Morgunblaðið - 01.07.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1978
21
Skákfréttir
frá Akurey ri
ÞEIR sem fylgjast með skák-
þáttum dagblaðanna að stað-
aldri halda vafalaust að skák-
iðkun á íslandi sé eingöngu
bundin við höfuðborgarsvæðið.
Svo er þó auðvitað ekki. Víðs
vegar um land stendur skáklíf
með miklum blóma, ekki sízt á
Akureyri, en þar hefur lengi
verið starfandi öflugt skákfé-
lag. í þessum þætti er það
ætíunin að gera starfsemi þess
í vetur nokkur skil, þó að
fullseint sé.
Úrslit á helstu mótum félags-
ins í vetur urðu sem hér cegir:
Haustmót S.A.i
A riðill:
1. Jón Björgvinsson 5'/2 v. af 7
mögulegum, 2. Gylfi Þórhallsson
5% v. 3. Skúli Torfason 5 v.
Þeir Jón og Gylfi háðu síðan
einvígi um titilinn og varð Jón
hlutskarpari.
í B riðli sigraði Aðalsteinn
Steinþórsson og í unglingaflokki
Eyþór Þórhallsson. Þátttakend-
ur voru alls 26.
Skákþing Akureyran
1. Gylfi Þórhallsson 10 v. af 12
mögulegum, 2. Þór Valtýsson
8V2 v., 3. Arngrímur Gunnhalls-
son 7 'á v., 4. Margeir Stein-
grímsson 7 v.
í unglingaflokki sigraði Pálmi
Pétursson.
Minningarmót um Júlíus Boga-
soni
1. Jón Árni Jónsson 5 v. af 7
mögulegum, 2—5. Jón Björg-
vinsson 4 '/2 v., 2—5. Margeir
Steingrímsson 4V2 v., 2—5.
Jóhann Snorrason 4 V2 v., 2—5.
Marinó Tryggvason 4'/2 v.
í unglingaflokki sigraði Pálmi
Pétursson. Hann hlaut 13 v. af
14 mögulegum.
Hraðskákmeistari Akureyrar
1978 er Jón Björgvinsson.
Formaður Skákfélags Akureyr-
ar er Albert Sigurðsson og hefur
hann haft veg og vanda af
starfsemi félagsins undanfarin
ár.
Við skulum nú líta á eina skák
frá Skákþinginu, það er hinn
nýbakaði Akureyrarmeistari
sem hefur hvítt.
Hvítti Gylfi Þórhallsson
Svarti Jón Ingimarsson
Sikileyjarvörn
1. e4 - c5, 2. Rf3 - d6, 3. d4
— cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3
— a6, 6. Bc4 — e6, 7. Be3 —
Bd7?!
(Hér gat svartur unnið peð með
7.... b5, 8. Bb3 - b4, 9. Ra4 -
Rxe4?! en hvítur getur þá að
öllum líkindum leikið 10. Rb6! —
Dxb6, 11. Rxe6. T.d. 11.... Da5,
12. Rxf8 - Hxf8, 13. Dd5. Bezt
er 9.... Be7! og svartur hefur
góða stöðu).
8. Bb.3 - Be7, 9. De2 - (H), 10.
g4 — d5
(Svartur var þegar kominn í
töluverð vandræði, sem stafa af
slæmri stöðu biskupsins á d7.
Betra var þó án efa 10.... Rc6,
11. g5 - Re8)
11. c5 — Re4,12. Rxe4 — dxe4,
13. 0-(H) - Dc7, 14. Bf4
(Hvítur vinnur nú peð, en í
staðinn losnar örlítið um svörtu
stöðuna)
Rc5, 15. Dxe4 - Bc5, 16. Rf3!
(Hvítur gefur peðið til baka
fyrir sterka sókn)
Bxf2, 17. Rg5 - g6, 18. h4 -
Ra5,19. De2 — Rxb3+, 20. axb3
- Bc5, 21. Dc4?!
(Einfaldara var 21. h5!, sem
hótar 22. Rxh7! Eina vörn svarts
virðist vera f6, en eftir 22. Re4
er kóngsstaða hans ekki upp á
marga fiska)
Bb5?
(Svartur lét hér bezta tækifæri
sitt í skákinni sér úr greipum
ganga: 21.... Hac8! og hótar
22.... Da5. Ef 22. Kbl þá Be7!)
22. Dc3 - Hac8, 23. h5 - Be7
24. hxg6
(Einnig kom sterklega tii greina
að leika strax 24. Dxc7 — Hxc7,
25. hxg6 og ef nú hxg6 þá 26.
Hh2 og svartur á í miklum
erfiðleikum. T.d. 26.... Bc6, 27.
