Morgunblaðið - 23.05.1978, Blaðsíða 48
\l (iLYSINíiASIMINN ER:
22480
iOfi0IlTOÍÍ>fa^Ííi>
au<;lysiní;asiminn er:
22480
3H»rcuttbIní>iö
ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1978
Alríkisdómari í Bandaríkjunum:
Álafoss greiði
69 millj. kr. í
skaðabætur
Erro og kona hans en þau komu til landsins í gær.
Erro kominn til landsins:
Ljósm. MBL.i ÓI.K.M.
Lízt vel á að sýna á Kjarvalsstöðum
99
99
„ÉG BYRJA vamtanlega að hengja
upp á morgun. þriðjudag,“ sagði
Erro í stuttu samtali við Mbl. er
hann var nýkominn til landsins á
mánudagsmorgun. Hann mun eins
og greint hefur verið frá halda
sýningu á 130-150 myndum á
Listaháti'ð frá og með 3. júní. „Mér
lízt vel á Kjarvalsstaði,“ sagði
hann. „Mér sýnist að þar falli allt
vel inn í, iofthæðin er góð og
liturinn á veggjunum heppilegur.
Sýningin verður í báðum sölunum
og á göngum hússins.“ Þarna mun
einnig verða á boðstólum Errobók-
in sem er að koma út 1 tengslum við
þessa sýningu, sem AB og Iceland
Review gefa út í samstarfi. Erro lét
vel af því að vera kominn heim,
hann myndi gefa sér góðan ti'ma til
að vinna að uppsetningunni og
sumar myndir þyrfti að iagfæra og
strekkja. bví væri ágætt að þurfa
ekki að vera með neinn flýti við það
verk. Hann hefur gert plaköt í
tilefni sýningarinnar og verður
nokkurt upplag af þeim útbúið á
sérstakan pappi'r og til sölu við
opnun sýningarinnar og áritað af
Erro.
Seðlabanki íslands:
Ekki tilefni til hækkunar
á verdbótaþætti vaxta
ALRÍKISDÓMARI í Minniapol-
is-borg í Bandaríkjunum hefur
dæmt Álafoss hf. til að greiöa
handari'ska fyrirtækinu Premium
Corporation of America 265.745
dollara. eða jafnvirði 69 milljóna
króna, í' skaðahætur vegna gulu f
hvítum kápukrögum. en á móti
kemur skuld Premium við Ála-
foss að upphæð 132.470 dollara,
jafnvirði 34,3 miiljóna króna.
Pétur Eiríksson, forstjóri Ála-
foss. sagði í samtali við Mbl. að
Álafoss hefði áfrýjað dóminum.
„betta er eina málshöföunin sem
við höfum fengið á okkur vegna
þessa,“ sagði Pétur. „og við
viljum halda þvi fram að á
þessum kápum hafi ekkert vcrið
fram yfir þá gulu slikju. sem
alltaf cr á íslenzkum gærum. Satt
að segja kom okkur þessi máls-
höfðun mjög á óvart.“
Patrick Mc Davitt lögfræðingur
Premium Corporation sagði í
samtali við Mbl. að málið snerti
4000 kápur, sem fyrirtækið hefði
keypt af Álafossi og hefði reynzt
gul slikja á krögum og líningum,
sem samkvæmt samningi áttu að
vera hvít. Premium-fyrirtækið átti
önnur viðskipti við Álafoss og
skuldaði röska 132.000 dollara
vegna þeirra, þegar kápukaupin
fóru fram á árinu 1973. Premium
greiddi ekki skuldina og höfðaði þá
Álafoss mál á hendur því, en
Premium gagnstefndi Álafossi til
skaðabóta vegna kápanna. Féll
Ríkisstjórnin
f jallar um
kjaramálin
KJARAMÁLIN hafa verið til
athugunar hjá ríkisstjórninni und-
anfarið og á ríkisstjórnarfundi í
dag verður sérstaklega um þau
fjallað. Eftir fundinn í dag er
hugsanlegt að niðurstaða á ýmsum
athugunum málsins liggi fyrir, en
kunnugir telja að ekki sé langt að
biða einhverra aðgerða frá rikis-
valdsins hálfu.
Reykjavíkurhöfn:
Til framkvæmda við Reykja-
víkurhöfn var varið 550 milljón-
um króna á árunum 1974—77
miðað við verðlag hvers árs um
sig, og á áætlun þessa árs eru 155
milljónir króna til viðhalds og
endurbygginga í gömlu höfninni
og 350 milljónir króna til fram-
kvæmda í Sundahöfn. Niðurstöðu-
tölur á rekstrarreikningi Reykja-
víkurhafnar 1977 voru 680 mill-
jónir króna, sem var 6% hækkun
dómur alríkisdómarans á þá leið,
að Premium skuldaði Álafossi
132.470 dollara, en Álafoss skyldi
greiða Premium 265.745 dollara í
skaðabætur vegna kápanna.
Mc Davitt sagði að
Premium-fyrirtækið vissi ekki,
hvort Álafoss ætlaði að áfrýja
dóminum eða ekki. „Við getum
fengið okkar fé, ef Álafoss hefur
bankareikning i Bandaríkjunum,
af innstæðu á honum, eða ef
Álafoss hefur selt öðrum fyrir-
tækjum í Bandaríkjunum getum
við fengið dóm til þess að greiðslur
þeirra renni til okkar. Einnig
erum við að kanna, hvaða mögu-
leikar eru á Islandi, ef með þarf,“
sagði Mc Davitt.
