Morgunblaðið - 22.11.1979, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 22.11.1979, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1979 Suður-írar úr leik WALES sótti ekki gull i greipar Tyrkja á Ataturk-leikvanginn í Izmir i gærdag. Leikurinn var liður í 7. riðli Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu og sigr- uðu Tyrkir með eina marki leiks- ins. í slökum leik voru Wales búar öllu ákveðnari og sterkari í fyrri hálfleik, en uppi við mark andstæðinganna rann allt út í sandinn eða öllu heldur leirinn, en það ku vera aðalefni knattspyrnu- valla í Tyrklandi. Tyrkir náðu sér betur á strik í síðari hálfleiknum og þá skoraði vinstri útherjinn, Erhan, eina mark leiksins, nánar tiltekið á 79. mínútu. Möguleikar Wales á sigri í riðlinum ruku með tapi þessu út í buskann, en Tyrkir eiga nokkra von, þó að Vestur- Þjóðverjar séu sigurstranglegast- ir. Fyrir íslendinga eru úrslit þessi athyglisverð fyrir þær sakir, að þessar þjóðir eru báðar í riðli með Islandi í undankeppninni fyrir næstu HM-keppni. I Knallspyrna) • Árni Sverrisson Haukum brýst í gegn um vörn ÍR og skorar. „Það gleymdist að segja mér frá verðbólgunni!" — segir IVIark Christensen „Peningarnir sem hér buðust voru álitlegri heldur en annars staðar sem ég hefði getað farið, en það gleymdist að segja mér frá verðbólgunni!“ sagði Mark Christensen i spjalli við Mbl. fyrir skömmu. Tilefnið var, að Mark var stigakóngur úrvals- deildarinnar í körfuknattleik á síðasta keppnistimabili og fékk þvi til eignar mjög huggulegan bikar frá Morgunblaðinu. Mark var að segja blm. frá þvi hvers vegna hann valdi ísland fram yfir aðra staði fyrir þremur árum siðan. Mbl. spurði Mark hver væri bakgrunnur hans sem körfuboltamanns. „Ég hef leikið körfuknattleik frá því að ég var 7 ára, og áður en ég kom til Islands, lék m.a. um skeið með kanadísku háskólaliði. Lék ég þar ásamt Garry Schwarz, sem nú er leikmaður og þjálfari hjá Þór, gamla félagi mínu. Þá lék ég nokkur keppnistimabil í hinni svokölluðu AAU deild, sem er umfangsmikil körfuknattleiks- deild fyrir áhugamenn. Það er geysilega sterk deild, því að marg- ir sem þar leika, eru ýmist fyrr- verandi eða upprennandi atvinnu- menn í körfu. Síðan fór ég í æfingabúðir þar sem njósnarar félaga mæta og skoða hvað í boði er. Ásamt útsendurum frá Þór, höfðu út- sendarar frá Frakklandi og Belgíu áhuga á að fá mig með sér. Þórsararnir buðu mér hins vegar betri laun heldur en hinir og eftir á sá ég ekki eftir að fara til íslands. Ég fór fljótlega að frétta af félögum mínum í Évrópu sem voru sendir heim og ýmislegt fundið til gegn þeim sem átyllur fyrir því að greiða þeim ekki umsamin laun o.fl. Á Islandi hef ég aldrei lent í slíku, hér getur maður treyst fólki." Hvers vegna skiptirðu yfir í ÍR og hvaða möguleika telur þú liðið eiga í vetur? „Ástæðan fyrir því að ég skipti yfir í IR er sú, að ég hafði verið tvo vetur hjá Þór og hafði áhuga á að breyta til. Við í ÍR eigum að mínum dómi jafn góða möguleika á því að hreppa úrvalsdeildartitil- inn og næsta lið. Valsmenn og KR verða liklega erfiðustu mótherj- arnir, en öll liðin eru fær um að skella hvert öðru. Ég tel að það lið sem stendur að lokum uppi sem sigurvegari verði með minnst 4 töp á bakinu. Ef ég ber saman ÍR og Þór, er ÍR betra lið bæði hvað snertir mannskapinn og einnig verðandi skipulag. Þórsarar lögðu ekki nægilega rækt við yngri flokkana og leikmenn meistara- flokksins voru ungir og óreyndir. Þarna voru þó ýmsir frambæri- legir, einkum Eiríkur Sigurðsson, sem er leikmaður á landsliðsmæli- kvarða." IR leikur ekki vel þessa dagana? „Nei við höfum verið slakir en samt ekki misst af lestinni. Við verðum sterkastir síðari hluta mótsins. Liðið er skipað nokkrum reyndum brýnum og nokkrum ungum leikmönnum sem eru á uppleið. Sjálfur er ég enn að venjast að leika með nýjum félög- um, við verðum sterkir þegar allt smellur saman." Hefur verið mikil framför í íslenskum körfuknattleik meðan þú hefur dvalist hérlendis? „Framför? Já, heldur betur, ég held ég megi segja að körfuboltinn sé 100 prósent betri nú heldur en þegar ég kom hingað til lands í fyrsta skiptið fyrir þremur árum. Ég held að það sé ekki nema að litlu leyti að þakka þeim straum- um sem komu með okkar erlendu þjálfurunum. Aðalástæðan er frekar sú að Islendingar eru fljótir að læra og aukinn áhugi almenn- ings krefst betri körfuknattleiks. Þar af leiðandi verða leikmenn að leggja harðar að sér til þess að áhuginn dofni ekki á ný.