Morgunblaðið - 13.07.1978, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.07.1978, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JULÍ 1978 Fremur rólegt var á Kröflusvæðinu í gær. Jarðskjálftavirkni fer dvínandi og siginu norður í Gjástykki má hcita lokið. Töluverð hveramyndun mun þó vcra þar á yfirborðinu og fóru jarðfræðingar í gær til að kanna það. Myndin var tekin fyrir Gjástykki í fyrradag en hana tók fréttaritari Mbl. á Ilúsavik. Maður fannst látinn hjá Keflaváíurhöfn Var rændur skömmu áður en hann lézt MAÐUR um sextugt fannst í grjóturð niðri við Keflavikurhöfn í gærmorgun og var hann látinn þegar að var gætt. í fyrstu var talið að ekki væri allt með fclldu um dauða mannsins. þvi' að hann Vinnuskóla- krakkarnir mótmæla launakjo^um KRAKKARNIR hjá Vinnu- skóla Reykjavíkurborgar, sem verið hafa uppi í Heiðmörk, munu ekki mæta þar til vinnu í dag. Þess í stað munu þau safnast saman nú árdegis á Lækjartorgi og hyggjast fara í kröfugöngu til að mótmæla lágum launum. Krakkarnir ætla að ganga fyrir Gunnlaug Pétursson, borgarritara eða Sigurjón Pétursson, forseta borgar- stjórnar, og ef þau hitta á hvorugan þá fyrir Guðrúnu Helgadóttur til að mótmæla launakjörum sínum, sem þau telja svo slæm að ekki sé unnt að una við þau lengur. Þau segjast fá 305 krónur á tímann meðan krakkarnir í Mosfells- sveit fái 335 krónur og krakkarnir í Kópavogi hafi enn töluvert betri laun. var með áverka á höfði og auk þess einsýnt að hann hafði verið rændur skömmu áður en hann lézt. Nú þykir hins vegar allt benda til að áverkarnir hafi ekki verið af mannavöldum en hins vegar hafa tveir 13 ára piltar viðurkennt að hafa rænt mann- inn. þar sem hann lá ofurölvi skammt frá þeim stað er hann síðan fannst látinn. Að sögn rannsóknarlögreglunn- ar í Keflavík var maðurinn sem hér um ræðir úr Hafnarfirði. Hann starfaði uppi á Keflavíkur- flugvelli, en var drykkjumaður og hafði ekki mætt þar til vinnu um skeið. Við rannsókn málsins í gærmorgun varð uppvíst að pilt- arnir tveir komu að manninum þar sem hann lá ofurölvi lítið eitt frá þeim stað sem hann síðan fannst látinn, og að þeir rændu hann þar nokkrum fjármunum. Við rannsókn málsins hefur hins vegar ekkert komið fram sem bendir til að þeir hafi síðan veitt honum áverka eða verið þess valdandi að hann féll fram af brún við höfnina og lenti þar ofan í grjóturð með oddhvössum stein- um. Er talið líklegast að hann hafi hlotið áverka þá, sem hann var með á höfði, við þetta fa.ll. Réttarkrufning mun hins vegar fara fram til að skera úr um þetta atriði. Grindavík: SLITNAÐ hefur upp úr tneiri- hlutasamstarfi, sem nýlega hafði tekizt milli fulltrúa Alþýðuflokks og Alþýðubandalags í bæjar stjórn Grindavíkur. Á fundi í bæjarstjórninni í dag bar Kjartan Kristófersson, fulltrúi Alþýðubandalagsins, fram tillögu um að auglýst yrði eftir bæjar- stjóra í stað Eiríks Alexanders- sonar, sem gegnt hefur starfi bæjarstjóra undanfarin ár, en tillagan var felld þar eð annar Alþýðuflokksmaðurinn greiddi atkvæði gegn tillögunni. Þegar þau úrslit lágu fyrir stóð Kjartan upp og lýsti því yfir að grundvöllur fyrir meirihlutasamstarfi þessara tveggja flokka væri brostinn. Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag og Sjálfstæðisflokkur hafa 2 full- trúa hver flokkur í bæjarstjórn- inni en Framsóknarflokkur 1. Vegfarendur spurðir álits á hækkununum Áfengi og tóbak ÞAÐ HEFUR eflaust ekki farið fram hjá_ mörgum að í gær voru útsölur ÁTVR lokaðar og í dag býðst mönnum að kaupa áfengi og tóbak á að meðaltali 20% hærra verði en var í gær. Til að fólk gcti bctur áttað sig á þessari hækkun fara hér á eftir nokkur dæmi um verð og er þá gamla verðið haft í sviga fyrir aftan til samanburðar: Sígarettur 470 (390). Algcng tegund píputóhaks 390 (325). Lítil dós af neftóbaki 240 (200). Brennivín 5,100 (4,200). Algeng tegund aí vodka 6,700 (5,500). Algeng tegund af wiskíi 7,200 (5,900). Algcng tegund af gini 7,100 (5,800). Kláravín 5,750 (4,700). Álgeng tegund af púrt- víni 2,350 (2,000). Algeng tegund af vermut 2,600 (2.200). Algeng tegund af rauðvíni 2,400 (2,000). Algeng tegund af hvítvíni 2,600 (2,200). Til þess að kanna álit almcnn- ings á þessum hækkunum brugð- um við okkur niður í miðbæ og tókum þar nokkra vegfarendur tali. Fyrst spurðum við fólkið um hvað því fyndist um þessa hækk- un og síðan hvort það teldi að hún hefði einhver áhrif á neyzluvenj- ur fólks á áfengi og tóbaki. 