Morgunblaðið - 19.01.1979, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.01.1979, Blaðsíða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1979 Tveir flugstjórar Flugfélagsins til Arnarf lugs? TVEIMUR flugstjórum Flugfélags íslands hefur verið boðið að taka stöðu flugstjóra hjá Arnarflugi á næstunni þar sem hjá félaginu hafa starfað erlendir flugstjórar með undanþágum, en í ráði er að íslenzkir flugstjórar taki við þeirra starfi. Ekki hefur boðinu verið svar- að enn og að því er Halldór Sigurðsson sölustjóri félagsins tjáði Mbl. kostar það félagið nokkurt fé að þjálfa þá til flugstjórastarfs á þotu þar sem þeir hafa aðallega flogið Fokker-vélum. Þurfa þeir að sækja námskeið erlendis og síðan fljúga í 50 tíma með yfirflugstjóra. Hins vegar sagði Halldór að nokkrir flugmenn Arnarflugs væru að því komnir að öðlast flugstjóraréttindi og væri mun kostnaðarminna fyrir félagið að taka þá í þessi störf, þar eð búið væri að kosta þeirra þjálfun. Þá sagði Halldór Sigurðsson að skýringin á því að þota Arnarflugs annaðist flug til Norðurlanda meðan flugmenn Flugfélagsins væru í verkfalli væri sú að fyrir löngu hefði verið samið um að Arnarflug annaðist það flug meðan þota Flugleiða væri í skoðun, sem stæði nú yfir. Þá hefðu Arnarflugsflugmenn ekki sömu skoðanir og félagar þeirra innan F.Í.A. og vildu ekki blanda sér í deilur þeirra við Flugleiðir. Leikarar í „Ilart í bak“ ásamt leikstjóranum Þóri Steingrímssyni. Leikfélag frumsýnir „ LEIKFÉLAG Selfoss frumsýnir í kvöld leikrit Jökuls Jakobs- sonar „Hart í bak“. Leikstjóri er Þórir Stein- grímsson en Sigríður Karlsdótt- ir hefur aðstoðað við leikstjórn- ina. Leikmynd er byggð á verkum og hugmyndum Stein- þórs Sigurðssonar en hann útbjó leikmyndina upphaflega. Um 20 manns taka þátt í sýningunni en með aðalhlutverk fara Pétur Þorvaldsson, Hilmar Friðþjófs- son og Þóra Grétarsdóttir. Ljósameistari er Jón Pétursson og honum til aðstoðar er Gunnar Jónsson. Um sviðsbúnað sjá Þórður Árnason, Gunnar Jóns- son og Helgi Finnlaugsson. Árni 0. Þórisson sér um leikhljóð, Selfoss Hart í bak” Hildur Gunnarsdóttir um bún- ingana og Kristbjörg Einars- dóttir um hárgreiðslu. í leikskrá ritar Eyvindur Erlendsson um höfundinn, Jökul Jakobsson. Sýningar eru fyrirhugaðar víðar á Suðurlandi auk Selfoss. INNLENT Reynir við heims- met íplötusnúningi — Um leið fer fram söfnun til barnaheimilisins að Lyngási MICKIE Gee, núverandi plötusnúður á veitingahúsinu Óðali, mun n.k. mánudag hefja tilraun til þess að setja nýtt heimsmet í plötusnúningi. Núverandi heimsmct er 800 klukkustundir þannig að Mickie þarf að snúa plötum í rúmlega 33 sólarhringa til þess að hnckkja því. Mark Gondelman Woodstock í New York árið 1975, Á meðan heimsmetstilraun Mickie stendur mun fara fram fjársöfnun undir yfirskriftinni „Gleymd börn 79“. Fólki sem kemur á Óðal meðan á mettil- rauninni stendur gefst kostur á að gefa fé til barnaheimilisins áð Lyngási þar sem nú dveljast 42 börn í dagvistun á aldrinum 3—15 ára. Einnig mun fólki gefast kostur á að heita á Mickie og renna þeir peningar einnig til á heimsmctið sem var sett í Lyngáss. Séra Ólafur Skúlason dómprófastur er verndari „Gleymdra barna 79“ og sér hann um að féð komist til skila. Takmarkið er, að á þessum rúmlega 5 vikum safnist 5 milljónir króna. Gíróreiknings- númerið er 1979-04. Mickie sagðist vera mjög bjartsýnn á að sér tækist að setja heimsmet. „Ég ákvað að reyna þetta Hafsteinn Austmann í hinni nýju og rúmgóðu vinnustofu sinni að Hörpugötu 8 í Skerjafirði. Ljósmynd Mbl. Emilía. Hafsteinn Austmann listmálari: 30 málverka sýning í nýrri vinnustofu Hafsteinn Austmann listmál- ari opnar málverkasýningu n.k. laugardag í nýbyggðri og rúmgóðri vinnustofu, sérstöku húsi við heimili hans á Hörpu- götu 8 í Skcrjafirði. Reykjavík- urmegin