Morgunblaðið - 01.04.1979, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.04.1979, Blaðsíða 32
AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 íflorðiinbTnbiö AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 JBorfltmftlnÍiiíí SUNNUDAGUR 1. APRÍL 1979 Steingrímur formaður F r ani sóknarflokksins STRINGRIMUR Her- mannsson var kjörinn for- maöur Framsóknarflokks- ins á miðstjórnarfundi flokksins í gær. Steingrím- ur hlaut 88 atkvæði, Einar Ágústsson hlaut 2 atkvæði, Tómas Árnason 1 atkvæði og Ólafur Jóhannesson frá- farandi formaður 1 atkvæði. Auðir seðlar voru 4. í stuttri ræðu að for- mannskjörinu loknu sagði Steingrímur Hermannsson meðal annars: „Mér er ljóst að ég fer aldrei í fótspor Ólafs Jóhannessonar, hann á þau sjálfur og sagan mun geyma þau. En ég vil lofa ykkur því, að ég mun starfa af krafti, ég mun kveðja marga til starfa og í sam- einingu munum við leiða Framsóknarflokkinn aftur til þess, sem hann hefur verið mestur." Tómas Árnason var kjör- inn ritari flokksins og hlaut 64 atkvæði til þess embætt- is. Ragnheiður Sveinbjörns- dóttir fékk 7 atkvæði og 11 aðrir færri atkvæði. Guðmundur G. Þórarins- son var kosinn gjaldkeri Framsóknarflokksins og hlaut 56 atkvæði, en Jón Helgason fékk 31 atkvæði í þeirri kosningu. Einar Ágústsson var kosinn vara- formaður flokksins og hlaut 87 atkvæði. Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir var kosin vararitari með 59 at- kvæðum á móti 18 atkvæðum Hákons Sigurgrímssonar í það embætti. Haukur Ingibergsson var kosinn varagjaldkeri Fram- sóknarflokksins með 51 at- kvæði, Jón Helgason hlaut 32 atkvæði. Skip hafa átt í talsverðum erfiðleikum vegna íssins og þá ekki sízt strandferðaskipið Hekla. Jón Friðgeirsson tók þessa mynd um borð í Heklunni í síðustu viku, en skipið var þá að berjast í ísnum úti af Svínalækjartanga. Sjá nánar um hafísinn fyrir Norðurlandi á blaðsiðu 2. Svavar Gestsson: Munum krefjast breytinga á kj ar askerðingar ákvæðun um Steingrímur Hermannsson „MEGINATRIÐIÐ í þessu sam- komulagi er að láglaun og miðl- ungslaun um helmings fólks innan ASI eru nú varin fyrir kjaraskerð- ingarákvæði því sem var í frum- varpi Ólafs Jóhannessonar. Það er ánægjulegt að það skyldi takast að breyta þessu, en þetta skjól stendur aðeins í sex mánuði og það er því nauðsynlegt fyrir okkur og verka- lýðshreyfinguna að krefjast breyt- inga á þeim ákvæðum að þessum tima liðnum og við áskiljum okkur allan rétt til þess,“ sagði Svavar Gestsson viðskiptaráðherra, í sam- tali við Mbl. í gær um samkomulag stjórnarflokkanna um breytingar á efnahagsmálafrumvarpi forsætis- ráðherra. „Eg vil í þessu sambandi," sagði Svavar, „einnig nefna kafla um atvinnumál sem ég tel mikilsverðan og verðlagsmálakafla, sem þó hefur aðeins versnað síðan Ólafur lagði fram frumvarp sitt, en ég tel engu að síður mikilsvert mál. Þá hafa sam- dráttarákvæðin í frumvarpinu frá 12. feb. verið numin á brott eða gerð skaðlaus og við Alþýðubandalags- menn megum því vel við una.“ „Eru vandræði ríkisstjórnarinnar þá úr sögunni að þínu mati?“ „Frumvarpið fer í gegn, en ýmis vandræði geta haldið áfram og vandamál. Eg vona hins vegar að staðan breytist þannig að unnt verði að hefja eðlileg vinnubrögð, þessar deilur hafa verið tímafrekar og erfiðar og því hefur lítill tími verið til almennra verka. Hitt er svo að þessir flokkar eru svo ólíkir að það er erfitt að segja til um þetta." Kaldur marz kveður ÁFRAM er spáð norðanátt í dag og á morgun og má því búast við að ísinn hreki enn að landinu, en í gær átti bátur í erfiðleikum á Ingólfsfirði og allar götur til Seyðisfjarðar voru firðir að fyllast af ís. I Reykjavík var frostið að meðaltali 4 stig í marzmánuði og var mánuðurinn kaldasti marz- mánuður allt síðan 1891. í Stykkis- hólmi þar sem veðurathuganir hafa verið gerðar