Morgunblaðið - 04.02.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.02.1979, Blaðsíða 1
48 SlÐUR 29. tbl. 66. árg. Líkið mœtti - og morðréttarhöld- um var frestað... Durban, 3. febr. Reuter. RÉTTARHÖLDUM í morð- máli var frestað mjög skyndi- lega í dag. þegar sá gekk í salinn. sem talið var að hefði verið myrtur. Málavextir eru þeir að fyrir tveimur árum var Keith Aug- ustine, 19 ára, gefið að sök að hafa drepið mann með hnífs- stungu eftir rifrildi. Maðurinn lézt ekki og fyrir kyndug mis- tök var morðákæran byggð á krufningu á líki annars manns. Augustine var ókunnugt um að fórnarlambið hefði komist lífs af og játaði á sig manndráp, en sagði það ekki af ásetningi framið. Um það bil sem dómur skyldi kveðinn upp frétti lög- reglan um mistökin og „líkið“. Amos Ngeme gekk í salinn hress og sprækur. Reuter fréttastofan hefur eftir dómar- apum í málinu að annað eins og þetta hafi aldrei gerzt fyrr. Frestaði dómarinn réttarhöld- unum til að kanna málið nánar. Andreotti athugar stjórn- armyndun Rómaborg, 3. febr. Reuter. ANDREOTTI, fráfarandi for- sætisráðherra Ítalíu, féllst á það í morgun að hefja könnun á því hvort hann gæti myndað nýja starfhæfa ríkisstjórn. Við þessu hafði verið búizt en hins vegar eru margir vondaufir um að það takist. Næsta ríkisstjórn á Ítalíu verður sú 41. í landinu frá falli Mussolinis 1943. Reyndi að fíjúga eins og Súperman New York, 3. febr. AP. FJÖGURRA ára gamall drengur, Charles Green sem reyndi að líkja eftir aðalpersónunni í kvik- myndinni Súperman og ætlaði að fljúga niður af áttundu hæð, var sagður við þolanlega heilsu og ekki lengur í lífshættu. Fjöl- skylda drengsins sagði að hann hefði ekki getað á heilum sér tekið eftir að hann sá myndina um Súperman og hefði þá tönnl- ast á því sýknt og heilagt að hann hlyti að geta flogið eins og Súper- man. Drengurinn hlaut mörg beinbrot við fallið. Götusali tekinn með Bosch-málverk París, 3. lebrúar — Reuter MÁLVERK eftir 18. aldar málar- ann hollenzka Jerome Bosch sem var stolið úr safni skammt frá París á sl. ári, fannst í dag. Maður nokkur var að reyna að selja málverkið á götu í París, en ekki er vitað hvort þar hafi ræninginn sjálfur verið á ferð en alténd var maðurinn fluttur til yfirheyrslu. Málverkið var óskemmt. Það var tryggt fyrir 700 þús. dollara. SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1979 Prentsmiöja Morgunblaðsins. Khomeini hótar „heilögu stríði” ef Bakthiar fari ekki frá hið fyrsta Teheran, 3. febrúar. Reuter. IIAFT var eftir Bakhtiar forsæt- isráðherra írans að til tíðinda myndi draga cf Khomeini gerði alvöru úr því að láta hið svokall- aða byltingarráð taka til starfa. Hann kvaðst ekki amast við mót- mælafundum en ef þeir Khom- eini-menn hæfu árásir með vopn- Þetta mál hefur vakið mikið uppnám í Nýju Delhi, en brezk stjórnvöld segja ráðstöfunina nauðsynlega til þess að ganga úr skugga um hvort indverskar konur reyni að finna auövelda leið til þess að flytjast til Bretlands með því að giftast til bráðabirgða. Háttsettur starfsmaður í ind- verska utanríkisráðuneytinu hefur spurt brezka stjórnarfulltrúann í Nýju Delhi hvort brezk yfirvöld geti ábyrgzt að indverskar konur, sem vilja flytjast til Bretlands, geti losnað við slíka