Morgunblaðið - 02.02.1979, Side 30

Morgunblaðið - 02.02.1979, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1979 í I s ! Ágúst tilÍBV AGUST Hauksson unglinga- landsliösmaður úr Þrótti hef- ur tilkynnt félagaskipti yfir í Tý í Vestmannaeyjum og mun hann leika með IBV í 1. deild næsta sumar. Agúst hefur verið fastamað- ur í liði Þróttar tvö s.l. ár og hann hefur einnig verið fasta- maður í íslenzka unglinga- landsliðinu í knattspyrnu. Agúst er framherji og þykir mjög efnilegur leikmaður. - hkj/SS. Sigur hjá Njarðvík Því fór þó fjarri að leikurinn væri þeim svo auðunninn sem lokatölurn- ar gefa til kynna. Raunar voru stúdentar öllu sprækari meginhluta fyrri hálfleiksins og léku á þessum kafla prýðisvel. Undir lok hálfleiksins sóttu Njarðvíkingar þó í sig veðriö og höfðu, sem fyrr segir 3ja stiga forskot í hálfleik. Framan af síöari hálfleiknum var leikurinn mjög jafn, en Njarðvíkingar voru þó mun sterkari á lokasprettin- um og sigurinn var þeirra. Hinn nýi leikmaöur stúdenta, Prent Smock, lék sinn fyrsta leik í gær- kvöldi. Er þar greinilega á ferðinni afburöagóður leikmaöur. Þrátt fyrir greinilegt æfingaleysi átti hann mjög góöan leik, sérstaklega þó í fyrri hálfleiknum en þá skoraöi hann 20 af 29 stigum sínum í leiknum. Kemur hann án efa til meö aö veröa stúdent- um mikill styrkur í þeirri baráttu sem framundan er. Bjarni Gunnar Sveins- son á nú hvern stórleikinn á fætur öörum og er nú allt annaö aö sjá til Úrslitaleikur í kvennabiakinu LEIKUR sem hæglega gæti orðið úrslitaleikurinn í 1. deild kvenna í blaki. fer fram í íþróttahúsinu að Laugum í Suður-Þingeyjar- sýslu i' kvöld og hefst hann klukk- an 21.00. Þá leika Völsungar og Þróttur í 1. deild kvenna. Sigri Völsungar, má segja að þær standi með pálmann í höndunum, þær hafa til þessa 8 stig eftir 5 leiki, en Þróttarar eru í öðru sæti með 6 stig eftir 4 leiki. Vinni Þróttur verður mótið hins vegar galopið, a.m.k. fram að næstu leikjum. Ljósm. Mbl. Kristján. Guðrún Sveinsdóttir og Björn Skúlason, efnilegt frjálsíþróttafólk, sem nú hefur haldið til Svíþjóðar til æfinga og keppni. ÞAO var orðið harla fátt um fína drætti í seinni hálfleik leiks Stúdenta gegn Njarðvíkingum í Kennaraskólanum í gærkvöldi. Njarðvíkingum gekk pó öllu betur að fóta sig í Þeim villta stríðsdansi, sem Þarna var stiginn og stóðu uppi sem sigurvegarar pegar yfir lauk. Staðan í hálfleik var 46—43, Njarð- víkingum í hag, en leiknum lyktaði með 14 stiga sigri peirra, 101—87. hans en í upphafi íslandsmótsins. Jón Héðinsson og Gísli Gíslason áttu báöir mjög góöan leik, en sá síöar- nefndi fékk sína fimmtu villu í upphafi síöari hálfleiks og er ekki gott aö segja hvernig fariö heföi, ef hans heföi notið viö allan leikinn. Sem fyrr leggja Njarövíkingar allt kapp á pressuvörnina, sem óneitan- lega eykur mjög hraöann í leiknum, en þaö er einmitt viö slík skilyröi, sem liöiö nýtur sín best. Sóknarleikur þeirra er oft á tíðum bráöskemmti- legur á aö horfa; boltinn gengur mjög hratt milli leikmanna, mikið ber á snöggum gegnumbrotum, einkum hjá Ted Bee og Gunnari Þorvarðar- syni. Bestu menn þeirra í leiknum voru, auk þeirra tveggja, þeir Geir Þorsteinsson og Guðsteinn Ingimars- son, en sá síðarnefndi er án efa orðinn einn af okkar bestu varnarmönnum. STIGIN FYRIR ÍS: Prent Smock 29, Bjarni Gunnar 22, Jón Héðinsson 16, Gfeli Gfslason 14, Ingi Stefánason 4 og Jón Oddsaon 2. STIGIN FYRIR UMFN: Ted Bee 30, Geir borsteinsHon og Gunnar Þorvarðarson 14 hvor, Árni Lárusson 13, Guðsteinn Ingi- marsson 10, Guðjón Þorsteinsson 9, Stefán Bjarkason 8, Júlfus Valgeirsson 2 og Jónas Jóhannesson 