Morgunblaðið - 09.05.1978, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1978
Móöir mín,
BJÖRNÍNA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Njálsgötu 32 B,
lést í Borgarspítalanum 5. maí. Jaröarförln auglýst síöar.
Fyrir hönd vandamanna.
Siguröur M. Þorsteinsson.
+
Eiginmaöur minn,
VALDIMAR SVEINBJÖRNSSON,
leikfimikennari,
Njilsgötu 59, Rvk.
lést í Borgarspítalanum, 8. maí.
Herdís Maja Brynjólfsdöttir.
Eiginmaöur minn og faöir okkar,
HALLDÓR GUDMUNDSSON,
húsasmíöameistari,
Grenimei 5,
andaöist i Landakotsspítalanum 8. maí.
Guðfínna Þorleifsdóttir og börn.
Fööurbróöir minn,
INGÓLFUR EINARSSON,
andaöist á Landakotsspítala 8. maí.
Erna Másdóttir.
T
Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir, afi og sonur,
BALDUR I. ÚLFARSSON,
Þjórsárgötu 7,
andaöist í Borgarsjúkrahúsinu 8. maí.
Ingibjörg Hjálmarsdóttir,
Stefanía Baldursdóttir, Haraldur Þorvaldsson,
Hjálmar Baldursson,
Gunnar Baldursson, Þóra Baldursdóttir,
Skæringur Baldursson,
Margrát Halldórsdóttir.
og barnabörn.
t
Minningarathöfn um móöur okkar og tengdamóöur,
GUDRÚNU TÓMASDÓTTUR,
frá Kanastöðum,
veröur í Landakirkju, Vestmannaeyjum, miövikudaginn 10. maí kl. 2.
Jaröarförin fer fram frá Dómkirkjunni i Reykjavík, föstudaginn 12. maí kl. 1.30.
Sigríður Geirsdóttir,
Guðrún Geirsdóttir,
Tómas Geirsson, Dagný Ingimundardóttir,
Marta Þ. Geirsdóttir,
Geir J. Geirsson. Bryndís Jónsdóttir.
+
Móöir okkar,
HALLDÓRA GUDMUNDSDÓTTIR,
Melgerði 31, Rvk.
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, miövikudaginn 10. maí kl. 1.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Ingibjörg Sveinbjarnardóttir,
Haraldur Sveinbjörnsson,
Hjördis Sveinbjörnsdóttir.
+
Útför eiginmanns míns,
JENS GUÐBJÖRNSSONAR,
veröur gerö frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 11. maí kl. 13.30 e.h.
Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlega bent á líknarstofnanir.
Fyrir hönd vandamanna.
Þórveig S. Axfjörð.
+
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
ÓSKAR GUÐMUNDSSON,
Stigahlíð 36,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 10. maí kl. 3 e.h.
Blóm vinsamlega afþökkuö.
Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Barnaspítala Hringsins.
Kriatjana Alexanderadóttir,
Alla Ó. Óakaradóttir, Karl K. Guðmundaaon,
Daniel G. Óakaraaon, Guðrún Sigurðardðttir,
og barnaböm.
Þórarirm Helgason frá
Þykkmbœ — Minning
Fæddur 2. ágúst 1900
Dáinn 9. apríl 1978
Það mun hafa verið um 1960, að
ég átti eitt sinn leið á opinberan
stað í fylgd með mér eldri manni
— og voru viðtökur ekkert alltof
vinsamlegar eins og verða kann —
en erindi félaga míns var að lesa
upp ritgerð dálítið sérstaks efnis,
eftir því sem þá gerðist. Af
einhverri tilviljun og eiginlega
gagnstætt reglum og venjum, lenti
þarna hjá okkur maður, sem
kominn var þarna í svipuðum
erindum. Átti hann strax orða-
skipti við okkur og talaði til okkar
heldur óþýðum orðum, í samræmi
við þann anda sem var ríkjandi.
