Morgunblaðið - 03.08.1978, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.08.1978, Blaðsíða 2
2 I MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1978 t iu.* "» ............ l)l»J(ULWm,.Wl~>~._ “*■' ***** * *' •• .. W& íslenzkur skip- stjóri kennir Kenyamönnum ■ Rússneskt skip á Húnaflóa RÚSSNESKA herskipið S-61 sigldi inn á Húnaflóa fyrir stuttu, en flugvél Landhelgisgæzlunnar varð fyrst skipsins vör. Varðskipið Óðinn sigldi á eftir herskipinu og eftir nokkra stund breytti það um stefnu og stefndi út fyrir íslenzka af Horni. landhelgi út BALDVIN Gíslason skipstjóri fór í gærmorgun tíl Kenya, en næstu vikur mun hann kynna sér aóstæóur par í sambandi við fiskveióar og undirbúa ferð sína pangað í haust. Þangað mun hann fara til árs dvalar á vegum Aðstoðar íslands við Þróunarríkin. Mun Baldvin aðstoða Kenyamenn við uppbyggingu fisk- veiöa við strendur Kenya og verður hann skipstjóri á 120 tonna stálbát. Á bátnum verða stundaðar veiðitil- raunir, könnun á fisktegundum og kennsla, en fram til pessa hafa Kenyamenn aðallega stundað fisk- veiðar í vötnum landsins, svo sem Viktoríuvatni. (slendingar munu kosta starf Bald- vins í eitt ár og leggja til veiðarfæri, en þessi aðstoö er í framhaldi af norrænu þróunarverkefnunum sem íslendingar tóku þátt í. Þetta er fyrsti samningur- inn sem íslendingar gera um aðstoð í þessum heimshluta, en fram til þessa hefur þróunaraðstoð íslands verið veitt í gegn um alþjóðastofnanir eöa norræna aöstoð að þróunarverkefn- um. S.l. ár fór Guðjón lllugason Baldvin Gíslason skipstjóri út til Kenya til þess aö kanna hvernig aöstoðinni yröi best háttaö. Guðjón hefur m.a. um skeið unnið hjá FAO. Baldvin mun hafa aösetur í Mombasa, en þar var fiskiskipið smíðað fyrir 5 árum. Fiskveiðar Kenyamanna eru mjög vanþróaöar og fá nýtízkuleg fiskiskip eru til þar. 331 Varðskipsmenn sögðu að mjög margir sjóliðar hefðu virzt vera um borð, og á þessum myndum má sjá að svo mun hafa verið. Mynd- irnar tók Helgi Hallvarðs- son. Samþykkjum ekki svo mikla hækkun meðan óvissa ríkir Vilja ekkert vid okkur tala segir for maður V öku —segir gjaldskrárnefnd — OKKUR fannst ekki skyn- samlegt að samþykkja þessar miklu hækkanir meðan sú óvissa ríkir um alla fram- vindu mála, t.d. hvað varðar framkvæmdahraða, en í stjórnarmyndunarviðræðum hefur verið talað um að skera niður einhverjar framkvæmd- ir, án þess að nokkuð sé ákveðið á þessu stigi, sagði Ólafur G. Einarsson sem á sæti í gjaldskrárnefnd, en nefndin vildi ekki samþykkja hækkunarbeiðni frá hitaveitu Reykjavíkur, Rafmagnsveitu Reykjavíkur né Landsvirkjun óbreytta. — Þessar tilteknu stofnanir, sagði Ólafur ennframur, sækja um ákveðna hækkun og sam- þykkti iðnaðarráðuneytið hana óbreytta. Við vildum hins vegar lækka þessar beiðnir nokkuð, m.a. vegna þess að þessi fyrirtæki hafa þegar Funandi á Fjöllum FUNANDI hiti varð á nokkrum stöðum á landinu í gær og komst hann t.d. upp í 24 stig á Kópaskeri og 21 stig á Grímsstöð- um á Fjöllum. Við hringdum til Grímsstaða á Fjöllum og röbbuðum við Aðal- björgu á símanum. Hún kvað þetta mesta hitann sem komið hefði í sumar, enda væru allir úti við í heyskap og voru bændur að hirða hey sín, binda bagga með vélum sínum. Búið er að slá öll tún, en hey eru ekki öll fullverkuð. Talsverður straumur ferða- manna hefur verið um Fjöllin í júlí að vanda, margt íslendinga en einnig hópar útlendinga. fengið allnokkrar hækkanir og hins að óvissa ríkir um fram- vindu mála í framkvæmda- hraða hjá þeim. Vegna þess að gjaldskrárnefnd samþykkti ekki hækkunarbeiðnirnr óbreyttar