í 134 ár, mældist þessi marzmánuður einn af þeim köldustu á þessu tímabili. Staðinn að ólöglegum veiðum VARÐSKIPIÐ Óðinn stóð belgiska togarann Belgian Lady írá Ostende að meintum ólögleg- um veiðum á svæði sem lokað er togurum suður af Grindavik um klukkan sjö í gærmorgun. Að sögn Þrastar Sigtryggssonar var togarinn um það bil eina mílu innan markanna, en svæðið hefur verið lokað frá því 20. marz. Sagði Þröstur að Belgum hefði verið vel kunnugt um lokun þessa svæðis, og hefðu þeir meðal annars aflað sér upplýsinga um það hjá Land- helgisgæslunni fyrir skömmu. Það var sem fyrr segir varðskip- ið Óðinn sem kom að „Belgísku hefðarfrúnni" og sagði Þröstur Sigtryggsson að togarinn yrði færður til hafnar þar sem málið yrði kannað. Stenmark heimsœkir Hamragil ogBláfjöll Afhendir verðlaun á unglingameistaramótinu í Bláfjöllum í dag GÓÐUR gestur birtist nokkuð óvænt í skíðalöndunum ( Bláfjöll- um í gær, sjálfur skiðakóngurinn Ingemar Stenmark. Hann hefur undanfarið tekið þátt í skiðamót- um í heimsbikarkeppninni í Bandarikjunum. Á leið sinni heim til Svíþjóðar féllst Sten- mark á að koma við á íslandi og kom hann snemma í gærmorgun frá Bandaríkjunum með Loft- leiðavél, en fer utan á mánudags- morgun. í dag verður Stcnmark í Hamragili fyrir hádegi, en eftir hádegi í Bláf jöllum. Það er fyrir milligöngu Valdi- mars Örnólfssonar, sem Sten- mark kemur hingað, og mun hann m.a. ræða við ÍR-inga um framtfðarmöguleika svæðisins í Hamragili, en að auki verður Stenmark sérstakur gestur á unglingameistaramóti Reykja- vikur sem fram fer f Bláfjöllum um helgina. Valdimar Örnólfsson sagði í samtali við Morgunblaðið í gær- morgun að hann hefði lengi alið með sér þann draum að fá Sten- mark hingað til lands. Fyrst í stað hefði hugmyndin verið að fá Sten- mark til að. koma í Kerlingarfjöll yfir sumartímann, en þetta tæki- færi, að fá kappann hingað núna, hefði komið nokkuð óvænt upp á. Stenmark hefði ætlað sér að halda beint frá Bandaríkjunum til Sví- þjóðar með Flugleiðum. Þegar hann frétti um verkfall flug- manna í FÍA og að ekki yrði flogið til Gautaborgar í dag vegna verk- fallsins, ætlaði hann að fljúga með öðru flugfélagi til Svíþjóðar. — Þá kom til sögunnar góður vinur í Svíþjóð, Kaspar von Schönberg, en hann er mörgum Islendingum að góðu kunnur, sagði Valdimar í gær. — Schön- berg er forstjóri fyrirtækis sem heitir Trans-Alp og skipuleggur mikið af skíðaferðum Bandaríkja- manna til Evrópu og öfugt. Hann er persónulegur vinur Stenmarks og góður kunningi minn. Hann vissi um áhuga minn á að fá Stenmark og kom þessu í rauninni í kring án þess að ég vissi neitt um það. — Það þarf ekki að hafa mörg orð um hversu gífurlegur íþrótta- viðburður það er að fá Stenmark hingað. Hann er óumdeilanlega mesti skíðamaður í heimi, þó svo að óheiðarlegar reglur hafi gert það að verkum að Stenmark sigr- aði ekki í heimsbikarkeppninni í ár. Það er skemmtileg tilviljun að Stenmark skuli einmitt koma hingað þá helgi er unglingameist- aramótið fer fram í Bláfjöllum og mun Stenmark afhenda verðlaun í lok mótsins í dag. Að auki verður Stenmark með okkur í Hamragili fyrir hádegi, skoðar aðstöðuna þar og ræðir um möguleikana á staðn- um- Hádegisverður verður síðan snæddur í Hveradölum milli 12.30 og 14, en þá verður haldið í Bláfjöllin. Auk verðlaunaaf- hendingarinnar verður sett upp sérstök braut fyrir kappann og að sjálfsögðu reynum við að hafa hana nógu erfiða. Eitthvað fleira verður reynt að gera svo að fólk geti séð hve snjall Stenmark er, en það verður að segjast eins og er að við höfum lítinn fyrirvara haft til að undirbúa komu þessa góða gests, sagði Valdimar Önrólfsson að lokum. Ingemar Stenmark og Valdimar örnólfsson hressir á svip í stólalyftunni í Bláfjöllum um hádegið í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.