafi verið gert úr máli þessu og að skjöl þau sem Renate Lutz hafi Ijósritað og kotnið til kommúnistalandanna hafi ekki verið jafnmikilvæg og af sé látið. Njósnararnir þrír voru hand- teknir í júní í fyrra en ekki var ljóst hvað njósnir þeirra voru miklar umfangs fyrr en fyrir skömmu og v-þýzki ríkissaksókn- arinn hefur látið þau orð falla að málið hafi valdið landinu meira tjóni en njósnamál það sem varð Willy Brandt að falli árið 1974. Réttarhöld yfir fólkinu sem hand- tekið hefur verið I málinu hefjast í næsta mánuði í Dússeldorf. Dagblöð í V-Þýzkalandi sem mikið hafa skrifað um málið fara mörg hörðum orðum um Leber varnarmálaráðherra og saka hann um að hafa ekki tekið mál þetta nógu föstum tökum í upphafi. Leber mætti í dag á fundi með varnarmálanefnd þýzka þingsins í Bonn en að honum loknum sögðu þingmenn stjórnarandstöð- unnar að hann hefði farið undan í Framhald á bls. 18 þetta næði fram að ganga og var það einn hornsteinninn i sam- komulagi flokkanna. Um tíma f dag var talið að samstarf flokk- anna væri nú farið út um þúfur, en eftir fundi þingmanna frjáls- Iyndra og fund leiðtoga þeirra, David Steel, með Callaghan for- sætisráðherra var ákveðið að rifta ekki samstarfinu að svo stöddu, enda þótt talið sé að forsætisráð- herrann hafi ekki boðið flokkn- um neitt í staðinn. Neðri málstofan felldi með 319 atkvæðum gegn 223 frumvarpið um hlutfallskosningar til Evrópu- þingsins og Vilja þingmenn í stað- inn viðhalda því kerfi sem gildir í kosningum til brezka þingsins að sá hljóti kosningu í hverju kjör- dæmi sem flest atkvæði fær. Úr- slit atkvæðagreiðslunnar munu hafa í för með sér töf á því að Evrópuþing kosið beinni kosn- ingu í aðildarrikjum EBE taki til starfa. Fyrirhugað var að kosn- ingar færu fram til þingsins í maí eða júní á næsta ári, en fyrirsjá- anlegt er nú að af því getur ekki orðið svo snemma, þar sem mik- inn tíma þarf í Bretlandi til að koma um kring því kosningakerfi sem þingið þar vill og ákveða verður nýja kjördæmaskipan fyrir Evrópuþingskosningar í landinu. Roy Jenkins, sem nú er í for- Framhald á bls. 18 þeirra fyrir aftan þá. Stólar ann- arra sem boðið var til ráðstefn- unnar en ekki þágu boðið voru auðir. Fundarstaður er Mena- hótelið rétt við egypzku pýramíd- ana, en á því hóteli áttu Churchill og Stalín með sér fund árið 1943. Egyptar hafa lagt sig mjög fram um;að veita gestum sínum góða þjónustu og hafa í fyrsta sinn í sögunni verið opnaðar simalínur milli Kairó og Tel Aviv og hægt er að hlusta óhindrað á ísraelskt útvarp í Egyptalandi. Öll simtöl til Tel Aviv, matur og drykkur er á kostnað Egypta. Ekki fóru fram ýtariegar við- ræður á þessum fyrsta fundi frek- ar en búizt var viö, en almennt er gert ráð fyi'ir að hinar raunveru- legu samningaviðræður fari fram í óformlegum viðræðum aðila, en allir fundarmenn búa á Mena- hótelinu. Tæpast er þó búizt við því að nokkuð taki að miða i sam- Framhald á bls. 18 Verkfalli afstýrt á Grænlandi með lögum Kaupmannahöfn, 14 des Reuter DANSKA þingið samþykkti í kvöld með yfirgnæfandi meirihluta at- kvæða neyðarlöggjöf til að afstýra verkfalli 45 starfsmanna i.raforku- verum og kyndistöðvum á Græn- landi sem talið er að geti haft hörmulegar afleiðingar fyrir íbúa landsins Lögin gefa sáttatillögu danska rikissáttasemjarans laga- gildi og banna verkfallið Fulltrúar allra flokka á þinginu nema fjögurra smáflokka greiddu atkvæði með til- lögu Grænlandsmálaráðherrans um þessa löggjöf, en ráðherrann, Jörgen Peder Hansen, hafði lýst þvi yfir að héraðsráðið á Grænlandi, sem verður stjórn landsins þegar það fær heimastjórn, væri löggjöf- inni fylgjandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.