Morgunblaðið - 19.04.1979, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 19.04.1979, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRIL 1979 Halldór Fjalldal — Minningarorð Fæddur 31. maí 1910. Dáinn 11. apríl 1979 Halldór Fjalldal var fæddur 31. maí 1910 að Melgraseyri við ísa- fjarðardjúp. Dáinn 11. apríl 1979 á Landspítalanum í Reykjavík. Foreldrar Halldórs voru Jón Halldórsson Fjalldal, fæddur 6. febrúar 1883 að Rauðumýri í Norður-ísafjarðarsýslu, og kona hans, Jóna, f. 1882 og d. 1932, Kristjánsdóttir bónda í Tungu í Nauteyrarhreppi Franzsonar. Jón hreppstjóri og gagnfræðingur frá Flensborg 1901. Búnaðarpróf frá Vinterlandbrugskolen í Ósló 1906. Bóndi á Melgraseyri, formaður yfirkjörstjórnar, búnaðarþrngs- fulltrúi og gegndi fjölda annarra trúnaðarstarfa. Hlaut heiðurs- verðlaun úr styrktarsjóði Chr. konungs IX. Voru foreldrar Jóns hreppstjóra Halldór Jónsson bóndi að Lauga- bóli í N-ísf. Halldórsson og kona hans Guðrún Þórðardóttir á Laugabóli Magnússonar. Halldór mikilsmetinn, hreppsnefndarodd- viti og búfræðingur frá búnaðar- skólanum í Stend, Noregi. Halldór bóndi að Rauðumýri um langan aldur. Kona hans Guðrún Jóns- dóttir frá Skarði á Skarðströnd. Hinn vestfirzki höfðingi Halldór Fjalldal, kaupmaður í Keflavík á Suðurnesjum, kvæntist fyrir 41 ári sinni góðu Og umhyggjusömu konu, frú Sigríði Skúladóttur tré- smiðs Skúlasonar í Keflavík, og bjuggu þau í Keflavík í ástríku hjónabandi um langan aldur. Börn þessara heiðurshjóna voru þessi: Skúli tæknifræðingur, kvæntur danskri konu og eru búsett í Danmörku, Guðrún hjúkrunarkona, Jóna hjúkrunar- kona og Oddur læknir við Land- spítalann. Þá rak Halldór ásamt konu sinni myndarlega verzlun um margra ára skeið í Keflavík, og mun hans góða kona hafa átt stóran þátt í þeim verzlunar- rekstri. Halldór Fjalldal var allsstaðar vel kynntur, enda höfðingi af vestfirzkum höfðingjaættum. Afkomandi hinna elstu Vatns- fjarðargoða, sem héldu Vatns- fjarðargoðorð mann fram af manni. Þá var hann kominn frá hinum gömlu Skarðverjum, Birni Þorleifssyni riddara og hirðstjóra og konu hans, Ólöfu ríku Lofts- dóttur á Skarði, Skarðströnd. Um tuttugu ára tímabil höfum við Halldór Fjalldal verið starfsfé- lagar á Keflavíkurflugvelli á vegum Varnarliðsins og störfuðum við þar saman sem fulltrúar starfsfólks Birgðastöðvar Varnar- liðsins með yfirmönnum Birgða- stöðvarinnar um margra ára skeið, enda kosnir árlega sem fulltrúar nefndar til viðræðna um ýmiss- konar vandamál varðandi Birgða- stöðvar Varnarliðsins við yfir- menn þess. Nefnd þessi er kölluð Employee Council. Nú þegar komið er að leiðarlok- um, og þessi góði vinur minn er allur, þá er komið að kveöjustund. Starfsfélagar hans hjá Varnar- liðinu, yfirmenn Varnarliðsins, hin góða kona hans og börn, ásamt fjölda ættingja og vina kveðja nú þennan ágæta íslending með trega í hjörtum sínum og biðja algóðan Guð að blessa minningu hans og heimkomu til æðri heimkynna. Halldór Fjalldal verður jarð- settur í Keflavík í Keflavíkur- kirkjugarði föstudaginn 20. apríl kl. 2. sd. Árni Ketilbjarnar frá Stykkishólmi. Halldór Fjalldal var sterkur kvistur af vestfirskum stofni, fæddur 31. maí . 