Morgunblaðið - 22.04.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.04.1979, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR 90. tbl. 66. árg. SUNNUDAGUR 22. APRÍL 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Washington. 21. apríl. Reuter. BANDARÍKIN og Sovétríkin von- ast til að ljúka gerð nýs samnings um takmörkun kjarnorkuvígbúnað- arins (SALT) í næstu viku og boða tii leiðtogafundar um miðjan næsta mánuð. Samningurinn verður lagð- ur fyrir öidungadeildina 1. júní og þá má búast við hörðum umræðum. Flest er vitað um efni samnings- ins, en leiðtogafundurinn verður líklega ekki haldinn í Bandaríkjun- um vegna heilsufars Leonid Brezhn- evs forseta. Líklega verður fundur- inn haldinn í Evrópu þar sem Brezhnev vill helzt ferðast með járnbrautum. Því má gera ráð fyrir, að leiðtoga- fundurinn verði haldinn í hlutlausri höfuðborg eins og Helsinki eða Genf. Samningurinn mun kveða á um að samningsaðilar ráði í mesta lagi yfir 2.250 eldflaugum sem draga heims- álfa á milli, langfleygum sprengju- flugvélum og kafbátaflaugum. Þar með yrðu Rússar að eyða um 150 slíkum vopnum, en Bandaríkjamenn gætu fjölgað sínum í umrætt há- mark. Hvorum tveggja yrði gert að gera engar nútímabreytingar á kjarnorkuvopnaforða sínum. Sadat ef nir til kosninga Kalró, 21. aprfl. Reuter BÚIST er við að Anwar Sadat Egyptalandsforscti rjúfi þing f dag til undirbúnings almennum kosn- ingum eftir að þjóðin hafði nær einróma lýst yfir stuðningi við friðarsamningana við ísrael og samþykkt ákveðnar stjórnarskrár- breytingar. Talið er að Sadat muni í dag einnig tilkynna hvenær kosningarn- ar skuli fara fram og þykir sennilegt að það verði í júní. Þetta verða fyrstu kosningar sem haldnar eru í landinu síðan 1950 undir fjölflokka- skipulagi. Núverandi stjórnmála- flokkar voru settir á stofn eftir kosningarnar 1976 og er talið að fleiri muni spretta upp áður en kosningarnar fara í hönd. Líbýsk innrás í Chad París, 21. apríL Reuter. FORSETINN í Mið-Afríkuríkinu Chad, Goukoni Oueddei, sakaði í dag Líbýumenn um innrás og skoraði á þjóðina að hervæðast þótt Líbýustjórn segði, að cnginn fótur væri fyrir því að hún hefði hafið innrás í landið. Frolinat-frelsisfylking Oueddeis naut stuðnings Líbýumanna þegar hann komst til valda fyrir einum mánuði eftir nokkrar byltingar og valdatogstreitu norðanmanna sem eru múhameðskir og sunnan- manna sem eru kristnir, en síðan hefur Oueddei forseti snúizt gegn líbýskum stuðningsmönnum sín- um og sakað þá um að ala á sundrungu í Chad. Stórfelldir bardagar geisa sam- kvæmt góðum heimildum 500 km innan við landamæri Chad þótt ekki hafi fengizt staðfest að Líbýu- menn séu viðriðnir bardagana. Útvarpið í höfuðborginni Ndjamena segir, að líka geisi bardagar í austurhluta Chad ná- lægt súdönsku landamærunum. Samkvæmt heimildum Kaíró- blaðsins Al-Ahram mun Sadat sjá til þess að þrjátíu af þrjú hundruÖ og sextíu sætum á þingi komi í hlut kvenna. Bændur og verkamenn fá um helming. Larsen sigraði Spassky Montreal, 21. aprfl, AP. DANSKI skákmaðurinn Bent Larsen mátaði Boris Spassky fyrrum heimsmeistara á skák- mótinu mikla í Montreal í dag og var það fyrsta vinnings- skák Larsens á mótinu. Sér- fræðingar segja að Larsen hafi tekið frumkvæðið í byrj- un skákarinnar og að Spassky hafi aldrei fengið rönd við reist. Þrátt fyrir sigurinn á Spassky er Larsen enp í neðsta sæti á mótinu. Ungverski skákmaðurinn Lajos Portisch leiðir enn mótið, en hann hefur hlotið 5'/2 vinning úr átta umferðum. Sovézku skákmennirnir Karpov og Tal eru í öðru sæti með 4% vinning og eiga þeir báðir