Höfn:
Pilturinn
lamaður eft-
ir áverkann
LÖGREGLAN á Höfn í
Hornafirði hefur haft uppi
á manni þeim er veitti
piltinum höfuðáverka þar í
þorpinu aðfaranótt laugar-
dags, en eins og greint var
frá í blaðinu á sunnudag
var pilturinn þungt hald-
inn og fluttur með þyrlu til
Reykjavíkur. Þar var líðan
hans sögð eftir atvikum í
gær en lömun mun hafa
komið fram í hluta andlits
og öðrum fætinum, en ekki
ljóst hversu varanleg hún
kann að verða.
Slasaði pilturinn er 16
ára að aldri en árásarmað-
urinn er nábýlismaður
hans á Höfn, 19 ára að
aldri , og hefur játað að
hafa slegið piltinn með
flösku í höfuðið.
frá 1976 og hafði höfnin um 250
milljónir króna af eigin fé til
framkvæmda á árinu að sögn
Gunnars B. Guðmundssonar
hafnarstjóra.
Hafnarstjórn hefur ákveðið
áætlun um viðhald og endurnýjun
eldri mannvirkja hafnarinnar og
var endurbyggingu Ægisgarðs
lokið á árunum 1976 og 77, en það
verk kostaði tæpar 85 milljónir
króna. Á þessu ári er ætlunin að
„Fyrstu fjóra mánuði þessa árs
hefur verðbólga enn verið mjög
mikil. en þó má telja öruggt, að
sú verðbólgualda, sem hófst upp
úr miðju síðasta ári, hafi náð
hámarki fyrir nokkru, og allar
horfur cru á því, að verðlags-
hækkanir verði mun hægari á
seinni hluta þessa árs en verið
hcfur nú um nokkurt skeið. Sé
litið til væntanlegrar verðbólgu-
þróunar á næstu mánuðum og á
árinu í hcild telur bankastjórn
Seðlabankans því, að höfðu sam-
ráð við hankaráðið. að ekki sé að
sinni tilefni til breytingar á
verðbótaþætti vaxta,“ segir í frétt
endurbyggja Olíubryggju og
einnig sagði Gunnar að hafin yrði
endurbygging Ingólfsgarðs og
Faxagarðs, en spurning væri hvað
langt væri hægt að komast með
þau verkefni á þessu ári. Götur og
hafnarbakkar í Vesturhöfn hafa
verið malbikaðir, en á þessu ári á
að verja 60 milljónum í endur-
byggingu á bryggjum og 20
milljónum í malbikun.
í samræmi við þá ákvörðun
frá Seðlabanka Islands í gær, en
Seðlabankinn endurskoðar verð-
bótaþátt vaxta á þriggja mánaða
fresti með tilliti til almennrar
verðlagsþróunar.
I frétt Seðlabankans segir:
„Sú aukning, sem orðið hefur á
hraða verðbólgunnar á síðústu níu
mánuðum hefur leitt til þess, að
verðbótaþáttur vaxta hefur verið
hækkaður tvívegis á þessu tíma-
bili. Verðbótaþátturinn var upp-
haflega 8% á ári, en hækkaði 21.
nóvember 1977 um 3% og 21.
febrúar sl. hækkaði hann á ný um
3%. Verðbótaþátturinn hefur því
verið 14% á ári frá 21. febrúar sl.
hafnarstjórnar að Vesturhöfnin
verði að mestu til athafnastarf-
semi fiskiflotans hefur Eimskipa-
félagið flutt starfsemi sína úr
Vesturhöfninni og hraðfrystihús
ísbjarnarins á Norðurgarði mun
taka til starfa á þessu ári.
Lokið er við uppfyllingu og
hafnarbakka fyrir Skipaútgerð
ríkisins vestan Grófarbryggju, en
þær framkvæmdir kosta Reykja-
Framhald á bls. 31
Almennir innlánsvextir af sparifé
hafa síðan verið 19%, en vextir af
vaxtaaukainnlánum 32%. Forvext-
ir af víxlum eru hins vegar 2314%
og vextir af vaxtaaukaútlánum
33%. Með þessu vaxtakerfi hefur
Framhald á bls. 30.
Engar
ákvarð-
anir enn
ENGAR ákvarðanir höfðu í
gær verið teknar um frekari
aðgerðir verkalýðshreyfingar-
innar vegna kjaradeilunnar við
vinnuveitendur. Árdegis í dag
verður fundur 10-manna nefnd-
ar ASÍ og verða málin þar rædd
með tilliti til þess að upp úr
viðræðum hefur slitnað. Er
þetta fyrsta sinn, sem nefndin
kemur saman eftir sáttafund-
inn síðastliðinn föstudag, er
upp úr slitnaði.
Fyrir verkalýðsfélögunum,
sem boðuðu olíuinnflutnings-
bannið, liggur nú beiðni olíufé-
laganna um undanþágu til þess
að losa bensín úr sovézka
olíuflutningaskipinu, sem ligg-
ur úti fyrir Hafnarfirði. Engin
afstaða hefur verið tekin til
undanþágubeiðninnar. Þegar
líða tekur á þessa viku, má
búast við því að bensínskortur
fari að gera vart við sig í
Reykjavík og nágrenni.
Framkvæmdir fyrir röskan
milljarð á árunum 1974-’78