Rh7 - Hfc8, 28. Rf6+ - Bxf6,
29. exf6 - Hd7, 30. Hxd7 -
Bxd7, 31. Bh6 og svartur er
varnarlaus)
Íxg6?
(Meiri von var fólgin í 24....
Dxc3, 25. gxh7+ — Kh8, 26. bxc3
- Hxc3. Nú vinnur hvítur létt)
25. Dxc7 — Hxc7, 26. Rxe6 —
IIxf4, 27. Rxc7 - Bc6, 28.
Ilhgl - Bf3. 29. IId7 - Bg5,
30. Kbl - Bxg4, 31. e6 - h6.
32. Hel - Hf8, 33. Hd4 - Bh4,
34. Hxg4 og svartur gafst upp.
Að lokum skulum við líta á
stutta skák frá þessari keppni:
Hvítti Karl Þorsteins (T.R.)
Svarti Arngrímur Gunnhalls-
son (S.A.)
Sikileyjarvörn
1. e4 - c5, 2. Rf3 - Rc6, 3. d4
- cxd4, 4. Rxd4 - Rf6, 5. Rc3
- e5, 6. Rdb5 - d6, 7. Rd5 -
Rxd5, 8. cxd5 - Re7, 9. c4 -
a6??(Svartur fellur hér í
þekkta gildru. Nauðsynlegt var
Rg6 eða 9.
Rf5)
10. Da4!
(Nú hrynur svarta staðan.
10.... Bd7 yrði svarað með 11.
Rxd6 mát og sömuleiðis 10....
Hb8)
axb5, 11. Dxa8 — bxc4, 12.
Bxc4 - Db6,13.0-0 - Db4,14.
b3 - g6,15. a3 - Db6, 16. Be3
- Dd8, 17. Bb5+ - Bd7, 18.
Bxd7+ - Kxd7,19. Dxb7+ Kc8.
20. Hacl og svartur gafst upp.
Úrslit á einstökum borðum
urðu þessi:
Unglingasveit T.R. Skákfélag Akureyrar
1. Margeir Pétursson — Gylfi Þórhallsson V2 — Vi
2. Jón'L. Árnason — Þór Valtýsson 1—0
3. Jóhann Hjartarson — Jóhann Snorrason 1—0
4. Elvar Guðmundsson — Hreinn Hrafnsson V2 — Vi
5. Jóhannes Gísli Jónsson — Margeir Steingrímsson V4 — Vfe
6. Karl Þorsteins — Arngrímur Gunnhallss. 1—0
7. Árni Ármann Árnason — Jón Árni Jónsson 1—0
8. Arnór Björnsson — Haraldur Ólafsson 1—0
9. Egill Þorsteins — Davíð Haraldsson 1—0
10. Lárus Ársælsson — Atli Benediktsson '/2 — /2
11. Ragnar Magnússon — Marínó Tryggvason 1—0
12. Áslaug Kristinsd. — Níels Ragnarsson 1—0
13. Jóhann H. Ragnarsson — Albert Sigurðsson '/2—V2
14. Stefán G. Þórisson — Jakob Kristinsson 0—1
15. Páll Þórhallsson -» Friðgeir Sigurbjörnss. 1—0
16. Eyjólfur Ármannsson — Smári Ólafsson '/2 —'/2
17. Sigurlaug Friðþjófsdóttir — Pálmi Pétursson 0—1
18. Hrafn Loftsson — Jakob Kristjánsson V2 — V2
19. Gunnar Freyr Rúnarsson — Bogi Eymundsson 1—0
20. Lárus Jóhannesson — Ragnar Ragnarsson 1—0
21. Davíð Ólafsson — Aðalsteinn Sigurðsson 1—0
Alls 15‘/2 - 5‘/2
— Verkið er
byggt á...
Framhaid af bls. 5.
á ærslafullri fantasíu, sem þó á
sér stoð í alþýðulist. Hlutir hans
breyta sífellt um eðli, — allt er
í heiminum breytilegt, eftir því
frá hvaða sjónarhorni eða af-
stöðu maður nálgast það.“
Um verk Ólafs segir Aðal-
steinn hins vegar: „Segja má að
Ólafur sé með skrásetningum á
ákveðnum athöfnum að setja
fram skáldlegar tilgátur um eðli
þess sem við sjáum og
skynjum".
