Morgunblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1979 Alþýðubandalagsráðherrarnir bóka mótmæli á rikisstjórnarfundi: „F orsendur stjórnar- stefnunnar brostnar” EKKERT var í Kær ákveðið innan ríkisstjórnarinnar um að- Kerðir í kjaramálum ok sam- kvæmt ummælum Majínúsar H. MaKnússonar. heilbriífðis- ok tryKKÍnKamálaráðherra, verður ekkert af slíkum aðjíerðum að frétta allra næstu dajfa. Ve>?na þess samstöðuleysis. sem verið hefur í þessum málum innan ríkisstjórnarinnar, létu ráðherr- ar Alþýðubandala>?sins gera bók- un á ríkisstjórnarfundi í gær, þar sem þeir segja að stefna rfkisstjórnarinnar sé brostin — biðlund almennu verkalýðsfélag- anna sé nú á þrotum. Bókun Alþýðubandalagsráð- herranna er eftirfarandi: „Ráðherrar Alþýðubandalags- ins vilja minna á, að við myndun þessarar ríkisstjórnar var að því stefnt, að ekki yrðu almennar grunnkaupshækkanir á fyrsta starfsári stjórnarinnar, meðan verið væri að draga úr verðbólgu. Þessi stefnumörkun var þá reist á þeirri forsendu, að láglaunafólk drægist ekki aftur úr í þróun launamála og hámark eða þak væri sett á vísitölubætur til þeirra, sem eru ofarlega í launa- stiganum. Eftir atburði seinustu mánaða eru þessar forsendur brostnar og við því að búast, að biðlund almennu verkalýðsfélaganna sé á þrotum. Alþýðubandalagið lagði fram tillögu í ríkisstjórninni 10. maí s.l., þar sem lagt er til: 1) að vísitöluþak komi á laun yfir 400 þús. kr., 2) að lögfest verði 3% almenn launahækkun til láglauna- manna, sem ekki eiga hana vísa samkvæmt samningum, 3) að þak sé sett á verðlagshækk- anir, 4) að ákveðið verði nýtt skattþrep á hátekjur. Þessi atriði hefði átt að lögfesta, áður en Alþingi var slitið, en á það var ekki fallizt. Nú um mánaðamótin fær há- launamaðurinn fjórfaldar, jafnvel fimmfaldar vísitölubætur á við láglaunafólkið og starfsmenn ríkisins fá 3% kauphækkun. Þessi þróun er með öllu óverjandi og hlýtur að vekja upp miklar launa- kröfur almennt á vinnumarkaði. Ráðherrar Alþýðubandalagsins ítreka nauðsyn þess, að gripið verði í taumana, m.a. með setn- ingu bráðabirgðalaga, og komið sé í veg fyrir þá vaxandi mismunun á vinnumarkaði, sem bersýnilega er í uppsiglingu og hlýtur að leiða af sér almennar kjaradeilur á næstu vikum og mánuðum, ef ekkert er að gert.“ Vilmundur sýknað- ur af kæru Jósafats í GÆR var kveðinn upp á bæjarþingi Reykjavíkur dómur í máli Jósafats Arngrímssonar kaupmanns í Keflavfk gegn Vilmundi Gylfasyni alþingismanni vegna meintra ærumeiðandi ummæla Vilmundar um Jósafat í Kastljóssþætti í sjónvarpinu 20. desember 1974. Var Vilmundur sýknaður og málskostnaður felldur niður. Dóminn kvað upp Emil Ágústsson borgardómari. Þegar umræddur Kastljóssþátt- Niðurstaða dómsins varð sú að ur var fluttur var Vilmundur Vilmundur hefði í umræddum menntaskólakennari. Hann var spyrjandi í þættinum og sátu þar fyrir svörum Baldur Möller ráðu- neytisstjóri í dómsmálaráðuneyt- inu og Jón Thors deildarstjóri í sama ráðuneyti. Nafn Jósafats var aldrei nefnt á nafn í þættinum en hann taldi að ekki hefði farið milli mála að Viimundur hefði verið að spyrja þar um mál hans. Höfðaði Jósafat mál á hendur Vilmundi og krafðist þess í fyrsta lagi og ákveðin ummæli í átta liðum yrðu dæmd dauð og ómerk, í öðru lagi að Vilmundur yrði dæmdur í refsingu samkvæmt lögum og í þriðja lagi krafðist hann bóta að upphæð ein milljón króna. þætti ekki