Morgunblaðið - 09.07.1978, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.07.1978, Blaðsíða 1
<8 Sfi)UR 145. tbl. 65. árg. SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Vínarfundir ífullumgangi Vínarborg 8. júlí Reuter — AP ANWAR Sadat Egypta- landsforseti hóf í morgun viðræður við Kreisky kanslara Austurríkis, en kanslarinn hefur lagt mikla áherzlu á áhuga sinn til að greiða fyrir samn- ingaviðræðum um Miðausturlönd er gætu borið einhvern ávöxt. Sad- at og Kreisky ræddu ekki við fréttamenn, en gáfu kost á myndatökum og síðan byrjuðu fundir þeirra, þar sem Sadat mun hafa skýrt ítarlega síðustu tillögur Egypta í Cornelía Wallace Cornelia í framboð Birmingham. Alabama 8. júlí. AP. CORNELIA Wallace fyrrverandi eiginkona George Wallace ríkis- stjóra í Alabama ákvað í dag að reyna að ná útnefningu sem frambjóðandi demókrataflokks- ins til ríkisstjórakjörs. Kom það öllum að óvörum er Cornelia Wallace skundaði inn í bæki- stöðvar flokksins í Birmingham án þess að hafa tilkynnt fyrir- ætlanir sínar, lagði fram gild meðmæli og nauðsynleg gögn og bætti við á eftiri „Ég vil gefa fólki tækifæri til að greiða heiðarlegri manneskju atkvæði.“ Wallace getur ekki gefið kost á sér sem ríkisstjóri og mun að sögn ekki bjóða sig fram til öldunga- deildarinnar. Þau hjón skildu í janúarmánuði sl. Mið-austurlandamálinu. Kreisky mun síðan ræða sér- staklega við Shimon Peres, leið- toga ísraelska Verkamannaflokks- ins og formann stjórnarandstöð- unnar í ísrael. Þeir Peres og Sadat munu síðan hittast á morgun, sunnudag. Willy Brandt, fyrrver- andi kanzlari Vestur-Þýzkalands kom fljúgandi til Vínarborgar á laugardagsmorgun og mun að öllum líkindum hitta Kreisky, Sadat og Peres að máli. Hann sagðist þó aðallega vera kominn til að hlusta. Getum er að því leítt að gangi viðræður vel og allt fari fram samkvæmt áætlun sé hugsanlegt að Sadat fresti heimferð sinni um dag og eigi viðræður við Carter forseta þegar hann kemur til Evrópu seinni part næstu viku. Ballett eftir sögu H.C. Andersens vinsœll í Kína Ilonjí Kon« 8. júlí — Heuter. NÝR kínverskur ballet, sem byggður er á ævintýri H.C. Andersens um litlu stúlkuna með eldspýturnar, hefur vakið feiknalega athygli í Peking og fengið aðsókn meiri en dæmi eru til um að því er kínverska fréttastofan Hshinua sagði í morgun. Sagan var valin af forsvarsmönnum aðalballett- skóla Peking og gerður eftir henni ballett, sem æfingar verkefni fyrir nemendur í vestrænum ballett. H.C. Andersen Pertíni formlega orðinn forseti Rómaborg 8. júlí — Reuter. SANDO Pertini, 81 árs, var í dag kjörinn forseti Italíu, eins og gert hafð verið ráð fyrir og Mbl. sagði frá í blaðinu í dag. Kjör hans batt þar mcð enda á tíu daga þrátefli í brothættu pólitísku lífi á Ítalíu. Pertini sem nýtur virðingar íyrir fortíð sína og almenna mann- eskjulega hæfni er úr flokki sósialista. Það hcfur þótt hæng- ur á hversu aldurhniginn hann er og segir í fréttaskcytum að þar með bætist einn öldung- urinn enn við þá sem fyrir eru við stjórnvöl í fjölda mörgum ríkjum hcims. A hinn bóg- Framhald á bls. 46. Líbanon: Sýrlendingar segjast ekki hafast að í Beirut Sovét til aðstoðar ef ísraelar gera atlögu? Beirut, 8. júlí AP. Reuter TALSMAÐUR sýrlenzku eftirlitssveitanna í Beirut í Líbanon sagði í dag að sex Sýrlendingar hefðu særzt í eldflaugaárásum sem kristnir líbanskir hægri- menn hefðu staðið að 1 austurhluta Beirut síðan í gær. Sagði í orðsendingu Sýrlendinga að fjörutíu eldflaugum hefði verið skotið að stöðvum Sýrlend- inga, en þeir hefðu ákveðið að svara ekki í sömu mynt. Ekki ber þessum frá- sögnum að öllu leyti saman við frásagnir erlendra fréttamanna í Líbanon sem segja að enn séu átök milli aðila, þó svo að úr þeim hafi dregið síðustu klukkustundirnar. Þessar fréttir Sýrlendinga voru birtar um þær sömu mundir og Elias Sarkis var að íhuga afsögn sína. Hann hafði um tíma látið að því liggja að hann myndi sitja áfram í forsetaembættinu en síðan ákvað hann að taka það til endurskoðunar og segja Reuter- fréttir að ljóst sé að Líbanonfor- seta sé fullkomin alvara og sé hér ekki um neitt bragð að ræða. Þrátt fyrir þetta og vaxandi spennu, eymd og örvæntingu í austurhluta Beirut sagði Amin Hfez fyrrver- Framhald á bls. 46. ís í b jörtu báli Mclhourne. Ástralíu 8. júli — Reuter. Siökkviliðsmennirnir ætluðu ekki að trúa sínum eigin augum þegar þeir heyrðu hvaðan brunaútkallið kom, en engu að síður fóru þeir á vettvang. Og það stóð heima, ískögglaverksmiðja Melbourne stóð í ljósum logum og í hálfan annan tíma börðust slökkviliðsmennirnir við að ráða niðurlögum eldsins. Talið er að um íkveikju hafi verið að ræða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.