Morgunblaðið - 02.03.1979, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.03.1979, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979 Tekst íslandi að sigra Ungverja í kvöld og na þriðja sætinu? SÁ LEIÐI misskilningur var á íþróttasíðu Morgunblaðsins í gær að Ungverjar heíðu sigrað í sínum riðli í B-keppninni á Spáni en ekki Svisslendingar. Ungverjar höfðu mun betra markahlutfall í sfnum riðii en Svisslendingar og þar sem liðin voru jöfn að stigum taldi blaða- maður Mbl. að það hefðu verið Ungverjar sem hefðu sigrað í riðlinum, svo var þó ekki. Innbyrðis leikur Svisslendinga og Ungverja var látinn gilda og í þeim leik sigraði Sviss óvænt 19—17. Hefur þetta fyrirkomu- lag vakið nokkra furðu og um leið nokkurn misskilning. Það verða því Ungverjar sem íslendingar mæta í kvöld kl. 20.00 í Barcelona í keppninni um þriðja sætið. Ísland hefur leikið 9 lands- léiki frá upphafi við Ungverja og | aðeins einu sinni gengið með sigur af hólmi. Tvisvar hefur orðið jafntefli og 6 sinnum hefur land- inn tapað. Markatalan er 156 mörk skoruð á móti 188 mörkum Ungverja. Vonandi tekst íslenska liðinu vel upp í leik sínum í kvöld og tekst að næla sér í þriðja sætið í B-keppn- inni. Liðsmenn hvíldu sig í gær, til að vera sem best undir átökin búnir í kvöld. Þeir Ólafur H. Jónsson og Axel Axelsson leika ekki með í kvöld Þeir þurftu að yfirgefa hópinn og halda heim- leiðis til Vestur-Þýskalands þar sem Dankersein á að leika þýðingarmikinn leik á móti Kiel á laugardaginn. Allar líkur eru á því að Erlendur Hermannsson komi nú inn í liðið og leiki sinn fyrsta leik í ferðinni. Lokastaðan í riðlunum tveimur í Borótennismenn gegn Færeyingum ÍSLENDINGAR leika landsleik í borðtennis við Færeyinga í kvöld og hefst viðureignin klukkan 8.30. Keppt verður að Varmá í Mosfelis- sveit. Opið mót verður síðan haldið í íþróttasal Gerplu á morgun klukkan 14.30. Þar leika meistarar 1. og 2. flokks, ásamt Færeyingun- um. Landslið íslands gegn Færeyingum skipa eftirtaldir: KARLAR: Tómas Guðjónsson KR, Stefán Konráðsson Víkingi og Hjálmtýr Hafsteinson KR. 15-17 ÁRA: Bjarni Kristjánsson UMFK, Tómas Sölvason KR og Örn Franzson KR. 13-15 ÁRA: Jóhannes Hauksson KR, Einar Einarsson Víkingi og Stefán H. Birkisson Erninum. Meistaramót TBR í ödlingaflokki IIIÐ árlega meistaramót félagsins í öðlingaflokki (40 ára og eldri) fer fram í húsi TBR, Gnoðarvogi 1 sunnudaginn 4. marz n.k. Keppt verður í öllum greinum karla og kvenna. Mótið hefst kl. 14.00, og skulu þátttökutilkynningar hafa borizt til TBR eigi síðar en miðvikudaginn 28. febrúar n.k. keppninni varð þessi: A-riðill: Sviss 3 2 0 1 55-54 4 Ungverjal. 3 2 0 1 74-65 4 Svíþjóð 3 1 0 2 58-64 2 Búlgaría 3 1 0 2 58-59 2 B-riðill: Spánn 3 3 0 0 61-46 6 Island 3 1 1 1 55-45 3 Tékkósl. 3 1 1 1 55-49 3 Holland 3 0 0 3 42-70 0 Liðin sem leika því saman er Sviss og Spánn um 1.—2. sætið, ísland og Ungverjaland um 3.-4. sæti, Tékkar og Svíar um 5.-6. sæti og Holland og Búlgaría um 7.-8. sætið. Óhætt er að fullyrða að frammi- staða Spánverja og Svisslendinga hefur vakið mikla athygli og hafa bæði liðin uppskorið eins og til var sáð. Hafa þau lagt mikla peninga og tíma í uppbyggingu liða sinna og stefnt markvisst að því að komast á Ólympíuleikana. Sá draumur þeirra hefur nú ræst. - þr. Sigursælir við Sundið Nauðungaruppboð sem auglýst var í 92., 95., og 99 tbl. Lögbirtinga- blaðsins 1977 á verkstæðishúsi með tilheyrandi lóðarréttindum í Tálknafirði, þinglýst eign Höskuldar Davíðssonar fer fram eftir kröfu Iðnlánasjóðs, Inga R. Helgasonar hrl., Þórarins Árnasonar hdl. og Jóhanns H. Níelssonar hrl., miðvikudaginn 7. marz 1979 og hefst á sýsluskrif- stofunni, Patreksfiröi kl. 14.00 en verður síðan framhaldið á eigninni sjálfri. Patreksfiröi, 22. febrúar 1979. Sýslumaöur Baröastrandarsýsiu. Lumenition YFIR 5000 BÍLAR Á 3 árum hafa selzt yfir 5000 LUMENITION kveikjur á íslandi. Þetta væri óhugsandi, nema ánægöir kaupendur hefðu mælt meö ágæti búnaðarins. Hefur Þú kynnt þér kosti LUMENTION platínu- lausu kveikjuna? mfSm HABERG hf 3e*Siml 3* 3 3*451 Menntaskólinn við Sund vann sveitakeppnina í svigi, sem er liður í keppni framhalds- skólanna. 