Morgunblaðið - 16.05.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.05.1979, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR 109. tbl. 66. árg. MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. landsins börnum þunga skulda- bagga um langa framtíö. I stefnuræðu drottningar, sem samin var af ráðherrum hinnar nýju stjórnar, kom fátt á óvart. Þar 80 bílar í árekstri Rotterdam. 15. maí. Reuter. ÞRÍR fórust og 26 slösuðust, þeg- ar 80 bílar rákust saman á Haringvliet-brúnni í Ilollandi í dag. Slysið varð í niðaþoku, þegar langferðabíll rakst á hreyfingar- lausan sendiferðabíl. Síðan skullu hinir bílarnir 78 ýmist aftan eða framan á með fyrrgreindum afleið- ingum. var drepið á öll helztu kosningamál íhaldsflokksins og hvernig þeim skyldi nú komið í framkvæmd. Stjórnin hyggst auka fjárframlög til varnarmála, lækka tekjuskatta og reyna að hafa hemil á valdbeit- ingu verkalýðsfélaga. Lögð verður áherzla á að reyna að binda enda á Rhódesíudeiluna á grundvelli „lýð- ræðislegra óska fólksins þar í landi“, en það orðalag er talið merkja að stjórnin hafi nokkra samúð með væntanlegri stjórn blökkumanna undir forsæti Muzorewas biskups. Jafnframt sagði í ræðunni að stjórnin hygðist endurskoða afstöðu Bretlands til hins sameiginlega evrópska gjald- eyrisbandalags, en Bretar hafa ekki átt formlega aðild að því til þessa. Umræður um stefnuræðu drottn- ingar munu standa í sex daga. Glfzabet Bretadrottning flytur stefnuræðu hinnar nýju ríkisstjórnar í Bretlandi í gær. Við hlið hennar er Philip maður hennar. Ræðan var flutt þingheimi í húsakynnum brezku lávarðadeildarinnar. (Símamynd AP). London. 15. maí. Reuter. AP. MARGARET Thatcher, hinn nýi forsætisráðherra Bretlands, og Callaghan fráfarandi forsætisráA herra. háðu sitt fyrsta návígi í brezka þinginu f dag að lokinni stefnura>ðu Elízabctar drottning- ar. þar sem lýst var ráðagerðum hinnar nýju brezku stjórnar. Callaghan sakaði stjórnina um að vilja koma á eigingjörnu þjóðfélagi, og varaði hina nýju valdhafa við því, að draumaþjóðfélag það, sem þeir vildu koma, á ætti langt í land. Sagði Callaghan að stjórnin hefði nægan þingstyrk til að gera allt sem hún kærði sig um, en vafasamt væri hvort hún hefði hæfileika til að koma góðum málum fram. Thatcher svaraði Callaghan fullum hálsi við mikinn fögnuð samflokks- manna hennar í þinginu og sakaði Callaghan um að hafa bundið Thorpe- réttarhöldin: Aðalvitnið áður upp- víst að ósannindum London. 15. ma(. Reuter. AP. AÐALVITNI ákæruvaldsins í málinu gegn Jercmy Thorpe, fyrrum leiðtoga Frjálslynda flokksins f Bretlandi. maður að nafni Pcter Bessell, sem einnig er fyrrum þingmaður Frjáls- lynda flokksins, játaði í dag að hann hefði á ferli sfnum verið staðinn að lygum og svikum og hefði flúið til Bandarfkjanna undan iánadrottnum sfnum. Engu að síður hélt Bessell fast við framburð sinn þess efnis, að Thorpe hefði í sín eyru lagt á ráðin um að sýningarmannin- um Norman Scott yrði banað. svo að hann kæmi ekki upp um kynvillusamband þeirra Thorpes. Bessell játaði einnig í réttin- um í dag, þegar lögfræðingur Thorpes spurði hann út í það, að hann hefði einu