Morgunblaðið - 13.07.1978, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.07.1978, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JULI 1978 Menn úr hersveitum hægrimanna í Líbanon taka sér stööu í átökum við Sýrlenska hermenn í Beirút s.l. föstudag. THE OBSERVER THE OBSERVER THE sem eru flestir bændur í Suö- ur-Líbanon og urðu því harðast úti í innrás Israelsmanna nú fvrir skemmstu og loks eru sunniar, sem margir eru kaup- menn og eru flestir búsettir í hinni norðlægu hafnarborg Tripolí. Straumar Palestínumanna til landsins raskaði valdajafnvæg- inu, enda eru þeir flestir múhameðstrúar, og leiddi loks til borgarastyrjaldarinnar. Reyndar staðhæfa maronítarn- ir, sem tilheyra austrænni kirkjudeild í tengslum við Róm, að það hafi alls ekki verið borgarastyrjöld, heldur stríð milli Líbana og Palestínu- manna. Það er staðreynd að Pal- estínumenn voru mjög aðsóps- miklir í röðum vinstrimanna, en staðhæfingar kristinna hægri- manna taka ekki tillit til hinna fjölmörgu líbönsku múslima sem studdu þá, né heldur til fjölda grísk-kaþólskra manna sem var að finna báðum megin víglínunnar. Meðan á stríðinu stóð samein- uðust þrjár helstu ættafylking- ar kristinna manna í bandalagi. Öllum þessum fylkingum er stjórnað af mikilsmetnum marónítafjölskyldum og aðalað- setur þeirra eru í nokkrum borgum og þorpum í Norð- ur-Líbanon. Tryggð maroníta við ættarforingja sína er oft öllu æðri. Keppinautar á áttræðisaldri Aðeins einni þessara fylkinga hefúr auðnast að taka á sig mynd raunverulegs stjórnmála- flokks, en það eru falangistar, en hreyfingu þeirra stofnaði Pierre Gemayel árið 1936 sem andsvar við áfórmum múslima um að sameina Líbanon Sýr- landi þegar yfirráðum Frakka lyki. Flokkur falangista var mjög þjóðernissinnaður, skipu- lagði mótmælagöngur og skrúð- HINAR BLÓÐUGU ÆTTAERJUR í LÍBANON Líhanir eru nú orðnir jafn slyngir Norður-írum. ef ekki enn slyngari. í að drepa hver annan. eða vera drepnir af hver iiðrum. í þessari grein lýsir fréttaritari Observer í Mið-Austurlöndum. Colin Smith. þeim flokkadráttum sem liggja að baki síðustu átiikum hersveita kristinna manna og sýrlenskra her- manna í austurhluta Beirut á dögunum. Þeim átökum hafa sjónvarvottar lýst sem þeim alvarlegustu frá lokum borg- arastyrjaldarinnar í fyrra. Andstæðar ættafylkingar Líbönskum stjórnmálum er vfirleitt lýst sem býzönskum, en að ýmsu leyti eru þau einföld og hrottaleg. Líbanon öðlaðist sjálfstæði árið 1943 eftir að Bandamönn- um hafði tekist að ná landinu á sitt vald frá hinni nazistasinn- uðu Vichy-stjórn í Frakklandi. En Líbanon hefur aldrei orðið raunverulegt þjóðríki og þegar þar hefur verið friðsælast hefur verið um að ræða hárfína jafnvægislist í málamiðlunum milli illskeyttra, andstæðra ættafylkinga., Ibúar landsins eru nær tvær milljónir og er um það bil helmingurinn kristinn, en hinn helmingurinn múhameðstrúar. Við þetta verður síðan að bæta þeim tæpum 500 þús. pal- estínskra flóttamanna sem hafa sest að í landinu. í röðum múhameðstrúar- manna er að finna þrjár megin fylkingar. Það eru drúzar, sem er sérstakur trúflokkur múslima og búa aðallega til fjalla, shiar Líbanskir múslimar skjóta úr rússneskri fallbyssu á stöðvar kristinna manna nálægt forsetahöllinni í Beirút í marsmánuði 1976. Þáverandi forseti, Suleiman Franjieh, neyddist til aö yfirgefa forsetahöllina skömmu síðar. Hundrad f óru á Hornstrandir UNDANFARIN ár hefur Ferðafélag íslands efnt til ferða um Hornstrandir og hafa þær notið sívaxandi vinsælda. Síðastliðinn laugardag fór um hundrað manna hópur á vegum félagsins á þessar slóðir. Var lagt af stað frá ísafirði með m.s. Fagranesi og siglt alla leið til Furufjarðar. Þar fóru þeir í land sem ætluðu að ganga þaðan til Hornvíkur. Aðrir þátttak- endur ferðarinnar stigu á land í Hornvík eða Aðal- vík og þar dvelja þeir í Fólk og farangur ferjað á land (Myndir. Haukur Bjarnason) tjaldbúðum þessa viku. Munu þeir fara daglega stuttar gönguferðir á þá staði í nágrenninu, sem þekktastir eru og merk- astir. N.k. laugardag fer Fagranesið aftur til Hornvíkur og Aðalvíkur, sækir fólkið og flytur það til ísafjarðar. Skipið legg- ur af stað frá Isafirði kl. 13.00 og geta þeir, sem hafa hug á að heimsækja Hornstrandir fengið far með því, annað hvort aðra leiðina, eða komið til baka um kvöldið. Fullhlaðið Fagranes. Nemendaleikhúsið hefur nú sýnt leikritið „Pilsaþyt" eftir Carlo Goldoni átta sinnum í Lindarbæ og hefur aðsókn að þeim verið góð. Sýningum fer nú að fækka, en „Pilsaþytur“ verður sýndur í kvöld og sunnu- dagskvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.