“ Nú leikur þú með og þjálfar hjá ÍR til vors, en hvað tekur þá við? „Það hef ég enga hugmynd um. Mér líkar sérlega vel hérlendis og ég gæti vel hugsað mér að dveljast hér áfram. En ég gæti alveg eins tekið upp á því að leita til Evrópu eða jafnvel heim til Colorado. Ég er aðeins 26 ára og á því mörg ár eftir sem íþróttamaður. Á ferli mínum hef ég stundað margar íþróttagreinar, golf, tennis, blak, hornabolta, sund, hnefaleika og bandarískan fótbolta („rúbbí"), það er nú svo, að þegar maður er á kafi í íþróttum þá eru félagarnir alltaf á eftir manni að reyna eitthvað nýtt þangað til maður finnur loks hvar maður á best heima. Segja má að áhugi minn sem íþróttamanns liggi í banda- ríska fótboltanum, en framtíðin samt í körfunni, þökk sé meiðslum sem ég hlaut sem fótboltamaður. Þegar ég hætti loks að stunda keppnisíþróttir þá reikna ég með að þreifa fyrir mér sem hljómlist- armaður. Það er aðaláhugamál mitt, ég leik á gítar og píanó og bögglast við að fremja lagasmíðar. Hvernig lög? Allan fjandann, djass, „rythm and blues" popp og eiginlega allt milli himins og jarðar. Ég á vini heima sem ég lék með áður fyrr, við héldum hljóm- leika í þá daga og ætlum að taka upp þráðinn á nýjan leik við tækifæri." — gg- • Mark Christiansen tekur við verðlaunagrip sinum úr hendi Haraldar Sveinssonar framkvæmdastjóra Árvakurs HF. Ljósm.RAX. Árni skoraði fjögur mörk í leiknum í gærkvöldi. Ljósm. Mbi.: EmiHa. Tyrkir eygja von ENGLENDINGAR þurfa ekki að sparka bolta til þess að tryggja endanlega sæti sitt i úrslitum Evrópukeppni landsliða i knattspyrnu sem fram fer á Ítalíu næsta sumar. írska lýð- veldið, eina liðið i 1. riðli, sem gat náð Englandi að stigum, sá um málið fyrir England með þvi að tapa 0—1 fyrir Norður-írum í Belfast í gærkvöldi. Lýðveldið varð að vinna tvo síðustu leiki sína með miklum mun á sama tíma og England tapaði síðustu leikjum sínum. Nú skipta ekki lengur máli úrslit leikja Englendinga. Þrátt fyrir að Lýðveldið léki án Liam Brady, hafði liðið yfirburði allan fyrri hálfleik og aðeins snilldarmark- varsla Pat Jennings kom Norður- írum til bjargar. Snemma í síðari hálfleik átti heimaliðið sinn besta leikkafla og á 54. mínútu skoraði Tottenham-leikmaðurinn Gerry Armstrong með skalla eftir fyrir- gjöf Sammy Nelson. Það reyndist vera eina mark leiksins. Undir lokin hafði lið Suður-íra náð öllum tökum á vellinum á nýjan leik og slapp mark norðanmanna naumlega þegar bjargað var á marklínu skalla Dave O’Leary. Víkingur og Fram mætast í EINN leikur fer í kvöld fram í 1.1 deild íslandsmótsins í hand- knattleik. Víkingur og Fram mætast í Laugardalshöllinni og hefst leikurinn klukkan 19.00. Leikur þessi gæti boðið upp á spennu og skemmtun. Allir vita hvers Víkingarnir eru megnugir kvöld og þó að Fram hafi aðeins hlotið eitt stig í tveimuf- fyrstu leikjum sínum, hefur liðið sýnt á köflum mjög góðan handknattleik. Nái liðið sér á strik gegn Víkingi, má því fastlega búast við hörkuleik. Þess má geta, að landsliðsþjálfar- inn Jóhann Ingi Gunnarsson verð- ur kynnir á leiknum í kvöld. Bikarkeppni SSÍ BIKARKEPPNI Sundsambands íslands 1979 verður haldin í Sundhöll Reykjavíkur sem hér Fyrsta deild: 30. nóvember kl. 20.00, 1. desember kl. 17.00, 2. desember kl. 15.00. önnur deild: 23. nóvember kl. 20.00, 24. nóvember kl. 17.00, 25. nóvember kl. 15.00. Keppnisgreinar í báðum deild- um. Föstudagur: 1. dagur. 1. grein: 400m bringusund kvenna 2. grein: 400m bringusund karla 3. grein 800m skriðsund kvenna 4. grein 800 m skriðsund karla Laugardagur: 2. dagur. 5. grein: 200m fjórsund kvenna 6. grein 200m flugsund karla 7. grein lOOm skriðsund kvenna 8. grein lOOm baksund karla 9. grein 200m bringusund kvenna 10. grein lOOm bringusund karla 11. grein lOOm flugsund kvenna 12. grein 200 m skriðsund karla 13. grein 200m baksund kvenna Hlé í 10 mínútur 14. grein : 4xl00m fjórsund karla 15. grein: 4xl00m skriðsund kvenna. Sunnudagur: 3. dagur. 16. grein: 200m fjórsund karla 17. grein: 200m flugsund kvenna 18. grein: lOOm skriðsund karla 19. grein: lOOm baksund kvenna 20. grein: 200m bringusund karla 21. grein: lOOm bringusund kvenna 22. grein: lOOm flugsund karla 23. grein: 200m skriðsund kvenna 24. grein: 200m baksund karla Hlé í 10 mínútur. 25. grein: 4xl00m fjórsund kvenna 26. grein: 4xl00m skriðsund karla I. deild: II. deild: Ármann KR. H.S.K. Í.B.K. Í.Á. Í.B.V. U.B.K. S.H. Ægir Á. Ægir B. Spjallað við verðlaunamenn Morgunblaðsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.