Morgunblaðið - 30.09.1979, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.09.1979, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1979 21 „ÞAÐ er nú ekkert hægt að fullyrða enn þá um heildar- magnið, en í fljótu bragði virð- ist þó sem sumarið nú gæti orðið það þriðja til fjórða besta frá upphafi,“ sagði Einar Hannesson hjá Veiðimálastofn- uninni i samtali við Mbl., en hann var einmitt spurður um gang laxveiða i sumar. „Það á töluvert í síðasta sumar, en þá veiddust samanlagt um 80.000 laxar. Ég giska á að í sumar gæti talan náð eitthvað nálægt 66.000, þannig að hér er um 15—20% aflaminnkun að ræða. En ég undirstrika þó að hér er um lauslega áætlaðar tölur að ræða“, bætti Einar við. Sumarið sem var að líða, bauð ekki upp á bestu hugsanlegu aðstæður. Vorkuldar voru miklir og stóðu óvenjulega lengi. Lax gekk af þeim sökum seinna en venjulega mjög víða. Síðan geis- uðu þurrkar vikum saman sunn- anlands og vestan, en varla stytti upp norðanlands og aust- an. Það má því taka undir orð Einars Hannessonar: „Það er í rauninni furðulegt hve vel veidd- ist í surnar." Vesturlandið með Borgar- fjörðinn fremstan í flokki, gaf um 40% af veiðinni að þessu sinni, en hlutfallslega, miðað við fjölda. veiðivatna, komu Húna- vatnssýslurnar líklega bestar út úr sumrinu, t.d. taldi Einar að um 2200 laxar hefðu komið úr Miðfjarðará og þverám hennar og rúmlega 1900 laxar úr Víði- dalsá, sem er met úr henni. En þrátt fyrir vorkulda og þurrka, var um algert landsmet að ræða í Þverá í Borgarfirði, en Einar taldi að milli 3600 og 3700 laxar hefðu veiðst þar í sumar. Það hefur heyrst úr mörgum áttum, t.d. frá Laxá í Aðaldal og Laxá í Hreppum, að laxinn hafi verið mun smærri í sumar held- ur en venja er til og lítið sést af þeim stórlöxum sem jafnan er snarað á land úr þeim ám. Einar tjáði Mbl., að ekkert væri að svo stöddu hægt að fullyrða um mál þetta, en væri sjálfsagt mismun- andi frá einni á til annarrar. Heyrst hefur þó, að menn hafi rekið í rogastans, þegar tæplega tveggja punda tittur var dreginn úr sjálfri móðurá stórlaxanna, Laxá í Aðaldal. Einar féllst á að meira hefði borið á smálaxi nú heldur en áður. Stærsti laxinn, sem bæði Ein- ar og Mbl. höfðu haft spurnir af, var 27 punda lax sem einhver útlendingur dró í Víðidalsá. Sem fyrr segir, nefndi Einar aðeins bráðabirgðatölur, því að aðeins örfáar veiðibækur höfðu borist til stofnunarinnar. Hann nefndi svipaðar áætlunartölur úr þrem öðrum kunnum ám, Grímsá 1300—1400, Norðurá 1400—1500 og Laxá í Kjós um 1600 laxar. Veiði lauk í síðustu laxveiðián- um hinn 20. september síðastlið- inn og hinn 27. þessa mánaðar var síðustu stöðuvötnunum lok- að. Einar Benedikts- son afhendir trúnaðarbréf sittíCap Verde HINN 24. september afhenti Ein- ar Benediktsson sendiherra, Aristides Maria Pereira, forseta Cap Verde, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra tslands á Cap Verde. Stjórnmálasamband var tekið upp milli íslands og Cap Verde sumarið 1977, en þá voru liðin tvö ár frá því að eyjarnar hlutu sjálfstæði. Vegna tilmæla