Morgunblaðið - 12.01.1978, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 12.01.1978, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1978 \ Þorsteinn Böðvarsson frá Grafardal -Kveðja: Fæddur 9. júnf 1902. Dáinn 23. júnf 1977. „Þú bláfjalla geimur með heidjöklahring um hásumar ílf ég þér að hjarta. Ó, tak mig í faðm þinn minn söknuð burt ég s.vng um sumarkvöld við álftarvatnið bjarta." Að áliðnum degi tók hann hnakk sinn og hest og hélt norður á Skorradalsvatn, þar átti hann net og stundaði veiðiskap á sumr- um. Vatnið seiddi hann og dró til sin og stúss hans við veiðina var honum slík gleði að enginn reyndi að fá hann til að hætta þessu. Vissum þó vel að hann fór marga ferðina meira af vilja en getu. Við deilum ekki við tfmann, ellin sæk- ir þá héim sem lifa, þegar árin eru orðin 75. Ég sé til hans á t Faðir okkar KRISTINN GUÐMUNDSSON. irá Húsatóftum. Grindavik andaðist i Landakotsspitala 10 janúar Helga Kristinsdóttir. Jórmundur Kristinsson t Maðurinn minn, faðir, tenydafaðir oy afi, ÓLAFUR BENÓNÝSSON, frá Háafelli, Skorradal, Tunguheiði 14, Kópavogi, verður jarðsunyinn frá Fossvoyskirkju föstudayinn 1 3 janúar kl 3 e h Blóm oy kransar vinsamleyast afbeðnir Sigríður Sigurðardóttir, börn, tengdaborn, og barnaborn + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhuy við andlát oy útför ANTONS M. EYVINDSSONAR, fyrrv. brunavarSar. Sérstakar þakkir færum við Brunavarðafélayi Reykjavikur r Börn. tengdabörn og barnabörn. t Innileyar þakkir færum við öllum sem vottuðu okkur samúð við andlát oy útför móður okkar, tenydamóður, ömmu oy lanyömmu, OKTAVÍU HRÓBJARTSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til vistfólks oy starfsfólks á Hrafnistu Sigurbjört Kristjánsdóttir Þorsteinn Guðbrandsson Þórunn Sólveig Kristjánsdóttir Björn Júlíusson börn og barnabörn + Þökkum sýnda samúð veyna andláts UNU BENJAMÍNSDÓTTUR. Kleppsvegi 26, sem lézt 25 nóvember s I Sonur, tengdadóttir og barnaborn + Inmleyar þakkir fyrir auðsýnda samúð oy vináttu við andlát oy jarðarför föður okkar. fósturföður. tenydaföður, afa oy lanyafa JÚLÍUSAR BJÖRNSSONAR ' Gargsdal Björn Júliusson Aðalheiður Björnsdóttir Sigriður Júlíusdóttir Njáll Guðmundsson Halldór Jónsson Hulda Pálsdóttir Hafliði Ólafsson Ingibjörg Kristjánsdóttir Erla Björnsdóttir Þórður Njálsson Július Njálsson og barnabarnabörn. Lokað frá hádegi í dag vegna jarðarfarar Sigurðar Bjargmundssonar Axminster h/f Grensásvegi 8. bátnum þegar hann er kominn út á vatn og börnin fara til að hafa tal af honum. Skömmu seinna sé ég hópinn allan á leið heim og þá veit ég að hann ætlar að gista hjá okkur. Vitja svo aftur um næsta morgun. Þannig hafði það verið í sex sumur. Börn mín kölluðu hann afa þá; hann var þeirra afabróðir og hann afi var ævintýri. Marga gleðistund vorum við búin að eiga með honum þessi sumur. Hann kom færandi hendi sí og æ gef- andi okkur eitt og annað sem kom sér vel. Stærsta gjöfin var þó vin- átta hans og það að kynnast lífs- þreki hans og þeim kjarki sem hann átti aldraður og sjúkur. Þetta kvöld beið hans dauðinn og tók hann með sér burt. Við horf- umst hér í augu við þá alvöru sem enginn möglar móti. Hvítt vor- regnið varð kalt eins og hagl. Lff hvers manns er saga. Mér er hugsað til hans fyrstu ára, til móð- ur hans Kristínar sem verður skyndilega svo undarlega nálæg. Þorsteinn var annað barn hennar og bónda hennar