1. DÓMARAR VORU: Erlendur Eysteinsson og Jón Otti Ólafsson. Gl Trent Smock löglegur! STJÓRN KKÍ, Köríuknattleiks- ráðs fslands, tók í gær fyrir bréf frá ÍS, varðandi nýja Bandaríkja- manninn Trent Smock, sem leysa AGANEFND alþjóðaknattspyrnusambandsins stendur jafnan í ströngu eftir hverja umferð Evrópukcppninnar í knattspyrnu. Þarf þá að taka fyrir hin ýmsu kærumál, óspektir áhorfenda, óspcktir leikmanna o.s.frv. Aganefndin kvað nýlega upp dóm 1 þeim málum sem hún hafði með höndum eftir síðustu umferðina. Miðherji Ipswich, Paul Mariner, fékk tveggja leikja bann fyrir ósæmilega framkomu á leikvelli. Þá var félag hans Ipswich dæmt i 2400 Bandarikjadala sekt fyrir framkomu liðsmanna í garð dómgæslumanna. Spænska félagið Valencia fékk og sekt. Næst þegar félagið á heimaleik í Evrópukeppni, verður að leika minnst 300 km í burtu. Ástæðan er sú að áhorfendur helltu úr límkrús yfir annan línuvörðinn og köstuðu í hann skemmdum appelsínum. 4 leikmenn Hadjuk Split fengu refsingu fyrir að móðga dómarann, 2—4 leikja bann, og skoska liðið Glasgow Rangers fékk fjársekt vegna þess, að nokkrir áhorfendur freistuðust til að beina flugeldum sínum niður á völlinn í stað þess að skjóta þeim á loft, þegar Rangers sió óvænt holiensku meistarana PSV Eindhoven úr keppni meistaraliða. Drengja-, sveina-, stúlkna- og meyjameistaramót í frjálsum íþróttum Drengja-, sveina-, stúkna- og meyjameistaramót íslands innanhúss fer fram í íþróttahúsi Varmárskóla í Mosfellsveit 11. febrúar n.k. og hefst kl. 14.00. Keppnisgreinar verða: Stúlkur f. 1961 — 1962: Hástökk. langstökk án atr. Meyjar f. 1963 og síðar: Ilástökk, langstökk án atr. Sveinar f. 1963 og síðar: Hástökk, langstökk án atr., þrístökk án <itr hástökk án str Drengir f. 1961 — 1962: Hástökk, langstökk án atr., þrístökk án atr., hástökk án atr. Keppni í kúluvarpi og stangarstökki drengja fer fram síðar. Þátttökutilkynningar ásamt þátttökugjaldi kr. 100, fyrir hverja grein skulu hafa borist til Jóns S. Jónssonar, Varmadal II, Kjalarnesi, sími 66672, í síðasta lagi þriðjudaginn 6. febrúar. UMF Afturelding — FRÍ. Frá Austf jörðum til Svíþjóðar til æfinga Tveir okkar efnilegustu milli- vegalengdahlaupara héldu f morgun til Gautaborgar í Svíþjóð, þar sem þeir hyggjast dvelja við æfingar og keppni fram í júní. Hér er um að ræða Austfirðingana Guðrúnu Sveins- dóttur og Björn Skúlason, en þau komu talsvert á óvart með ágæt- um árangri sinum f millivega- lengdahlaupum á síðasta ári. Bæði urðu þau landsmótsmeist- arar og auk þess varð Guðrún íslandsmcistari og þá keppti hún fyrir hönd íslands í Kalott-keppn- inni. Þau Guðrún og Björn eru bæði frá Borgarfirði eystra. Kepptu þau undir merkjum UIA, en mikill kraftur var í frjálsíþróttafólki þess sambands á síðasta ári. Áður en Guðrún og Björn héldu ytra hitti Mbl. þau að máli. Guðrún og Björn sögðust fara til Svíþjóðar fyrir atbeina Brynjólfs Hilmarssonar, en Brynjólfur er efnilegur langhiaupari sem búið hefur í mörg ár í Svíþjóð. Brynjólfur er aðeins 18 ára gam- all, en hann hljóp 5 km á um 16 mínútum á síðasta ári. Þau Guðrún og Björn munu æfa og keppa með félagi Brynjólfs ytra. Guðrún Sveinsdóttir tjáði Mbl. að hún hefði ekki getað æft af eins miklum krafti það sem af væri vetri eins og hún vildi að verið hefði, en í desember var gerð aðgerð á fótum hennar. Hún er þó að komast í gang á ný og ætti að hafa mjög gott af dvölinni í Svíþjóð. Guðrún sem er 19 ára, sinnti frjálsíþróttum lítið þar til á síð- asta ári, en þá hljóp hún 800 m á 2:19,5 mínútum og 1500 m á 4:58,6 mínútum. Sagðist Guðrún vænta góðs af dvölinni í Svíþjóð og að hún bætti