Morgunblaðið - 05.07.1978, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 05.07.1978, Blaðsíða 32
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 1978 Frystideild Verðjöfnunarsjóðs tóm: SH og Sambandið lækka verð til frystihúsanna um 11% Meðaltap frystihúsanna 15% af veltu og meðalvaxtagreiðsl- ur 3 millj. kr á mánuði Stjórn Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna og Sam- bands frystihúsa hafa ákveðið að lækka núgildandi verð til frystihúsanna um 11% frá 1. júlí s.l. Er þetta gert þar sem frystideild Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins er nú tóm og ríkisstjórnin segist ekki geta ábyrgst greiðslur sjóðinn á næstunni. Auk þessa hefur Seðlabanki íslands ekki hækkað afurðalán til húsanna til samræmis við aðrar hækkanir. sem húsin hafa orðið að mæta. Rekstrartap frystihúsanna var fyrir 11% verðlækkunina 3—4% og er því um 15% meira og á blaðamannafundi með forráðamönnum SH og Sambands frystihúsa í gær kom fram, að auðsætt væri að flest frystihúsanna í landinu stöðvuðust á næstunni. Sólskinið er sunnlendingum svo kasrkomið eftir votviöri undanfarinna sumra, að Þeir Þreytast ekki á að prísa veður- guðina. Samt voru sólskins- stundir í júní ekki nema 6 klst. fleiri en í meðalári og kuldinn var slíkur aö Þetta er næstkald- asti júnímánuður frá aldamót- um. Kannski úr rætist í þessum mánuði — í Það minnsta mátti heyra um 20 stiga hita á sumum stööum syðra. Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, for- stjóri Sölumiðsfr>ðvar hraðfrysti- húsanna, skýrði írá því á blaða- mannafundinum í gær, að stjórnir SH og Sambandsfrystihúsa hefðu gengið á fund Geirs Hallgrímsson- Fyrsta ákæra vegna ólöglegs hundahalds 'EMB/ETTI ríkissaksóknara hef- -«ur geíið út ákæru á hendur konu Vinni í Fossvogshverfi í Reykja- vík fyrir brot á lögum um bann við hundahaldi í borginni. Tík konunnar hefur í nokkur skipti bitið gangandi vegfarendur í Fossvogshverfi og verið kærð fyrir til lögreglu. Konunni var boðið að ljúka málinu með sátt og sektargreiðslu, sem hún hefur alfarið neitað. Var þá gefin út ákæra á hendur kon- unni og er málið til dómsmeð- ferðar hjá sakadómi Reykjavík- ur. Ákvæði um sektir hafa verið óbreytt frá 1953 og er hámarks- sekt 1000 krónur en konan hefur haldið hund i' borginni í 9 ár. I ákæruskjali embættis ríkis- saksóknara segir svo m.a: „Gekk nefnd tík laus í tjóðri við hús ákærðu og beit stúlkuna til blóðs í hnésbót hægri fótleggjar miðvikudaginn 22. október 1975 og föstudaginn 27. maí 1977 beit hún póstfreyjuna H í vinstra læri, þannig að úr dreyrði, er H hugðist bera póst til ákærðu. Síðar sama dag réðst tíkin á Þ lögregluþjón og beit hann í vinstra læri og vinstri hönd og hlutust af skeinur." Þetta mun vera í fyrsta skipti svo vitað sé, að kært er vegna brota á lögum um hundahald í Reykjavík. ar forsætisráðherra kl. 14 og hefði Jón Sigurðsson forstjóri Þjóðhags- stofnunar verið viðstaddur fund- inn. Hefði forsætisráðherra verið skýrt frá því, að þar sem frysti- deild Verðjöfnunarsjóðs væri nú tóm væru ekki önnur ráð fyrir hendi en að lækka verð til frystihúsanna ellegar að ríkis- stjórnin ábyrgðist greiðslu í sjóð- inn. Að sögn Eyjólfs þá svaraði forsætisráðherra því til, að ríkis- stjórnin gæti ekki tekið á sig slíka ábyrgð við núverandi aðstæður. En hins vegar hefði forsætisráð- herra lofað að skýra