Morgunblaðið - 29.04.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1978
3
ERRO
Þannig mun forsíða íslenzku Erró-bókarinnar
líta út.
Náttúruverndar-
þing um helgina
20 svæði friðlýst á sl. 3 árum
Náttúruverndarþing verður sett í
dag á Hótel Loftleiðum. Sækja það
um 120 fulltrúar víðs vegar að af
landinu. fulltrúar náttúruverndar-
nefnda, sem eru í hverri sýslu og
hverjum kaupstað, svo og fulltrúar
ýmissa samtaka, stjórnmálaflokk-
anna og náttúruverndarráð. Nátt-
úruverndarþing er haldið þriðja
hvert ár og er þetta þriðja þingið,
en þar er fjallað um náttúruvernd
landsins og þau verkefni, sem
brýnast er talið að leysa.
Eysteinn Jónsson, formaður Nátt-
úruverndarráðs, mun setja þingið kl.
9. Þá flytur Vilhjálmur Hjálmarsson
ávarp, en síðan verður gengið til
þingstarfa. I dag verða flutt sex
erindi um náttúruverndarmál: Páll
Líndal talar um endurskoðun nátt-
úruverndarlaga, Hrafn V. Friðriks-
son um mengunarmál, Sigurður
Þórarinsson og Arnþór Garðarsson
um vatna- og jarðhitasvæði, Vil-
hjálmur Lúðvíksson um val á stöðum
til iðnrekstrar og Eyþór Einarsson
um verndun villtra dýra og plantna.
Fyrir þinginu liggja ýmis mikil-
væg mál, auk þeirra sem að ofan eru
nefnd, svo sem meðferð auðlinda,
fræðsla um náttúruvernd og umferð-
arréttur um landið.
FRIÐLÝSINGAR OG
NÁTTÍIRUMINJASKRÁ
Fyrir þinginu liggur ítarleg
skýrsla um störf Náttúruverndar-
ráðs síðan síðasta þing var haldið
1975. Kemur þar m.a. fram að 20
Framhald á bls 30
Bókin um Erró kem-
ur út í næsta mánuði
LISTAVERKABÓKIN um hinn
kunna íslenzka málara Erró
— Guðmund Guðmundsson —
er væntanleg á markaðinn hjá
Iceland Review og Almenna
bókafélaginu í næsta mánuði.
eða skömmu áður en yfirlits-
sýning á verkum Erró verður
opnuð í Reykjavík í tilefni
listahátíðar.
Bókin verður gef-
in út samtímis á ensku og
íslenzku. Iceland Review sér
um ensku útgáfuna, en Al-
menna bókafélagið um íslenzku
útgáfuna.
Haraldur Hamar fram-
kvæmdastjóri Iceland Review,
sem er upphafsmaður að þessari
bók, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að liðin væru nærri
2 ár, síðan hann fór að huga að
útgáfu þessarar bókar og þá
með viðtölum við Erró og
Matthías Johannessen.
„I upphafi var eingöngu hug-
myndin að gefa bókina út á
ensku, en síðan seldi Iceland
Review Almenna bókafélaginu
íslenzka útgáfuréttinn," sagði
Haraldur.
Haraldur kvað bókina prent-
aða á Ítalíu og væri íslenzka og
enska útgáfan prentaðar sam-
tímis. „Erró valdi sjálfur mynd-
irnar í bókina, og birtast
myndirnar í réttri tímaröð, þ.e.
frá því hann fór frá Islandi til
þessa dags. Þá fylgdist hann
sjálfur með litgreiningu mynda
og nýlega var hann á Italíu til
Framhald á bls 30
Ragnar Páll að Kjarvalsstöðum
LAUGARDAGINN 29. apríl
opnar Ragnar Páll Einarsson
málverkasýningu að Kjarvals-
stöðum. Þetta er níunda einka-
sýning Ragnars Páls en síðast
sýndi hann í Bogasalnum í júní
í fyrra. Hann hefur auk þess
tekið þátt í mörgum samsýning-
um, meðal annars í Þýzkalandi
og Danmörku.
