Morgunblaðið - 19.04.1979, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 19.04.1979, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRIL 1979 33 Til alþingismanna um breytingu áfengislaga o. fl. Frétt um frumvarp til breytinga áfengislöggjafar íslendinga hefur vakið athygli og umtal. Það sem mesta furðu hefur vakið er sú staðreynd, að frum- varpið virðist ekki taka minnsta tillit til vísindalegra fullyrðinga um ráð til að draga úr neyslu áfengis og umgengni unglinga og barna við þetta algengasta og ægilegasta eiturefni, sem æskan þarf að varast. Samkvæmt fréttum af frum- varpi þessu og sjónvarpsumræðum þar að lútandi virðist eiga að draga sem mest úr öllum hömlum og færa niður aldursmark til kaupa og neyzlu þessa vímugjafa, sem á helzt að vera til sölu og neyzlu allan sólarhringinn að minnsta kosti á veitingahúsum höfuðborgarinnar. Þetta gerist á sama tíma, sem Alþjóða-heilbrigðisstofnun Sam- einuðu þjóðanna hvetur til að hömlur og hindranir við dreifingu og sölu áfengis verði hertar. Til þess eru tiltæk ráð talin heppilegust: Hækka verð áfengis, minni fram- leiðsla, innflutningshömlur, og fækkun sölu og dreifingarstaða. Segja má, að rannsóknir og aðstaða í nágrannalöndum og reynsla okkar íslendinga sjálfra bendi allt í sömu átt: Því minni hömlur, því meiri neyzla. Fáir kunna sér þarna hóf og mát. Fórnarlömbin verða því mörg á þessum hryllilega blót- stalli. Ábyrgðin verður þung, sem löggjafinn verður að axla. Þá höggur sá, er hlífa skyldi. Frelsið verður að taumleysi trylltrar ástríðu, græðgi og síðast ólæknandi sjúkleika. Nú er að verða vakning og stefnubreyting víða um lönd í þessum málefnum. Flestir telja rétt að snúa sér til bernsku og æsku. Fræðsla, hömlur og vernd, ásamt heppilegum tóm- stundaiðkunum og tómstunda- stofnunum í skóla og utan, þar sem heimilið verði þó fremst og æðst eru talin helztu tækin til að hlaða brjóstvörn og vígi gegn þessum vágesti. HLjómleikar á Akranesi Akranesi, 17. aprfl TÓNLISTARFÉLAG Akraness efnir til hljómleika í fjölbrauta- skólanum á Akranesi á sumardag- inn fyrsta, 19. apríl, klukkan 18:30. Jónas Ingimundarson píanóleikari leikur fjölbreytta efnisskrá sem á eru verk eftir eldri og yngri höfunda. JÚlfUB. Leiðsögumenn imdirbúa ferða- mannatímabilið Félag leiðsögumanna hélt nýlega sína árlegu helgarráð- stefnu í ölfusborgum í Hveragerði. Á ráðstefnunni voru flutt þessi fræðsluerindi: „íslenzkir stein- gervingar", Leifur A. Símonarson jarðfræðingur; „Útbreiðsla stein- tegunda í íslenzkum jarðlögum", Sveinn Jakobsson jarðfræðingur, og „Ferð á Strandir í leit að hákarlaminjum", Þór Magnússon þjóðminjavörður. Fulltrúum eigenda hópferðabif- reiða var boðið til ráðstefnunnar og áttu þeir viðræður við leiðsögu- menn. I lok ráðstefnunnar var haldið til Þorlákshafnar þar sem Gunnar Markússon skólastjóri tók á móti hópnum og sagði sögu staðarins. Baráttan gegn tóbakinu hefur á síðustu tímum sýnt og sannað þessa leið heppilega og nú þegar varðað veginn, jafnvel að frum- kvæði æskunnar sjálfrar og