Um verk sín segir
Norðmaðurinn Viggo Andersen:
„Ég ákvað að byggja mér
herbergi, þegar ég hafði grand-
skoðaða sýningarsalinn hér að
Kjarvalsstöðum, þar eð ég sá að
þau verk sem ég hafði áður sýnt
á þessari sýningu mundu hrein-
lega hverfa í það gímald. En til
að undirstrika séreinkenni míns
herbergis, þá byggi ég það á ská
í salnum og þræði hvítan kaðal
ennfremur niður í herbergið, en
hann fylgir hlutföllum salarins
og beinir auga áhorfandans
strax að stöðu herbergisins í
salnum sem heild. — Ég býst við
að mig mætti kalla eins konar
formkönnuð með sérstakan
áhuga á hreinum og klárum
gildum og kannski blundar í
mér eins konar dulspekingur
eins og Björn Nörgaard segir“.
Að síðustu skal þess getið að
sýningin , sem hefst í dag,
stendur fram til sunnudagsins
23. júlí og er opin á venjulegum
tíma.
— Erlendur
Einarsson
Framhald af bls. 19
loknum voru skýrslurnar og reikn-
ingar Sambandsins fyrir árið 1977
samþykkt samhljóöa.
Verzlunarþjónusta
samvinnuhreyfingarinnar
Síðdegis í gær var fjallað um
sérmál aðalfundar sem var verzlun-
arþjónusta Samvinnuhreyfingarinn-
ar. Framsögu um málið hafði
Erlendur Einarsson, forstjóri. í
erindi sínu kynnti hann m.a. viða-
mikla skýrslu um smásöluverzlun,
sem unnin hefur verið af Skipulags-
og fræðsludeild Sambandsins og
dreift var til kaupfélaganna á
fundinum. Auk þess rakti hann þá
erfiðleika, sem smásöluverzlun
kaupfélaganna á við að etja, fyrst og
fremst í dreifbýli, en einnig í
þéttbýlinu á höfuðborgarsvæðinu,
þar sem markaðshlutfall hennar er
mjög lágt. Hann útskýrði með
dæmum, hvernig litlar verzlanir eiga
við rekstrarerfiðleika að etja, á
meðan stærri verzlanir sýna betri
afkomu. Einnig ræddi hann um
breytingu á þjóðfélagsháttum og
byggðaröskun síðustu áratuga, sem
hefði haft mikil áhrif á samkeppnis-
aðstöðuna, einkum þar sem sam-
göngur milli einstakra landshluta
hefðu stóraukizt. Þessu til skýringar
greindi hann frá tölum um sölu-
skattsskil á hvern íbúa í einstökum
skattaumdæmum landsins, sem sýna
greinilega að Reykjavík dregur til
sín verzlún frá landsbyggðinni.
í framhaldi af þessu urðu nokkrar
umræður á fundinum og að lokum
samþykkti hann um það viðamikla
ályktun. Þar er m.a. talið nauðsyn-
legt, að gerð verði áætlun um
framtíðarþróun verzlunar á vegum
Samvinnufélaganna, þar sem höfð sé
í huga su mikla breyting sem orðið
hafi á þjóðfélagsháttum og birtist
m.a. í breyttum neyzluvenjum og
breyttri búsetu. í framhaldi af því
felur fundurinn stjórn Sambandsins
að láta gera 10 ára áætlun um
uppbyggingu og þróun verzlunar-
þjónustu Samvinnufélaganna. Þar
skuli lögð áherzla á, að Samvinnufé-
lögin aðlagi verzlunarþjónustu sína
sem bezt þjóðfélagsháttum, eins og
þeir séu á hverjum tíma, og að
Samvinnufélögin láti í té sem bezta
þjónustu við viðskiptamenn, um leið
og leitað sé leiða til þess að halda
kostnaði sem lægstum með bættu
skipulagi og sem mestri hagræðingu
á öllum sviðum. Fyrstu drög að
þessari áætlun skuli lögð fyrir næsta
aðalfund Sambandsins fyrir árið
1979, þar sem málið verður tekið til
umræðu.
Erfiðleikar
iðnaðarins
Hjörtur Eiríksson framkvæmda-
stjóri Iðnaðardeildar gerði grein
fyrir miklum erfiðleikum sem steðj-
að hafa að iðnrekstri Samvinnu-
manna að undanförnu. í ársbyrjun
1977 hefði verið útlit fyrir eitt bezta
rekstrarár Iðnaðardeildar um langa
hríð, en reyndin hefði orðið allt
önnur, þegar liðið hefði á árið. Jafnt
og þétt hefði sigið á ógæfuhlið, og nú
væri svo komið, að rekstur Iðnaðar-
deildar stefni í stórfelldan taprekst-
ur og stöðvun, ef ekkert yrði að gert.