gengur málið til ríkisstjórnarinnar, en það er ekki gert ef ágreiningur er enginn um afgreiðslu hækk- unarbeiðna. — VIÐ fengum skeyti frá Vinnumálanefnd ríkisins eft- ir fund ríkisstjórnarinnar á þriðjudag og segir það að umboð Vinnumálanefndar ríkisins sé óbreytt og samn- ingsgrundvöllur ekki fyrir hendi vegna annarra laun- þega ríkisins og gildandi laga, sagði Kolbeinn Frið- bjarnarson formaður Verka- lýðsfélagsins Vöku í Siglu- firði í samtali við Mbl. í gær. — Þetta þýðir einungis að neitað er að ræða við okkur og þetta er ákvörðun æðstu stjórnvalda ríkisins. Astandið verður því óbreytt nema hvað vera kann að bannið breiðist út, án þess ég vilji samt nokkuð vera að spá um það, sagði Kolbeinn Friðbjarnar- son að lokum. Forsvarsmenn hinna flokk- anna vantrúaðir á þjóðstjórn Forsvarsmenn hinna flokk- anna þriggja sem fulltrúa eiga á nýkjörnu Alþingi, eru ekki mjög trúaðir á að þjóðstjórnar- hugmynd Geirs Hailgrímsson- ar verði að veruleika, sam- kvæmt ummælum þeirra við Morgunblaðið í gærkvöldi, og ljóst að ágrelningur um leiðir í efnahagsmálum veldur þar mestu. — o 0 o — Kjartan Jóhannsson, varaformaður Alþýðuflokksins, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að hann teldi þessa tilraun Geirs Hallgrímssonar til myndunar þjóðstjórnar í fyrstu umferð ekki óeðlilega. Hann sagði hins vegar að þeir Alþýðu- flokksmenn ættu eftir að ræða innan sinna raða um viðbrögð þeirra við málaleitan Geirs Hallgrímssonar um viðræður af þessu tagi, en bjóst við að það yrði gert í dag, fimmtudag. ólafur Jóhannesson, formaður Framsóknarflokksins, kvaðst ekki hafa trú á þessari hugmynd Geirs Hallgrímssonar um þjóðstjórn en sagði að Geir væri ekki búinn að hafa sam- band við hann svo að hann vildi lítið um málið segja á þessari stundu auk þess sem þepsi hugmynd færi sjálfsagt fyrir miðstjórnarfund sem fyrirhug- aður væri hjá Framsóknar- flokknum á miðvikudaginn. Ólafur var spurður að því hvaða annmarka hann sæi helzta á stjórnarmyndun af þessu tagi og svaraði hann því til, að hann teldi það liggja fyrir að sjónar- mið þessara flokka væru Svo sundurleit, aðallega á sviði efnahagsmála, að það væru engar líkur á því að þeir kæmu sér saman um lausn á þeim vandamálum, er að steðjuðu og nú þyrfti að leysa. Ragnar Arnalds, formaður þingflokks Aiþýðubandalagsins, sagði að það lægi fyrir að ólafur Júhannesson Kjartan Jóhannsson Ragnar Arnalds Alþýðubandalagið hefði þegar hafnað þátttöku í stjórn með Sjálfstæðisflokki og Alþýðu- flokki og viðræður um vinstri stjórn hefðu farið í vaskinn. Því væri ekki beinlínis sennilegt að Alþýðuflokkur og Alþýðubanda- lag yrðu ásátt um lausn efna- hagsmálanna, þótt Geir Hall- grímsson tæki að sér forystuna. Ragnar sagði, að innan Al- þýðubandalagsins hefðu enn engar ákvarðanir verið teknar um það hvort það tæki formlega þátt í viðræðum um myndun þjóðstjórnar en hins vegar myndu þeir Alþýðubandalags- menn taka þátt í könnunarvið- ræðum flokkanna en taka síðan ákvörðun um áframhaldið í ljósi niðurstaðna þeirra. Ragnar sagði, að Geir Hatl- grímsson væri óumdeilanlega oddviti hægri aflanna í landinu og því alls ekki óeðlilegt að hann hefði forustu um myndun hægri stjórnar með Alþýðuflokknum og Framsókn eða Alþýðuflokkn- um einum, enda þótt hann teldi að kjósendur hefðu í síðustu kosningum gert kröfu um breytt stjórnarfar og nýja efnahags- stefnu, svo að þeir hafi sízt af öllu vænzt þess að sigurvegari kosninganna legði úrslita- áherzlu á að fylgt yrði gömlu úrræðunum í efnahagsmálum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.