Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 218. tölublaš og Ķžróttablaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978

39

Flugslysið í Kaliforníu í gær:

Eitt alvarlegasta

flugslys sögunnar

ÁREKSTUR þotunnar og

flugvélarinnar í dag er

næst mannskæðasti árekst-

ur flugvéla í lofti. Mann-

skæðasti árekstur tveggja

flugvéla var áreksturinn á

Kanaríeyjum 27. marz

1977, en sá árekstur varð

reyndar á jb'rðu niðri. Hér

á eftir fer listi yfir nokkra

mannskæðustu árekstra

flugvéla í loftii

Þann 10. september 1976 rákust

saman júgóslavnesk leiguflugvél

af gerðinni DC-10 og Trident þota

British Airways í nágrenni Zagreb

í Júgóslavíu. Létu 176 manns þá

lífið.

Þann 30. júlí 1971 flaug japönsk

orustuþota á japanska áætlunar-

flugvél yfir japönsku ölpunum

nærri Honshu og létu 162 manns

lífið.

Þann 9. september 1969 rakst

lítil flugvél á DC-9 þotu flugfélags-

ins Allegheny nærri Indianapolis í

Bandaríkjunum og létu 83 manns

lífið.

Þann 19. júlí 1967 rákust saman

Boeing-727 þota Piedmont flugfé-

lagsins og einkaflugvél og létust

þá 82 manns.

Þánn 1. febrúar 1963 rákust

saman flugvél tyrkneska lofthers-

ins á Viscount vél líbansks flugfé-

lags, með þeim afleiðingum að 95

manns týndu lífi.

Þann 16. desember 1960 rákust

saman DC-8 vél United Airlines á

Super Constellation flugvél TWA

yfir Staten Island í Bandaríkjun-

um og fórust við það 134 manns.

Þann 25. febrúar 1960 rákust

saman flugvél frá bandaríska

sjóhernum og DC-3 flugvél

REAL-flugfélagsins nálægt Rio de

Janeiro og fórust þá 61 manns.

Þann 30. júní 1956 rákust

saman Super Constellation vél frá

TWA og DC-7 flugvél United

Airlines með þeim afleiðingum að

128 manns fórust. Slysið átti sér

stað yfir Stóragili (Grand Canyon)

í Arizona.

Þann 11. ágúst 1955 rákust

saman tvær flugvélar bandaríska

flughersins yfir Edelweiler í Vest-

ur-Þýzkalandi og létust 66 manns.

Þann 27. mars 1952 rákust tvær

sovéskar flugvélar saman yfir

Tula flugvellinum í nágrenni

Moskvu með þeim afleiðingum að

70 manns týndu lífi.

Þann 1. nóvember 1949 rákust

saman bólivísk orustuvél og DC-4

flugvél Eastern Airlines yfir

flugvellinum í Washington D.C. í

Bandaríkjunum með þeim afleið-

ingum að 55 létu lífið.

Flugslysið í Kaliforníu — Kolsvartur reykur stígur til himins frá flaki þotunnar, sem

hrapaöi til jarðar í íbúbarhverfi við San ÍHego i gær, eftir árekstur við litla einkavél af

gerðinni Cessna 150.                                                                                                  (Símamynd ap>

„Fólk lá eins og

hráviði um allt"

Lýsingar sjónarvotta á

flugslysinu í Kaliforníu

„EG LEIT til himins og sá

flugvélarnar tvær nálgast

flugvöllinn. Fyrr en varði

rákust vélarnar saman og

gaus eldur samstundis

upp," sagði Eugene Burch

einn sjónarvotta að

árekstri Boeing-727 þotu

flugfélagsins Pacific

Southwest     og     lítillar

Hardar regl-

ur um barna-

vagna

London. 25. sept.

Reuter.

BREZKA stjórnin tilkynnti í

dag að samdar hefðu verið

strangar reglur varðandi ör-

yggi barnavagna og munu þær

ganga í gildi um næstu áramót.

Sala vagna sem ekki uppfylla

skilyrðin verður bönnuð.

í reglunum er m.a. kveðið svo

á að barnavagnar skuli sér-

staklega hannaðir með tilliti til

hæfni þeirra í umferðinni.

Einkum verður bremsu- og

fjöðrunarbúnaður vagnanna

svo og beygjuhæfni þeirra, að

uppfylla ákveðin skilyrði.

Talsmaður stjórnar Callag-

hans sagði í dag að í flestum

tilvikum slösuðust börn í

barnavögnum fyrir það að þau

féllu út úr vögnunum.

Cessna 150 flugvélar, í San

Diego í gær.

Fleiri sjónarvottar voru

að slysinu. „Þotan virtist

vera að reyna að lenda.

Allt í einu hrapaði hún og

ég sá, að eldur gaus upp

hægra megin í vélinni.

Þotan hrapaði lóðrétt til

jarðar og niikili eldur og

mikill svartur reykur gaus

upp, þegar þotan lenti á

húsunum," sagði John Ed-

gington,        starfsmaður

verkalýðssambands, en

hann var á leið til vinnu

sinnar þegar slysið varð.

„Ég heyrði sprengingu, leit þá til

himins og sá þá þotu PSA steypast

til jarðar í ljósum logum. Þotan

kom niður um blokkarlengd héðan.

