Morgunblaðið - 09.11.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1979
23
Haukur Gröndal fram-
kvœmdastjóri-Minning
Fæddur 3. febrúar 1912.
Dáinn 17. september 1979.
Við vegamót lífs og dauða íhug-
um við gjarnan, hvað við getum
vitað rétt um tilgang lífsins. Hvað
við eigum að meta mest í lífinu?
Hverjar leiðir eru okkur sjálfum
og öðrum til farsældar?.
„Njóttu í dag að horfa á yndis-
leik alls sem þér er lánað, þar að
morgni getur verið, að þú leggir
upp frá því og komir aldrei aftur.“
Haukur Gröndal, sem hér er
lítillega minnst, var einn þeirra
samferðamanna, sem með undra-
verðri gleði virtist fagna flestum
dögum. Það tekur nokkurn tíma
að fallast á þá staðreynd, að
maðurinn með fangið fullt af
verkefnum og áhugamálum skuli
allt í einu vera horfinn af sjónars-
viðinu fyrir aldur fram. Hér
verður að sætta sig við hið óum-
flýjanlega að „eitt sinn skal hver
deyja".
Ohs hédan klukkur kalla,
ok kallar guð oss alla
til sín úr heimi hér;
Þá söfnuð hans vér sjáum
og saman vera fáum
í húsi því, sem eilíft er.
Vald. Briem.
Haukur Gröndal var fæddur í
Reykjavík 3. febrúar 1912. For-
eldrar hans voru Benedikt Þor-
valdsson Gröndal bæjarfógetarit-
ari og skáld og Sigurlaug Guð-
mundsdóttir Gröndal. Börn þeirra
voru auk Hauks: Valborg Elísabet,
Sigurður veitingamaður og rithöf-
undur, Eiríkur bifvélavirki,
Ragnheiður, Þorvaldur rafvirki og
Ingi hljómlistarkennari. Þrjú
þessi systkini hafa látist með
stuttu millibili og eftir lifa yngstu
bræðurnir Þorvaldur og Ingi.
Haukur stundaði nám við Versl-
unarskólann í Reykjavík og lauk
þaðan prófi ungur að árum 1930.
Hann var einn af stofnendum
Tónlistarfélagsins í Reykjavík og
síðar Tónlistarskólans. Jafnframt
var hann með fyrstu nemendum
hans og lagði stund á fiðlu- og
lágfiðluleik.
Árið 1934 kvæntist Haukur Sig-
ríði Pálsdóttur, Páls Magnússonar
járnsmiðs í Reykjavík og konu
hans Guðfinnu Einarsdóttur. Hún
lést eftir barnsburð árið 1940
aðeins 27 ára að aldri. Börn þeirra
eru tvö: Páll tónlistarmaður og
skólastjóri Tónlistarskóla Hafnar-
fjarðar og Guðfinna húsmóðir í
Reykjavík.
Aðeins 28 ára var Haukur orð-
inn ekkjumaður með tvö ung börn.
Móðir hans, Sigurlaug, kom hon-
um þá til hjálpar og dvaldi síðan á
heimili hans til æviloka árið 1960.
Árið 1941 kvæntist Haukur öðru
sinni Sigríði Hafstein dóttur
Gunnars Hafstein bankastjóra í
Færeyjum og síðar í Khf. og konu
hans Níelsínu Hafstein. Sigríður
Hafstein og Haukur eignuðust
þrjá syni: Benedikt bankamaður,
Gunnar fulltrúi og Haukur fram-
kvæmdastjóri. Sigríður lést árið
1975 eftir langvarandi veikindi.
Barnabörn Hauks eru nú 11 og
barnabarnabörnin 2.
Þriðju konu sinni Súsönnu Hall-
dórsdóttur frá Vestmannaeyjum
kvæntist Haukur í desember 1978.
Þau höfðu að því leyti áþekka
lífsreynslu, að bæði höfðu misst
lífsförunauta sína. Það fór því vel
saman og nutu þau þess bæði í
ríkum mæli, þó um allt of skamma
- RTHUGIO!