En þegar lesturinn hófst, og fram
í hann sótti, breyttist svipur hins
ókunna áheyranda, og um það er
lauk þakkaði hann fyrir lesturinn,
og sagðist nú hafa aðrar skoðanir
á þessu efni en hann hafði áður
haft. Skildumst við með vinsemd
og varð þessi fundur okkur öllum
minnisstæður, eins og við höfum
síðar rifjað upp. En það man ég
bezt hve sannfærður ég var um að
þarna hefðum við hitt á merkileg-
an mann — mann sem gat breytt
skoðun sinni eftir því sem hann
sjálfur heyrði og sá, og hafði það
andlega sjálfstæði sem þarf til
þess að taka til greina röksemdir
og sannanir. En slíkur maður var
Þórarinn Helgason, bóndi og
rithöfundur frá Þykkvabæ í Land-
broti, og það var hann sem við
Þorsteinn á Úlfsstöðum kynnt-
umst á þennan eftirminnilega hátt
árið 1960 (eða ‘61).
Mörgum árum síðar átti ég eftir
að kynnast Þórarni mjög vel, og
tel ég það eitt mesta happ ævi
minnar að svo varð. Eg kom
nokkuð oft á heimili þeirra Hall-
dóru á Laugarnesvegi 36 og kunni
vel að meta þann anda stillingar
og hófsemi, sem þar ríkti, og mér
þótti gott að ræða við húsráð-
endur. Þessi hýri og bjartleiti
öldungur, sem verið hafði skörung-
ur meðal bænda í sínu byggðarlagi
og í félagsmálum bænda á Suður-
landi yfirleitt, brást ekki þeim
fyrstu kynnum sem ég hafði af
honum haft. Trausti og tryggð
stafaði frá honum; hann var
glaðvær maður og skemmtilegur,
og hann hafði stórhug til að bera
í ríkum mæli. Að hlutirnir, og
tilveran yfirleitt, verði að vera
smáir, var ekki eftir hans höfði, en
hitt vissi ég ekki fyrr en undir það
síðasta, hve glögglega hann hafði
gert sér grein fyrir ástæðum
mínum ýmsum og leitazt við að
bæta þar úr eftir því sem hann
megnaði. Þórarinn var slíkur
heilhugi, að það sem á annað borð
snart hann, gat hann með engu
móti látið hlutlaust og afskipta-
laust. Hann var drengur góður,
eftir því sem hinir fornu land-
námsmenn Islands tóku til órða,
enda er ég viss um, að hefðu þeir
menn mátt líta hingað um daga
Þórarins þá hefðu þeir þekkt í
honum sannan arftaka beztu
eiginleika sinna. „Þetta var sæmd-
armaður,“ sagði kona við mig við
minningarathöfnina, sem þekkti
hann frá fornu fari, og var
auðfundið að hjá henni fylgdi
hugur máli. En annars þekkti ég
aðeins örfátt af því svipmikla fólki
sem fjölmennti til minningarat-
hafnarinnar hér syðra, og hefur
trúlega verið Skaftfellingar flest,
en maðal þeirra hafði hann lifað
og starfað og var runninn af þeirra
ættarrót. — Banalega hans var
löng og hörð, og bar hann slíkt
með þeirri karlmennsku sem
undrun vekur og aðdáun.
Þórarinn Helgason var rit-
höfundur jafnframt því sem hann
var bóndi. Meðferð hans á íslenzku
máli var meðal þess, sem bezt
gerist, og frásagnarháttur hans
var slíkur, að það var mjög auðvelt
að festa hugann við efnið, enda
mun hann hafa átt marga þakk-
láta lesendur. Víðlesnast rita hans
mun vera Saga Lárusar á
Klaustri. en meðal síðustu rita
hans var skáldsaga hans um Una
+
Faöir okkar,
GUÐMUNDUR ÓLAFSSON,
SámMtööum, Hvítármíöu,
veröur jarösunginn frá Gilsbakkakirkju, föstudaginn 12. maí kl. 14.00.
Margrát Guömundsdóttir, Þuríöur Guðmundadóttir,
Ólafur Guömundsson.
+
Móöir okkar og tengdamóöir,
BJÖRG SIGUROARDÓTTIR,
frá Gljúfri, ölfusi,
veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 11. maí kl. 10.30.
Börn og tengdabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð við andlát og jaröarför,
BJÖRNS FINNBOGASONAR.
Guólaug Lýösdóttir,
synir og tengdadætur.