Sprenging kvað við þegar þotan

skall til jarðar og svartan reyk

lagði upp. Þetta var hræðilegt að

sjá," kjökraði Henrietta Fairman,

en hún bjó í því hverfi, sem þotan

hrapaði niður í.

Önnur kona sagðist hafa heyrt

þrjár sprengingar og þegar henni

varð litið út um eldhúsglugga sinn,

sá hún þotuna hrapa örskammt

frá. „Ég sá mannslíkama hrapa til

jarðar og kom hann niður á hús

nágranna míns," sagði Louella

Saunders. Rúður titruðu í húsum í

hverfinu, er sprengingarnar urðu.

Maður að nafni Sam Rush kom

að   húsi   systur   sinnar,   Darlene

Watkins og fann hana látna, en

brak úr þotunni hrapaði á hús

hennar. „Lík systur minnar lá

þarna kolbrennt. Hún var hræði-

lega illa farin," sagði Sam með

grátstafinn í kverkunum. Annar

maður í hverfinu, Will Mogle var

skelfingu lostinn er hann kom út

úr húsi sínu. Hann leitaði konu

sinnar í húsinu en fann ekki. Hins

vegar fann lögreglan lík manns í

húsi Mogle, sem augljóslega hafði

fallið úr annarri hvorri flugvél-

inni.

Michael Guss sjúkraliði lýsti því

hvernig mannslíkami hentist í

gegnum bílrúðu og varð konu, sem

bílnum ók, og barni hennar að

bana.

Slökkviliðsmenn, sem á staðinn

komu, kváðust aldrei hafa séð

neitt þessu líkt. „Fólk liggur eins

og hráviði út um allt og einstakir

líkamshíutar eru á víðog dreif,"

sagði einn slökkviliðsmannanna.

Flóttamenn á eyðieyju:

Fá að dvelja til bráða-

birgða í Indónesíu

Jakarta. 25. sept. Reuter.

RÚMLEGA eitt þúsund af víet-

nömskum flóttamönnum sem

dvelja á óbyggðu indónesísku

eyjunni Pengibu eftir hrakningar

á hafi, verður leyft að dvelja til

bráðabirgða í Indónesíu eða þar

til að þeir hafa fengið leyfi til að

setjast að í öðrum löndum. að því

er talsmaður hersins skýrði frá í

Osamkomulag um síldveiði í Eystrasalti

Varsjá, 25. sept. Reuter.

VESTUR ÞYZKALAND og Dan-

mörk neituðu í dag að fallast á

að sfldveiðikvóti landanna í

Eystrasalti yrði skertur frá því

sem verið hefur, að því er segir í

fréttum af fundi Eystrasaltsfi.sk-

veiðinefndarinnarv sem nú er

haldinn í Varsjá. A fundi nefnd-

arinnár náðist samkomulag um

bristlingsveiðar þeirra landa

sem liggja að Eystrasalti, en

ekkert samkomulag varð um

þorskveiðar. Aðild að Eystra-

saltsnefndinni eiga Austur- og

Vestur-Þýzkaland, Danmörk,

Svíþjóð, Finnland, Pólland og

Sovétríkin. Fimm þessara ríkja

höfðu komið sér saman um nýja

síldveiðikvóta, en Danir og

V-Þjóðverjar höfnuðu því sam-

komulagi, en þar var gert ráð

fyrir því að kvóti þessara landa

skertist um hálft prósent heild-

araflans, en kvóti Svíþjóðar og

Finnlands stækkaði úr 38 í 42 af

hundraði heildaraflans.

dag. Verða flóttamennirnir á

næstunni fluttir í bráðabirgða-

húsnæði á Vestur-Balimantan

(Borneo).

Áreiðanlegar heimildir í Kuala

Lumpur sögðu í dag að stjórnir

Bandaríkjanna og Ástralíu hefðu

gefið flóttamannaaðstoð Samein-

uðu þjóðanna loforð um að flótta-

mennirnir fengju að setjast að í

löndunum tveimur. En áður en af

því verður munu flóttamennirnir

dvelja í Indónesíu og hafa stjórn-

völd þar tekið að sér að fæða og

klæða flóttamennina.

Eins og fram hefur komið í

fréttum í Mbl. hröktust flótta-

mennirnir í rúmlega viku á litlum

flutningabáti á Suður-Kínahafi.

Þeir flýðu frá heimalandi sínu á

litlum fiskibátum og urðu á vegi

flutningabátsins Suðurkrossins

undan ströndum Thailands. Námu

flóttamennirnir land á eynni

Pengibu fyrir helgi eftir að

stjórnvöld í Malasíu og Singapúr

höfðu neitað að taka við þeim á

þeirri forsendu áð þar væru fyrir

of margir flóttamenn frá Indónes-

íu.

Móðirin lézt en

keisaraskurður

bjargaði barninu

Cardilf. 25. sept. AP.

ÁTTA marka stúlkubarn náðist

lifandi með keisaraskurði hálftíma

eftir að móðirin lét lífið í bifreiða-

slysi í Cardiff á laugardaginn var.

Móðirin. Karen Brown, var

komin átta mánuði á leið. Hún

varð fyrir stórum flutningabíl þar

sem hún var á leið heim til sín á

reiðhjóli. Hún lézt samstundis, en

læknar telja barnið lífvænlegt.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40