Morgunblaðið - 19.04.1979, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.04.1979, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1979 í næsta mánuði hefst sumar- starf Skógarmanna KFUM í Vatnaskógi og fer fyrsti dval- arflokkur drengja í skóginn hinn 30. maí n.k. Alis eru ráðgerðir tíu dvalarflokkar f sumar, um 90 í hverjum og eru fyrstu flokkarnir fyrir 9—11 ára drengi og næstu flokkar á eftir fyrir 10—11 ára. í dag, sumardaginn fyrsta, hafa Skógarmenn sina árlegu kaffi- sölu í húsi KFUM við Amt- mannsstíg og í kvöld verður almennur Skógarmannafund- ur, en í ár eru liðin 50 ár frá þvi Skógarmannafiokkurinn var stofnaður. Um mánaðamótin júní júlí verður haldið almenna kristi- lega mótið eins og verið hefur í áratugi, og eru þangað allir velkomnir, og ættu gamlir Skóg- armenn að huga að því hvort ekki 'væri gaman að koma í heimsókn á staðinn með fjöl- skylduna. I framhaldi af mótinu verður haldinn aðalfundur Sam- bands ísl. kristniboðsfélaga. Flokkarnir í júlí og ágúst verða svo fyrir aldurinn 10 til 12 ára, nema dagana 3. ágúst til 13. Fimmtíu ár liðin frá stofn- unSkógarmannaflokksKFUM ágúst verður flokkur fyrir ungl- inga 23 ára og eldri. Um verzlunarmannahelgina verður „opið hús í Vatnaskógi" og verður þar minnst þess að 50 ár eru liðin frá því að flokkurinn Skógarmenn KFUM var stofn- aður, en þann flokk og stofnun hans má telja með einu því sérstæðasta í kristni á landinu. Skógarmannaflokkurinn hef- ur það meðal annars á stefnu- skrá sinni að safna fé í sjóð til að byggja í Vatnaskógi, og nú á sumardaginn fyrsta verður hann með kaffisölu eins og undanfarin ár, til að efla þann sjóð. Auk þessa má geta þess að um bænadagana dvöldu í Vatna- skógi um 170 framhaldsskóla- nemar á kristilegu skólamóti. Þá verður haldið biblíunám- skeið í byrjun september fyrir þá sem eru 16 ára og eldri. Þá ráðgera prestar úr Hall- grímsdeild Prestafélagsins að halda fermingarbarnamót í lok maí. Hin síðari ár hefur orðið sífellt erfiðara fyrir krakka að komast í sveit og veldur því helzt að búskaparhættir hafa breytzt. Nú er mest allt unnið með vélum og mannshöndin því ekki eins nauðsynleg, búin fara einnig stækkandi og helzt er þörf fyrir aðkeyptan vinnukraft sem börn eiga ekki samleið með. Þess vegna gleðjast kaupstaða- börnin yfir því að fá tækifæri til að dveljast í sveit og má reyndar segja að börnin hafi aðeins smá tíma til að komast í parís eða „brennó" yfir hásumarið þegar skóla sleppir. Vatnaskógur í Svínadal er einn þeirra staða sem strákar geta komist að á til dvalar að sumrinu og er um þessar mund- ir að hefjast innritunn í dvalar- flokkana þar en á þessu sumri eru liðin 50 ár frá því stofnaður var flokkurinn Skógarmenn KFUM, en það var sr. Friðrik Friðriksson sem fyrstur hélt með KFUM drengi uppi Vatna- skóg. Sumarbúðirnar eru starf- ræktar frá því í byrjun júní og fram í ágúst og dvelja áð jafnaði um 90 drengir þar í einu, á aldrinum 9—16 ára skipt í flokka eftír aldri. Starfslið er 11 manns og hefur sr. Kristján Búason dósent við guðfræðideild Háskóla íslands jafnan dvalið hluta sumarsins í Skóginum sem forstöðumaður á síðari árum. Hefur hann sagst yngjast heil ósköp við dvöl í Vatnaskógi, en hann verður einnig forstöðumaður í sumar og eru honum til aðstoðar 6 vaskir piltar og um matseld sér ráðskona með 3 aðstoðarstúlk- um, eða ætti kannski heldur að segja starfskröftum. Dagur í Vatnaskógi líður jafnan hratt og margt er þar hægt að una