13 skólar kepptu og voru 5 frá hverjum þeirra ræstir. Tími þeirra 4 bestu gilti. Voru á brautinni 42 hlið og var keppt í Hamragili. Sem fyrr segir, var það Menntaskólinn við Sund sem vann sigur. Fékk liðið saman- lagða tímann 1:31,7. Sigursveit- ina skipuðu eftirtaldir: Kristinn Sigurðsson, Jónas Ólafsson, Einar Úlfsson og Helgi Geirsson. í öðru sæti varð sveit íþrótta- kennaraskóla íslands, með tímann 1:46,3. Þau Valþór Þorgeirsson, Hans Kristjánsson, Margrét Baldvinsdóttir og Anna Erlingsdóttir fengu besta tímann í sveit ÍKÍ. Sveit Réttarholtsskóla hafnaði í 3. sæti með 1:46,8. Besta tímann hlutu Hafliði Harðarson. Inga Traustadóttir, Árni Garðarson og Kristin Guðmundsson. Um þessa helgi verður síðan keppt í boðgöngu og ber að senda þátttökutilkynningar í síma 12371. Johnson skorinn ytra ÞESSI mynd var tekin, er KR og ÍR mættust í Hagaskólanum fyrir skömmu. Þar var mættur enginn annar en Stewart Johnson, sem verið hefur erlendis siðustu vikurnar. Svo sem kunnugt er, skaddaðist hægra auga Johnsons svo illilega, að gera þurfti geysilega erfiða skurðaðgerð til að takast mætti að bjarga a.m.k. einhverri sjón á auganu. Hérlendis var gert al.lt sem hægt var, en aðaluppskurðinn varð að gera með sérstökum hníf, sem hér var ekki til. Johnson fór vestur um haf og var hann skorinn upp vestra með hnifnum góða, sem þar er til á öllum sjúkrahúsum. Heppnaðist uppskurðurinn vel, er talið að Johnson eigi möguleika á nokkurri sjón. Dvöl kappans hér á landi hefur varla verið honum til sannrar gleði. í byrjun lék allt í lyndi, en síðan varð hann fyrir slysinu umtalaða. Og ekki nóg með það, heldur var hann úrskurðaður ólöglegur af dómstól KKÍ, eftir að Fram hafði kært hann á þeim forsendum, að hann hefði ekki áhugamannaréttindi. Bonhoff viilheim ALLAR horfur eru nú á því að vestur-þýzki knattspyrnusnillingurinn Reiner Bonhof hverfi aftur heim til Þýzkalands þegar knattspyrnuver- tíðinni á Spáni lýkur í vor. Þó eru enn 2 ár eftir af samningi þeim, sem hann gerði við Valencia á síðasta ári. Ástæðan fyrir því að Bonhof hefur í hyggju að snúa baki við þeim svimandi tekjum, sem hann hefur, er sú. að hann er haldinn heimþrá og kann illa við sig á Spáni. Það má öruggt telja, að mörg félög muni líta Bonhof hýru auga, ekki sízt gamla félagið hans, Borussia Mönchengladbach, sem hefur verið að missa allar skrautf jaðrir sínar síðustu misseri og er varla skugginn af sjálfu sér. Bonhof mun þó ekki kosta minna en sem svarar 800.000 bandarikjadölum, þannig að fjöldi þeirra liða sem kynnu að hafa áhuga á að kaupa munu draga sig snarlega í hlé. Sundmót Ægis SUNDMÓT Ægis verður haldið mánudaginn 5. mars og miðvikudag- inn 7. mars í Sundhöll Reykjavíkur. Keppt verður í 14 sundgreinum karla og kvenna. Til keppni í 1500 m skriðsundi kvenna verður keppt um bikar sem SPEEDÓ umboðið hefur gefið til keppninnar. Jón Baldurss«n fyrrverandi formaður Ægis hefur gefið bikar til keppni í 1500 m skriðsundi karla. Jón Ingimarsson, fyrrverandi formaður Ægis, gaf bikar til keppni um í' 200 m baksundi karla, til minningar um Jón D. Jónsson, fyrrverandi þjálfara félagsins. Einnig er keppt um bikar er Sundsamband íslands gaf Ægi á 50 ára afmæli félagsins. Verður sá bikar veittur fyrir besta afrek sem vinnst á mótinu sé miðað við heimsmet. Þátttökutilkynningar skulu berast til Guðmundar Harðarsonar, Hörðalandi 20, í síðasta lagi föstudaginn 2. mars. Þátttökugjald er kr. 200.00 fyrir hverja skráningu. Skráningin skal berast á tímavarða- spjöldum SSÍ. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.