Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 218. tölublaš og Ķžróttablaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978

Frestun tollalœkkana um áramót?    #

Svavar ýtir á, Olafur

og Kjartan draga úr

Á FUNDI Félags íslenzkra

iðnrekenda á Þingvöllum um

síðustu helgi fjölluðu Ólafur

Jóhannesson forsætisráðherra

og Svavar Gestsson viðskipta-

ráðherra m.a. um mögulega

frestun á tollalækkunum sam-

kvæmd EFTA-samningum um

næstu áramót, en iðnrekendur

hafa lagt mikla áherzlu á

frestun tollalækkana. Þá segir

í starfslýsingu ríkisstjórnar-

innar að „Samkeppnisaðstaða

íslenzks iðnaðar verði tekin til

endurskoðunar og spornað

með opinberum aðferðum

gegn óeðlilegri samkeppni

erlends iðnaðar, m.a. með

frestun tollalækkana.

„Á fundi iðnrekenda lýsti

Svavar því yfir að hann ætlaði

að vinna mjög ákveðið að því

að láta þennan þátt stjórnar-

sáttmálans ná fram að ganga,

en Ólafur dró heldur úr og

benti á að það væri ekki bara

að segja það að breyta út af

slíkum samningum. Haukur

Björnsson framkvæmdastjóri

Félags íslenzkra iðnrekenda

sagði í samtali við Mbl. í gær

að þetta mál stæði þannig að

viðskiptaráðherra hefði hafið

kynningu á þessu atriði starfs-

lýsingar- ríkisstjórnarinnar.

Hins vegar kvað Haukur allt í

óvissu um viðbrögð erlendis

við slíku, menn töluðu m.a.a

um bókun 6 sem beitt var í

þorskastríðinu og Haukur

sagði að allt gæti þetta orðið

matsatriði hvort ef til vill ætti

að knýja fram frestun á

tollalækkunum   og   fá   þá   í

staðinn útflutningsbann.

Morgunblaðið ræddi í gær-

kvöldi við Ólaf Jóhannesson

forsætisráðherra, Svavar

Gestsson viðskiptaráðherra og

Kjartan Jóhannsson sjávarút-

vegsráðherra og innti eftir

áliti þeirra á málihu.

ÓLAFUR   JÓHANNESSON

kvað hugmyndir um tolla-

lækkanir vera til skoðunar, en

til þess að þær gætu orðið að

veruleika þyrfti lagabreyt-

ingu. Kvað Ólafur iðnrekendur

hafa sótt mjög fast að fá fram

frestun á tollalækkunum sam-

kvæmt EFTA samningum þar

sem þeir teldu það mikla

nauðsyn fyrir íslenzkan iðnað.

„Við verðum að skýra það mál

fyrir  EFTA  og  EBE,"  sagði

Svavar Gestsson

Ólafur Jóhannesson

Kjartan Jóhannsson

Ólafur, „en ég er ekki reiðubú-

inn að segja hvernig því kann

að lykta. Það má ef til vill

skýra málið fyrir þeim, en

frestun tollalækkana er á

stefnuskrá ríkisstjórnarinnar

og hún mun að sjálfsögðu

vinna að framgangi þess fýrir-

heits."

SVAVAR GESTSSON

viðskiptaráðherra           kvað

ákvæðið í samstarfslýsingunni

miða við frestun tollalækkana

um næstu áramót og: „Að svo

miklu leyti sem þetta heyrir

undir mig," sagði Svavar, „þá

er það mín skoðun að þessu

eigi að fylgja eftir. Málið

hefur ekki verið afgreitt í

ríkisstjórninni, en það er mín

skoðun að tollalækkununum

eigi að fresta og það þarf að

afgreiða málið á næstu vikum,

eða fyrir ráðherrafund EFTA,

sem verður síðast í nóvember."

KJARTAN   JÓHANNSSON

sjávarútvegsráðherra kvaðst

telja að aðalatriðið væri að

skipuleggja samkeppnisað-

stöðu iðnaðarins. „Að svo

miklu leyti sem frestun tolla-

lækkana kemur til álita í því

sambandi," sagði Kjartan, „þá

eiga þær aðeins við þegar um

er að ræða óeðlilega sam-

keppni erlendis frá. Jafnframt

tel ég að skoða verði aðgerðir á

þessu sviði í ljósi þeirra áhrifa

sem þær kynnu áð hafa á

utanríkisviðskipti okkar í

heild."


Tryggingargjöld háð

mismunandi aðstæðum

í SAMTALI við forráðamenn flugfélagsins Arna á

ísafirði í Mbl. s.l. sunnudag kom fram að mismunandi

væri hversu mikið smærri flugfélögin þyrftu að greiða í

tryggingargjöld. Var nefnt sem dæmi að þau flugfélög

sem tengdust Flugleiðum þyrftu ekki að greiða eins

mikið í tryggingar og önnur hliðstæð flugfélög.