sig í sumar. Björn Skúalson sagðist hafa hreyft sig tiltölulega lítið frá því að Reykjavíkurleikarnir voru haldnir á síðasta sumri, en nú væri ætlunin taka til við æfingar af fullum krafti á ný. Björn sagðist einnig vonast til að bæta sig talsvert. Björn er 25 ára, en hann tók fyrst þátt í frjálsíþróttakeppni á síðasta ári. Hljóp hann þá 800 m á 1:57,3 mínútum og 1500 m á 4:08,0 mínútum. Ef að líkum lætur á Björn eftir að bæta árangur sinn verulega, því hann er mikill keppnismaður. Ekki er að efa að þau Guðrún og Björn eiga eftir að hafa gott af því að fara erlendis til æfinga, því þar eru aðstæður állar, ekki sízt veðráttan, betri og hagstæðari til æfinga en gerist hér heima. Gaman verður að fylgjast með þeim í keppni næsta sumar. — ágás. á af hólmi Dirk Dunbar, sem ekki getur leikið út keppnistímabilið vegna meiðsla. Vitað var, að ýmis félög hefðu í hyggju að kæra ÍS fyrir að tefla fram ólöglegum leikmanni, en í reglum KKÍ stendur, að félögin hafi átt að vera búin að tilkynna þá erlendu leikmenn sem þau hugðust nota fyrir 15. október síðastliðinn. Vegna þessa þótti mikilvægt, að KKÍ drægi ekki á langinn að fjalla um málið. Úrskurður KKÍ var þannig, að það keppnisleyfi sem ÍS fékk fyrir Dunbar, myndi -endast út þetta keppnistímabil fyrir Trent Smock, því að tilkynning liðsins um Dun- bar kom fyrir 15. október og fyrir 7. febrúar barst KKÍ læknisvott- orð frá IS, þar sem staðfest var að Dunbar væri vegna meiðsla sinna óhæfur til að ljúka keppnistíma- bilinu. KKÍ hefur því úrskurðað, að Trent Smock sé fullkqmiega lög- legur leikmaður með IS. Eigi að síður hefur heyrst, að þau lið sem kunni að bíða lægri hlut fyrir ÍS, muni kæra leikina og láta þannig reyna á úrskurðinn. — gg. Maraþon 3. FLOKKUR HK í Kópavogi hefur hug á að slá íslandsmetið í maraþonhandbolta og hefst aðför þeirra að metinu í Kársnesskóla í kvöld. Hefst leikurinn klukkan 19.00. Áheitaseðlar hafa verið seldir með venjulegum hætti, en maraþon þetta er eins og þau fyrri í vetur hugsað sem f járöflun fyrir félagið. Áheitin hljóða upp á 100 krónur á klukkustund. Ætli piltarnir að slá gildandi met, verða þeir að leika í yfir 20 klukkustundir. Bikarkeppni HSÍ: Risaslagur í Hafnarfirði DREGIÐ hefur verið í næstu umferð bikarkeppninnar í hand- bolta, bæði í karla- og kvenna- flokki. Hér er um að ræða 16 liða úrslit hjá körlunum og 8 liða úrslit hjá konunum. I drætti karlaliðanna kennir margra grasa, en aðeins í 2 tilvikum drógust saman lið úr 1. deild, Fram og HK og FH — Haukar. En risarnir Víkingur og Valur fá mótherja úr 3. deild. Víkingar leika gegn UBK og ættu að afgreiða Blikana léttilega, svo fremi sem ekki gæti vanmats, a.m.k. Valsmenn gætu hæglega átt crfiðan leik fyrir höndum, en þeir fara til Vestmannaeyja og leika þar gegn Tý, efsta liðinu í 3. deild, sem aðeins hefur tapað einu stigi í íslandsmótinu til þessa og hugsar nú gott til glóðarinnar að fá að skemmta Valsmönnum. Drátturinn lítur þannig út, en félögin ákveða með sér hvenær leika skal: KR eða Þór Ak. — Ármann KA — Stjarnan ÍR — Grótta eða UMFN Fylkir — Þróttur Týr — Valur UBK - Víkingur FH — Haukar Fram — HK Einum leik úr síðustu umferð- inni lauk á þriðjudagskvöldið. Þá sigruðu Víkingar ÍBK 33—14. Er það vel af sér vikið að skora 33 mörk í 50 mínútna leik og fátítt í kvennahandbolta. Það er einnig athyglisvert, að Víkingar eru næstneðstir í 1. deild en IBK er efsta liðið í 2. deild, þannig að munurinn á deiidunum virðist vera svimandi. Drátturinn var þessi: Haukar — Fylkir Þór Ak — Fram KR — Valur UMFG eða FH - Víkingur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.