Dukin uátrvggingnruernd
Viö getum nú boöiö bifreiöaeigendum aukna vernd fyrir skaöabótakröfum
meö því aö hækka upphæö ábyrgöartryggingar bifreiöa samkvæmt
eftirfarandi töflu
Hækkun úr 24 millj. í 36 millj., iögjaldiö hækkar um 4%
Hækkun úr 24 millj. í 48 millj., iögjaldiö hækkar um 6%
Hækkun úr 24 millj. í 120 millj., iögjaldiö hækkar um 10%
Vegna veröbólgunnar er þörfin fyrir hækkun vátryggingarupphæöarinnar
oröiö mjög brýn. Viö bendum á aö hægt er aö hækka upphæöina strax, ef
þér óskiö þess.
EITT SÍMTAL VIÐ TRYGGINGAFÉLAG YÐAR NÆGIR!
ALMENNAR TRYGGINGAR HF.
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS,
TRYGGING HF.
ABYRGÐ HF. umboðsfélag Ansvar International
SJÓVÁTRYGGINGARFÉLAG ÍSLANDS
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF.
stund væri. Söknuður Súsönnu er
mikill, en ylur minninganna mild-
ar. Hún var við hlið hans er hann
skyndilega kvaddi þetta líf hinn
17. september s.l. Hann var lagður
til hinstu hvílu við hlið ástvina
sinna 25. september s.l. og fáum
dögum siðar við hlið hans lítil
sonardóttir.
Haukur starfaði að námi loknu
við verslunarstörf, en réðst fljót-
lega til starfa við Smjörlíkisgerð-
ina Smára, fyrirtæki vinar síns
Ragnars Jónssonar. Árið 1946 var
Haukur gerður að framkvæmda
stjóra Afgreiðslu Smjörlíkisgerð-
anna í Reykjavík og síðar
Smjörlíkis h/f og Sólar h/f. og
starfaði þar til dauðagags. Hauk-
ur var traustur í öllum viðskiptum
og glöggur á meginatriði hvers
máls. Hann fylgdi skoðunum
sínum eftir með festu og öryggi,
en ávallt ljúfmannlega. Hann var
samvinnugóður og bar umhyggju
fyrir starfsfólki sínu. Drengileg
framkoma hans vann fyrirtækjun-
um álits og vinsælda. Áhugamál
Hauks voru mörg, þó hæst beri
áhuga hans á tólist. Til tólistar-
mála lagði hann fram mikið og
óeigingjarnt starf, sem margir
njóta góðs af um ókomna framtíð.
Til marks um hve mikils var metið
framlag Hauks til tónlistarlífs í
Reykjavík, er að Tónlistarfélagið
stóð fyrir tónleikum sem helgaðir
voru minningu hans hinn 27.
október s.l.
Ferðalöngun var honum í blóð
borin. Haukur naut þess í ríkum
mæli að ferðast, sjá og kynnast
lífi, litum og listum og miðla
öðrum af skemmtilegri reynslu
sinni og þekkingu. Lífið krafiðst
þó mikils af honum og lagði á
hann ungan þungar skyldur,
„En á bjartan orftstir aldrei tellur
umifjörftin er KÖbra drengja hjörtu“
Gr. Thomsen.
1 Klukkurnar hafa kallað Hauk
Gröndal héðan til bjartari heima
og kærkominna endurfunda þar
sem hann fær notið unaðar hinnar
miklu eilífu hljómkviðu. Það er
ljós yfir leiðum minninganna en
söknuður nánustu ættingja hans
er sár þegar slík leiðandi hönd er
hrifin svo skyndilega frá þeim. En
það er birta yfir veginum því
Haukur Gröndal hefur með lífi
sínu og starfi látið ættingjum,
vinum og samstarfsmönnum
sínum eftir traustan vegvísi og
óbrotgjarnan minnisvarða.
Bj. Ólafsson.
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU