Morgunblaðið - 01.04.1979, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 01.04.1979, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. APRÍL 1979 Verðbótagreiðslur á laun: 3.000borgarstarfsmenn tapa 7-800milljónum kr. EINN starfsmaður Reykja- víkurborgar Hreggviður Jónsson hefur ákveðið að höfða mál á hendur Reykjavíkurborg þar sem hann telur að ekki hafi verið staðið við kjara- samninga og samþykktir borgarráðs um greiðslu verðbóta á laun. Svo sem frá hefur verið skýrt í Mbl. ritaði Hreggviður borgar- ráði og fór fram á fulla greiðslu verðbóta á laun, en því erindi hafnaði borgarráð á fundi 20. marz og vísaði til 4. greinar laga nr. 103/ 1978 um greiðslu verðbóta á laun samkvæmt verðbótavísitölu 151 st. frá 1.12. Hreggviður Jónsson sagðist í samtali við Mbl. hafa verið að viða að sér gögnum i þessu máli eftir að erindi hans var hafnað í borgar- ráði og væri hann nú að undirbúa málsókn. Kvað hann borgarstjórn hafa samþykkt án nokkurs fyrir- vara hinn 15. júní sl. að greiða fullar verðbætur á öll laun sam- kvæmt gildandi kjarasamningum. Hefði því átt að greiða 11,13% hækkun frá 1.12. sl. en borgin hefði farið eftir ákvörðun alþingis um 6,12% hækkun þrátt fyrir að sérstaklega hefði komið fram í umræðum á þingi að greiða mætti hærri bætur. Taldi Hreggviður borgina því ekki hafa staðið við samþykktir sínar. Hann kvaðst álíta að þessar verðbótagreiðslur myndu ná til um 3.000 borgar-. starfsmanna þar með talinna félaga í Dagsbrún og Sókn og taldi upphæðina vera milli 7 og 800 milljónir á 12 mánaða tímabili. Þá kvað Hreggviður Jónsson það undarlegt að forystumenn verka- lýðsfélaga skyldu ekki taka upp hanskann fyrir umbjóðendur sína, Hreggviður Jónsson starfsmannafélag Reykjavíkur hefði mótmælt þessum vinnu- brögðum, en mótmæli þess ekki verið 'tekin til greina. Að lokum kvað hann undarlegt að ríkisfjöl- miðlar skyldu ekki hafa greint frá þessu máli né heldur hin „frjálsu" dagblöð. Hvatarfund- ur um um- hverfismál HVÖT, félag sjálfstæðiskvenna í Reykjavík, efnir til fundar annað kvöld um „Umhverfi okkar“. Rætt verður um náttúruvernd og umhverfismál, og þær leiðir sem helst koma til greina við að vernda íslenska náttúru og mann- legt umhverfi hvar sem vera skal. Framsögumenn verða þau Elín Pálmadóttir blaðamaður, Gestur Ólafsson arkitekt og Þórarinn Sveinsson læknir. Fundarstjóri verður Margrét S. Einarsdóttir. Fundurinn verður haldinn í Valhöll, og hefst hann klukkan 20.30, en í upphafi fundarins fer fram kjör landsfundarfulltrúa. Fiðlutón- leikar ÞórhaUs ÞRIÐJUDAGINN 3. apríl kl. 7.15 heldur Þórhallur Birgisson fiðlutónleika í Austurbæjar- bíói. Er það seinni hluti einleikaraprófs Þórhalls frá Tónlistarskólanum í Reykjavík, en fyrri hlutann tók hann þegar hann lék fiðlukonsert Mendels- sohns með Sinfóníuhljómsveit Islands á tónleikum 3. febrúar s.l. Á tónleikunum á þriðjudag verða verk eftir Hándel, Mozart, Debussy, Ysaye og Jón Nordal. