Morgunblaðið - 21.07.1978, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
154. tbl. 65. árg.
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Andófsmaður
fær 15 ára dóm
Moskvu. 20. júlí. Reuter.
ÚKRAÍNUMAÐURINN Lev
Lukyanenko úr „Helsinki“-hreyf-
ingunni var í dag dæmdur í 10
ára þrælkunarvinnu og fimm ára
útlegð fyrir andsovézkan áróður
í bænum Gorodnya eftir fjögurra
daga réttarhöld sem voru lokuð
öllum nema örfáum ættingjum
hans að sögn andófsmanna.
Lukyanenko var handtekinn í
desember og þar með hafa 16
félagar úr Helsinki-hreyfingunni
vcrið dæmdir síðan samtökin
voru stofnuð fyrir tveimur árum.
Lukyanenko hefur áður dvalizt
15 ár í vinnubúðum. Dauðadómi
yfir honum var breytt 1960.
Samkvæmt heimildunum neit-
aði Lukyanenko öllum sakargift-
um. Hann neitaði að taka þátt í
réttarhöldunum og fór í hungur-
verkfall. Kona hans, tveir bræður
og foreldrar hans voru einu
ættingjarnir sem fengu að fylgjast
með réttarhöldunum.
Sækjandinn vitnaði máli sínu til
stuðnings í skjöl Úkraínudeildar
Helsinki-hreyfingarinnar sem
Lukyanenko stofnaði ásamt öðr-
um. Hann sagði að skjölin væru
undirrituð af Lukyanenko og
vitnaði einnig í tvær greinar eftir
hann.
Jafnframt vísaði dómstóll í
Moskvu á bug í dag dómsáfrýjun
Gyðingaandófsmannsins Vladimir
Slepak sem dæmdur var í fimm
ára útlegð sem hann hlaut fyrir
Bitu gras
ríkisins
Vín 20. júlí. Reuter.
Tékkneskur andófsmaður,
dr. Ladislav Lis. sem undirrit-
aði mannréttindayfirlýsing-
una í fyrra, hefur verið hand-
tekinn og ákærður fyrir þjófn-
að á sósíalistískum eignum af
því að kindur hans og geitur
bitu gras sem ríkið á, að sögn
andófsmanna í dag.
Dr. Lis getur átt það á hættu
að verða dæmdur í fimm ára
fangelsi fyrir að láta kindurnar
og geiturnar vera á beit með-
fram járnbrautarlínu rétt hjá
heimili hans í Ceska Lipa
norðarlega í Tékkóslóvakíu.
Hann var háttsettur starfs-
maður kommúnistaflokksins í
Prag en var sviptur störfum
eftir fall Alexander Dubceks
1968. Hann fluttist til smábæj-
Framhald á bls. 19
„rætna skrílmennsku". Hann var
handtekinn fyrir að sýna borða
með kröfu um vegabréfsáritun á
svölum íbúðar sinnar og dæmdur
í síðasta mánuði.
Andófsleiðtoginn Andrei
Sakharov sendi í dag Leonid
Brezhnev forseta orðsendingu þar
sem hann kvaðst vona að hann
Framhald á bls. 18
500.000
flýjafrá
Saloniki
Saloniki, 20. júlí. Reuter.
FIMMTÍU þúsund manns
dönsuðu og sungu á götum
miðborgar Saloniki í kvöld
þrátt fyrir orðróm um jarð-
skjálfta sem varð til þess að
um hálf milljón borgarbúa,
sem eru alls 700.000, flúðu
borgina.
Efnt var til hátíðahaldanna
til þess að hamla gegn ótta um
að nýtt tungl mundi valda álíka
jarðskjálfta og þeim, sem varð
50 manns að bana og lagði
háhýsi í rúst í Saloniki fyrir
einum mánuði.
Margir þeirra sem halda
kyrru fyrir í borginni hafast
við í tjöldum á opnum svæðum
og þeir sem flýja borgina
dveljast í nálægum þorpum.
Hópur indíána hefur safnazt saman nálægt Hvíta húsinu í Washington til að mótmæla
lögum sem þeir segja að samþykkt hafi verið gegn hagsmunum þeirra, meðal annars um
eignaupptöku lands.
Sovétvörður réðst
á Bandaríkjamann
Moskvu 20. júlí. Reuter. AP.
RÚSSAR hafa sagt Bandaríkja-
mönnum að mistök hafi valdið því
að ráðizt var á bandarískan
sendiráðsmann á lóð bandaríska
Reyna þolrífin
íNorðmönnum
Ósló 20. júlí Router.
KNUT Frydenlund utanríkisráð-
herra sagði í dag að hann óttaðist
að ólögleg sigling sovézkra skipa
í norskri landhelgi gæti verið
liður í yfirvegaðri stefnu sem
væri í því fólgin að reyna þolrifin
í Norðmönnum.
Hann sagði þetta þegar skip-
stjóri sovézka flutningaskipsins
Irtishles hafði verið dæmdur til að
greiða 20.000 norskar krónur eftir
töku skipsins talsvert langt fyrir
innan fjögurra mílna landhelgi
Norðmanna undan Norður-Noregi.
Þetta er fjórða málið af þessu
tagi síðan 27. júní og norski
sjóherinn hefur fengið skipun um
að auka eftirlit sitt með erlendum
skipum sem sigla ólöglega í
fjögurra mílna landhelgi Noregs.