auðmýkingu. Upphaf málsins var að indversk um myndi herinn taka á móti og yrði allt slíkt á ábyrgð Khomeinis og ekki yrði hikað við að hand- taka og lífláta þá scm reyndu að cspa upp fólkið og æsa til borg- arastyrjaldar. Khomeini efndi til blaðamanna- fundar í Teheran á laugardags- morgun og var þar stóryrtur. kennslukona sagði frjálslynda blaðinu Guardian að hún hefði samþykkt svona rannsókn af því að hún óttaðist að hún yrði send aftur til Indlands. Unnusti henar sagði að þetta hefði verið „hræði- leg reynsla“ og hjónaband þeirra hefði komizt í hættu. Þessi frétt Guardians olli miklu fjaðrafoki í brezka þinginu og James Callaghan forsætisráðherra sagði aðspurður: „Eg held að allir þingmenn hafi fyllzt áhyggjum af því sem þeir hafa lesið." Hann bætti því við að Merlyn Rees innanríkisráðherra væri að kynna I sér málið. Hann sagðist nú hafa skipað sitt eigið byltingarráð og væri það reiðubúið að efna til þjóðar- atkvæðagreiðslu og að henni lok- inni yrði síðan stofnað íslamskt lýðveldi í landi. Hann ítrekaði fyrri orð sín um að núverandi stjórn væri ólögleg og hvatti hana til að segja af sér hið bráðasta, en taka afleiðingunum ella. Hann sagði að færi svo að stjórn Bakthiars fengist ekki til að segja af sér myndi hann sjá sig tilneydd- an til að hvetja þjóðina innan tíðar til að grípa til vopna og heyja heilagt stríð. Hann hvatti herinn mjög eindregið til að snúast gegn Bakthiar og ganga til liðs við sig, enda væri herinn hluti af þjóð sinni og þjóðin ætti því rétt á að hann veitti henni aðstoð. Khomeini réðst einnig mjög að ýmsum erlendum ríkjum, einkum Bandaríkjunum og Bretum. Hann sagði að Bakthiar styddist við þessa aðila til að halda völdum og vera kynni að hann gengi svo langt að kalla til liðs við sig hermenn frá Israel. Síðustu mánuði hafa æst- ustu stuðningsmenn Khomeinis iðulega haldið því fram að ísra- elskir hermenn hafi verið kallaðir til með leynd. Reuterfréttastofan segir að á þetta hafi fáir aðrir en sögumenn sjálfir lagt trúnað. Sérfræðingum ber saman um að hættan á blóðugri borgarastyrjöld hafi enn aukizt eftir yfirlýsingu Khomeinis. Teng í „villta vestrinu” Houston, Texas, 3. febrúar. Reuter. KÍNVERSKI varaforsætisráð- herrann Teng Hsiao-ping setti á sig kúrekahatt í dag. borðaði kúrekamat og fékk sér öku- ferð með hestvagni á óformleg- asta degi heimsóknar sinnar til Bandarikjanna til þessa. Áður hafði Teng kynnt sér allra síðústu nýjungar þegar hann settist upp í eftirlíkingu af geimfari í Johnson-geim- stöðinni og prófaði eftirlíkingu á lendingu geimskutlu. Þegar Teng fór frá- hóteli sínu kastaði maður flugmiða en hann var handtekinn áður en hann kom nálægt honum. Seinna heimsótti Teng fyrir- tæki sem framleiðir verkfæri til þess að grafa eftir olíu enda hafa Kínverjar mikinn hug á því að verða sér úti um slík tæki. Síðan fer Teng til Seattle þar sem hann dvelst í tvo daga áður en heimsókn hans lýkur á mánudag. Indverskt kven- f ólk rannsakað Nýju Delhi, 3. íebrúar — Reuter INDVERSKA stjórnin mótmælti opinberlega í dag þeirri ráðstöfun brezkra stjórnvalda að kanna hvort indverskar konur sem flytjast til Bretlands séu óspjallaðar og kvað þessa ákvörðun ,.hörmulega“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.