Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 1
48 SIÐUR 95. tbl. 66. árg. LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Bandaríkj amenn loka kjamaofnum Washington, 27. aprfl. Reuter. ÖLLUM KJARNAOFNUM svipuðum þeim sem bilaði í Harrisburg í Pennsylvaníu verður lokað og þeim breytt að sögn bandarísku kjarnorkueftirlitsnefndarinnar (NRC) í dag. Nefndin segir að öll fyrirtæki sem reki svona kjarnaofna hafi samþykkt þessa ráðstöfun. Harold Denton, starfsmaður nefndarinnar, kvaðst telja að hægt væri að gera breytingarnar á tæpum mánuði þótt sumar gætu tekið lengri tíma. Hér er um sjö kjarnaofna að ræða og samkvæmt áreiðanlegum heimildum verður hægt að taka þá í Ginzburg látinn laus Washington, 27. aprfl. AP. FIMM pólitískir og trúar-and- ófsmenn voru látnir lausir úr fangelsi í Sovétríkjunum í dag og flogið var með þá til New York þar sem þeim verður sleppt í skiptum fyrir tvo Rússa sem hafa verið dæmdir fyrir njósnir í Bandaríkjunum að sögn talsmanns Hvíta hússins. Meðal Rússanna er Alexander Ginzburg, einn kunnasti andófs- maður Sovétríkjanna. Sovézku njósnararnir sem verða látnir lausir eru Valdik Enger og Rudolf Chernayev sem voru dæmdir fyrir tilraun til að kaupa skjöl um hernað gegn kafbátum. notkun áður en aðalorkutími sum- arsins hefst. NRC hefur setið á fundum í þrjá daga í Washington um málið. Eitt fyrirtækjanna, Duke Power Co. í South Carolina, samþykkti að loka einum kjarnaofnanna á morgun og tveimur öðrum í næsta mánuði. Þar með getur fyrirtækið starfrækt að minnsta kosti einn kjarnaofn ef breytingunum lýkur tímanlega. Breytingarnar verða gerðar á neyðartækjum og kælikerfum og þjálfun starfsfólks verður tekin til endurskoðunar. Upphaflega vakti ugg að ekkert benti til þess hvenær væri hægt að taka kjarnaofnana aftur í notkun ef þeim væri breytt. Ekki var heldur vitað hvaða áhrif lokunin hefði á rafmagnsframleiðslu á tím- um dvínandi olíubirgða. En mestu máli þótti skipta að koma í veg fyrir að slysið í Pennsylvaníu 28. marz endurtæki sig. Misjafn árangnr á hafréttarráðstefnu Genf, 27. aprfl. AP NÍUNDA fundi hafréttarráðstefnu SÞ síðan 1973 lauk í dag, nýr fundur var boðaður í New York 19. júlí, aðallega um vinnslu málma á hafsbotni, og frá því var skýrt að góður árangur hefði náðst á mörgum sviðum en lakari á öðrum. Fundurinn stóð í fimm vikur og á honum náðu fulltrúar 139 ríkja samkomulagi á breiðum grundvelli um baráttu gegn mengun á úthöf- unum og stofnun hafrannsókna- stöðva í þróunarlöndunum og málamiðlunarsamkomulag tókst um að landluktum ríkjum verði veittur aðgangur að umframfisk- stofnum í efnahagslögsögu strand- ríkja. Eins og á fyrri fundum sögðu fulltrúar að áfram hefði miðað í því starfi að skýra textann um vinnslu málma á hafsbotni en viðurkenndu að mikilvæg atriði væru ennþá óleyst. Nýr texti sem unnið hefur verið að á lokuðum nefndarfundum og hefur ekki verið birtur verður hafður til grundvallar á fundinum í New York. Textinn er fjórða útgáfa tæplega 400 ákvæða sem ná til nánast allra hliða nýtingar Skaut á hóp fólks San Antonlo, Texaa, 27. aprfl. Reuter. VOPNAÐUR maður skaut á að minnsta kosti 18 manns í skrúð- göngu í San Antonio, Texas, í dag áður en lögregla skaut hann til bana. 2 aðrir drápust, 27 særðust. Fyrst í stað var ekki vitað hvort fleiri en vopnaði maðurinn hefðu beðið bana. Meðal þeirra sem hann skaut á voru að minnsta kosti sjö börn og fjórir lögreglumenn. auðlinúa hafsins utan efnahags- lögsögu, einkum málmvinnslu á hafsbotni. Forseti ráðstefnunnar, Hamil- ton Shirley Amarasinghe, minnti á það á lokafundinum í dag að þótt samkomulag næðist um texta jafngilti það ekki formlegum stuðningi nokkurrar ríkisstjórnar fyrr en fullkominn samningur hefði verið samþykktur. Fulltrúi Bandaríkjanna, Elliot L. Richardson, sagði að fulltrúarn- ir gætu verið stoltir af tíma- móta-samkomulagi sem skuld- byndi allar þjóðir til að vernda umhverfi hafsins. En hann sagði að þótt „uppörvandi árangur" hefði náðst á nokkrum sviðum hefði orðið afturför á nokkrum öðrum sviðum. Húsavík Vorið er líka komið á hafísslóðir, að minnsta kosti í þennan kyrrláta bryggjukrók norður á Húsavík. Ljósmynd: Abbi. Hermenn Idi Amins skutu á mannfiölda Kampala, 27. aprfl. Reuter. IIERMENN hliðhollir Idi Amin þóttust vera hermenn nýju stjórnarinnr í Uganda í bæ nálægt landamærum Kenya og skutu á mannfjölda sem fagnaði þeim að sögn sjónar- votta að f jöldamorðinu í dag. Menn sem lifðu af fjölda- morðið segja að hermenn sem hörfuðu um Tororo fyrir tveimur vikum sögðust vera úr Þjóðfrelsisher Uganda og sögðu starfsmönnum bæjarins að boða til útifundar. Síðan létu þeir kúlum rigna úr vélbyssum og rifflum á fagnandi mannfjölda sem kom út á göturnar. Þetta fjöldamorð er talið eitt mesta ódæðisverkið sem her- menn Amins hafi drýgt á flóttanum þótt tölur liggi ekki fyrir um manntjón. Herlið Tanzaníumanna og þjóðfrelsisherinn voru í dag í 65 km fjarlægð frá landamærum Kenya, sóttu til Tororo, og mættu lítilli mótspyrnu frá leifum hers Amins. Her- mennirnir hafa náð á sitt vald aðalbirgðastöð Uganda í Maga Maga og hrísgrjónarræktar- landi þar sem Kínverjar hafa lagt fram aðstoð, nálægt þorp- inu Busitema. Dómsmálaráðherra Uganda, Wadade Mabudere, sagði í dag að yfirvöld í Kenya veittu nýju stjórninni aðstoð með því að handtaka ráðherra og starfs- menn leyniþjónustu Amins sem flýðu til Kenya. Yfirvöldin hafa lagt hald á um 200 bíla sem embættismenn Amins hafa haft með sér. Undirbúningur er hafinn að framsali þessara manna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.