með hennar liðsinni, litið augum barns- ins. Varla fengi Ár barnsins verð- ugra viðfangsefni en það, að fylkja sér í raðir gegn áfengisneyzlu og öllu því böli, sem þar siglir í kjölfarið. Hvergi eru fórnarlömbin fleiri en úr hópi barna á heimilum alkohólista. Með þetta í huga bæði í baksýn og framsýn af sjónarhóli manns, sem um nær hálfrar aldar skeið hefur helgað áhuga og störf þess- um málum sem kennari, prestur og íslenzkur borgari, vil ég leyfa mér að benda Alþingismönnum, stjórnendum þjóðar og borgar ásamt alþjóð á eftirfarandi atriði í uppeldismálum og áfengisvörnum, þar á meðal áfengislögum: 1. Felið heimilum aukin áhrif til uppeldis og handleiðslu foreldra og eldri kynslóða. Bætið jafnvel launalega aðstöðu heimavinnandi mæðra til jafns við önnur þjóðfé- lagsstörf til að hamla flótta þeirra frá helgustu skyldum lífsins. Veit- ið heimilum aukna heimild til afskipta og áhrifa um útivist og dvalarstaði barna. 2. Felið sérstökum eftirlits- mönnum og leiðbeinendum í skól- um sérstaka ábyrgð og starfsemi við félagsuppeldi barna og ungl- inga viðvíkjandi skemmtunum og félagsmótum allt til 16 ára aldurs. Þarna mætti gjarnan hafa til hliðsjónar og fyrirmyndar starf- semi barnastúkna eins og hún var á fyrra helmingi aldarinnar. Betra félagslegt uppeldi og veganesti hefur varla gefizt í íslenzku þjóð- lífi. Nú ætti skólum og kennurum yfirleitt að vera auðvelt og hægt um vik á þessu sviði, með allan laugardaginn í hverri viku til umráða. Áður var aðeins sunnu- dagurinn einn sem unnt var að helga félagslegri mótun og mennt- un nemenda. 3. Gefið kirkjunni meiri gaum. Þar er margt hollt og heillavæn- legt á hraðbergi. Æskulýðsstarf kirkjunnar ætti löggjafinn að styðja sem bezt með ráðum og dáð. Starfsemi safnaðarheimila, ef vel er að verki staðið ætti sannarlega að njóta sömu kjara og skólar eða aðrar uppeldisstofnanir til upp- byggingar og árlegs starfrekstrar. 4. Takmarkið sem mest fjárráð barna og æskufólks allt fram til tvítugs, nema þá til náms og uppbyggingar framtíðarhag. Eflið sem bezt og tryggið sparifjárað- stöðu unglinga. Sú hugsjón geng- ii na æskulýðsleiðtoga mun ávallt verða heilladís æskunnar í land- inu, ef vel er að verki staðið. 5. Veita skal hollri félagsstarf- semi ungs fólks sem allra mestan stuöning fjárhagslega og til allrar aðstöðu. Þar má fyrst minna á íþróttafólkið. En þar skarar ís- lenzk æska fram úr ekki áízt í skák, fimleikum og dansi. Raunar má hér minna á þá staðreynd, að íslenzk æska er meðal hinna fremstu í flokki afreksmanna í heimi. Það er undur svo fámennr- ar, afskekktrar þjóðar og sannar öllu fremur hvílíkur auður er hér til allrar varðveizlu og dýr hver sem glatast fyrir hugsunarleysi og heimsku. Hér skal einnig minnt á gildi hinna góðu og gömlu æskulýðs- samtaka landsins. Ungmennafé- lög, skátafélög, stúkurnar, æsku- lýðsfélög kirkjunnar og Islenzka ungtemplara í broddi fylkingar eru allt heillaþættir í hamingju- þræði þjóðarinnar í framtíð og nútíð, og þurfa því sem bezta athygli og umhyggju forystu^ manna þjóðarinnar hverju sinni. 