Morgunblaðið - 07.10.1979, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 07.10.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1979 13 Að Kjarvalsstöðum Leikmyndin Kjarvalsstaðir hafa síðustu viku boðið upp á tvo merka listviðburði, annars vegar sýn- ingu á verkum nokkurra ís- lenzkra leikmyndateiknara i vestri sal, en hins vegar á göng- um hússins og er þar um að ræða sýningu á framlagi Norðurlanda til Biennalsins í Feyneyjum sumarið 1978. Hyggst ég fjalla um þessar sýningar í þessu skrifi mínu og vil strax í upphafi vekja sérstaka athygli á því, að báðum sýningunum lýkur í dag, sunnu- dag, og er hér um alltof stuttan sýningartíma að ræða. Sýning leikmyndateiknara er mjög fjölþætt, en þeir sýna allt í senn frumteikningavinnu, bún- inga og búningatillögur, grímur, líkön af leiktjöldum, mynda- styttur og svo margvíslega hluti, er tilheyra leiksýningum, t.d. gervimatvörur o.fl. Hér er þó ekki verið að rekja neina þróun heldur er stefnt að því að tína sem flest til, er þarf við gerð leikmynda, þannig að skoðand- inn fái sem gleggsta innsýn í starf leikmyndagerðarmannsins og „ramma, stíl og heildaryfir- bragð leiksýningar", svo sem stendur á fjölprentuðu blaði, er liggur frammi og þjónar sem sýningarskrá. Fjórtán leik- myndagerðarmenn eiga nafn sitt undir samantekt um eðli sýning- arinnar og er hér bæði um að ræða atvinnumenn svo og mynd- listarmenn, er tekið hafa að sér að gera eina og eina leikmynd. Ekki er hér veglega að verki staðið, og missa leikmyndar- gerðarmenn af gullnu tækifæri til að kynna listgrein sína í veglegri sýningarskrá, sem hefði í senn getað þjónað sem heimild og uppsláttarrit um eðli leik- myndagerðar. Sjálf sýningin stendur hins vegar fyfir sínu, er mjög lifandi og fjölþætt, og henni tengist að auki heil leik- mynd og lifandi leiksýning, Flugleikur Þjóðleikhússins, sem er sýndur á hverju kvöldi kl. 20.30. Þetta var skemmtileg hug- mynd, en hún þrengir óneitan- lega að sjálfri sýningunni og takmarkar hana um leið, svo það er umdeilanlegt hvort hún eigi heima þar, einnig í ljósi þess að leikurinn var sýndur á alþjóð- legu vörusyningunni nú nýlega. Sá, er kemur að kvöldi til að sjá sýninguna sjálfa, lendir því í myrkvuðum sal og eru slíkir árekstrar jafnan til ama og eiga helst ekki að eiga sér stað. — Það er fróðlegt að bera saman gjörólík vinnubrögð leik- myndateiknaranna þrátt fyrir sameiginlegt lokamark, — hver og einn velur sína sérstöku leið. Vinnubrögðin við gerð frum- drátta geta verið mjög skemmti- leg og listræn, dæmi um það er t.d. riss Magnúsar Pálssonar við leikþáttinn „Loki þó“, en þar fer hann alveg á kostum. Þá eru líkön Birgis Engilberts ákaflega myndræn og jafnframt gædd mögnuðum tjáningarkrafti. Sama má segja um líkön Stein- þórs Sigurðssonar, en þau eru ekki eins vel staðsett og koma ekki nægilega vel fram, — þau voru ólíkt áhrifameiri í Bogasal Þjóðminjasafnsins um árið. Annars var hér ekki meining- in að fara í neina samanburðar- fræði, til þess þyrfti að skrifa mjög ítarlega um sýninguna, en á því eru engin tök hér að sinni. Sýningin virkar annars þannig á mig, eins og aðstandendur henn- ar hafi verið í miklu tímahraki við uppsetningu hennar, þá koma gallar salarkynnanna meira í ljós heldur en kostir og masónit-plötur, sem eru notaðar sem bakgrunnur skissuvinnu, auka á þyngsli rýmisins. Þessi sýning sýnir berlega hina miklu þðrf, sem er á léttum, meðfær- Myndlist eftir BRAGA ÁSGEIRSSON anlegum skilrúmum á þessum stað, og ætti það að hafa algjör- an forgang að bæta úr því og það hið bráðasta. Æskilegt væri, að næst þegar leikmyndagerðarmenn halda sýningu, verði undirbúningurinn meiri og betri og helst þyrftu þeir að taka alla Kjarvalsstaði undir þá sýningu. Slíkt fyrirtæki er vel framkvæmanlegt og ætti að geta skilað drjúgum hagnaði í sjóð samtaka þeirra og verðá leikmyndagerð mikil lyftistöng, því að samanburður á vinnu- brögðum er hér miög hollur sem á öðrum sviðum. Eg hafði mikla ánægju af heimsóknum mínum á sýninguna og hefði viljað gera henni betri skil — sannast sagna þykja mér þessi skrif mín helst til snubbótt, en það er vísast í fullu samræmi við lengd sýning- artímans — og svo er einungis að þakka fyrir sig með virktum. einskorða hugtakið um of við ákveðnar stefnur og viðhorf í nútímalist. Nú hef ég mjög takmarkaða hugmynd um útlit Biennalisins, síðan hann var endurreistur, hef enga sýningu séð og ei heldur sýningarskrá, nema þá er fylgir