Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 218. tölublaš og Ķžróttablaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978

11

Þorsteinn Sæmundsson:

Nídfrelsi

hinna

útvöldu

Undanfarna daga hefur hver

heiöursmaðurinn eftir annan

tekiö sér penna í hönd til þess að

vara lesendur Morgunblaðsins

við skrifum Hannesar Gissurar-

sonar um kennara og kennslu

við Háskóla Islands. I sjálfu sér

ætti það að vera fagnaðarefni,

að menn skuli nú gerast svo

framtakssamir að mótmæla því

sem þeir kalla níðskrif um

samborgara sína. Hins verða

menn þó að gæta, að þeir gangi

ekki svo langt í vandlætingu

sinni, að skrif þeirra verði

ljótari en það sem þeir eru að

gagnrýna. A ég þar sérstaklega

við grein Halldórs Guðjónsson-

ar í Mbl. síðastliðinn föstudag,

því að sú grein er jafn full af

stóryrðum og hún er snauð að

röksemdum. Grein Arna Sigur-

jónssonar, sem birtist í laugar-

dagsblaðinu, er miklu málefna-

legri og betur rökstudd, en

jafnvel í þeirri grein má finna

dæmi um hreinan útúrsnúning.

Þann sama laugardag kemur

fram á ritvöllinn Jóhann S.

Hannesson, fyrrverandi skóla-

meistari. Jóhann bregður fyrir

sig vísu, sem hann leggur

Hannesi Gissurarsvni í munn,

og er á þessa leið: „Ég hef stolið

æru martns / er því sjálfumglað-

ur   / svona er að vanta vit og

sans / og vera blaðamaður." í

framhaldi af þessu segir

Jóhann, að „öllum sem um

þjóðmál deila á þessu landi

bráðliggi á að þessi málstaður

(þ.e: málstaður Hannesarl öðlist

betri málsvara". Jóhann mælir

hér af umhyggju fyrir þjóðar-

heill, því að hann er yfir allt

ofstæki hafinn; a.m.k. segir

hann sjálfur í k>k greinar

sinnar, að hann sé hvorki

ofurseldur þessum málstað né

andstæðu hans.

En úr því að ámæiisverð skrif

eru á dagskrá, mætti ég þá

minna Jóhann S. Hannesson á

mestu rógsherferð sem um

getur í íslenskri blaðamennsku,

herferð sem hófst árið 1974 og

er tæplega lokið enn, herferð

sem hafði það markmið eitt að

níða mig og aðra þá sem stóðu

að undirskriftasófnun Yarins

lands. Hvar var Jóhann S.

Hannesson og aðrir vandlætar-

ar, þegar fjöldi manns kepptist

við dag eftir dag, viku eftir viku

og mánuð eftir mánuð að ausa

yfir okkur svívirðingum —

þegar við vorum ítrekað sakaðir

um athæfi, sem varða myndi við

lög í nágrannalöndunum. sagðir

ganga erinda bandarísku leyni-

þjónustunnar CIA og safna

gögnum sem færu beint til

bandarískra sendimanna á Is-

landi? Hvar var Jóhann, þegar

verið var að drótta því að okkur,

og það af þingmönnum í skjóli

þinghelgi, að við hefðum mis-

notað tölvu háskólans og staðið

fyrir víðtækustu persónunjósn-

um í sögu þjóðarinnar? Hlustaði

hann á Sigurjón Pétursson taka

undir þau margendurteknu

ósannindi, að Sjálfstæðis-

flokkurinn hefði haft aðgang að

gögnum Varins lands og notað

þau í kosningabaráttunni 1974?

Og hvar skyldi Jóhann hafa

verið þegar Svavar Gestsson,

ritstjóri Þjóðviljans fullyrti í

útvarpi daginn fyrir kosningar,

að þau ummæli sem hann hefði

viðhaft um mig og samstarfs-

nienn mína væru ekki skætingur

heldur rökstudd niðurstaða, og

hann hefði sannanir, sem hann


u 3«' »";¦¦*

.1 £1 •* H"

^,.?*vH^"h-;

&$£&>



Guð}SÍ

"5S>v»»:

.BW**"5*'

i'0'**'

gæti lagt fram fyrir rétti? Hvar

skyldi svo Jóhann hafa verið.

þegar Svavar var minntur á

þessi orð sín fyrir rétti og gefinn

kostur á að standa við þau'!"

Skyldi Jóhann hafa lesið það

síðar. í dómi Hæstaréttar. að

hinar alvarlegu aðdróttanir

Svavars stæðu „óldungis órök-

studdar"?

Xei. Jóhann S. Hannesson

hefur sennilega verið upptekinn

viö annað. Hann stóð nefnilega í

því, ásamt Páli Skúlasyni og

fleirum. að stofna svonefndan

„Málfrelsissjóð" til að sinna því

göfuga hlutverki að styrkja'þá

menn. sem slíkum vopnum beita

í þjóðmálabaráttunni.