Frydenlund var að því spurður
á blaðamannafundi hvort stjórnin
teldi að hér væri um að ræða
tilraun til að kanna viðnámsvilja
Norðmanna og hann svaraði því til
að hann vonaði að þetta væri
tilviljun en hann óttaðist að þetta
gæti verið liður í heildarstefnu.
sendiráðsins f Moskvu og að
óreyndur sovézkur vörður hafi
átt í hlut.
Talsmaður bandarfska utanrfk-
isráðuneytisins sagði að Rússar
hefðu gefið þessa skýringu þegar
harðorð mótmæli höfðu verið
send sovézka utanríkisráðuneyt-
inu. Sendiráðsmaðurinn sem á
var ráðizt var llaymond Smith
sem var áheyrnarfulltrúi í réttar-
höldunum gegn Anatoly Shchar
ansky f Moskvu í síðustu viku.
Talsmaðurinn sagði að reynt
væri að afla nánari vitneskju um
atburðinn og varaði fréttamenn
Sex manna morðsveit
er á kreiki í Salisbury
Salisbury, 20. júlí. Reuter.
UNGUR blökkumaður, Reuben
Danga, scm kallar sig skæruliða
og herfanga, sagði fréttamönnum
í dag, að hann teldi að í Salisbury
væri sex manna morðsveit sem
hefði það verkefni að myrða
leiðtoga blökkumanna í bráða-
birgðastjórninni.
Hann sagði ennfremur, að hann
og vinur hans bæru ábyrgðina á
morðunum um helgina, er 17
óbreyttir afrískir borgarar voru
myrtir, þar á meðal fjórar konur
og átta börn, í Makanza-þorpinu
um 130 km vestur af höfuðborg-
inni.
Hann kvaðst vera liðsmaður í
Alþýðubyltingarher Zimbabwe
(ZIPRA) undir forystu Joshua
Nkomo, eins aðila Föðurlandsfylk-
ingar skæruliða sem hefur skorið
upp herör gegn samkomulagi
svartra manna og hvítra í
Rhódesíu. Hann sagði að hann
hefði komið til Rhódesíu frá
Zambíu 1. júní ásamt 11 öðrum
blökkumönnum eftir að hafa
fengið þjálfun hjá Rússum og
Kúbumönnum í Angóla.
Upplýsingaráðuneytið í Salis-
bury leiddi Danga fram á blaða-
mannafundi þar sem hann sagði,
að hann og félagar hans hefðu
komið til Rhódesíu til að myrða
Jeriamiah Chirau ættarhöfðingja,
Abel Muzorewa biskup og séra
Ndabaningi Sithole, sem eiga allir
sæti í bráðabirgðastjórninni, og
auk þeirra James Chikerema,
staðgengil Muzorewa biskups.
Framhald á bls. 19
Skilaboð
í jógúrt
Karpovs?
BaKuio 20. júlí. AP
SKÁKMEISTARINN Viktor
Korchnoi sakaði í dag heims-
meistarann Anatoly Karpov
um að láta einn af dómendum
heimsmeistaraeinvígisins
senda sér jógúrt-skál með
hugsanlegum leyniskilaboð-
um. Annarri skákinni í einvíg-
inu lauk með jafntefli í dag
(sjá bls. 8).
Korchnoi-nefndin segir í
formlegum mótmælum til aðal-
dómarans, Lothars Schmids, að
matvælasendingar til keppend-
anna í einvíginu geti greinilega
falið í sér einhvers konar
leynilegar bendingar.
Til dæmis segir nefndin, að
jógúrt sem sé sent öðrum
keppandanum eftir 20 leiki geti
táknað að honum sé ráðlagt að
bjóða jafntefli, ávöxtur sem sé
sendur keppanda geti þýtt að
honum sé skipað að hafna
Framhald á bls. 18
við að draga of skjótar ályktanir
um mikilvægi málsins.
Samkvæmt skýringu Rússa
þekkti nýi vörðurinn ekki Smith
þegar hann kom að sendiráðinu og
réðst því á hann og fleygði honum
til jarðar. Að sögn bandariska
sendiráðsins ruddist sovézkur lög-
reglumaður inn á sendiráðslóðina
og réðst á Smith til þess að koma
í veg fyrir að hann kæmist inn í
bygginguna. Samkvæmt sumum
fréttum hélt lögreglumaðurinn að
Smith væri sovézkur andófsmað-
ur. Bandaríska utanríkisráðuneyt-
ið kveðst engan dóm hafa á það
lagt hvort málið stæði í sambandi
við Shcharansky-réttarhöldin.
I Washington var talið að
gagnrýni Carters forseta á réttar-
höld gegn sovézkum andófsmönn-
um bæri hæst á blaðamannafundi
sem hann ætlaði að halda í nótt.
Búizt var við að boðskapur forset-
Framhald á bls. 19
Sadat óviss
um framhald
viðræðnanna
kairó 20. júlí. Routor. AP.
ANWAR Sadat forseti sagði í dag
að ekkert framhald yrði á friðar-
viðræðum við ísraelsmenn ef
ísraelsmenn kæmu ekki með
nýjar hugmyndir og viðræðurnar
í Leeds kastala í vikunni hefðu
hvorki tekizt né mistekizt.
Sadat kvaðst enn hafa í hyggju
að hitta að máli Ezer Weizman
landvarnaráðherra Israels í
Alexandriu en bætti því við, að
hann vissi ekki hvort ísraelska
stjórnin mundi leyfa Weizman að
fara.
Aðspurður hvort hann gerði ráð
fyrir nýjum tillögum frá Banda-
ríkjamönnum sagðist Sadat von-
Framhald á bls. 19