framlagi Norðurlanda þessu sinni. En ég sá nokkra Biennala af eldri gerðinni og voru þeir mjög misjafnir en jafnan áttu nokkrar þjóðir stórathyglivert framlag, og það gerði sýningarn- ar heimsóknar virði. Þekkingarskortur minn gerir mig óhæfan um samanburðar- fræði og skal því aðeins fjallað um sýninguna að Kjarvalsstöð- um, eins og hún kemur mér fyrir sjónir og vel ég að taka þjóðirnar fyrir eftir stafrófsröð. Finnar sýna umhverfiskúlptúr eftir Olavi Lanu (f. 1925) frá Viapori í Suður-Karelíu, sem nú telst á rússneksu landsvæði. Myndir Olavi Lanu eru mjög sérkennilegar og eiga vafalítið uppruna sinn að rekja til endur- minninga frá æskuslóðunum í Karelíu, ég þykist merkja það, þótt ég hafi rétt aðeins tyllt þar tá fyrir rúmu ári. Það er eitt- hvað dulúðugt og magnað í umhverfismyndum Lanu, eitt- ■ Olavi Lanu: óraunverulegur veruleiki. Sigurður Guðmundsson: Rendez — vous. Lárus Ingólfsson og Steinþór Sigurðsson á sýningunni. Norðurlönd á Fen- eyjabiennalinum Það iðar allt af lífi í göngum Kjarvalsstaða, en þar sýna 7 listamenn myndverk sín, sem voru sameiginlegt framlag Norðurlandanna til Feneyja- biennalsins 1978. Sú stefna, sem hefur verið tekin, síðan Biennalinn var endurreistur, verður að teljast mjög heilbrigð, en hún byggist á því að sýna hið framsæknasta, sem telst að verið sé að gera á hverjum stað hverju sinni. Hér ber þó mjög að varast að hvað í bland við þjóðarsálina og ævintýrin og djúp samsemd með nátturunni. Það er eins og ég finni og þekki hið finnska um- hverfi í þessum myndum. Ljós- myndirnar þykja mér torráðn- ari, en þær eru gott tillegg við umhverfismyndirnar á gólfinu og hinar bestu þeirra búa yfir miklu áhrifamætti. Ljósmynd- irnar eru allar teknar af lista- manninum sjálfum og eru hon- um til sóma um vinnubrögð.... Það eru þrír kennarar við húsagerðardeild Listaháskólans í Kaupmannahöfn, sem standa að baki framlagi Danmerkur, — þrír, sem vinna sem einn. Þeir nefna list sína „skalakunst", — , nýja fagurfræði. Þessir menn nefnast Stig Brögger (1941), Hein Heinsen (1935) og Mogens Möller (1934). Það vantar ekki hugmyndafræði né „spekúla- sjónir" í þessa menn, en satt að segja fer þetta fyrir ofan garð og neðan hjá mér, — ennþá a.m.k.... Fulltrúi íslands er Sigurður Guðmundsson (1942) (Árnasonar frá Stóra-Hrauni). Það er skemmst frá að segja, að Sigurður blómstrar á þessari sýningu, og þessar myndir hans eru það langsamlega hrifmesta, sem hann hefur sýnt hérlendis til þessa. Sigurður virðist vera í stöðugri sókn í list sinni og hvílíkur munur er t.d. á þessum vinnubrögðum og myndum þeim, er hann sýndi í Galeríe SÚM forðum daga eða t.d. því sem Gallerí Suðurgata 7 sýnir iðu- lega eftir Pétur og Pál, innlenda sem útlenda. Listamaðurinn hlýtur að vera í fremstu röð þeirra, sem iðka hugmynda- fræðilega gjörninga á narkis- sísku sviði í Hollandi og þá jafnframt í heiminum í dag. Mynd hans „Un mobile", sem gerð er á þessu ári, er líkust þrumuskoti í bláhornið, líkt og menn orða það stundum um einstaklega vel heppnaðar myndir og eftirminnilegar.... Norðmenn hafa valið að kynna einn sérstæðasta kólorísta þeirra í málaralist í dag, Frans Widerbe(1934). Hann málar stórar myndir sem einkennast í senn af frumlitum og frum- krafti. í myndum hans bregður fyrir erfðavenju úr norskri myndlist, áhrifum frá Edvard Munch, Thorvald Erichsen o.fl. Málverk Widerbergs eru mjög kraftmikil og áhrifarík, og sting- ur framlag hans skemmtilega í stúf við allt annað á sýningunni. Hér er sterkur og tilþrifamikill málari á ferð. Framlag Svíanna eru svo þrí- víddarmyndir Lars Englunds (1933). Hann er svo sannarlega allur í þrívídd og skúlptúr, hvar sem hann ber niður, í teikning- um, lituðum myndum eða áþreif- anlegum mekkanó- móbilum sín- um. Það er mjög lærdómsríkt að fylgjast með því, hvernig Eng- lund rissar upp myndir út frá lögmálum frumformanna og kemst stöðugt að nýjum niður- stöðum, slíkt staðfestir einmitt óþrjótandi möguleika frumformanna.... — í heild hygg ég, að framlag Norðurlandanna til Biennalsins í Feneyjum hafi verið fullnægj- andi að þessu sinni, en hvort það sé hið þróttmesta og lífvænleg- asta sem gert er í framúrstefnu í hverju landi fyrir sig er annað mál. Gæði sýningarinnar komu mér mjög á óvart og ég get með góðri samvisku hvatt sem flesta til að leggja leið sína á Kjarvals- staði til að njóta þess, sem þar er að sjá. Bragi Ásgeirsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.