1 r X Það voru ekki allir sem áttuðu sig á því að Áfengisútsölurnar voru lokaðar í gær. „ Verðið var alveg nógu hátt fgrir” Gréta Sigurðardóttir. — Mér líst mjög illa á þessa hækkun. Verðið var alveg nógu hátt eins og það var. Hvernig skyldi þetta annars enda? — Fólk fer bara að gera eitt- hvað annað í staðinn. Ætli það minnki ekki drykkjuna fyrst, en svo fer þetta ábyggilega aftur í sama farið. Ég hugsa að fólk minnki ekki reykingar, því fólk sem reykir eitthvað á annað borð setur verðið ekki fyrir sig. Mér fyndist ekkert ólíklegt að fólk gerði meira að því að brugga sitt eigið áfengi eftir að það er orðið svona dýrt að kaupa það. Þorskveiðibann frá 1. til 7. ágúst Skuttogurum bannaðar þorskveiðar í 30 daga fram til 15. nóvember l£ Meirihlutinn brast út af bæjarstjóranum Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið að banna allar þor'skveið- ar í ísl. fiskveiðilandhelgi í 7 daga 1. til 7. ágúst n.k. nema hvað útgcrðarmönnum skuttogara er heimilt að velja um að stöðva þorskveiðar á fyrrgreindu tima- bili eða dagana 8. til 14. ágúst. Auk þessa eru þorskveiðar skut- togara bannaðar í 30 daga frá útgáfu reglugerðar sjávarútvegs- ráðuneytisins til 15. nóvember n.k. Er hin nýja reglugerð sjávarútvegsráðuneytisins að mestu sama efnis og sú sem gefin var út í júlf á sl. ári. I reglugerð sjávarútvegsráðu- neytisins, sem gefin var út í gær, segir, að á tímabilinu 1. ágúst til 7. ágúst n.k., að báðum dögum meðtöldum, séu allar þorskveiðar Könnunarviðræður Alþýðubandalags og Alþýðuflokks: Engin afstaða til vísitölumálsins „ÞAÐ MA segja að við höfum velt fyrir okkur þremur leiðum til að taka kjarasamningana aftur f gildi en málið komst ekki á það stig að við tækjum afstöðu til þeirra," sagði Benedikt Gröndal cr Mbl. spurði hann f gær um þátt vísitölumálsins í kifhnunarvið- ra;ðum Alþýðuflokksins og Al- þýðu bandalagsi ns. Benedikt sagði að reiknaðir hefðu verið út þrír möguleikar en vildi ekki gera grein fyrir því í hverju þeir væru fólgnir. Spurn- ingu um það hvort Alþýðuflokkur- inn fyrir sitt leyti hefði tekið afstöðu í málinu svaraði Benedikt á þá leið, að þetta mál væri „viðkvæmt samningsatriði á milli flokka" og því vildi hann ekki ræða það opinberlega. bannaðar í íslenzkri fiskveiðiland- helgi. Útgerðaraðilum skuttogara sé þó heimilt að velja um að stöðva þorskveiðar á fyrrgreindu tímabili eða dagana 8. ágúst til 14. ágúst 1978, að báðum dögum meðtöldum, enda sé sjávarútvegsráðuneytinu tilkynnt um það eigi síðar en 20. júlí n.k. í annarri grein reglugerðarinn- ar segir ennfremur, að skuttogar- ar, með aflvél 900 bremsuhestöfl eða stærri, megi ekki stunda þorskveiðar í 30 daga samtals í íslenzkri fiskveiðilandhelgi frá útgáfudegi reglugerðarinnar til 15. nóv. n.k. og séu þá meðtaldar takmarkanir þær, sem um getur í 1. gr. Útgerðaraðilar geta ráðið tilhögun þessarar veiðitakmörkun- ar, þó þannig að hver skuttogari verður að láta af þorskveiðum ekki skemur en 7 daga í senn. Síðar segir að útgerðaraðilar skuli tilkynna sjávarútvegsráðu- neytinu eigi síðar en 15. ágúst hvernig þeir hagi veiðitakmörkun á þörskveiðum samkvæmt ákvæð- um 2. greinar. Verði slíkar áætlan- ir ekki látnar í té geti ráðuneytið ákveðið hvenær viðkomandi togar- ar skuli láta af þorskveiðum. Útgerðaraðilar séu bundnir við áætlanir sínar og verði að leita ___________Framhald á bls. 20. Óþrif í minkabúi MJÖG fljótlega verður gengið í að hreinsa til á minkabúi í Ileigadal í Mosfellssveit. sem lagt var niður fyrir hálfu öðru ári. Að sögn Einars Inga Sigurðssonar. heilbrigðisfulltrúa. var viðskiln- aður eigenda minkabúsins slæm- ur. en þeir hafa nú gefið íyrirheit um að hrcinsa staðinn hið fyrsta. Minkabúið er úr almannaleið og því ekki kunnugt um viðskilnaðinn fyrr en fólk kom í nálægan sumarbústað og börn, sem þarna voru, tóku sig til og fóru að skoða sig um á búinu. Þegar þau komu heim voru þau alsett af flóm og var þá heilbrigðisyfirvöldum gert aðvart. Minkabúinu hefur nú verið lokað með bráðabirgðaaðgerðum þar til fullnaðarhreinsun hefur farið þarna fram auk þess sem sumarbústaðurinn hefur verið eitraður og hús viðkomandi minkabúinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.