Morgunblaðið - 19.04.1979, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 19.04.1979, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1979 7 I AIÞýðubandalagið hef- ur smám saman verið að breytast í pólitíska fjöl- fætlu, sem teygir sig, skoðanalega, í allar áttir, eftir pví hvar er atkvæða- von. Stefnufesta hefur breytzt í allra átta bros. Flokkurinn skiptir um lit, eins og ónefndar dýra- tegundir, eftir aðstæöum og atkvæðavon. Hann rembist við að höfða í senn til fólks, sem hefur hugsunarhátt „borgar- skæruliða“, yzt á vinstri vængnum, og íhalds- samra „pjóðernissinna“, sem nánast aðhyllast einangrunarstefnu í pjóð- málum. Hann kann vel við sig í aðildarstjórn að Nató, innan varnarsamn- ings við Bandaríkin, gríp- ur til gengislækkunar pegar svo ber við og skítt með nokkur prósentu- stig, hvort heldur sem er í grunnkaupi eöa verð- bótum, pegar flokkurinn skrýðist stjórnarklæðuml Og hver man ekki frum- kvæði ráðherra Alpýðu- bandalagsins, í hinni fyrri vinstri stjórn, pegar járn- blendiverksmiðjan var hönnuð, hugmyndalega og pólitískt? Samhliða pví, sem flokkurinn höfðar til íhaldssamrar pjóðernis- hyggju og einangrunar- stefnu, t.d. varðandi sam- skipti við og samstöðu með vestrænum pjóðum, reynir hann að gera alla pá, er aöhyllast vestræna samtryggíngu í öryggis- málum, tortryggilega. Hann tönnlast á pví, að raunsæi á pessum vett- vangi geri fólk „ópjóð- legt“, eins og par hefur verið kallað „Þjóölegir“ eru peir einir, sem fylgja úreltri einangrunar- stefnu. Þjóöhollur Guðmundur H. Garðarsson vék að pessu efni í útvarpserindi á dögunum. Þar vitnar hann til ritsins íslending- ar, nokkur drög að Þjóö- arlýsingu, eftir lærdóms- manninn Guðmund Finn- bogason (Menningar- sjóöur/1933). Þar segir orðrétt: „Þjóölegan köll- um vér pann hátt, sem pjóðin hefur almennt lengi fylgt af frjálsum vilja eða runninn er af slíkum pætti. Upptökin eru alltaf hjá einstakling- um, en pað EITT fær varanlegt fylgi alpjóðar, sem mönnum fellur al- mennt vel í geð. Hitt fellur brátt niður. — Eng- inn er leiðtogi án fylgd- ar...“ Frá pví aö lýöræöis- flokkar nú 3 sampykktu aðild aö Nató fyrir prjátíu árum hefur pjóðin gengið 12 sinnum til kosninga. í hverjum kosningum hef- ur samanlagt fylgi pess- ara flokka verið 75—80% greiddra atkvæða. Afstaða pessara flokka til samstarfs viö vestrænar pjóöir, í féiags- menning- ar-, viöskipta- og örygg- ismálum hefur ekki hvað sízt haft áhrif á fylgi peirra. „Þjóölegan köllum vér pann hátt“, segir í tilvitnaðri bók, „sem Þjóðin hefur almennt lengi fylgt af frjálsum vilja...“ I pessu sambandi má og minna á, er u.p.b. 55 púsund kosninga- bærra íslendinga rituðu undir viljayfirlýsingu pá, sem kennd hefur verið við Varið land. í Ijósi framangreinds fer heldur lítiö fyrir „Þjóðlegheit- um“ á „Þjóðviljanum“ eða í Alpýðubandalaginu. En stundum er handhægt að sópa pólitískri stefnu, sem enginn vill sjá eða heyra pegar hún er sýnd ódulbúin, undir teppi snoturyröa í nafngift; flokks- og blaöheiti. En óhreinindi verða alltaf óhreinindi, hvort sem pau eru undir teppi eða í augsýn. Barnaáriö Þjóöviljinn reynir í leið- ara í gær að matreiða barnaárið, eða hugmynd- ina að tilurö pess, eftir kokkabók flokkshyggj- unnar. Árangurinn veröur í senn viöbrenndur og samanskroppinn. Hvern veg væri að Þjóðviljinn beindi áskorunaroröum sínum til hins nýja borg- arstjórnarmeirihluta í Reykjavík, Guðrúnar- deildar Helgadóttur, varðandi barnadagheim- ili, leíkskóla, athvörf, úti- deild og ípróttaaðstööu? Hvern veg væri að Þjóö- viljinn skoraöi á borgar- stjórnarlið sitt aö hætta að ganga aftur á bak, á barnaári, í aöstööu fyrir börn í höfuöborginni? og varðandi hugleiöingar blaðsins