Tíminn - 25.06.1965, Blaðsíða 1

Tíminn - 25.06.1965, Blaðsíða 1
MANDBÓK HANDBÓK /MNCftirTARSÍMI 139. tbl. — Föstudagur 25. |úní 1965 — 49. árg. HW88 •í:- :¥:x BÍLLINN VALT OG AF HONUM ALLT Myndin hér að ofan er af tunnuflutningabíl frá Akureyri, sem hvolfdi efst á Fjarðarheiði si. miðvikudag. 240 tunnur voru á bílmim, og þeyttust þær út um allt, þegar billinn valt. Örsök slyssins var sú. að djúp hola myndaðist fyrir nokkru í veginn og mun bílstjórinn ekki hafa séð hana, fyrr en hann var svo til kominn að henni. Skipti engum tokum, að bif- reiðin valt. Engin slys urðu á mönnum og litlar sem engar skemmdir á bílnum, sem var frá Akureyri. — Ljósmynd — Hákon Aðalsteinsson. VERULEC VERÐ- HÆKKUNÁ BLAUT SÖLTUÐUM FISKI EJ—Reykjavík. miðvikudag. Mikil eftirspurn hefur undan- farin ár verið eftir blautsöltuðum fiskL og hefði verið hægt að selja talsvert meira magn af þeim fiski síðastliðið ár og á þessu ári, ef birgðir hefðu verið fyrir hendi. Veruleg verðhækkun varð einnig á blautsöltuðum salt fiski bæði í fyrra og í ár. Sagði Helgi Þórarinsson, framkvæmda stjóri Sölusambands íslenzkra fiskframleiðenda (SÍF), að í fyrra hafi verðhækkunin verið 20—30% og í ár 8—12%. í fréttatilkynníngu frá aðalfundi SÍF, sem haldinn var 18. júní, seg ir, að á árinu 1964 hafi SÍF flutt út 21.724 tonn af blautsöltuðum fiski og 1.044 tonn af þurrkuðum saltfiski. Aðalmarkaðslöndin voru Brazilía, Bretland, Grikkland, Ítalía, Spánn og Portúgal. Sala þessa árs framleiðslu hefur gengið mjög vel og er það af vertíðar- framleíðslunni. sem flutt verður úr landi blautsaltað, þegar selt Vélbáturinn Ágústa VE 350 hætt kominn við Surtlu í fyrrinótt: Sogaóist á dularfullan hátt að gosstoðvunum BÞG-Reykjavík, fimmtudag. Vélbáturinn Ágústa VE 350 var m[ög hætt kom'inn við nýju gosstöðvarnar hjá Surts- ey í nótt, þar sem hann var á veiðum. Flæktist nót báts- ins í skrúfuna og sogaðist bát- urinn síðan á lítt skiljanlegan hátt að gosstöðvunum og tók þar niðri. Fréttir af atburði þessum eru enn óljósar og hvílir yfir þeim dula. Þeir, sem í þessu lentu, verjast allra frétta, og skýrist málið sennilega ekki til fulls fyrr en við væntan- leg sjópróf. Samkvæmt upplýsingum þeim, sem Tíminn aflaði sér í kvöld hjá mörgum aðilum, varð atburðurkin með eftirfarandi hætti.: Sjómenn hafa tekið eftir því, að síld hafði þjappazt mikið saman þarna við gosstöðvarnar og hafði Ágústa farið þangað á veiðar í nótt. Var nýbúið að kasta er það óhapp varð, að nótin flæktist í skrúfu bátsins og tók hann strax að reka að Surtlu, þ.e. nýju gos- stöðvunum. Er báturinn nálgaðist eyjuna, tók að gæta mikils sogs, sem hreif bátinn með sér nær henni, þar til hann tók niðri á rifi. Var báturinn þá svo nærri, að gos- mökkurinn lék um hann. Ein- hvern veginn losnaði báturinn þó af sjálfsdáðum af rifinu og rak nú í átt að Surtsey sjálfri. Var báturinn kominn mjög nærri henni, er vélbáturinn Ófeigur 11. kom á vettvang og dró Ágústu út á frían sjó. Var þá Lóðsinn úr Vestmannaeyjum einnig komin’n til aðstoðar. Var froskmaður þar um borð, sem kafaði þegar og skar nótina úr skrúfu Ágústu, sem hélt síðan rakleiðis áfram á veið- ar. Ekki reyndist unnt að ná sam- bandi við Ágústu í kvöld og má raunar segja um alla aðra, sem Meðalaltlur vöru- og fólks■ bifreiða fer nú lækkandi EJ.