Morgunblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1978 V erksmid juf ramleitt einingahús 20% ódýr- ara en vísitöluhúsið brír af forrádamönnum Húseininga h.f. frá vinstrii Sigurður Fanndal, Matthías Sveinsson og Þórarinn Vilbergsson. NÝLOKIÐ er byggingu ein- býlishúss sem framleitt var af Ilúseiningum h.f. á Siglufirði, en hús þetta er verksmiðju- framleitt einingahús úr timbri. Er það við Steinasel 1 í Breiðholtshverfi í Rcykjavík, en annað hús frá Húseiningum er þar einnig í smíðum. Forráðamenn Húseininga h.f. kynntu húsið fyrir fréttamönn- um í gær og sagði Matthías Sveinsson framkvæmdastjóri að tildrög þess að Húseiningar hösluðu sér völl sunnanlands væru þau að ákveðið hefði verið að reisa hús á höfuðborgarsvæð- inu til að kynna framleiðsluna á þéttbýlissvæði. Sótt hefði verið um lóðir til Reykjavíkurborgar og ætti nú, er húsið væri tilbúið, að gefa fólki kost á að gera verðsamanburð og skoða húsið, en það verður s'"nt á laugardag og sunnudag. Húsið við Steinasel 1 er um 150 nr að meðtöldum bílskúr og nemur heildarverð þess 14.396.000 krónum, þ.e. húsið samansett á sökkli með innrétt- ingum þar með töldum teppum á gólfi og að öllu leyti fullbúið. Hlutur Húseininga í þessu verði er kr. 6.960.000 sem er um 48% heildarverðsins og opinber gjöld og hita- og rafmagnsinntak o.fl. eru 1.571.000 kr. Kostnaður við gerð sökkuls sagði Matthías að hefði verið nokkuð mikill, eða 3,2 milljónir króna, en grunnur var djúpur og því hefði þessi liður verið stærri en gera hefði mátt ráð fyrir. Samanburður á verði þessa húss og vísitöluhúsi eins og það væri í dag sagði Matthías Sveinsson að væri um 44% einingahúsinu í hag eða sem svaraði því að vísitöluhús af svipaðri stærð kostaði um 20 milljónir króna. Þessi saman- burður væri þó ekki alveg réttur því vísitalan hefði hækkað meðan á byggingartima hússins stóð en samanburður í dag á verðskrá Húseininga h.f. og vísitölunni væri um það bil 20% Húseiningum í hag á t.d. 110 fermetra húsi. Um samanburð á rekstrarkostnaði steinhúsa og timburhúsa sagði Matthías að einangrunargildi timburhússins Húseining- ar hf. kynna einbýlishús í Breiðholti væri um 25% meira en stein- húss skv. athugunum sem hefðu verið gerðar og þýddi það lægri hitunarkostnað. Um annað við- hald sagði Matthías að það stæðist fyllilega samanburð þar sem fúavarnaefni væru orðin það vönduð og mjög fljótlegt væri að bera þau á. Þá sagði hann að hinn stutti byggingar- tími væri ótvíræður kostur og nefndi hann sem dæmi að fjölskylda hefði fengið einingar í hús sitt afhentar í nóvember- byrjun s.l. og hefði flutt í húsið fyrir jól þannig að byggingar- tíminn hefði verið um 7 vikur. — Þessi stutti byggingartími rekst nokkuð á við lánaútvegun, Húseiningar hafa að nokkru leyti orðið að taka að sér hlutverk lánastofnunar, sem er þó varla hægt, sagði Matthías, en þó ber að geta þess að Húsnæðismálastofnunin og félagsmálaráðuneytið hafa sam- þykkt nokkrar breytingar á úthlutunarreglum til þeirra er byggja einingahús á þann veg að 1. og 2. hluta lánsins er úthlutað í einu 3—6 mánuðum eftir að húsið er gert fokhelt og síðasta