,Á sýningunni að Kjarvals-
stöðum eru 78 málverk, þar af
eru 40 til sölu og eru þau máluð
á síðustu fjórum árum. Verð
sölumyndanna er frá 70 til 400
þúsund krónur.
Sýnd eru olíu-
málverk, portrait, vatnslita-
myndir og pastelmyndir. Mynd-
efnin eru flest sótt í íslenzka
náttúru og atvinnulíf. Mörg af
landslagsmálverkunum eru frá
Austurlandi en þar hefur lista-
maðurinn dvalið síðustu tvö
sumur. Einnig eru málverk frá
Snæfellsnesi, úr Mývatnssveit,
frá Þingvöllum, úr nágrenni
Reykjavíkur og víðar að.
Sýning Ragnars Páls að
Kjarvalsstöðum verður opin
daglega kl. 14-22 til sunnudags-
kvölds 7. maí.
— segir Sveinn Eiðsson sveitarstjóri á Raufarhöfn
„ÞETTA hangir saman
enn, en nú líður senn að því
að fólk fari að skrá sig
atvinnulaust,“ sagði
Sveinn Eiðsson sveitar-
stjóri á Raufarhöfn í sam-
tali við Morgunblaðið í gær
þegar hann var spurður
um atvinnuástand þar, en
sem kunnugt er berst lítill
fiskur þangað nú, eftir
strand skuttogarans
Rauðanúps.
Sveinn sagði, að um 40 smábátar
væru gerðir út frá Raufarhöfn um
þessar mundir, og væri svona
kropp hjá þeim. Flestir bátanna
væru nú á grásleppuveiðum Veiðin
hjá þeim hefði yerið sæmileg fyrst,
en síðan hefði hún dottið niður, en
glæðst á ný nú síðustu dagana. Þá
væru nokkrir bátar á þorskanet-
um, en afli þeirra væri mjög
tregur.
„Ástandið er því ekki glæsilegt
hjá okkur, en það sem gerir
andrúmsloftið betra hjá Raufar-
hafnarbúum er að nú er vor í lofti,
og fólk tekur þá ekki eins nærri
sér að fá nokkurra daga frí.
Það er því ekki mikið framund-
an hjá okkur, en að sjálfsögðu
finnst manni sárt að heyra að
járniðnaðarmenn ætli sér að gera
okkur lífið leitt.
Togarinn hefur til
þessa bjargað staðnum, og aflað
alla tíð vel,“ sagði Sveinn.
Friðrik Jesson safnvörður
aðstoðarmönnum sínum.
sést hér grafa
í skurðvegginn ásamt
Ljósm.: Sigurgeir Jónasson.
Ein myndanna, sem prýðir listaverkabókina.
Eyjar:
Onnur haus-
kúpan fannst
Tennumar óskemmdar
„Líður senn að því að fólk
skrái sig atvinnulaust,,
HAUSKÚPA af annarri beina-
grindinni. sem fannst í holræsis-
skurðinum á Þrælaeiði í Vest-
mannaeyjum í fyrradag. kom í
ljós í gærmorgun, þegar farið var
að grafa í stórum malarhaug. sem
skurðgrafa hafði mokað upp úr
skurðinum. Ilaldið var áfram að
róta í haugnum og skurðinum í
gær. en ekki fannst neitt frekar.
Friðrik Jensson safnvörður í
Eyjum sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að í gærmorgun hefði
hann fengið menn til að róta í
malarhaugnum á skurðbakkanum
og það hefði farið eins og hann
hefði grunað: Hluti af annarri
hauskúpunni hefði verið þar.
„Þessi hauskúpa er nokkuð illa
farin, sennilega hefur hún farið
svona þegar skurðgrafan rótaði
henni upp. En það athyglisverða er
áð annar tanngarðurinn þ.e. sá
sem fannst er mjög heillegur, og
hefur engin tönn verið skemmd í
manninum,“ sagði Friðrik. Kvað
hann menn myndu halda áfram að
grafa á þessum slóðum í gær og
jafnvel eitthvað lengur í þeirri
von, að fleira fyndist.
Eins og sést á þessari mynd eru tennurnar úr hauskúpunni algjörlega
óskemmdar.