Sem forystumaður „Málfrels-

issjóðs" er Páll nú í erfiðri

aðstöðu til að mótmæla ósann-

gjörnum skrifum í sinn garð. En

Páll þarf engu að kvíða. Hann á

trausta vini, sem eru reiðubúnir

að liðsinna honum. og skrifa þá

óttalaust undir fullu nafni. en

ekki bara undir dulnefni í

Velvakanda. Ef í harðbakka

slær getur hann leitað til

einhvers hinna 150, sem ásamt

honum sjálfum skrifuðu undir

svívirðingaplagg um mig og

sanistarfsmenn mína, sem

birtist í Þjóðviljanum daginn

fyrir kosningar 1974.

I grein Arna Sigurjónssonar,

sem fyrr er vikið að. segir á

einum stað, að ekkert sé rangt

við það að nota orð vísvitandi

öðru vísi en viðurkenndar orða-

bækur geri ráð fyrir. Mér sýnist

á öllu, að Jóhann S. Hannesson,

Páll Skúlason og aðrir stofn-

endur „Málfrelsissjóðs" séu

sömu skoðunar og noti orðið

„málfrelsi" í alveg sérstökum

skilningi: þ.e. níðfrelsi, sví-

virðingafrelsi eða rógfrelsi, sem

þó skuli vera takmarkað við

tiltekna menn og tilteknar

stjórnmálaskoðanir.

Kvikmynd um gosið í

Eyjum og eftirmála þess

FYRIR nokkrum dögum var

fréttamönnum og öðrum gestum

sýnd mynd, sem Jón Hermannsson

og Heiðar Marteinsson hafa gert

um eldgosið í Vestmannaeyjum og

eftirmála þess.

Kvikmyndih byggir á myndum,

sem Heiðar tók á löngu tímabili í

Vestmannaeyjum, en hann er

fréttakvikmyndamaður sjónvarps-

ins þar. Hún er 25 mínútur að

lengd og lýsir fyrst eldgosinu árið

1973 og fólksflutningum frá Eyj-

um, en megináherzla er lögð á þá

uppbyggingu, sem þar hefur átt

sér stað síðan. Jón Hermannsson

er höfundur handrits og texta, en

þulur með myndinni er Magnús

Bjarnfreðsson. Kv.að Jón hvötina

að gerð hennar hafa verið þá að

lýsa í samfelldri krikmynd bæði

eldgosinu sjálfu og þróun byggðar

í Eýjum að því loknu, en slíkt hefði

ekki verið gert áður. í kvikmynd-

inni eru notaðar myndir sem

teknar voru í Evjum allt til ársins

1976.

SVOMEIGA

HIJSBYGGJEMHJR

AÐ JEmmi SÉR

Drátturinn stafar af mis-

munandi túlkun úrskurðar

— segir Þorsteinn Geirsson

<r Við hörmum náttúrulega

þann drátt sem orðið hefur á því

að framkvæma úrskurð kjara-

nefndar um málefni sjúkraliða.

sagði Þorsteinn Geirsson skrif-

stofustjóri í fjármálaráðuneytinu

í samtali við Mbl.. en þessi

dráttur stafar af því að við

túlkum niðurstöður kjaranefndar

á annan veg en sjúkraliðar.

Þorsteinn sagði að nokkrar

viðræður hefðu átt sér stað milli

fjármálaráðuneytisins og fulltrúa

starfsmannafélags ríkisstofnana,

sem fer með málefni sjúkralið-

anna og hefði á þeim viðræðufund-

um verið skipst á skoðunum um

framkvæmd úrskurðarins.

— Á fundi okkar nú áðan

lögðum við fram tillögur okkar

sem fulltrúar sjúkraliðanna tóku

til athugunar og ætlunin er áð

ræða málin áfram á miðvikudag-

inn, sagði Þorsteinn Geirsson að

lokum.

/ sýningarsölum okkar að Suðurkmdsbrauí 6

Reykjavík og Glerárgötu 26á Akureyri, eru

margar ólíkar uppsettar eldhúsinnréttingar.

Þœr gefa ykkur góða hugmynd um hvernig

hœgt er að hafa hlutina.

Komið spyrjið okkur út úr um möguleikana

sem bjóðast — verð, afhendingartíma, greiðslu-

HAGIÍ

Suðurlandsbraut 6,

Reykjavík.

Sími: (91) 84585.

skilmála og yfirleitt hvað sem ykkur dettur í

hug.

Við tökum ituíl. skipuleggjum og teiknum

ykkur að kostnaðarlausu og gerum tilboð án

skuldbindinga afykkar hálfu.

Eldhúsinnréttingar frá okkur henta þeim er

gera kröfitr um gœði.

Verslunin Glerárgötu 26,

Akureyri.

Sími: (96) 21507.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40