Hjörtur greindi frá því, að útflutn-
ingur á lopa til fullvinnslu, m.a. til
láglaunalanda í Austur-Asíu, væri
óheillavænleg þróun, og eina skó-
verksmiðjan í landinu, Skóverk-
smiðjan Iðunn á Akureyri, ætti nú
mjög í vök að verjast. I lok máls síns
benti Hjörtur á mikilvægi sam-
vinnuiðnaðarins á Akureyri fyrir
þjóðarbúið allt og lagði áherzlu á, að
ekki væri verið að krefjast forrétt-
inda honum til handa, heldur vildi
hann fá að keppa við samkeppnisað-
ila okkar erlendis á jafnréttisgrund-
velli. Nefndi hann í því sambandi
fj ármagnskostnað, hráefniskostnað
og aðra þá kostnaðarliði, sem til
verða innanlands.
Fundurinn samþykkti tillögu, þar
sem vakin er athygli á alvarlegri
stöðu íslenzks útflutningsiðnaðar og
telur, að nú þegar verði að snúa við
þeirri háskalegu þróun, sem hin
síðustu misseri hefur sett mark sitt
á íslenzkan iðnað.
Kennsla í samvinnu-
fræðum við Háskólann
Þá var samþykkt tillaga þess efnis,
að fela stjórn Sambandsins að hefja
viðræöur við rektor Háskóla Islands
og aðra forráðamenn skólans um að
tekin verði upp kennsla í samvinnu-
fræðum við Háskólann. Einnig varð
gerð ályktun, þar sem lýst er
þungum áhyggjum vegna þeirra
sérstöku vandamála, sem við er að
stríða um þessar mundir í landbún-
aðarmálum vegna sölutregðu og
birgðasöfnunar af völdum óðaverð-
bólgu í landinu. Bent er á ýmsar
leiðir til úrbóta, t.d. að afurða- og
rekstrarlán verði aukin verulega,
þannig að bændur geti fengið tekjur
sínar greiddar við afhendingu fram-
leiðslunnar og jafnframt staðgreitt
framleiðslukostnaðinn.
Bridge
Umsjón ARNÓR
RAGNARSSON
Frá Asunum
SI. mánudag var spiluð úr-
valssveitakeppni í stað tví-
mennings. Dregið var saman í
sveitir og eftirtaldir skipuðu
sigursveitinai Ármann J.
Lárusson, Jón Páll Sigurjóns-
son, Skafti Jónsson og Hjörleif-
ur Jakobsson.
Næsta mánudag verður tví-
ménningur aftur á dagskrá, og
er skorað á fólk að mæta og taka
þátt í góðri keppni.
Um daginn var spilaður tví-
menningur og urðu úrslit þá
þessi:
A-riðiIii
1. Ása — Sigríður 140 stig
2. Páll — Borgþór 126 stig
3. Vigfús — Þorfinnur 119 stig
B-riðilli
1. Sigurður — Sævar 133 stig
2. Jón — Baldur 125 stig
3. Jón — Oddur 118 stig
meðalskor var 108 stig.
Af Ólympíuförum okkar, J-
akobi R. Möller, Jóni Baldurs-
syni, Óla Má Guðmundssyni og
Þórarni Sigþórssyni, er það að
segja, að vel má una við árangur
þeirra.
Fyrirkomulag á mótinu
var þannig, að 192 pör hófu
keppni og skyldu 112 pör komast
í milli-úrslit. Bæði pörin náðu
því auðveldlega. Síðan héldu
pörin skor sinni, eftir þessar 4
undanrásar umferðir, og spiluðu
aðrar 2 umferðir í milli-úrslit-
um, og þá gilti sú skor helmingi
meir. Þar náðu 40 pör upp í
úrslit, sem er þannig háttað, að
allir spila við alla og eru 3 spil
milli para. I undanrás og
milli-riðli eru 2 spil milli para.
I milli-úrslitum voru Jakob og
Jón alltaf nálægt því að komast
í úrslit, en um síðir höfnuðu þeir
í 59. sæti. Óli Már og Þórarinn
stóðu sig einnig þokkalega og
náðu 84. sæti.
Sigurvegarar í Opna flokkn-
um á mótinu urðu Brazilíu-
mennirnir Branco og Cintra.
Þeir eru einnig núv. Ól-meistar-
ar í sveitakeppni, og svo
skemmtilega vildi til, að félagar
þeirra, Chagas og Assumpacao,
sigruðu undankeppnina, þó verr
gengi þeim í úrslitum.
I 2. sæti urðu Kanadamenn-
irnir Kokish — Nagy og í 3. sæti
USA-par, Bates — Mohan.
I kvennaflokki vildi svo
skemmtilega til, að eiginkona
hins þekkta formósuauðkýfings
og bridge-frömuður, C.C Wei,
hin kínverska Katie Wei, og
félagi hennar, Jude Radin,
sigruðu flestum á óvart.
Eins og margir vita er C.C.
Wei höfundur hins fræga sagn-
kerfis Precision.
Ólaíur Lárussson