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og öllum heimill. Hlnrik Ingibjfirg Smáíbúða- Bústaða- og Foss- vogshverfi FÉLAG sjálfstæðismanna í Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogs- hverfi heldur almennan félags- fund þriðjudaginn 3. apríl n.k. kl. 20:30 í Valhöll, sjálfstæðishúsinu, Háaleitisbraut 1. Kosnir verða fulltrúar á 22. landsfund Sjálfstæðisflokksins. Aðalumræðuefni fundarins verður „Fjölskylduhættir", en þetta er þáttur í viðleitni félagsins á barnaáari Sameinuðu þjóðanna til að skapa umræður manna í milli um fjölskylduna og stöðu einstaklingsins innan hennar. Frummælendur verða Ingibjörg Björnsdóttir, deildarstjóri áfengisvarnardeildar Heilsu- verndarstöðvarinnar, og Helga Ágústsdóttir félagsmálafulltrúi. Fundarstjóri verður Hinrik Bjarnason, framkvæmdastjóri Æskulýðsráðs Reykjavíkurborgar. Spariyelta Jnfngreiðslulánaícerfi Samvinnubaríkinn kynnir nýja þjónustu, SPARIVELTU, sem byggist á mislöngum en kerfisbundnum sparnaði tengdum margvíslegum lána möguleikum. Hið nýja spariveltukerfi er í 2 flokkum A og B, sem bjóða upp á fjölda mismunandi lántökuleiða, með lánstíma allt frá 3 mánuðum til 5 ára. Auk þess er þátttak- endum heimilt að vera með fleir'i en einn reikning í Spariveltu-B. Lengri sparnaður leiðir til hagstæðara lánshlutfalls og lengri lánstíma. Ekki þarf að ákveða tímalengd sparnaðar umfram 3 mánuði í A-flokki og 12 mánuði í B-flokki. Fyrirhyggja í fjármálum Allir þátttakendur eiga kost á láni með hagstæðum vaxta- og greiðslukjörum. Þátttaka í SPARI- VELTUNNI auðveldar þér að láta drauminn rætast Markviss sparnaður = öruggt lán LÁNAMÖGULEIKAR MEÐ HÁMARKSSPARNAÐI SPARIVELTA-A Sparnaðarflokkar: 25, 50 og 75 þús.kr. á mánuði. Sparnaðar- timabil Mánaðarlegur sparnaður Sparnaður í lok timabils Láns- hlutfall Lán frá Sam- vinnubanka Ráðstöfunarfé með vöxtum Mánaðarleg endurgr. Endurgr. tími 3 mánuðir 4 mánuðir 5 mánuðir 6 mánuðir 75.000 75.000 75.000 75.000 225.000 v 300.000 375.000 450.000 000% 100% 100% 100% 225.000 300.000 375.000 450.000 454.875 608.875 764.062 920.437 78.108 78.897 79.692 80.492 3 mánuðir 4 mánuðir 5 mánuðir 6 mánuðir SPARIVELTA-B Sparnaðarflokkar: 15, 25 og 35 þús.kr. á mánuði. Sparnaðar- tímabil Mánaðarlegur sparnaður Sparnaður í lok tímabils Láns- hlutfall Lán frá Sam- vinnubanka Ráðstöfunarfé meö vöxtum Mánaðarleg endurgr. Endurgr. tími 12 mánuðir 18 mánuðir 24 mánuðir 30 mánuðir 36 mánuðir 35.000 35.000 35.000 35.000 35.000 420.000 630.000 840.000 1.050.000 1.260.000 125% 150% 200% 200% 200% 525.000 945.000 1.680.000 2.100.000 2.520.000 982.975 1.664.420 2.677.662 3.411.474 4.165.234 49.819 45.964 55.416 64.777 73.516 12 mánuðir 27 mánuðir 48 mánuðir 54 mánuðir 60 mánuðir Gert er ráð fyrir 19.0% innlánsvöxtum og 24.69% útlánsvöxtum svo og lántökugjaldi. Vaxtakjöreru háð ákvörðun Seðlabankans. Upplýsingabæklingur er fyrir hendi f öllum afgreiðslum bankans. Samvinnubankinn REYKJAVÍK, AKRANES!, GRUNDARFIRÐI, KRÖKSFJAROARNESI, PATREKSFIROI.SAUÐÁRKRÓKI, HÚSAVlK, KÓPASKERI. VOPNAFIROI, EGILSSTÖÐUM, STÖÐVARFIRÐI, VlK I MÝRDAL, KEFLAVlK, HAFNARFIRÐI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.