Morgunblaðið - 31.05.1978, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. MAI 1978
Stöðvaði framsókn skurðgröf-
unnar með ungbam í fanginu
Upp úr hádeginu í gær kom til nokkurra sviptinga í Grjótaþorpinu
þegar íbúar í hveríinu og stuðningsmenn þeirra hugðust stöðva
framkvæmdir á vegum 1‘orkels Valdimarssonar, eiganda Fjalakattar-
ins og fleiri fasteigna á þessum slóðum. Þorkell kom á vettvang með
skurðgröfu og var hafizt handa um að rífa skúr, sem stendur á lóðinni
hak við Fjalaköttinn en siðan átti að slétta lóðina og bera f hana grús.
í fyrra leyfði Valdimar Þórðarson kaupmaður, þáverandi eigandi
lóðarinnar. áhugafólki í Grjótaþorpi að lagfæra hana og tyrfa, hlaða
þar veggi, leggja göngustfg og mála skúr þann, sem nú er byrjað að
rífa. Þegar skurðgröfuframkvæmdir hófust í gær þyrptist á vettvang
fjölmenni, þar á meðal fbúar þeir, sem stóðu fyrir lagfæringu
lóðarinnar á sfnum tíma. Settist einn þeirra, Gérard Lemarque, með
ungbarn í fangi á bárujárnsplötu fyrir framan skúrinn þannig að um
sinn töfðust skurðgröfumenn við það að rífa hann. Gaí Þorkell þá
fyrirmæli um að grafan byrjaði á því að slétta lóðina og rífa upp torf
þannig að hægara yrði um vik við frekari framkvæmdir.
Komu lögregluþjónar brátt á vettvang og töldu þeir ekki unnt að
stöðva framkvæmdir þar sem eigandi lóðar og mannvirkja þar væri
í sínum fulla rétti við að gera það sem hann vildi við eignir sfnar.
Grýtti þá mótmælafólkið vinnuvélina og kastaði að henni mold, að því
er Haukur Matthíasson lögregluvarðstjóri tjáði Morgunblaðinu í gær.
Næst komu á vcttvang Adda Bára Sigfúsdóttir horgarfulltrúi og Jón
G. Tómasson, sem nú gegnir borgarstjórastörfum, en Jón sagði í
viðtali við Morgunblaðið að hann hefði farið á staðinn til að útskýra
gildandi reglur um að húseigandi þyrfti ekki leyfi hyggingarnefndar
borgarinnar til að rífa húsið eða bera grús í grunninn.
„Þegar við komum á staðinn var Magnús Skúlason, sem hefur átt
sæti í byggingarnefnd, búinn að útskýra þetta fyrir þeim, sem hlut
áttu að máli, og þegar ég fór af staðnum virtist skilningur á því að
láta þessar framkvæmdir fara fram átölulaust,“ sagði Jón G.
Tómasson.
Þegar lfða tók á daginn kom f ljós að mótmælafólkið sætti sig ekki
við slík málalok. Var reynt að fá Gunnar Ingólfsson verktaka til að
hætta við framkvæmdir, þegar tveir kofaveggirnir stóðu enn uppi, en
hann kvaðst ekki geta skilið við svæðið fyrr en brak og rústir væru
á bak og burt, meðal annars vegna slysahættu og skaðabótaskyldu
verktaka. Varð það að lokum að samkomulagi að Magnús Skúlason,
fyrir hönd íbúasamtaka Vesturbæjar, tók á sig ábyrgð vegna
hugsanlegra slysa á mönnum gegn því að kofarústirnar fengju að
standa, og þar við situr.
Þorkell Valdimarsson stjórnar framkvæmdum á lóð sinni við Bröttugötu.
Þorkell Valdimarsson:
Er ekki til viðtals
fyrir Morgunblaðið”
Forsvarsmenn Reykjavíkurborgar komu á staðinn og útskýrðu réttarstöðu lóðareiganda fyrir
mótmælafólkinu.
