Morgunblaðið - 15.06.1979, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 15.06.1979, Blaðsíða 9
RguNBLAÐIÐ, föstudagur 15. JUNI1979 41 tekið fram um Kára, að hann hafi stokkið jafnfætis og hafi því gert betur. (Kári stökk hér atlandsmót- inu 1911. Hann stökk að vísu jafnfætis — sem væri ógilt nú — en hann tók a.m.k. eitt tilhopp á undan stökkinu). Stangarstökk vann Jakob Kristjánsson prentari á 2.46 m. 17. júní er leikmót Norðlend- ingafjórðungs háð á Húsavík. Keppt er í 5 greinum frj.iþrótta- greinum, auk glímu, sunds, poka- hlaups o.fl. — 100 m. hlaup Har. Ólafsson og Jakob Einarsson voru jafnir á 13,4 sek. Hlupu tvisvar og urðu í bæði skiptin jafnir (!) Langstökk vann jakob Einarsson á 5.40 m. — Ekki er vitað um aðstæður á þessum mótum Norð- lendinga, veðurfar eða þess hátt- ar, en afrek virðast standast nokkurn veginn samanburð við afrek Sunnlendinganna; talsvert lakari í spretthlaupunum, en dá- lítið betri í stökkunum. Þolhlaup eru engin hjá Norðlendingunum og sameigninlegt er hjá báðum, að ekki er keppt í neinum köstum fyrr en á landsmóti U.m.f.í: 1911. í sambandi við fábreytni Akureyr- armótsins 1911 má geta þess, að glíman um Grettisbeltið og leik- mót U.m.f.í var háð í Reykjavík um þetta leyti, og ýmsir beztu íþróttamenn Norðlendinga höfðu farið til þeirrar keppni; hefir þetta að líkindum dregið úr fjölbreytni mótsins — og svo hitt einnig, að ýmsir af vöskustu íþróttamönnum Norðlendinga voru þá utanlands að sýna ísl. glímuna í ýmsum löndum Evrópu. En eins og hér sunnanlands voru glímumenn þar líka þátttakendur í frjálsum íþróttum. Ég hefi þekkt ýmsa af íþróttamönnum Norðlendinga frá þessum árum, þ.atm. Jakob Kristjánsson prentara. Hann var ágætur fimleika og glímumaður og vann oft í flokkaglímum á Ak., fn hann hafði líka mikinn áhuga og þekkingu atfrjálsum íþróttum. Þekkingu sína hafði hann að mestu eftir dönsku íþróttabókinni, sem áður er getið, og hafði ágæta þekkingu á því, sem sú bók kenndi í sumum greinum, einkum göngu. Mun óhætt að fullyrða, að þekking íþróttamanna á frjálsum íþróttum norðanlands hafi verið af sömu eða líkum rótum runnin og hér Jón Halldórsson sunnanlands og hafi því tilhögun öll og leikreglur verið líkar. Að síðustu skulu hér tilfærð afrek íþróttamanna í frjálsíþróttagreinum þeim, sem keppt var í á Leikmóti U.M.F.Í. 1911 — fyrsta landsmótinu. 100 m. hlaup: 1. Kristinn Pét- ursson 11,8 sek., 2. Geir Jón Jónsson 12,2 sek. 3 Sigurjón Pét- ursson 12,4 sek. 402% m. hlaup: lSigurjón Pét- ursson 61,0 sek., 2. Geir Jón Jónsson 64,0 sek., 3. Magnús Tóm- asson 64,5 sek. 804% m hlaup: 1. Sigurjón Pétursson, 2:19,0 mín. 2. Magnús Tómasson 2:21,0 mín. 3. ólafur Sveinsson. Mfluhlaup (7500 m): 1. Guðm- undur Jónsson 28:02,4 mín. 2. Einar Pétursson 28:21,4 mín. 3. Jónas Snæbjörnsson 29:03,0 mín. 4. Helgi Tómasson. 110 m grindahlaup: 1. Kristinn Pétursson 21,2 sek. 2. Magnús Ármannsson 21,6 sek. 3. Sigurjón Pétursson 23,4 sek. 804% m kappganga: 1. Sigurjón Pétursson 4:15,0 mín. 2. Helgi Þorkelsson 4:16,0 mín. 3. Kári Arngrímsson. Hástökk: 1. Magnús Ármanns- son 1,48 m. 2. Kristinn Pétursson l, 44 m. 3. Kári Arngrímsson. Langstökk: Kristinn Pétursson 5,37 m. 2. Sigurjón Pétursson 5,26 m. 3. Kári Arngrímsson 5,22 m. Stangarstökk: Ben. G. Wáge, 2,28 m. 2. Kjartan Ólafsson 2,00 m. Spjótkast: 1. Karl Ryden 29,40 m. 2. Ólafur Sveinsson 28,75 m. 3. Magnús Tómasson 28,62. Kúluvarp: 1. Sigurj. Péturss. 