hlutanum 6 mánuðum síðar. Þetta er þannig í framkvæmd að húsbyggjendur ávísa á okkur húsnæðismálastjórnarlánum sínum og nú eigum við í slikum ávísunum um það bil 150 millj- ónir króna og bindur það hendur okkar verulega að geta ekki haft þetta fjármagn í rekstrinum. Við getum því ekki aukið við framleiðslugetu verksmiðjunn- ar, sem er nú um 100 hús á ári, en það væri nauðsynlegt því nú er útlit fyrir að við séum búnir að selja það sem við getum annað á þessu ári. Annað atriði má nefna sem gerir okkar samkeppnisaðstöðu veikari, sagði Matthías, sem það er að okkur er gert að greiða söluskatt af verkstæðisvinn- unni, sem getur numið nokkur hundruð þúsund krónum en húseiningaverksmiðjurnar hafa barizt fyrir því að fá þetta niðurfellt nú í nokkur ár. Þá hefur lengi verið nokkur and- staða gegn timburhúsum, sem er nú að minnka að ég held, en til eru ákvæði í byggingarskil- málum, sem samræmast illa staðlaðri framleiðslu og nú veit ég til þess að í a.m.k. tveimur nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur er unnið að því að skipuleggja hverfi er byggð yrðu húsum sem þessum. Hjá Húseiningum h.f. starfa nú um 25 manns. Sem fyrr segir verður húsið að Steinaseli 1 sýnt almenningi kl. 14 — 22 á laugardag og sunnudag. Húsin tvö frá Húseiningum standa við Steinasel í Reykjavík. Vilhjálmur Bergsson við þrjú verka sinna, sem verið var að setja upp á Kjarvalsstöðum í gœr. forðum. Þá er staösetningin á þessu feiknabákni sem Beaubourg er alls ekki nógu góö og í kringum safniö safnast saman alls konar trúöar.“ Vilhjálmur Bergsson er fæddur í Grindavík áriö 1937. Hann byrjaöi ungur aö fikra sig áfram í myndlist og hélt til Kaupmannahafnar aö afioknu stúdentsprófi áriö 1958. Þar var hann í tvö ár, málaði bæði súrealístískt, abstrakt og landslags- myndir. Hann bjó síöar í Kaupmannahöfn í fjögur og hálft ár. Á árunum 1964—66 mótaöist sá stíll, sem hann kallar lífrænar víddir og segist hann ekki hafa vitaö um neinn annan sem byrjaö hafi á þessum stíl á undan sér, þótt margir hafi fylgt í kjölfarið á eftir. „Á þessum árum fann ég aö engin sú stefna er ég haföi stuözt viö í listmálun höföaöi lengur til mín. Mér fannst ég ekki geta túlkaö lengur á persónulegan máta hvorki súrealisma né abstrakt myndlist. En báöar þessar stefnur voru orönar þaö fastmótaöar aö engar nýjungar komu til frá minni hálfu. Popp-listin breiddist hins vegar óöfluga út um allan herm og þar sem ég geröi ráð fyrir aö hún yröi fljótt álíka fastmótuö Ljósm.: Kristján. Frumkvöðull „lífrænnavídda” „Þann stíl, er ég styðst við í listmálun minni, kalla ég lífraenar víddir," sagði Vilhjálmur Bergsson er hann gekk með blaðamanni Morgunblaðsins um salinn á Kjarvalsstöðum, par sem hann opnar einkasýningu kl. 2 í dag. Á sýningunni eru sjötíu og fimm verk, öll máluö á síðastliðnum átta árum. Þetta mun vera fimmtánda einkasýning Vilhjálms, þar af sú áttunda í Reykjavík en hann hefur haldiö þrjár einkasýningar í Kaup- mannahöfn og tekið þátt í sautján samsýningum hér á landi, í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finn- landi, Hollandi og Bandaríkjunum. Síöastliöiö