biðskák óteflda. einu að smella af manni myndum. — Ljósm: Emilía. Síaukin hryðjuverk óyndisúrræði Amins Kakamega. Nairóbt, Kinoni, 21. aprfl, Rcuter — AP. ÚGANDÍSKIR flóttamenn sem náðu til Kenýa í dag sögðu, að hermenn hliðhollir Idi Amin hefðu í síðustu viku myrt allt að 1.000 óbreytta borgara í austurhluta Uganda. Auk þess hefðu þeir rænt og ruplað í stórum stfl og nauðgað öllum konum sem orðið hefðu á vegi þeirra. Flóttamennirnir sögðu, að ódæðis- verk hermanna Amins hefðu aukist mjög upp á síðkastið og hefðu t.d. um 700 karlar, konur og börn á Bukedi- og Budama-svæðunum verið myrt frá því um síðustu helgi. Hermennirnir heyra flestir til Kakwa-kynþættinum, sem býr í norðurhluta Uganda, en af þeim ættbálki er Amin sjálfur. Einn flóttamanna sagði við fréttamenn: „Þeir virðast ákveðnir í að halda áfram morðum sínum þar til þá þrýtur byssukúlur. Þeir vita að þeir hafa tapað styrjöldinni." Herir Tanzaníumanna og uppreisnarmanna hafa nú helming Uganda á valdi sinu, en leifar af her og leynilögreglu Amins láta enn til Mondale í Hollandi Haag, 21. aprfl, AP-Reuter. WALTER Mondale varaforseti Bandaríkjanna kom í morgun f opinberá heimsókn til Hollands, síðasta landsins sem hann kemur til í þessari 12-daga ferð sinni til Evrópu. Mondale kom frá Helsinki en þar átti hann m.a. viðræður við Uhro Kekkonen forseta og Kalevi Sorsa forsætisráðherra. Áður hafði Mondale haft viðdvöl á íslandi, Noregi, Danmörku og Svíþjóð. Heimsókn Mondales til Hollands er talin bera vott um vaxandi sam- skipti landanna tveggja á stjórn- málasviðinu. Háttsettir Bandaríkja- menn hafa ekki verið gestir í Hol- landi, ef undanskilin er heimsókn Henrys Kissingers þáverandi utan- ríkisráðherra árið 1976. Þar á undan kom Lyndon Johnson þáverandi varaforseti árið 1963. Við komuna til Hollands sagði Mondale blaðamönnum, að hann ptundi einkum ræða hagsmunamál NATO við hollenzka ráðamenn, en einnig önnur mikilvæg alþjóðamál. Talið er að endurnýjun vopnabúnað- ar NATO-herja í Evrópu verði mikil- vægt mál í viðræðunum. Einkum leggja Bandaríkjamenn áherzlu á að nýjum og fullkomnum kjarnorku- vopnum verði í auknum mæli komið fyrir í Evrópulöndum. Málið er víða hápólitískt, en nú þegar hafa Vest- ur-Þjóðverjar lýst sig reiðubúna til að taka við vopnum af þessu tagi, með því skilyrði þó að önnur NATO-ríki í Evrópu geri slíkt hið sama. sín taka í austur- og norðurhluta landins. Innrásarherirnir ná þó nýj- um svæðum jafnt og þétt undir sig, en eríiðir birgðaflutningar draga mjög úr yfirferð þeirra. Flóttamenn hafa hvatt innrásarherina til að flýta töku alls landsins vegna hryðjuverka sveita Amins. Talið er að Amin hafist við í Jinja fyrir norðaustan Kampala, en allt er þó á huldu í þeim efnum. Hermenn hans hafa komið sér fyrir með skriðdreka, brynvarða vagna og önnur þungavopn við Owen-orkuver- ið við Jinja, en um stíflu orkuversins liggur vegurinn til Jinja. I Owen-orkuverinu er framleidd öll raforka Uganda og um 15 af hundraði eþeirrar raforku sem Kenýabúar nota. Tanzaníuher skýrði frá því í morgun, að búist væri við því að Jinja félli í hendur „frelsisherjun- um“ um helgina. Beðið er með eftirvæntingu frétta af afdrifum orkuversins, því taki herir Amins upp á því að eyðileggja það mun efnahagur Uganda bíða mikið tjón. Diplómatar í Kenýa sögðu í dag, að stjórnvöld í Nairóbí myndu að öllum líkindum senda aftur til Uganda embættismenn Amins sem flúið hafa til Kenýa að undanförnu. Meðal þeirra er brezkur ráðgjafi Amins, majór Bob Astles. Samningar hafa náðst um SALT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.