við flughrautina. Haf- steinn sýnir þar um 30 myndir frá síðustu árum. en hann hélt síðast sjáifstæða sýningu hér- lendis á Kjarvalsstöðum 1974. Síðan hefur hann einnig sýnt á samsýningum og m.a. í Árósum 197(5. Hafsteinn kvaðst mála mest með olíu og acryllitum um þessar mundir. „Þetta eru engin stór stökk hjá mér,“ sagði hann, „heldur hægfara þróun og mér finnst að ég sé alltaf að bæta við í málverkinu. Maður ræðst ef til vill í það með mikilli bjartsýni að mála þá hugmynd sem maður hefur fengið, en þegar vinnunni er lokið er venjulega allt annað komið út en maður bjóst við og ætlaði sér. Það kemur svo margt upp í hverri mynd þegar verið er að vinna hana.“ Sýning Hafsteins verður opin til 28. janúar frá kl. 2—10 daglega og aðgangur er ókeypis. í spjalli við blaðamann Morgun- blaðsins kvað Hafsteinn boðs- kortasendingar hafa farið nokk- uð úr böndum hjá sér, en hann kvaðst vonast eftir að sjá sem flesta og ef þeir sem eiga myndir eftir hann sjá sér fært að líta við viil hann gjarnan fá að skrá niður hvar hver mynd er. Vinnustofa Hafsteins er sem fyrr segir við Hörpugötu 8, og er það fyrsta gata til vinstri þegar ekið er veginn að afgreiðslu Flugfélags íslands. Starfsmannafélag Flugfélags íslands: Lýsir andstyggð á ómaklegum árásum fámennra öfgahópa á aðalforstjóra Flugleiða Aðalfundur Starfsmanna- félags Flugfélags íslands harm- ar mjög þá óeiningu sem virðist vera innan æðstu stjórnar Flugleiða hf. og litið hefur dagsins Ijós á sfðustu vikum og mánuðum, segir í samþykkt aðalfundarins er borist hefur Mbl. Síðan segir: Einnig lýsir fundurinn andstyggð sinni á þeim ódrengiiegu og ómaklegu Mickie Gee plötusnúður hefur sett sér það markmið að kom- ast á skrá í heimsmetabók Guinness. Hér er hann í plötu- snúðarklefanum í óðali þar sem heimsmetstilraun hans mun fara fram. Ljósm. RAX. fyrir mánuði síðan. Eftir um það bil hálfan mánuð var ég farinn að guggna mjög á að leggja út í tilraunina en síðan fjársöfnunin kom í spilið hef ég fengið kjarkinn aftur og nú er ég ekkert hræddur við að leggja út í að spila plötur í rúma 800 klukkustundir. I gær hafði Mickie ekki enn fengið í hendur reglur varðandi tilraunina en hann vissi þó að hann ætti að spila jöfnum höndum stórar og litlar plötur. Dómari verður til staðar þegar þar að kemur og fylgist með því að öllum reglum verði fylgt. Mickie hefur gengist undir læknisskoðun sem sýnir að honum er ekkert að vanbúnaði að hefja tilraunina en hann er einnig líf-, slysa- og sjúkra- tryggður á meðan á keppninni stendur. Ef allt gengur að óskum slær Mickie Gee heimsmetið í plötu- snúningi kl. 22 þann 25. febrúar n.k. ásökunum sem beint hefur verið að aðalforstjóra Flugleiða hf. af fámennum öfgahópum sem dyljast undir nafni Starfs- mannafélags Loftleiða hf. Þá segir í samþyktinni, að þrátt fyrir nokkuð skiptar skoð- anir á ágæti sameiningar félag- anna hafi félagsmenn Starfs- mannafélags Flugfélags íslands unnið af einurð og einlægni að því markmiði að sameiningin yrði hagkvæm frá þjóðhagslegu sjónarmiði til hagsbóta fyrir hluthafa og starfsfólk og er þess vænst að stjórn félagsins geri mögulegt að starfað verði áfram í þeim sama anda. í lok samþykktarinnar segir: Það er skoðun fundarins að sú óeining sem hér hefur verið rætt um að framan, stafi að nokkru af því, hvernig eingaraðild að félaginu er háttað, þ.e. að þrátt fyrir það, að telja megi hluthafa félagsins í nokkrum hundruðum, ráði nokkrir stórir hluthafar félaginu að fullu öllu. Fundurinn skorar því á stjórn fyrirtækisins að tryggja það að Flugleiðir hf. ræki það hlutverk sitt að halda á loft með reisn samgöngu- og ferðamálum Is- lendinga svo sem það hefur burði til, jafnframt að tryggja starfsfólki örugga atvinnu og næstu kynslóðum atvinnutæki- færi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.