málið fyrir Framhald á bls. 19 Réttlætismál að ísland gefi eftir Glasgow-Khöfn leiðina — segir formaður brezku viðræðunefndarinnar FYRSTI viðraeðufundur nefndar brezka flugmálaráðu- neytisins og íslendinga um flug Flugfélgs Islands á leiðinni Glasgow — Kaupmannahöfn var í gær í Ráðherrabústaðnum. Formaður brezku viðræðunefndar- innar er Leslie Standen aðstoðarframkvæmdastjóri í brezka flugmálaráðuneytinu. Mbl. náði tali af honum í gær og spurðist fyrir um sjónarmið Breta varðandi þetta mál. ríkisstjórnina að íslendingar gæfu þennan rétt sinn eftur. Fjöldi farþega á milli Glasgow og Kaup- mannahafnar væri ekki það mikill að þrjú flugfélög gætu verið um hituna, þ.e. SAS, British Airways og íslendingar. Hér væri um réttlætismál að ræða, en Bretar hefðu ekki haldið uppi flugi til íslands, þar sem íslendingar hefðu einokunaraðstöðu. Standen kvaðst vona að íslend- ingar gæfu eftir rétt sinn og að hann hefði beðið um að frestur til þess yrði ekki lengri en til loka næsta sumars, en þó mætti komast að samkomulagi um þann frest. Bretar hefðu veitt leyfið af veg- lyndi á sínum tíma en vildu nú endurheimta það vegna hagsmuna Framhald á bls. 18 33% hækk- un hitaveitu Reykvíkingar mega eiga von á verulegri hækkun hitaveitugjalda áður en langt um líður. Á fundi borgarráðs í gær var lögð fram tillaga frá hitaveitustjóra, sem samþykkt hafði verið áður sam- hljóða á fundi stjórnarnefndar veitustofnana. um að hitaveitugjöld hækkuðu miðað við 1. ágúst nk. um 33% eða vatnsvcrðið úr kr. 75 á tonn í 100 kr. tonnið. Tillaga þessi var lögð fram í borgarráði og bókuð cn ákvörðun hins vegar frestað. Standen sagði, að málið varð- andi réttindi tveggja landa, Bret- lands og Danmerkur, um flug þeirra á milli, en samkvæmt leyfi ríkisstjórnar Bretlands héldi þriðja landið, ísland, einnig uppi flugferðum á þessari sömu leið, en slík leyfi í millilandaflugi væru ekki algeng. Vegna þessa leyfis hefðu brezk flugfélög ekki verið á þessari flugleið, en þau hefðu nú tekið hana upp. Því væri hann kominn hingað til landsins til þess að fara þess á leit við íslenzku Frá viðræðufundi íslenzku nefndarinnar og brezku sendinefdarinnar um framtíð Glasgow-Kaupmannahafnarflugs Ffugfélagsins í ráð- herrabústaðnum í gær. Læragjá lokað að næturlægi? LÆRAGJÁ eða lækurinn í Nauthólsvikinni veldur borgar- stjórn áhyggjum eða öllu held- ur sú slysahætta sem af honum stafar vegna ásóknar ölvaðs fólks um nætur. I borgarráði Reykjavíkur í gær var lagt fram bréf frá framkvæmdastjóra Æskulýðs- ráðs borgarinnar með skýrslu lögreglustjóra, þar sem lýst er heldur ókræsilegu næturlífi við lækinn vegna mikillar ásóknar ölvaðs fólks. Minnt er á að þegar hafi hlotizt af þessu eitt dauða- slys, fólk hafði verið fiskað meðvitundarlaust upp úr lækn- um og að menn hafi jafnvel í ölæði lagzt til sunds úr læknum og út í sjálfa víkina. Þá hefur löngum farið það orð af gjálífi þessu, að það fari langt út fyrir öll velsæmismörk, en engu að síður mun það vera áðurnefnd slysahætta sem af læknum er talin stafa sem veldur borgarstjórn mestum áhyggjum. Var í því sambandi rætt á borgarráðsfundinum í gær hvað væri til ráða og var því beint til hitaveitustjóra og borgarverkfræðings hvort fram- kvæmanlegt væri að loka fyrir rennsli í læknum að næturlagi og hver kostnaður af því væri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.