6. Stofna þarf og starfrækja sérstaka skemmtistaði, helzt í hverju hverfi borgarinnar eftir föngum og ráða til þeirra foringja, sem kenndu fólki að skemmta sér, einkum dans, söng, upplestur, leiki og alla háttvísi. Þessir staðir verða að öllu leyti hvað aðstöðu, um- hverfi og skemmtikröftum viðvík- ur að standa jafnfætis vínveit- ingastöðum. Aðstöðumuninn verð- ur hið opinbera að borga. Og þar kemur til kasta löggjafans auðvit- að með þá staðreynd í huga, að þetta séu uppeldisstofnanir og verndarvirki æskunnar til hollrar gleði og heilla. 7. Stofna þarf til þegnskyldu- starfa fyrir unglinga um tíma árlega í tvö ár. Þarna yrði um að ræða nokkurs konar stofnun til eflingar hlýðni, trúmennsku, fórn- arlund og þekkingar á sem breið- ustum grunni á sviði þjóðlífsins. Starfsemi þessa þyrfti að skipu- leggja allt frá atvinnuháttum til sjós og lands til þjónustustarfa á stofnunum og sjúkrahúsum í fjöl- menni, ekki sízt elliheimilum, barnahælum og endurhæfingar- stöðvum slasaðra og drykkju- sjúkra. 8. Gera árlegar athuganir og rannsóknir á neyzlu og dreifingu áfengis, tóbaks og annarra áskap- aðra bölvalda heilsu og heilla. Og nýta síðan árangur og staðreyndir slíkra rannsókna til varnar og verndar gegn þessum voða að beztu manna yfirsýn. 9. Efla þær stofnanir til endur- hæfingar og hjálpar alkóhólistum, sem stofnaðar hafa og starfræktar verið hin síðustu ár fyrir þrotlaus- an áróður, dáð og dug ágætra þegna. 10. Auka markvissa áfengis- fræðslu í öllum skólum landsina á grunnskólastigi og skipa þar ákveðna eftirlitsmenn, með starfi, bókakosti og prófun í þessari mikilsverðu námsgrein. Kosta er- indreka til fræðslu og leiðbeininga um áfengismál til að ferðast um landið. Heiðruðu landsfeður, ég hef oft dáðst að snilli og einkum samn- ingasnilld íslenzkra stjórnmála- manna, sem hafa um áratugi leitt þessa þjóð frá örbirgð og áþján til frelsis, frama og álits meðal þjóða heims í allri hennar smæð, um- komuleysi og einangrun. Þetta hefur gerzt án nokkurs blóðdropa, án haturs og hefnda. Og er sá samanbúrður ísl. stjórn- mála við hin erlendu sannarlega til fyrirmyndar. Sýnið nú og sannið, að ekki sé framsýni ykkar og snilld til úr- ræða og samninga um vandamálin við okkar eigin hjartastað síðri en í viðskiptum við erlend stórveldi. Sannarlega er sá eldurinn heit- astur, er á sjálfum brennur. Vissulega eru auðlindir okkar og efnahagur mikils virði og vanda- mál. En dýrmætasti auður hverrar kynslóðar er æskan og framtíð hennar. Og gæfugullið henni til handa heiman að er í okkar eigin barmi og armi til umhyggju og hand- leiðslu. „Án er ills gengis, nema að heiman hafi." 1. marz 1979. Árelíus Níelsson. BENIDORM AUIMIAÐ MEÐ OLMVIPO BROTTFARARDAGAR 1979. 23. maí 3 vikur 25. júlí 3 vikur 13. júní 3 - 15. ágúst 3 - 04. júlí 3 - 05. sept. 3 - FARARSTJÓRAR: JESÚS OG MARÍA. wm VIÐ HÖFUM REYNSLU OG ÞEKKINGU SEM KEMUR ÞÉRTILGÓÐA. TRAVEL Norðurver/Nóatún, símar 29930 og 29830

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.