1910 að Melgraseyri við Isafjarðardjúp og sannarlega lágu rætur hans til vesturs, svo oft talaði hann um sveit sína, sem hann unni alls hins bezta. Foreldrar hans voru merkishjónin Jóna Kristjánsdóttir frá Tungu í Nauteyrarhreppi og Jón Halldórsson Fjalldal frá Rauðamýr, þjóðkunnur fyrir störf sín að sveitarstjórnarmálum og framförum í landbúnaði. Jóns Fjalldals verður þó sennilega lengst minnst fyrir frumkvæði sitt að mennta- og menningarsetrinu á Reykjanesi við Djúp. Þeim hjónunum á Melgraseyri, Jónu og Jóni, varð tveggja barna auðið, Halldórs sem kvaddur verður frá Keflavíkurkirkju á morgun — föstudag, — og Gerðar sem búsett er í Reykjavík. Halldór Fjalldal hleypti heim- draganum snemma. Hugur hans leitaði út, eðli hans var að kynnast tilverunni, læra, hvort heldur var í skóla eða af sjálfu lífinu, starfinu, hvert sem það nú var á hverjum tíma. Halldór leitaði víða fanga, innan lands og utan, kynntist mönnum og málefnum, enda fór ekki hjá því, að svo skemmtinn maður og með þvílíka umræðugleði, yrði alls staðar aufúsugestur og heima- maður. VIÐ OSKUM GESTUM OÐALS syi* mmtf mm m mif 1 I kvöld mœta allir í sólskinsskapi Þaö er alltaf eitthvaö um aö vera í Óöali! 4 § kvöld l JP »•* r&t, Þriöjud. 24. apríl Franskur matur og drykkjarföng - skemmtiatriói - En á Suðurnesjum var segullinn, sem dró ungan manninn Halldór til sín og þar, í Keflavík, varð hann heimilisfastur er hann kvæntist Sigríði Skúladóttur sem lifir mann sinn, ásamt fjórum börnum þeirra, miklu myndar- og manndómsfólki, Börnin eru: Skúli tæknifræðingur í Odense, Jóna húsmóðir og hjúkrunarkona á Akureyri, Oddur læknir í Reykjavík, Guðrún hjúkrunarkona sem starfað hefur um skeið í Kaupmannahöfn en flyst nú til starfa hér á landi. Barnabörnin eru 7 og má með sanni segja að þau hafi öll verið augnayndi afa síns, enda var Halldór heitinn sérstaklega barn- góður og ekki langt að leita að barnshjarta þessa látna vinar, sem nú er kvaddur um sinn. Halldór og Sigríður reistu sér stórt hús í Keflavík, við Túngöt- una á heimaslóðum Sigríðar. Efnin voru ekki mikil, en þótt stórhugurinn væri fyrir hendi, fóru þau hyggilega að og húsið því reist í tveimur áfögnum eða svö. Þau lögðu bæði mikið að sér við vinnu, svo að framtíðarheimilið mætti verða hlýlegt og myndar- legt, enda myndarskapur hús- freyju slíkur að við hæfi er að geta hans sérstaklega hér. Þau hjónin stofnsettu snemma sinn eigin atvinnurekstur, verzlun, prjónastofu, allt lék í höndum Sigríðar, en ekki vantaði hvatningu og viðskiptaáhuga Hall- dórs. Hann starfaði þó oft fjarri verzluninni og síðastliðinn rúman aldarfjórðung var hann við störf hjá varnarliðinu. Halldór kunni einstaklega vel við sig í þeim störfum. Þar naut hann mikils trúnaðar að mak- leikum og var heiðraður af varnar- liðinu fyrir störf sín. Hann hefði því kosið að samstarfsfólki sínu þar og stjórnendum varnarliðsins væru færðar sérstakar þakkir nú að leiðarlokum, sem nú er gert. Halldór Fjalldal var alltaf hrókur alls fagnaðar og þurfti ekki fagnað til. Skemmtilegheit hans voru með einsdæmum. Sögumaður var hann slíkur, að smámunir voru í meðförum hans heil ævintýri. En gamansemi Halldórs meiddi engan, hún var græskulaus eins og allt hans líf. Halldór Fjalldal er nú allur. Litríku lífshlaupi lokið hér á jörð. Vinum hans er áreiðanlega söknuður í huga, en jafnframt þakklæti. Þegar ég, kona mín, börn og tengdabörn kveðjum vin okkar Halldór er okkur efst í huga þakklæti til vinar okkar fyrir allan hlýhuginn og kærleikann, sem Halldór var svo ríkur af. Það var alltaf lærdómsríkt, heilsu og gleði- gjafi að hitta Halldór Fjalldal. Sigríði og börnunum ásamt fjöl- skyldum þeirra biðjum við Guðs blessunar. Jóhann Petersen. BINGÓ BINGÓ í TEMPLARAHÖLLINNI, EIRÍKSGÖTU 5, KL. 8.30 í KVÖLD. 18 UMFERÐIR. VERÐMÆTI VINNINGA 188.000.-. SÍMI 20010. Strandgötu 1 — Hafnarfirði Diskotek pjí? W\ WMdVA FOSTUDAGUR wI&Ef3 DISK^TEK fyrir a 11 a aldurshópa Opið til kl. 1.00. Aldurstakmark 20 ár

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.