haust sýndi hann meö þrettán listamönnum „á svipaðri bylgjulengd” í Charlottenborg. Stóð sýningin í hálfan mánuð og í henni tóku þátt danskir, enskir, finnskir og franskir listamenn auk hans. Sýning þessi vakti töluveröa athygli, hennar var m.a. getiö í franska sjónvarpinu og bæklingar um hana voru á boðstólum í Beaubourglistamiöstöö- inni í París. Sjálfur dvaldist Vilhjálmur í fimm mánuði í París í vetur, en þar stundaöi hann nám í listmálun árin 1960—62 við Academie Notre Dame des Champs og viö Academie Grande Chaumiere. París er ekki lengur aö mínu mati sú miöstöö lista, sem hún var þegar Málverkasýning Vilhjálms Bergsson- ar á Kjarvalsstöðum ég var þar við nám. Þeir listmálarar sem mótuöu „Parísarskólann“ eru flestir horfnir af sjónarsviöinu og miðstöö listanna viröist hafa fylgt fjármagninu og flutzt yfir til New York. Frakkar eru aö vonum súrir yfir þessu en meira aö segja Centre Pompidou eða Beaubourt-listamiö- stööin hefur ekki náö því takmarki aö gera París aö hjarta listmálunar sem og fyrrnefndar stefnur, fannst mér ég verða aö fara nýjar leiðir. Málverk mín frá þessu tímabili voru ekki annað en dökkir fletir með ósamstæöum mótívum, sem göptu á móti Ijósinu. Hægt og sígandi tóku þessi mótív á sig fastara form svo og Ijós og skuggar á myndfletinum. Þetta var upphaf hinna „Ijóörænu vídda“. Vilhjálmur vill ekki nefna einn sérstakan lærifööur í myndlistinni, en segir aö margir hafi haft áhrif á sig, þ.á.m. Velazques hinn spánski. Hann vill heldur ekki svara því beinlínis hvort hann sé brautryöjandi. Framhald á bls. 26 Umf. Grettir sýn- ir Pétur og Rúnu ■ IIvammstanKa. 14. apríl. UNGMENNAFÉLAGIÐ Grettir í Miðfirði frumsýnir í kvöld leikritið Pétur og Rúnu eftir Birgi Sigurðs- son. Leikstjóri er Magnús Guð- mundsson frá Neskaupstað. Æf- ingar hafa staðið yfir undanfarnar vikur og eru leikendur 8 að tölu auk aðstoðarmanna. í hlutverkum Péturs og Rúnu eru Arnór Ben- ónýsson og Sigrún Einarsdóttir. Tónlist er leikin af hljómsveitinni Lexíu, öll frumsamin. Sýningar verða í félagsheimilinu Ásbyrgi og væntanlega verður reynt að fara með leikritið til sýninga í ná- grannabyggðir. —Karl. Framboðslisti Framsóknar á Akureyri birtur FRAMBOÐSLISTI Framsóknar- flokksins við komandi bæjar- stjórnarkosningar á Akureyri hef- ur verið birtur og skipa hann eftirtaldir menn: 1. Sigurður Óli Brynjólfss. kennarí. 2. Tryggvi Gíslason skólameistari. 3. Sigurður Jóhanness. framkv.stjóri. 4. Jóhannes Sigvaldason ráðun. 5. Ingimar Eydal kennari. 6. Pótur Pálmason verkfr. 7. Valur Arnpórsson kaupfál.stjóri. 8. Haraldur M. Sigurðss. kennari. g. póroddur Jóhannss. skrifsf.maður. 10. Þóra Hjaltadóttír húsm. 11. Árni Bjarnason stýrim. 12. Jón ArnÞórss. verksm.stjóri. 13. Guórún Albertsd. bankastarfsm. 14. Sigrún Höskuldsd. kennari. 15. Ólafur Ásgeirsson lögr.Þjónn. 16. Jóhann Sigurðss. verkstj. 17. Guðmundur Magnúss. útibússtj. 18. Þorleifur Ananiass. skrifst.m. 19. Sigurður Karlsson verkam. 20. Jón Krístinss. lorst.meður. 21. Stefán Reykjalín bygg.meistari. 22. Jakob Frimannsson f.v. kaupf.stjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.