Böðvars, fæddur á Kirkjubóli í Hvítársíðu árið 1902. Þá var búið í bæjum úr torfi og grjóti og aðbúnaður ailur ann- ar en nú. Fátækar konur hlutu að búa yfir mikilli umhyggjusemi og natni til þess að börn þeirra lifðu fyrstu árin. Þeir voru þrír bræð- urnir Jón, Þorsteinn og Guð- mundur. Ég veit að á þessu fá- tæka heimili rikti mikil hamingja og þeir bræður voru mjög sam- rýndir litlir drengir. — A barns- aldri missir Þorsteinn móður sína og þá tók við dvöl hjá vandalaus- um. — Þá reynslu ræddi hann ekki við mig. En í gömlu bréfi sem Þorsteinn skrifar föður sín- um eftir að þeir skildu sé ég að ekki hefur hann misst kjarkinn og sé ég líka að hann hefur þá verið orðinn vel skrifandi. Árið 1930 hóf Þorsteinn búskap í Grafardal ásamt konu sinni Jónasfnu Bjarnardóttur frá Lambadal í Dýrafirði og bróður sínum Jóni og konu hans Salvöru Brandsdóttur. Sambýlið stóð í tuttugu ár. Þá deyr Salvör móðir mín. Við reyndum þá eins og æ síðan að allt sem Þorsteinn gat fyrir okkur gert var sjálfsagt. I Grafardal festi Þorsteinn yndi og þaðan vildi hann ekki fara. Þau Jónasína og Þorsteinn eignuðust fjögur börn Kristján, Böðvar, Bjarna og Sigríði. Böðvar tók við búi að föður sínum og seinustu árin voru heim- ilin í Grafardal aftur tvö. — Það er lán öldruðum að geta dvalið í því umhverfi sem hann hefur að- lagast, vinna þau störf sem heils- an leyfir, hafa féiagskap þeirra sem honum eru kærastir og nán- astir. Þorsteinn hafði kvatt bræð- ur sína báða og mágkonur en nýtt fólk var komið, tengdabörn og barnabörn. Börn Böðvars og Ás- rúnar konu hans eru þrjú. — Tvö þau eldri fóru marga ferðina með afa til ýmissa útiverka. í vinnu- lúna hönd seildist önnur lítil og stundum hálfköld. „Leiddu mig afi". „Hvert ertu að fara afi“? Svo eitt kvöld er hann farinn einn. Horfinn út í hina björtu nótt. Börnin skilja ekkert, við hin- ir fullorðnu litlu meira. Lífið er bara svona — dauðinn er bara svona. £f minn kæri föðurbróðir mætti orð mín heyra, þá þakka ég honum samveruna. — Þakka gjaf- ir hans, vináttu og tryggð. — Guð veri með honum og þeim sem hann unni mest. — Þurfður Jónsdótt ir. Jón Hallur Karls- son — Minning Fæddur 26. mars 1960. Dáinn 4. janúar 1978. Jólin eru liðin, i trú von og kærleika með oss kristnum mönn- um, er veita heimilum vorum þann unað, sem fjölskyldu- og ættartengslum er best auðið að gjöra. Á þessum hátíðisdögum hverfa hugir vorir líka i hugsunum vor- um til þeirra er frá oss eru farnir til æðri heima. Mörg jólaminning meðal vor er oss sem helgur dóm- ur um hjartahlýju og fórnfýsi skyldra og óskyldra í þjóðfélagi voru. Myrkrið tekur að hverfa fyrir lengri sólargangi, nýtt ár rennur upp meðal vor, hið gamla hefur endað sitt skeið. Margur á unga aldri horfir fram, að honum finnst, til tuga komandi ára á sinni ævibraut, þeir eru f óða önn að búa sig undir lífið með námi og starfi, svo þeim verði auðið að axla byrðar þess. Og þeirra nán- ustu gleðjast yfir þeim frama og þroska er börn þeirra ná, það eru líka þeirra sigrar f lífinu. Ungur piltur vinnusamur að, starfi og námi kaus heldur fyrsta skóladaginn að vinna en nema í upphafi hins nýja árs, en við starf sitt féll hann frá á snöggu auga- bragði, um hádegisbil gekk sól hans til viðar. En svo var um Jón Hall Karls- son er andaðist 4. janúar á vinnu- stað við Svartsengi. Hann var fæddur 26. mars 1960 i Reykjavík, sonur hjónanna Karls