Morgunblaðið - 13.07.1978, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 13.07.1978, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JULÍ 1978 15 Gjálp frá Laugarvatni. En Sigur- björn hefur annast þjálfun Loku og Glóu: „Þaö gætu orðið óvænt úrslit og ég á ekki von á því að það hross, sem flestir geri ráð fyrir að vinni, komi fyrst að márki. Þetta verða þó hrein merarúrslit. Ég er búinn að spá fyrir sjálfan mig en sú spá er eingöngu fyrir mig. Þetta verður ofsalega hörð keppni og ekkert hross kemur örugglega til með að hlaupa langt á undan.“ Viltu spá einhverju með úrslit í öðrum greinum kappreiðanna: „Nei, það er það sama með þær. Hingað koma öll bestu kappreiða- hross landsins nú. í 800 metrunum verða það sjálfsagt Þjálfi og Gustur sem berjast um fyrsta sætið en í skeiðinu er ekki alveg vitað hvaða hestar mætast. Fann- ar er t.d. ekki alveg heill enn í fæti og óvíst hvort hann keppir." „Gróður á hálendinu í meðallagi“ Margir hafa lagt leið sína á mótið ríðandi og við náðum tali af einum, sem kom ríðandi norðan úr Skagafirði en þaðan koma alls þrír hópar riðandi til mótsins. Viðmæl- andi okkar heitir Jósep Sigfússon og býr nú á Sauðárkróki en bjó áður sem bóndi á Torfastöðum í Svartárdal. Hann sagði að hann og félagar sínir hefðu komið 20 saman norðan yfir fjöll og þar af hefðu 15 verið ríðandi og hinir í bílum. Var hópurinn með 82 hross. Alls voru þau 4 daga í ferðinni og þar af þrjá daga á fjöllum. „Færðin var ágæt og það var óvanalega lítið í ánum,“ sagði Jósep, „og gróður á hálendinu var alveg í meðallagi miðað við það sem ég hef átt að venjast á ferðum mínum fyrr um hálendið. Já, ég er búinn að þvælast víða um á hestum. Hvers vegna? Menn vilja umfram allt vera í sambandi við hestinn einir út í náttúrunni. Þá fyrst, þegar þú ferð ríðandi um hálendi Islands, sérðu náttúru landsins og kynnist undrum þess. Um mótið vil ég ekkert segja enn sem komið er. Mér finnast hagarnir þó ekki nógu góðir.“ Vona að Guð gefi að það komi ekki aftur eins veður og 1970 Næst lá leiðin inn á tjaldstæðin og þar varð á vegi okkar hópur Austfirðinga, sem voru að fá sér hressingu á tjaldskörinni. Þar reyndist vera fólk frá Egilsstöðum og frá Vopnafirði. Halldór Hall- dórsson frá Vopnafirði var spurð- ur um áhuga fyrir hestum þar á staðnum? „Menn eru dálítið að gutla í þessu og við stofnuðum nýlega hestamannafélag en þessi áhugi hefur komið upp fyrir alvöru nú á síðustu árum. I vetur voru á húsi í þorpinu 20 til 30 hross. Við vildum fyrir alla muni komast á landsmótið og þá bæði til að sjá hrossin og ekki síður til að hitta fólk, því það er alltaf gott og hresst fólk, sem kemur á hesta- mannamót. I Skógarhóla hef ég líka ekki komið áður.“ í samtökum okkar við Austfirð- ingana kom í ljós að í hópnum var ein, sem verið hafði á landsmótinu í Skógarhólum 1970 en þeir sem þar voru muna öðru frekar eftir því móti vegna þess aftakaveðurs, sem þá skall á. Þetta var Auður Egilson frá Egilsstöðum: „Já, ég hugsaði mig mikið um áður en ég ákvað að fara á landsmót hingað á ný og ég vona að Guð gefi að það komi ekki slíkt veður aftur. Ég hlustaði á veðurspána alla síðustu viku en mót sem þetta stendur og fellur með veðrinu. Hestarnir eru stórkostlegir nú og reiðmennska knapanna hefur batnað mikið og þá bara frá 1970, þegar ég var hér. Við komum hingað á mánudag og verðum til mánudags eftir mótið. Þá er ekki um annað að ræða en taka almennilega þátt í móti sem þessu. Þetta er stór viðburður hjá okkur hestamönnum, sem enginn okkar vill missa af,“ sagði Auður að síðustu en hún og hennar fólk kom til mótsins á bílum. — t.g. Gamla fólkið trimmar GAMLA fólkið á Hrafnistu hefur trimmað reglulega í allan vetur og sumar undir stjórn Sigríðar Lúthersdóttur, sem er kunn íÞróttakona. Aö sögn hefur gamla fólkið haft óblandna ónægju af pessu og gagn. Er gjarnan létt á hjalla Þegar fólkið hittist til Þess að gera æfingarnar og mörg spaugsyrðin fjúka. Trimmið hefur Því líka félagslega Þýðingu jafnt sem líkamlega. Væri tilvalið fyrir önn- ur dvalarheimili aldraðra aö taka upp pennan sið. Myndin var tekin á æfingu á Hrafnistu fyrir nokkru. wÉ- k/rb'iQ)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.