Mbl. spurðist fyrir um það hjá

Árna Þorvaldssyni forstj. Tyrgg-

ingar h.f. hverju þessi mismunur

sætti. Sagði Árni og hér kæmi

margt til, bæði stærð flugfélag-

anna og mismunandi öryggisregl-

ur væru hjá Flugleiðum og mörg-

um einkaaðilum.

— Segja má að þessi mál séu öll

í fastari skorðum hjá t.d. Flugleið-

um en mörgum minni flugfélögun-

um og mismunandi öryggisreglur

bæði um þjálfun flugmanna og

eftirlit með vélunum geta haft sitt

að segja, einnig koma hér til atriði

eins og geymsla vélanna, þær litlu

eru stundum geymdar við misjöfn

skilyrði og ekki er alltaf víst að

með þær sé farið eins og öruggast

sé. Þá koma og til misjöfn skilyrði

út um land og má t.d. segja að á

Vestfjörðum séu skilyrðin einna

erfiðust. Enn má nefna að þótt

rekstur félaganna virðist á yfir-

borðinu vera hinn sami þá getur

t.d. tjónatíðni haft sitt að segja.

I sambandi við endurtryggingar

erlendis nefndi Árni að þar gætu

þau félög sem tengd væru stærri

heildum oft náð betri samningu'm

en ef þau stæðu ein á báti.

Síldveiðin

1800 tunnur

SÍLDVEIÐI var ekki mjög mikil í

gær, en til Hornafjarðar bárust

1800 tunnur, sem fóru bæði til

söltunar og frystingar. Voru bát-

arnir yfirleitt með milli 60 og 70

tunnur en sá hæsti, Æskan, var

með 140 tunnur. Gott veður var

eystra og héldu bátarnir út um

kvöldmatarleytið í gær.

Seldu merki

og blöð fyrir

rúmar þrjár

milljónir kr.

ÁRLEGUR merkja- og blaðsölu-

dagur Sjálfsbjargar var í fyrra-

dag og seldist í Reykjavík fyrir

um 3 milljónir króna. þegar búið

er að draga frá hluta sölulauna.

skv. upplýsingum Trausta Sigur-

laugssonar framkvæmdastjóra

Sjálfsbjargar.

— Við erum ánægð með árang-

urinn, hann er greinilega betri en í

fyrra og teljum við að um tvöfalt

meiri sölu sé að ræða í Reykjavík í

ár en í fyrra og svipaða sögu er að

segja víðast hvar utan af landi,

enda þótt við höfum ekki tölur

þaðan ennþá, sagði Trausti. Þessa

auknu sölu þökkum við-fyrst og

fremst því tvennu að mikið hefur

verið skrifað um málefni fatlaðra

nýlega í sambandi við jafnréttis-

gönguna og hinu að í ár var

sölufyrirkomulag annað en verið

hefur. Yfirleitt hefur verið Ieitað

til skólabarna um sölu, og því

hefur skipulag ekki verið nógu

gott, en í ár önnuðust félagar og

velunnarar Sjálfsbjargar sölu, um

120 manns ásamt aðstoðarfólki og

teljum við okkur hafa nánast

kembt borgina.

99

A eftir bolta kemur barn!

99

„TÖLURNAR sem skráðar

eru hjá Umferðarráði um

umferðarslys eru sorglegar

staðreyndir", sögðu nokkrir

félagar í J.C. Vík í Reykjavík

á fundi með blaðamönnum í

gær. Tilefni fundarins var

það, að félagar í J.C. Vík

hafa ákveðið að hef ja herferð

til að vekja athygli á börnum

í umferðinni og þeim hættum

sem að þeim steðja.

Hefur meðal annars verið

gefinn út límmiði, ætlaður til

notkunar á bíla, með slagorð-

inu „Á eftir bolta kemur

barn", og er þar sérstaklega

minnt á þær hættur sem

fylgja leik barna við eða á

umferðargötum. J.C. félagar

vilja minna á, að á árinu 1977

slösuðust hér á landi 92 börn

innan 15 ára aldurs, og þegar

í júlímánuði síðastliðnum

höfðu 83 börn á þessum aldri

slasast. Þá má ennfremur

minna á tvö dáuðaslys í

umferðinni nú síðustu daga.

Félagar í J.C. Vík munu á

næstunni dreifa límmiðum til

A EFTIR B0LTA

KENUR BARN

JUNIOR ChAMBEH

¥%

EFLUM   ORYGGI   ÆSKUNNAR

fólks, meðal annars við

nokkrar stórverslanir í

Reykjavík, og vilja þeir með

því einkum höfða til óku-

manna, sem verði að sýna

aðgæslu í umferðinni ekki

síður en börn og aðrir gang-

andi vegfarendur.

Junior Chamberfélagið Vík

í Reykjavík er tiltölulega

nýstofnað félag, og eru í því

eingöngu konur. Forseti

félagsins er Þórhildur

Gunnarsdóttir.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40