Ömars Jónssonar verkfræðings og konu hans Ólafar Stefánsdóttur. Jón Hallur bar nafn föðurafa síns er var mikill dugnaðar maður er heilsa hans leyfði og hagsýnn og bjó við því betri hagi er lengur In memoriam Gísli Jóhannesson Gisli Jóhannsson, öldungur I hópi þeirra persónuleika sem hafa myndað samfélag okkar, er genginn til moldar. Hann var faðir, tengdafaðir, afi og langafi nánustu vina minna, — fulltrúi erfðavenja og kynslóðar, sem þurfti að berjast ívið hart fyrir þvi að koma sínu og sfnum í höfn. Aðalsmerki hans i þeirri lífsbar- áttu var heiðarleiki, nákvæmni og það viðhorf til heimsins að skulda aldrei neinum neitt. Gisli Jóhannsson var fæddur á Éyrarbakka 21. mai 1891, þar sem hann stundaði sjóróðra og kom hlut sínum svo vel um borð, að hann eignaðist snemma persónu- legt sjálfstæði. Höfuðstaðurinn hafði ekki upp á mikið að bjóða á öðrum tug aldarinnar, en þar var þó togaraútgerð komin til sögunn- ar og freistaði kappsamra sjó- manna. Gísli tók þátt i þeirri ný- skipan i sjávarútvegi okkar ís- lendinga og var togarasjómaður um árabil. Hann fluttist til Reykjavfkur árið 1920 og tókst eftir þvi sem tímar liðu að tryggja sér og mannmargri fjölskyldu sinni fastan samastað í Miðstræti 6, þar sem þau bjuggu í áratugi. Við stofnun heimilis og uppeldi barna átti Gísli að einstökum liðs- manni konu sina, Grfmheiði Páls- dóttur af Bergsætt frá Óseyrar- nesi. Þau giftust árið 1919 og eignuðust 6 börn: Jónfnu Margréti, sem gift er Brandi Tómassyni yfirflugvirkja, Ingi- björgu gifta Leifi Valdimarssyni, Jóhann deildarstjóra hjá Flug- félagi tslands sem kvæntur var Vilborgu Kristjánsdóttur, Val- gerði Hrefnu gifta Andrési Gísla- syni stýrimanni, Pál Garðar flug- mann hjá Flugfélagi Islands sem kvæntur var Ethel Bjarnasen og Magnús Ragnar tannlækni, kvæntan Dóru Jóhannsdóttur. Tvo af sonum sfnum misstu þau Grímheiður og Gisli, gjörvilega menn á manndómsárum, báða með afar sviplegum hætti. Páll Garðar fórst í flugslysinu við Vestmannaeyjar árið 1951 og Jóhann af slysförum vorið 1967. Heima i Miðstræti ólst upp hjá þeim hjónum á efri árum þeirra sonarsonur þeirra Gisli Baldur Garðarsson lögfræðingur. Gisli Jóhannsson var ekki allra. Hann var alinn upp við harðbýli og þau kjör, sem fæstir fá skilið nú á dögum. Siðar varð hann að lifa með mikla sorg i minni og trúði þvi aldrei að fullu að heimurinn gæti verið býsna já- kvæður á stundum. Væri brugðið til gamalla sagna, heimahaganna eða kjara verkalýðsins á önd- verðri öldinni varð hann skemmtilega ræðinn sessunautur I fjölskyldusamkvæmum. Hann hafði einnig þann friðleik og gjörvileik til að bera, að það var gaman fyrir yngra fólk að horfa á hann, sparibúinn og fylginn sér í umræðu. Og hann var ákaflega vel giftur. Það hefur jafnan verið mikil reisn yfir heimilinu i Mið- stræti. Sú sonarfjölskylda Gisla Jóhannssonar, sem leiddi . vegi okkar saman, er öll stödd erlendis um þessar mundir við að læra ýmislegt það sem getur komið ís- landi að gagni í framtiðinni. Við fornvinirnir, yngsti sonarsonur hans, sem heitinn er eftir föður sínum afa og langafa, Jóhann Gisli Jóhannsson, minnumst með hlýju fortiðar og þeirra sem gáfu okkur þjóðerni og líf. Vigdis Finnbogadóttir. Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast f sið- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu Ifnubili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.