farið út fyrir þau mörk að taka bæri til greina kröfur Jósafats. Spurningar Vilmundar hefðu fyrst og fremst falið í sér gagnrýni á dómsmálayfirvöld og hefði hann nefnt raunhæf atvik til þess að leggja áherzlu á þessa gagnrýni en hann hefði engin nöfn nefnt í því sambandi. Jósafat hafi hlotið dóm í Hæstarétti, sem hann hafi ekki afplánað og þegar þátturinn var fluttur var komin kæra á hendur honum fyrir tékka- misferli. Benedikt Blöndal hrl. flutti mál- ið fyrir Vilmund en Róbert Árni Hreiðarsson flutti málið fyrir Jósafat og var þetta prófmál hans. Ljósm.. Emilía. Auður Elísabet eftir krýninguna — og hún brosti. Auður Elísabet „ungfrú Hollywood” ÞAÐ var mikið um dýrðir í Hollywood á mánudagskvöldið. Þá fór fram krýning drottning- ar staðarins — ungfrú Holly- wood var kjörin. Og fyrir val- inu varð 21 árs gömul af- greiðslustúlka, Auður Elísabet Guðmundsdóttir. Hún hlýtur að launum draumaferð til há- borgar kvikmyndanna, Holly- wood. Alls tóku sex stúlkur þátt í keppninni. Auk Auðar voru það Edda Björnsdóttir, Unnur Ingólfsdóttir, Ingunn Egilsdóttir, Bryndís Árnadótt- ir Scheving og Hafdís Alfreðs- dóttir. Tímaritið Samúel, Flug- leiðir og Hollywood stóðu fyrir keppninni. Mönnunum sleppt í gær MÖNNUNUM tveimur sem hand- teknir höfðu verið vegna gruns um aðild að nauðgunarmálum var sleppt í gærkvöld eftir yfirhcyrsl- ur. Hafði í öðru tilvikinu verið játuð nauðgun og var mál það rannsakað áfram I gær, en ekki þótti ástæða til frekara varðhalds. Að sögn Arnars Guðmundssonar hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins var erfiðara um sannanir í hinu tilvik- inu, en það gerðist aðfararnótt sunnudags í Kópavogi. Við rannsókn komu í ljós meiðsli á konunni og talið að henni hefði verið nauðgað. Frekari rannsóknir eiga eftir að fara fram, en báðum mönnunum hefur verið sleppt. Guðmundur og Helgi í 2. sæti ÁTTUNDA umferð svæðamóts- ins í Luzern var tefld í gær og gerði þá Helgi Ólafsson jafntefli við Ibersohn frá fsrael, Margeir Pétursson jafntefli við Hurme frá Finnlandi. en Guðmundur tapaði fyrir Wedberg frá Svíþjóð. í a-riðli er þá Hiibner efstur með 5'h vinning og biðskák, Guðmund- ur í öðru sæti með 5 vinninga og Wedberg með 4'Æ vinning og í b-riðli er Grunfeld frá Israel með 6 vinninga, Helgi og Hái frá Dan- mörku með 4 'Æ og Karlsson frá Svíþjóð með 4 og biðskák. Níunda umferð verður tefld í dag og teflir Guðmundur við Soof frá Vestur- Þýzkalandi, Margeir við Wedberg og Helgi við Tachmann frá Vest- ur-Þýzkalandi. Fjallvegirn- ir að opnast VEGIR eru víðast hvar færir og er hafinn mokstur á Möðrudalsöræf- um, Þorskafjarðarheiði og Vaðla- heiði að sögn vegagerðarmanna. Mikil aurbleyta er þó á vegum og öxulþungi takmarkaður. r Engin samstaða, segir Tíminn—Olaíur á móti, segir Þjóðviljinn — Aðgerðir nánast tilbúnar,segir Alþýðublaðið Þrjú stuðningsblöð núverandi ríkisstjórnar fjalla um afstöðu hennar til kjaramála í fréttum sfnum í gær. Tíminn segir í forsíðufrétt. að engin samstaða hafi enn náðst um aðgerðir og segir að það megi fyrst og fremst skrifa á reikning Alþýðubanda- lagsins. Þjóðviljinn segir í forsíðufrétt í gær. að Ólafur Jóhannesson. forsætisráðherra hafi hafnað því að gripið yrði til nokkurra aðgerða. Alþýðublaðið skýrir hins vegar frá því í forsíðufrétt í gær. að ríkisstjórnin sé „nánast tilbúin með aðgerðir í launamálum. Alþýðuhandalagsmenn hlaupa út undan sér I