Verði háð leyfi bygg-
ingarnefndar hvort
hús er rifið eða ekki
— segir Adda Bára
Morgunblaðið sneri sér til
Öddu Báru Sigfúsdóttur borgar-
fultrúa í gærkvöldi til að spyrja
hana um afstöðu borgarstjórnar
meirihlutans til málsins, og sagði
hún>
„Ég hef ekki miklar hugmyndir
um lausn þessa sérstaka máls, en
persónulega vil ég beita mér fyrir
borgarstjórnarsamþykkt um að
það verði háð leyfi byggingar-
nefndar hvort hús er rifið eða ekki.
Nei, þetta mál kemur ekki fyrir
borgarstjórnarfund á fimmtudag-
inn, það eru svo stór mál, sem þarf
að leiða til lykta á þeim fundi, og
ég geri nú frekar ráð fyrir að þetta
komi til kasta borgarráðs þegar
þar að kemur."
Þá sagði Adda Bára: „Ég ákvað
að fara á staðinn í dag þegar ég
frétti hvernig komið var og fékk
Jón G. Tómasson í lið með mér.
Mér fannst að þarna yrði einhver
að vera, sem kallast gæti forsvars-
maður núverandi borgarstjórnar,
og ég vildi vera alveg viss um hver
réttqrstaða borgarinnar væri í
þessu máli. Ég þóttist reyndar viss
um að hún væri engin, að það væri
ekkert, sem bannar eiganda að
framkvæma það sem hann vill á
eigin lóð. Við útskýrðum sem sagt
fyrir fólkinu að eigandinn hefði
slíkan rétt, en jafnframt fannst
mér sjálfsagt að láta koma fram
að þrátt fyrir það gæti hann ekki
farið að búa til bílastæði þarna."
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér til
nokkurra þeirra, sem voru
samankomnir í Bröttugötunni í
gær til að fylgjast með deilunum
um niðurrifið á lóð Þorkels
Valdimarssonar. Var þess farið á
leit við Þorkel að hann léti í ljós
skoðun sína á mótmælum vegna
umsvifa hans á staðnum, en hann
sagði er honum var tjáð að það
væri Morgunblaðið, sem óskaði
eftir umsögn hans>
„Ég segi ekkert við Morgunblað-
ið — ég er ekki til viðtals fyrir
Morgunblaðið."
Næst snerum við okkur að Gesti
Ólafssyni arkitekt, sem sagði
meðal annars:
„Þetta er leiðindamál, ekki sízt
vegna þess að á síðustu dögum
þingsins voru afgreidd lög, sem
kveða á um það að leyfi stjórn-
valda þurfi til að rífa hús, en lögin
taka ekki gildi fyrr en um næstu
áramót. Það er líka yfirlýst stefna
borgaryfirvalda, að allar fram-
kvæmdir í þessum gömlu hverfum
stuðli að því að bæta það um-
hverfi, sem fyrir er, og það að rífa
hús og breyta grunnum þeirra í
bílastæði gengur þvert á þessa
stefnu. Jú, ég bý í Grjótaþorpi og
hef áhuga á þróun mála þar. Ég
var á sínum tíma félagi í Ibúða-
samtökum Grjótaþorps, en sagði
mig síðar úr þeim, þar sem ég gat
ekki fallizt á það sjónarmið að það
ætti að halda þessu svæði eins og
það er nú. Ég tel að það væri til
mikilla bóta fyrir þetta umhverfi
ef þar yrði byggt á auðum lóðum
þannig að byggingarnar féllu inn
í það umhverfi sem fyrir er, en
þetta er ekki leiðin til þess.“
Þór Vigfússon borgarfulltrúi
var meðal áhorfenda, og sagði
hann:
„Mér finnst ósköp leiðinlegt að
sjá þetta eyðilagt. Ég er nú ekki
lögfróður maður, þannig að ég
treysti mér ekki til að fullyrða
Framhald á bls. 19
Gestur ólafsson
Magnús Skúlason, sem fyrir hönd íbúasamtaka Vesturbæjar tók á sig
skaðabótaskyldu vegna rústanna í Bröttugötu. Lengst til hægri er
.Kristín Unnsteinsdóttir, einn íbúanna í Bröttugötu 3A.