um lífvænleg laun hinna lægst launuðu fyrir 8 stunda vinnudag, gæti blaðið gert eftirmála úr hálaunapaklyftingu Alpýðubandalagsins í borgarstjórn — sem var forsenda kjardóms um sama efni — og nýjum flugmannasamningum í skjóli samgönguráðu- neytis, sem einhver flokkssvipur ku á. Spurn- ing er, hvort nokkru sinni hafi viðgengist í islenzk- um stjórnmálum önnur eins hræsni og sú, sem er uppistaðan og ívafið í pessu svokallaöa Alpýðu- bandalagi eins og pað birtist almenningi í dag. rr Evinrude þjónusta Utanborðs- mótorar 2-235 hestöfl Evinrude framleiðir utanborðs- mótora í mörgum stærðum, þann- ig að allir geta fundið þástærð (og styrkleika) sem þá vantar, 'hvort heldur er fyrir fiskibáta, hraðbát, gúmmíbát eða litla kænu. Evinrude öðrum fremri Framleiðendur Evinrude hafa hugsað fyrir öllu, og á 70 árum, hafa þeir full- komnað utanborðsmótorinn mjög, að þeir geta boðið meiri gæði, en verðið segir til um. Nú getur EVINRUDE orðið allra eign. Kraftmikill og öruggur Það er ekkert eins ánægjulegt og að þjóta eftir vatnsfletinum láta andvarann leika um sig - og njóta EVINRUDE til fullnustu. Evinrude er öruggur mótor, sem gerður er fyrir áreynslu, og honum er hægt að treysta. Fullkomin vara- hluta og viðgerð- arþjónusta, sem tryggir enn frekar örugga notkun Evinrude. Frábær gæði Utið verð Ný námskeið eru að hefjast fyrir börn á aldrinum 8—14 ára. Innritun fer fram á morgun, föstudag kl. 10—12. Kennslutímar lausir frá 9.30—11.30 og 13.30—15.30. Munið kaffihlaðborðið hjá Fákskonum í dag. Hestamannafélagið Fákur. Stjórnunarfélag íslands Rangæingar Stjórnunarfélag íslands gengst fyrir námskeiði í Rangárvalla- sýslu dagana 23.—26. apríl næstkomandi. Námskeiðíð verður haldið í húsi verkalýðsfélaganna aö Hellu frá kl. 13.30 til 18.30 dag hvern. Á dagskrá er: ★ Undirstöðuatriði bókhalds: Mánudaginn 23. apríl og þriðjudag- inn 24. Farið verður yfir helstu ákvæði bókhaldslaga, kynntar helstu bókhaldsbækur, færslur sýndar, gerð ársreiknins og framsetning og kennt hvernig lesa má útskrift úr tölvubókhaldi. Leiðbeinandi: Kristján Aöalsteinsson viðskiptafræöingur. ★ Skattréttur og skattskil: Miövikudaginn 25. apríl. Fariö veröur yfir ákvæði laga og reglna sem taka þarf tillit til við rekstur smærri fyrirtækja, hvernig má nota bókhald við framtal til söluskatts, frágang orlofsskýrslna og skilgreina til lífeyrissjóða o.fl. Leiðbein- andi: Árni Björn Birgisson viðskfr. og lögg. endursk. ★ Rekstrarbókhald og framlegöarreikningar: Dagana 26. og 27. apríl: Kennd uppsetning rekstrarbókhalds, rætt verður um framlegöarhugtakiö og sýnt hvernig nota má framlegöaraðferðina við mat á arðsemi einstakra afuröa eða deilda og við ákvaröanir á verði afuröa. Leiöbeinendur: Þórður Hilmarsson og Eggert Ágúst Sverrisson, viðskiptafræðingar. Námskeiöiö er ætlað mönnum í stjórnunarstörfum fyrirtækja. Eins og fram kemur að ofan verður þar gefið almennt yfirlit um hvernig haga skal bókhaldi og fjárreiðum fyrirtækja. Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélags íslands, Skipholti 37, í síma (91)82930. Vélstjórar Vegna áskorana félagsmanna meöal nemenda Vélskólans og fleiri veröur aukaaöalfundur haldinn í Vélstjórafélagi íslands miðvikudaginn 25. apríl kl. 20. í Kristalsal, Hótel Loftleiöa. Dagskrá fundarins: 1. Réttarstaða fullmenntaöra vélstóra. 2. Lögverndun atvinnuheitis og atvinnuréttinda. 3. Önnur mál. Stjórnin. EINSTAKT TÆKIFÆRI KORFUBILL TIL SOLU Ný uppgeröur bíll frá verksmiöju erlendis. Góður bill á góðu verði ef gengið er frá kaupum strax. Leitið nánari uppl. um bílinn í síma 27745 pfiLmn/on & vnL//on ud Ægisgötu 10. Sími 27745. Kvöldsími 23949.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.