við, leiki inni sem úti, í gamni og alvöru, og eftir biblíulestur að morgni er yfir- leitt haldið út til leikja og íþróttaiðkana. Þá er hægt að fara í gönguferðir og er sr. Kristján ólatur við að efna til gönguferða og bendir þá á það sem markvert er að sjá í blóma- ríki í náttúrunni. Oddakot er eyðibýli við enda Eyrarvatns og þangað er oft haldið á góðviðris- dögum til að sullast í vatninu. A sama hátt og drengirnir koma jafnan til dvalar í Vatna- skógi sumar eftir sumar hefur starfsfólkið iðulega verið hvert sumarið á fætur öðru og þar og finnst því hvergi betra að vera en í sumarbúðastarfi. Þá eru jafnan um hverja helgi vinnu- flokkar við ýmis störf, dytta að húsakynnum, girðingu og þeir koma einnig til lengri dvalar áður en sumarbúðastarfið hefst svo og eftir að því lýkur. Pþ/jt. Sr. Kristján Búason dósent hefur undanfarin sumur starfað sem forstöðumaðui sumarbúðanna og verður hann þar einnig í sumar. Hér er hann að uppfræða drengina um gróðurfarið. ! Vatnaskógi dvelja menn við leiki úti og inni og í sumar er reiknað með að endanlega verði iokið byggingu íþróttahúss, þ.e. innréttingum, en húsið var reist fyrir 2 árum. íbúasamtök Vesturbæjar og Þingholta: Hátt lóðamat leiðir af sér þunga skattheimtu Garðyrkjufélagið gef- ur út bók um sveppi ALMENNUR borgarafundur, haldinn á vegum Ibúasamtaka Vesturbæjar og íbúasamtaka Þingholta, mánudaginn 9. apríl s.l., samþykkti eftirfarandi ályktun um mat íbúðarhúsalóða í gamla bænum: „Yfirlýst stefna borgaryfir- valda í Reykjavík er að hamla gegn brottflutningi fólks úr gamla bænum og finna leiðir til að efla heldur búsetu þar. Einn af þeim þáttum, sem mikil áhrif hafa á búsetuskilyrði fólks í gamla bænum er mat Fasteignamats ríkisins á lóðum, sem ásamt húsmati myndar grundvöll fyrir álagningu fast- eignagjalda, auk eignarskatts. Hið gífurlega háa mat á lóðum í eða við miðbæinn leiðir af sér þunga skattheimtu, sem á stóran þátt í að gera búsetu í þessum hverfum erfiða eða jafnvel ómögulega. Ljóst er, að lóðamat á þessu svæði er langt fyrir ofan mark- aðsverð eða nýtingarmöguleika lóða, og leiðir því af sér misrétti í skattlagningu. Fundurinn skorar því á borg- aryfirvöld að beita sér fyrir því, að nú þegar verði hafist handa við endurmat lóða í Reykjavík. Bendir fundurinn á nauðsyn þess, að íbúðarhúsalóðir verði skattlagðar eftir notagildi þeirra og afrakstri á hverjum tíma — en ekki eins og nú er eftir þeim hugsanlegu nýtingarmöguleik- um, er skapast vegna legu lóðar- innar gagnvart miðbænum og sem núverandi lóðamat byggir GARÐYRKJUFÉLAG íslands hélt aðalfund sinn 6. marz s.l. í skýrslu formanns kom fram, að á s.l. ári gaf félagið út Matjurtabókina í annað sinn. Garðyrkjuritið kom út í maí, fréttabréfið Garðurinn kom út fjórum sinnum. Einnig voru haldnir fræðslufundir og félög- um gafst kostur á að skoða garða í Kópavogi og Tilrauna- stöð Skógræktarfélags íslands á Mógilsá. Félagsmenn eru nú 4.800 talsins. Félagsdeildir eru á 11 stöðum á landinu. Félagið sér um blómaþáttinn í „Blóm vikunnar" í Morgunblað- inu undir umsjón Ágústu Björns- dóttur. í sumar mun félagið gefa út bók um sveppi, höfundur bók- arinnar er Helgi Hallgrímsson grasafræðingur á Akureyri. Stjórn félagsins er þannig skipuð: Jón Pálsson formaður, Þórhall- ur Jónsson varaformaður, Ólafur Björn Guðmundsson ritari, Berg- lind Bragadóttir gjaldkeri og Einar Ingi Siggeirsson með- stjórnandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.