sinni áður borið á Thorpe að hafa lagt á ráðin um mannsmorð. Kom þessi vitnis- burður öllum mjög á óvart í þéttsetnum réttarsalnum í Old Bailey dómhúsinu í dag. Lög- fræðingur Thorpes hæddist að framburði Bessells f.vrr og nú og gerði sitt ítrasta til að gera hann ótrúlegan. Bessell býr nú í Kaliforníu, en kom gagngert til Bretlands til að bera vitni í réttarhöldunum yfir Thorpe. Honum var að launum heitið uppgjöf saka fyrir hvað- eina, sem hann kynni að hafa til saka unnið og upplýstist í réttar- höldunum. Bessell viðurkenndi í yfirheyrslum í dag, að höfundar- laun hans fyrir bók, sem hann er að skrifa um mál Thorpes, myndu minnka um helming yrðu Thorpe og hinir sakborningarnir þrír saklausir fundnir. Metverð á gulli London. 15. maf. AP. Reuter. GULL hækkaði í 255,50 dollara hver únsa á markaði í dag og hefur verðið aldrei verið hærra. Gullkaupmenn telja að þessi hækkun stafi af ótta manna við hækkandi olíuverð og lækkandi gengi Bandaríkjadollars. Einnig kom minnkandi framboð á gulli við sögu. HERRAMANNSMATUR. Rúrik Haraldsson fær sér rauðmaga og signa grásleppu í soðið vestur á Granda og kann trúlegast vel að meta þetta árstíðarbundna hnossgæti. Ljðem. Emiita. „íransher mun berjast með Palestínuaröbum gegn ísrael” Teheran. 15. ma(. AP. Reuter. HER írans og liðsmenn úr íslamska byltingarliðinu munu berjast við hlið Palestínumanna ef örf krefur í baráttu þeirra við sraelsmenn, að því cr haft var eftir Khomeini trúarleiðtoga á mjög fjölmennum útifundi í Teheran í dag. Talsmaður Khomeinis, Sadeq Khalkhali, sem einnig er yfirmaður fslömsku byltingardómstólanna, las ræðu frá Khomeini. þar sem m.a. sagði að á sama hátt og íranskeisara var steypt af stóli muni Menachem Begin, Moshe Dayan og öðrum ísraelsmönnum vikið frá völdum f Palestínu. Ekkert var frá því skýrt með hvaða hætti eða hvenær hermenn frá íran myndu liðsinna Palestfnuaröbum. Khomeini lét þess getið í ræðunni að ef hann félli í bardaga fyrir Palestínuaraba, vildi hann láta greftra sig í Palestínu. „Palestínumenn hafa ekki gleymt lyklinum að heimkynnum sínurn," sagði Khomeini, „ég þrái að taka þann lykil og fara til Palestínu og opna hlið Nazaret". Khomeini sagði sömuleiðis í ræðunni, að keisarinn og fjölskylda hans væru réttdræp hvar sem til þeirra næðist, eins og byltingar- dómstóll hefði dæmt, og gæti engin ríkisstjórn handtekið þann, sem framfylgdi úrskurði byltingardóm- stólsins. í Teheran bar það annars helzt til tíðinda í dag, að blaðamenn við stærsta blað í borginni lögðu niður vinnu til að mótmæla íhlutun byltingarmanna í störf þeirra og ritskoðun. Stuðningsmenn byltingarsinna í röðum starfs- manna blaðsins gáfu engu að síður út blaðið, en í því var ekki annað efni en ákall frá Khomeini um heimsbyltingu múhameðstrúar- manna. Þrír fyrrum yfirmenn í írönsku leynilögreglunni, Savak, voru í morgun skotnir til bana af aftöku- sveit byltingardómstóls og hafa þá a.m.k. 209 menn látið lifið í póli- tískum aftökum frá því stjórn keisarans var steypt í febrúar sl. Stefnuræða Bretadrottningar: Aukin samúð með stjóm Muzorewas íRhódesíu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.