+
Útför mannsins míns og fööur okkar,
GÍSLA JÓNS EGILSSON,
kaupmanns,
Merkurgötu 11,
Hafnarfiröi,
fér fram fimmtudaginn 11. maí kl. 15 frá Hafnarfjaröarkirkju.
Sigrún Þorleifsdóttir og böm.
Útför fööur okkar,
ÞORLEIFS GUDMUNDSSONAR,
fyrrvsrandi varkstjóra,
Arnarhrauni 13,
Hafnarfirói,
fer fram fimmtudaginn 11. maí kl. 15 frá Hafnarfjaröarkirkju.
Börn og tengdabörn.
danska. Nýprentuð er bók sem
kom út undir nafninu: Leikir og
störf hjá Almenna bókafélaginu.
Um ætt og uppruna Þórarins og
æviferil hans i heild veit ég minna
en skyldi, og vænti ég þess að aðrir
geri því betri skil.
Ég vil að lokum senda Halldóru
ekkju Þórarins og öðrum aöstand-
endum hans kveðju mína.
Þorsteinn Guðjónsson
Laugardaginn 15. apríl s.l. fór
fram að Þykkvabæ í Landbroti
útför bóndans og rithöfundarins
Þórarins Helgasonar.
Hann var jarðsettur í heima-
grafreit þar sem foreldrar hans og
fleira ættfólk hefur verið lagt til
hinztu hvílu á undanförnum árum
og áratugum. Þar var Þórarinn
borinn inn í kirkju þá eða kapellu,
sem risin er í grafreitnum að
mestu fyrir hans atbeina og senn
verður búin til vígslu ef að líkum
lætur. En grafreiturinn var vígður
við útför Helga, föður Þórarins er
sr. Magnús próf. Bjarnason söng
hann til grafar í desember 1915.
Fjölmenni var við útför Þórar-
ins og þó fleira fólk við minningar-
athöfn, sem fram fór hér í
Fossvogskirkju daginn áður. Slíkt
var ekki nema eðlilegt, svo kunnur
maður sem hann var í heimahér-
aði og raunar langtum víðar nú
hin síðari ár af ritum sínum.
Svo er fyrir að þakka hinu
fróðlega riti próf. Björns Magnús-
sonar: Vestur-Skaftfellingar
1703—1966, að hér er ekki þörf á
langri ættartölu. Þó ber þess að
geta, að foreldrar Þórarins voru
þau Halla Einarsdóttir frá Heiði á
Síðu og Helgi Þórarinsson frá
Þykkvabæ. Þau voru bæði miklar
manneskjur að dugnaði og gáfum.
Þetta hvorttveggja erfði Þórarinn
svo sem ævistarf hans bar ríkan
vott.
Fæddur var Þórarinn 2. ágúst
árið 1900 í Þykkvabæ. Bernsku
sinni og uppvexti hefur hann lýst
í bók sinni: Leikir og störf, svo að
ekki þarf um að bæta eða fara
mörgum orðum um þau áhrif, sem
hann varð fyrir og eins og hann
mótaðist í föðurhúsum.
Aðeins 15 ára gamall missti
hann föður sinn. Hefur það haft
rík áhrif á unglinginn, svo sterkur
persónuleiki sem Helgi var eins og
skýrt kemur fram í sögu þeirri,
sem Þórarinn skrifaði af föður
sínum löngu síðar.
Þrem árum eftir lát hans tók
Þórarinn við búi með móður sinni
og systrum í Þykkvabæ. Og þótt
þar væri ærið verkefni við að fást
og svo mikill forverksmaður sem
Þórarinn var á búi sínu strax á
unglingsárum, gaf hann sér tíma
til að hverfa frá því og sjá sig um
í heiminum. Árið 1918 sigldi hann
til útlanda og var við landbúnaðar-
nám bæði í Danmörku og Noregi
á annað ár. Vel notaðist honum að
+
Eiginkona mín og móöir okkar,
ÞÓRUNN INGIMUNDARDÓTTIR,
frá Garöstööum í Garöi,
veröur jarösungin frá Útskálakirkju,
miðvikudaginn 10. maí kl. 2.
Markús Guömundsson.
og börn.