stjórnvalda á Cap Verde um þróunaraðstoð frá Islandi til eflingar fiskveiða dvaldist Baldvin Gíslason, skip- stjóri, á eyjunum á vegum Aðstoð- ar Islands við þróunarlöndin um 3ja vikna skeið seint á árinu 1977 og samdi ítarlega álitsgerð um málið. I lok vetrarvertíðar árið eftir kom fiskimálastjóri Cap Verde, Humberto Bettencourt, ásamt fiskiskipstjóra frá eyjun- um, hingað í vikuheimsókn til þess að kynnast af eigin raun fiskveið- um Islendinga og skyldum grein- um, þ.á m. sjómannakennslu, haf- og fiskirannsóknum, veiðarfæra- framleiðslu og ýmsum fisk- vinnsluaðferðum. Þá hefur dr. Corsino A. Fortes, sem nýlega afhenti trúnaðarbréf sem sendi- herra Cap Verde hér með búsetu í Lissabon, komið hingað til lands þrívegis á undanförnum tveimur árum vegna áhuga stjórnvalda Cap Verde á þessu máli. I för með Einari Benediktssyni, sendiherra, á Cap Verde-eyjum, eru nú þeir Árni Benediktsson, framkvæmdastjóri, sem annast þar ráðgjöf á sviði fiskvinnslu, skipulags og rekstrar, og Birgir Hermannsson, skipstjóri, er veitir leiðbeiningar um veiðiaðferðir og veiðarfæri. Jafnframt munu þeir undirbúa frekari tillögur um þró- unaraðstoð við Cap Verde, en stefnt er að því að senda héðan á næsta ári, ef fjárveiting fæst, fiskiskip með skipstjóra og vél- stjóra til veiðitilrauna og þjálfun- ar. Stofnunin Aðstoð íslands við þróunarlöndin, er sett var á fót með lögum frá Alþingi árið 1971, vinnur að málum þessum hér í samstarfi við utanríkisráðuneytið. Stjórnarformaður stofnunarinnar er Ólafur Björnsson, prófessor. Sambandi íslenskra samvinnu- félaga, hefur lagt fram skerf til þróunaraðstoðarinnar við Cap Verde með því að kosta framan- greinda ferð Árna Benediktsson- ar. U'OI.VSINCASIMINN ER: 22480 ÍHvröimblfibtíi VOIjV<^ldhiJSSinS Eins og aðrar þekktar vörur, sem miklar kröfur eru geröar til, er HUSQVARNA elda- vélin framleidd til að þjóna þér og fjölskyldu þinni í mörg ár. Þegar slíkur „heimilisvinur" er valinn þarf að hafa margt í huga. Svo sem útlit, fjöl- breytt litaval, lítinn rekstrar- kostnaö, örugga þjónustu, o.ffl. Hvað útlit snertir þá falla HUSQVARNA eldavélarnar vel að hvaöa eldhúsi sem er. Hvort sem um er aö ræða nýtísku eldhús eða eldhús eldri gerðar. Litaval er óvenju fjölbreytt. Hægt er að velja um a.m.k. fjóra liti. Sparneytni HUSQVARNA eldavélanna er ótvíræð. Aö henni stuðlar m.a. eftirfar- andi: Ofnar vel einangraðir. — Tvöfalt gler í ofnhurðum. Hröð upphitun. — Sérstök hitaelement og plötur. Með vélunum er hægt að fá þrennskonar „stjórnborö“, strax eöa síöar. „Stjórnborðinu fylgir leiðar- vísir á íslensku. Viðgerðir eru framkvæmdar á eigin verkstæöi af sér- hæfðum fagmönnum. líjl Með þessari auglýsingu vildum viö vekja athygli yöar á HUSQVARNA eldavélum og HUSQVARNA vörum yfirleitt. Við gætum líka sent yður verð- og myndalista, en sjón er sögu ríkari-Tækin getið þér séð í verzlun okkar að Suðurlandsbraut 16, Rvík. Akurvík h.f., Akureyri og hjá umboðsmönnum víða um land. GUNNAR ÁSGEIRSSON H.F. SÍMI 35200 (2\|

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.