8,87 m. 2. Helgi Jónasson 7,55 m. Einnig var hnattkast, sem telj- ast mætti til frjálsu íþróttanna, er Sigurjón Pétursson vann með 70,84 m. kasti. 2. varð Ágúst Markússon 61,15 m. og 3. Bjarni Magnússon. Eins og sést af afrekaskránUm frá öllum þessum mótum, var geta manna á mjög lágu stigi, þegar miðað er við afreksgetu íþrótta- manna nú. En margt kemur til greina, er dregið hefir úr getunni. Menn voru ekki „við eina fjölina felldir" þá, eins og nú; sumir — eins og Sigurjón Pétursson — kepptu í flestöllum greinum mót- anna. Nú helga menn sig meira sérgreinum eða sergreinaflokkum og þroska hæfileika sína í ákveðna átt. Kunnátta og æfing var lítil sem engin, og margir komnir af því skeiði sem íþróttaþroskinn er auðsóttastur þegar þeir kynntust frjálsu íþróttunum. Ytri aðstæður til afreka voru og stundum afleit- ar; t.d.' var gamli íþróttavöllurinn alveg ný-ofaníborinn malarvöllur, þegar leikmótið var haldið 1911. Má það teljast stórfurðulegt, að 100 metra spretturinn skyldi vera hlaupinn undir 12 sek., og sýnir, að afreksgeta manna í sumum greinum hefir ekki verið öllu lakari en nú. Óefað stafaði sprett- hraði Kristins frá knattspyrn- unni. Hann var bæði Í.R.-ingur og K.R.-ingur. Það er auðvitað eink- anlega í „nýju" greinunum, sem munurinn er mestur, enda var það svo um suma keppendur, að þeir höfðu varla séð áhöldin, hvað þá fengið nokkra æfingu í notkun þeirra. Búningur keppenda var óhentugur og ófullkominn; enginn hafði þá gaddaskó og buxur náðu almennt niður fyrir hné. Undir- búningur undir kappleiki var lítill eða engin og menn æfðu fram á síðstu stundu og undu sér ekki hæfilegrar hvíldar. Og engum datt þá í hug að vera hlýtt búinn eða fá sér hitasprett á undan kappleik; það þótti heimska og eyðsla á kröftum sem þyrftu að notast til kappleiksins. Éngin stökkgryfja var á gamla íþróttavellinum til æfinga fyrr en 2—3 síðustu árin; þegar leikmót voru háð, var gryfja gerð á miðjum vellinum, sem var fyllt upp strax að loknu mótinu. Sést af þessu, að ýmsar aðstæður gerðu það að verkum, að afrekin hlutu að verða mjög léleg. Ég hefi nú í framanrituðu lýst að nokkru upphafi æfinga og kappleika íslenzkra frjálsíþrótta- manna hér á landi. Má vera, að mér séu einhver tildrög ekki nægilega kunn, en ég hefi skýrt frá þeim eftir beztu vitund, og bið afsökunar, ef rangt er með farið. Hefi ég notað til stuðnings ísl. blöð frá þessum tíma. Það sem virðist hvað mest hafa stuðlað að því að sérstök frjálsíþróttamót eru hafin, er för íslendinga á Olympíuleikana 1908; strax á næsta ári er hafizt handa, bæði norðanlands og sunnan. Sýn- ir það, að Olympíufararnir hafa orðið fyrir sterkum áhrifum á þessu sviði íþróttanna. Er það og eigi að furða, þar sem aðalþáttur Olympiuleikanna var og hefur alltaf verið frjálsu íþróttirnar. Fyrir þann vettvang sem æðsta markmið eiga íslenzkir frjáls- íþróttamenn að æfa og framtíð- arstefnumál þeirra á að vera það, að láta sig aldrei vanta á þann alþjóða-vettvang, — því Olympiu- -andinn lifir, þrátt fyrir núver- andi ófrið og Olympiu-leikarnir verða áreiðanlega teknir upp aftur að honum loknum. Árið 1912, voru Olympíuleikarn- ir háðir í Stokkhólmi snemma sumars. íslendingar sendu þangað flokk frækinna íþróttamanna. Sjá na'slu síðu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.