-Reykjavík, fimmtudag Meðalaldur vöru- og fólksbif- reiða var nokkru lægri í árslok 1964 heldur en í árslok 1963. Sam- kvæmt skýrslum frá Hagstofunni, var meðalaldur vörubifreiða i árs- lok 1964 10.7 ár en 1963 11.0 ár, en meðalaldur almennra fólksbif- reiða 7.3 ár en árið 1963 7.6 ár. Aftur á móti er meðalaldur al- 9.8 ár, en var 1963 9.6 ár. í skýrslunni kemur i ljós, að bifreiðaeign landsmanna var um s.l. áramót 31.924 bifreiðar. Teg- undir fólksbifreiða voru 112, en tegundir vörubifreiða 109. í fyrri hópnum var Ford efstur með 12.2% en Volkswagen kom rétt á eftir með 12%. Af vörubifreið- um er Chevrolet efstur með og verður afskipunum lokið um riæstu mánaðamót. Hægt hefði verið að selja verulega meira magn af blautsöltuðum fiski síðast liðið ár og á þessu ári, ef birgðir hefðu verið fyrír hendi. Framhald á 15. síðn ISEYJAN ARLIS í 12 HLUTUM Reykjavík, fimmtudag. Eftirfarandi tilkynning barst frá Upplýsingaþjónustu Banda- ríkjanna um íseyjuna Arlis II: Þær fregnir hafa borizt af AR- LIS II, íseyjunni, sem notuð var í fjögur ár sem bækistöð vísinda- manna á N.-íshafi, að hún sé nú um það bil beint vestur af Reykja- nesi, um 80 mílur frá strönd Grænlands. Flugmenn, sem voru á flugi yfir Grænlandshafi, komu auga á jakann á 64° 14’ n br. og 39°42’ v.l. Er hann þá um 80 mílur beint suður af þorpinu Ikatek á austur- strönd Grænlands. Það fylgdi með fregn þessari, að jakinn hefði nú sundrazt í 12 minni jaka, sem þekja um tveggja fermílna svæði. voru þarna á vettvangi, að þeir verjast allra frétta. Eftir upplýsingum Tímans, hef- ur hér verið um mjög alvarlegan atburð að ræða, sem þó giftusam- lega rættist úr. Lausafregnir herma, að aðgerðir þær, sem áð- ur getur, hafi staðið yfir í 6 klukkustundir og hafi mikil spenna hvílt yfir öllu, meðan á þeim stóð, því tæpt hafi staðið um björgun bátsins. með 19.1%. 308 mótorhjól voru í eign íslendinga um áramótin af 45 gerðum. Vespan er efst með 77 hjól. 1 Bifreiðaeign landsmanna hefur aukizt um helming síðustu 10 ár- in, en mótorhjólum hefur aftur á móti fækkað. 13.365 bifreiðar eru fimm ára eða yngri, en til eru 274 bifreið- menningsbifreiða í árslok 1964 j 20.2% en Ford kemur rétt á eftir|ar, sem eru 25 ára eða eldri. Viðbótarpláss fyrir 10 báta FB-Reykjavík, fimmtudag. Miklar framkvæmdir eru nú i Reykjavíkurhöfn, og er gert ráð fyrir, að á næstu vetrarver- tíð verði komið viðlegupláss fyrir tíu báta til viðbótar við það sem nú er. Aðalfram- kvæmdirnar eru við norður- garðinn eins og er, og er þar hafin bygging á hundrað og fimmtíu metra langri bryggju, sem á að koma innan á norð- urgarðinn. Þar er búið að fylla 150 metra lengd meðfram hon- um og hálfnað að steypa stöð- múr, sem er upp við landið, en síðan verður gerð trébryggja þar framan við. Áætlað er, að þessi bryggja verði til fyrir næstu vetrarver- tíð, eða að minnsta kosti geti bátar athafnað sig þar að nokkru leyti. Þá er einnig ver- ið að enda við aðra bryggju, sem er 75 metra löng, eða 150 m viðlegupláss, sem ekki var notað á síðustu vertíð, og verði þessar tvær bryggjur komnar í notkun á vetrarvertíð. verður viðleguplássaukningin 300 metra frá því sem var á síð- ustu vertíð. Ættu að komast þarna fyrir átta til tíu bátar eftir því, hve stórir þeir eru.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.