forsíðufrétt Tímans í gær segir m.a.: „Samkvæmt öðrum heimild- um blaðsins, mun samstöðu og aðgerðaleysi stjórnarinnar fyrst og fremst mega skrifa á reikning Alþýðubandalagsins. Þeir hlaupa alltaf út undan sér, ef minnst er á raunhæfar aðgerðir til að draga úr verðbólgu en slá þess í stað um sig með stórum yfirlýsingum um vísi- töluþak og skatta á hátekjumenn. Vísitöluþak við 400 þúsund kr. mánaðarlaun gerir að flestra dómi ákaflega lítið gagn, nema kannski „móraiskt". Eríitt að vita hvað kratar vilja Tíminn segir ennfremur í sömu frétt: „Einnig hefur gengið erfið- iega að komast að því hvað krat- arnir vilja, þar sem tveir af ráð- herrum þeirra segja sitt hvor og hinn þriðji leggur sem minnst til málanna.“ Ólafur á móti Stpingrími sojíir Þjóðviljinn Þjóðviljinn segir í forsíðufrétt í gær: „Eftir því, sem næst verður komizt mun Ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra hafa hafnað því að gripið yrði til nokkurra sér- stakra aðgerða í kjara- og verð- lagsmálum fyrir 1. júní þrátt fyrir tillögu m.a. Steingríms Hermanns- sonar, flokksformanns þar um.“ Þjóðviljinn segir að ráðherra- nefndin hafi komið sér saman um bráðabirgðalög um vísitöluþak en síöan segir blaðið t þessari frétt: „Ráðherranefndin mætti því óvæntri andstöðu frá ráðherrum Framsóknar- og Alþýðuflokks í ríkisstjórninni". Kröfugerð láglaunahópa Þjóðviljinn segir í sömu frétt: „Afleiðingarnar af því að vísitölu- bætur fara upp allan launastigann 1. júní eru m.a. þær, að þeir launahæstu fá t.d. tíu sinnum meiri verðbætur en þeir launa- lægstu. Ljóst er einnig að siík hækkun láglauna mun kalla á eindregna kröfugerð fyrir hönd láglaunahópa þegar á næstu vik- um.“ Verðhækkun á búvöru Loks segir í þessari forsíðufrétt DJOÐVIUINN Ólaíur vill láta reka ! SgngBg^ Sflfi ikiRstiórnarfundur 1 gærmorgun: \ Mwmm Engin samstaða næst enn um aðgerðir1 aae 252 u þuft t*» w|(þi .sirmfirimur ar»ll Kram»<*n«rm«in IrgKM «■' ut »1 <on f» rr rk» »h»r<lu » »6 þ« Rdííistjórníirninast tilbúm með i aðger&ir í launamálum: „UNURNARÆrT« hÐ SKYRRST I 7 ? — segir Kjartan lóhannsson „paS er ekkert algreítr alþýöu blaöíö Þjóðviljans: „Þessi afstaða vekur enn meiri furðu vegna þess að nú um mánaðamótin koma fram veru- legar verðhækkanir á land- búnaðarvörum. Ofan á það bætist að tillaga hefur verið flutt um það í ríkisstjórninni að draga svo úr niðurgreiðslum að hækkunin yrði mjög tilfinnanleg fyrir launamenn og bætti sölutregðu ofan á offram- leiðsluvandann í landbúnaðinum. „Nánast tilbúin með aðgerðir í launamálum“ Á forsíðu Alþýðublaðsins kveður við annan tón en í Tímanum og Þjóðviljanum. Þar segir í fyrir- sögn: „Ríkisstjórnin er nánast tilbúin með aðgerðir í launamál- um“. I fréttinni er samtal við Kjartan Jóhannsson, sjávarútvegs- ráðherra og um það segir svo í frétt blaðsins: „Kjartan Jóhanns- son vildi ekki tjá sig um það í hvaða formi eða með hvaða hætti ráðstafanir ríkisstjórnarinnar yrðu. „Við höfum skipst á skoðun- um innan ríkisstjórnarinnar og það er annar ríkisstjórnarfundur á morgun (í dag) og þá ættu línurnar að skýrast", sagði Kjartan. Alþýðublaðið spurði Kjartan að því, hvort skoðanamunur væri mikill meðal samstarfsflokkanna þriggja um aðgerðir í launamálum. „Það eru mismunandi sjónarmið uppi, en ég held, að menn hafi ekki læst sig að ráði“, sagði Kjartan Jóhannsson að lokum.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.